Helgarpósturinn - 29.05.1997, Qupperneq 15
RMIVmJDAGUR 29. MAÍ1997
15
wmmmmmmi^mtL
„Gallinn er bara sá
að frá leiklistar-
sögulegu sjónar-
horni er ekkert nýtt
í þessu verki og afar
fátt sem kemur á
óvart. Tónlistin er
þó þar á meðal og
engu lík sem Atli
Heimir hefur áður
sent frá sér, en hún
kemur leikhúsi ekk-
ert við sem slík.“
Tunglskinseyjan
Ópera eftirAtla Heimi Sveinsson vii
texta Siguröar Páissonar.
Stjórnandi: Guömundur Emilsson.
Búningar: Þórunn Pálsdóttir. Lýsing:
Björn B. Guömundsson. Leikstjóri:
Kristín Jóhannesdóttir. Söngvarar: Sig-
ný Sæmundsdóttir, Loftur Erlingsson,
Ingveldur G. Ólafsdóttir. Hljómsveit:
Guöný Guömundsdóttir, Ragnhildur
Pétursdóttir, Junah Chung, Gunnar
Kvaran, Reynir Sigurösson og Mikiós
Dalmay.
Pað er ekki á hverjum
degi sem við verðum
vitni að frumsýningu ís-
lenskra óperuverka og þess
vegna kom mér verulega á
óvart hversu þunnt setinn
bekkurinn var í Þjóðleikhús-
inu síðastliðinn miðvikudag.
Tónlistarformið sem slíkt á
nefnilega tryggan áhorfenda-
skara, sem löngum fyllir hús
hjá íslensku óperunni. Þetta
verk Atla Heimis og Sigurð-
ar Pálssonar hefði þess
vegna átt að draga stóran
skara í Þjóðleikhúsið, sér í
lagi þar sem það hafði þegar
unnið sér til frægðar að vera
frumsýnt í höfuðborg Kína-
veldis. Þessi frægð var strax
staðfest á forsíðu sýningar-
bæklings, sem skartaði bæði
kínversku letri og enskum
texta fyrir utan skuggamynd
af evrópsku miðaldavirki
böðuðu tunglsljósi og jafnvel
norðurljósum. Það má því
vera ljóst að höfundarnir
ætla verkið til útflutnings
og/eða alþjóðlegrar út-
breiðslu. Atli Heimir segir í
sýningarskrá ekki bara um
að ræða nýtt verk af sinni
hálfu heldur sé hér á ferð „...
ný tegund leikhúss: sam-
bíand af leikhúsi, sem höfðar
til augans, og kammertón-
leikum, sem höfða til heyrn-
ar.“ Gallinn er bara sá að frá
leiklistarsögulegu sjónar-
horni er ekkert nýtt í þessu
verki og afar fátt sem kemur
á óvart. Tónlistin er þó þar á
meðal og engu lík sem Atli
Heimir hefur áður sent frá
sér, en hún kemur leikhúsi
ekkert við sem slík. Þetta er
„nakin“ og „einföld“ tónlist
utan um litla og einfalda
sögu, sem að mest-
um hluta gerist við
Breiðafjörð en er í
sjálfu sér byggð á
klassísku forskrift-
inni — strákur hittir
stelpu, strákur miss-
ir stelpuna, strákur
fær stelpuna aftur.
En nekt þessarar tón-
listar er frekar frá-
hrindandi og kaliar
miklu fremur fram í
huga mér myndir af
stríðshrjáðu fólki og
hungursneyð en eld-
heitum ástarbríma
við Breiðafjörð. Text-
inn samanstendur að
mestu af náttúrulýs-
ingum, þar sem hafið
leikur aðalhlutverk,
og tímalýsingum, þar sem
heimspeicilegt vandamál
tímaskynsins víxlverkandi
kemst á flug ellegar brotlend-
ir í fallegu merkingarlausu
orðskrúði. Sviðsetningin er í
anda alis þessa afar þung-
lamaleg og statísk. Fallegir
en yfirþyrmandi búningar
gera söngvurunum (leikur-
unum) nánast ómögulegt að
hreyfa sig nema til að beygja
sig í hnjánum, sem þeir gera
reyndar alloft. Og þessi lang-
dregna kyrrð á sviðinu og
bið eftir músíkinni léttist lítið
þó svo textahöfundurinn líði
um sviðið fram og til baka
líkt og ballettdansari, sem þó
má ekki dansa. Engu að síður
er tónlistin afar vel flutt og
söngvararnir skila sínu vel
nema hvað textinn komst
ekki alltaf alla leið. En
kannski liggja í þessu verki
möguleikar, einhverjir vinkl-
ar og sjónarhorn, sem vinna
mætti úr þannig að auga og
eyra séu nokkurn veginn inn-
stillt á sama verkefnið. Stórt
leiksviðið er þó að öllum lík-
indum ekki rétt umgjörð fyrir
þetta verk. Miklu heldur vildi
ég sjá Kristínu leikstjóra
vinna þetta verk gegnum
kvikmyndalinsuna þar sem
brotakennd uppbygging
þess yrði styrkur en ekki
dragbítur og þar sem nær-
myndin gæti borið kyrrðina
og tímapælingar textahöf-
undar fengið aðsetur eða í
það minnsta einhverja við-
miðun. En eins og sakir
standa er of mikið gert úr of
litlu og þessi Tunglskinseyja
er álíka hætt komin og Kol-
beinsey ef ekkert verður að
gert.
/’TIGEk
LA“j W' _í|
LiHtfSIE Mt). MU
I \ rj
•siffr | UStVAH
Stiga
rafmagnsorf 450W
Stiga Turbo
sláttuvéi
með grashirðipoka
Góð fyrir heimili
Stiga
rafmagns-
limgerðisklippur
360W
Stiga
mosatætari
325W
VETRARSOL
Stiga Bio-Chip
kurlari 1400W
Stiga Tornado
sláttuvél með drifi
Fyrir sumarbústaða-
eigendur, bæjarfélög
og stofnanir
Stiga EL33
rafmagns- Stiga Garden
sláttuvél 1000W aksturssláttuvél
Fyrir litla garða Einstök fyrir
sumarbústaðaeigendur
og stofnanir.
Sölustaðir um allt land
HAMRABORG 1-3, NORÐANMEGIN • KÓPAVOGI • SÍMI 564 1864 • FAX 564 1894
Það tekur aðeins
einn virkan dag...
...að koma póstinum
þínum til skila
PÓSTUR OG SÍMI HF