Helgarpósturinn - 29.05.1997, Síða 10
10
FIMIVmJDAGUR 29. MAI1997
HELCARPÓSTURINN
Útgefandi: Lesmál ehf.
Framkvæmdasljóri: Árni Björn Ómarsson
Ritstjóri: Páll Vilhjálmsson
Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf.
Fflabeinstuminn
Lýðræði hafa menningarsamfélög á Vesturlöndum
gert tilraunir með frá dögum Forn-Grikkja og haft tölu-
vert fyrir. Einn lærdóm má draga af sögunni og sá er að
lýðræði þrífst illa þegar það er ekki rætt í samhengi við
stjórnarfyrirkomulag. Ef það er ekki gert verður lýðræð-
ið framandi hugtak og merkingarlaust fyrir það þjóðfé-
lag sem á í orði kveðnu að njóta þess.
Morgunblaðinu finnst lýðræðið áhugaverðara sem
abstrakt hugmynd en lifandi veruleiki. Fyrir skömmu gaf
það út sérblað um lýðræðið sem var þýðing upp úr
breska vikuritinu Economist, en það er haft í hávegum á
ritstjórn Morgunblaðsins. Economist gerir sér far um að
segja frá því sem skiptir máli fyrir breskt samfélag og
oftar en ekki hefur það skoðun á umfjöllunarefni sínu —
rétt eins og Morgunblaðið hér heima.
Kæmist breskur dómari í þá aðstöðu að stuðnings-
samtök utan um hann hvettu til þess að fólk legði inn á
opinn bankareikning til að lækka persónulegar skuldir
dómarans er óhugsandi annað en að Economist myndi
leggja sig fram um að fjalla um málið og hafa ákveðna
skoðun á því. Economist og nánast samanlagðir fjöl-
miðlar á Vesturlöndum telja það eitt mikilvægasta hlut-
verk sitt að upplýsa almenning um gangvirki stjórnkerf-
isins og gagnrýna það þegar það starfar ekki eins og til
er ætlast í lýðræðisþjóðfélagi.
Varaforseti Hæstaréttar, Pétur Kr. Hafstein, Iagði út í
dýra kosningabaráttu þegar hann á síðasta ári sóttist
eftir kjöri til embættis forseta lýðveldisins. Meðan á
kosningabaráttunni stóð leitaði framboð Péturs til
fjölda aðila eftir fjárhagslegum stuðningi og fékk framlag
á sumum stöðum en öðrum ekki, eins og gengur. Eftir
kosningarnar var framboðið stórskuldugt og Pétur Kr.
Hafstein lýsti yfir persónulegri ábyrgð á skuldinni.
Stuðningsmenn hans opnuðu bankareikning í Lands-
banka Islands í nafni Péturs og í fjölmiðlum birtist
áskorun um að fólk léti fé af hendi rakna til framboðsins.
Framboðið leitaði einnig hófanna hjá þingi og fram-
kvæmdavaldi eftir peningalegri aðstoð.
Megineinkenni lýðræðislegra stjórnarhátta er þrí-
greining ríkisvaldsins. í því samhengi er lögð sérstök
áhersla á sjálfstæði dómstóla. Þegar rökstuddur grunur
er um að sjálfstæði dómstóla sé í hættu láta þeir vana-
lega í sér heyra sem telja sér skylt að hafa álit á mikil-
vægum álitamálum í samfélaginu. í umræðunni um van-
hæfi varaforseta Hæstaréttar er Morgunblaðið stikkfrí
og þýðir grein í erlendu vikublaði um lýðræði.
Ritstjórn Morgunblaðsins leggur sig fram um að leita
langt yfir skammt. Danska dagblaðið Jyllands-Posten
birti ítarlega frétt um málefni Péturs Kr. Hafsteins og
vitnaði meðal annars í tvo danska sérfræðinga í refsilög-
um. Báðir telja þeir að réttaröryggi sé ógnað með
óbreyttri stöðu mála. Varaforseti Hæstaréttar hafi ratað
í slíkar ógöngur með forsetaframboðinu og eftirmálum
þess að óviðunandi sé fyrir lýðræðissamfélag að horfa
upp á aðgerðarlaust. Umfjöllun danska dagblaðsins rat-
aði ekki á síður Morgunblaðsins. (
Einu sinni hæddist Morgunblaðið að Þjóðviljanum fýr-
ir að þýða frétt úr bresku dagblaði um megrunarlyf en
geta í engu aðaluppsláttarins á sömu síðu dagblaðsins
um afdrif sovésks andófsmanns. Yfirsjón Morgunblaðs-
ins er því hallærislegri að blaðið þarf ekki að skammast
sín fyrir fortíð glæpsamlegra hugmyndakerfa.
Helgarpósturinn
Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Sími: 552-2211 Bréfasími: 552-2311
Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2311,
fréttaskotið: 552-1900, tæknideild: 552-4777,
auglýsingadeild: 552-4888, símboði (augl.) 846-3332,
dreifing: 552-4999.
Netfang: hp@this.is
Áskrift kostar kr. 800 á mánuði efgreitt er með
greiðslukorti, en annars kr. 900.
Böðmóðstættur,
Ampapollur,
Brimurð...
Eg hafði konunglega
skemmtan af hinum
skrýtnasta hlut um daginn.
Ég teygði mig upp í hillu,
krækti í íslandshand-
bókina og fletti í gegn-
um örnefnaskrána.
Það er löngu vit-
að og viðurkennt
að íslenskan okk-
ar er kjarnyrt
mál og fagurt,
enda er því
óspart hamp-
að og það
verndað gegn
illum öflum
af fremsta
megni. Þeir
sem efast um
kjarnsemi ís-
lenskunnar
geta tekið upp
mína nýupp-
f u n d n u
skemmtiiðju og
sannfærst end-
anlega. íslands-
handbókin er
brandarabók fyrir
nægjusama einstak-
linga.
Eg ætlaði reyndar að
fara í gegnum skrána alla,
finna hvert eitt og einasta ör-
nefni sem hljómaði skrýtilega
og birta það hér. Ég byrjaði
eins og lög gera ráð fyrir í ainu,
færði mig yfir í áið en komst
ekki lengra en í béið:
Aðalþegnshólar, Affall, Af-
glapastígur, Afstapahraun,
Akbrautarholt, Alifiskalœkur,
Ampapollur, Andakíll, Auð-
kúla, Auðnahyma, Auðshaug-
ur.
Ánastaðastapi, Árbrandsá.
Ballará, Beilá, Bekanstaðir,
Belgsdalur, Berserkjagata,
Bjallkolla, Blágnípa, Blá-
mannshattur, Blœngur, Bolla-
tóttir, Bragðavalladalur,
Brákarey, Brimurð, Bríkár-
kvfsl, Brokey, Brunnnúpur,
Buðlungavellir, Bœgifótshöfði,
Böðmóðstœttur.
Böðmóðstættur. Böðmóðs-
tættur. Ég ætla ekki einu sinni
að reyna að geta mér þess til
hvað nafnið merkir. Örugglega
eitthvað mTkilvægt.
Ástæðan fyrir því að ég
komst ekki lengra en í béið er
sú að stafirnir byrjuðu allir að
renna saman og ég hætti að
geta lesið rétt út úr orðunum.
Eg veit ekki hvort ég er einn
um þessa áráttu, en þegar ég
leita of lengi að Jóni eða Sig-
urði í símaskránni fara stafirn-
ir að líta skrýtilega út. Þeir
tapa sérkennum sínum, eða
Davíð
Stefánsson
skrifar
öllu heldur verða sérkenni
þeirra svo sterk að þeir passa
ekki lengur í samhengi við hina
stafina.
Ég veit ekki hvort ég kem
þessu nægilega skýrt frá mér.
Þetta verður sérlega áber-
andi þegar orðunum er raðað í
lóðrétta röð, líkt og í síma-
skránni eða örnefnaskránni.
Béið í Böðmóðstættur hættir
að vera bé og verður að tákni,
formi en ekki bókstaf sem
myndar orð í félagi við aðra.
Mjög blendnar tilfinningar
fylgja í kjölfar þessa. Bæði fyll-
ist ég óhug og finnst eins og
tungumálið sé að hruni komið
frammi fyrir augunum á mér
og í sömu andrá gleðst ég yfir
því að skynja hversu þróaður
hlutur eða fyrirbæri tungumál
er. Því stafirnir okkar allir eru
jú þegar öllu er á botninn
hvolft aðeins tákn eða form
sem hafa vaxið frá því að vera
merkingarlaus yfir í að geta
túlkað á fjölmarga vegu flókn-
ustu tilfinningar mannskepn-
unnar.
Og það finnst mér nú bara
helvíti merkilegt.
Ég tek því sanna bókmennta-
1 e g a
afstöðu í
málinu og blæs
á að furður veraldar
séu Týndi apamaðurinn, Krist-
alshauskúpurnar, Loch Ness-
skrímslið, Stonehenge, Rockl-
Nú stendur yfir söguþing
í Reykjavík þar sem inn-
lendir og erlendir sagn-
fræðingar bera saman
bækur sínar. Ein þeirra
bóka sem áreiðanlega
mun bera á góma er
Menntun, ást og sorg ís-
lenskra sveitamanna eft-
ir Sigurð Gylfa Magnús-
son sagnfræðing. 1 rit-
inu er veitt innsýn í
hugmyndaheim ís-
lenskra alþýðumanna
um síðustu aldamót.
Aðalheimildir höfund-
ar eru persónuleg
gögn, dagbækur,
einkabréf og fleira,
tveggja sjálfmennt-
aðra bræðra, Níelsar
og Halldórs Jóns-
sona, frá Tindum við
Steingrímsfjörð.
ey Down-hesturinn, Uffington-
hesturinn, Dóninn frá Cerne,
fljúgandi furðuhlutir eða urð-
armánar.
Hinar sönnu furður ver-
aldar felast ekki í urðar-
mánanum sjálfum, þær
leynast í fylgsnum tung-
unnar; þeirri stað-
reynd að fyrirbæri
sem enginn veit
hvað er skuli hljóta
svo hljómþýtt og
fagurt nafn.
„Hinar
sönnu
furður
veraldar
felast ekki í
urðarmánan-
um sjálfum,
þær leynast í
fylgsnum tungunn-
ar; þeirri staðreynd
að fyrirbæri sem
enginn veit hvað er
skuli hljóta svo
hljómþýtt og
fagurt nafn.“
Frá lesendum
■ María hringdi til að gera at-
hugasemd við frétt á bls. 2 í
síðasta tölublaði um hóp
spænskra bankastjóra sem
voru á ferð hér fyrir skömmu.
Af fréttinni mátti skilja að frí-
múrarareglan Opus dei væri
tengd kaþólsku kirkjunni. Mar-
ía sagði ekkert hæft í því, þótt
margir kaþólikkar væru í regl-
unni.
■ íþróttaáhugamaður hafði
samband til að koma á fram-
færi gagnrýni á notkun gælu-
nafna knattspyrnumanna á
íþróttasíðum HP. Áhugamað-
urinn taldi það vonda manna-
siði að nota gælunöfn — jafn-
vel þó að íþróttafréttamaður-
inn þekkti knattaspyrnumenn-
ina persónulega.
■ í annað sinn á stuttum tíma
hringdi maður sem sagðist
ætla að kæra geðlækninn sinn
fyrir kynferðislegt áreiti.
■ Fyrirspurn barst blaðinu um
það hvort ekki yrði fjallað
bráðlega um stærsta kvótaeig-
anda íslands, Eimskip, sem
fyrirspyrjandi fullyrti að væri
stærsti einstaki eigandi að
auðlind þjóðarinnar í krafti
eignarhalds síns í fjölmörgum
sjávarútvegsfyrirtækjum.
■ Kona kvartaði yfir því að
blaðið segði ekkert frá fyrir-
huguðum hernaðaræfingum á
Suðurlandi.