Helgarpósturinn - 29.05.1997, Síða 18
18
Urvalsdeildin
/
íþróttir
Sigurdur Ágústsson
skrifar
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1997
Pað virðist hafa komið mörgum
á óvart hve vel Keflvíkingar
hafa plumað sig í byrjun sumars.
Keflvíkingar þekkja betur baslið á
botninum en næðinginn á toppn-
um. Það er auðvitað ekki útséð um
hvernig liðinu gengur í næstu leikj-
um en liðið er geysisamstillt og að
því er virðist erfitt að buga það.
Járnkarlinn úr Eyjum, Kjartan Más-
son, á talsvert í þessu liði. Hann
þjálfaði liðið í fyrra og tefldi djarft. í
stað þess að púkka upp á gamla
jálka setti hann traust sitt á unga og
bráðefnilega stráka, sem brugðust
honum ekki. Margt hefur verið ritað
um Kjartan, þann skrautlega þjálf-
ara, en hvað sem hver segir þá ef-
ast fáir um hæfni hans til að ná ár-
angri með sín lið. Flestir knatt-
spyrnuáhugamenn geta tekið undir
að hans afrek var hvað mest í fyrra.
Forðaðist fall.
Oddssoninn bestur í fyrra og
góður núna
Knattspyrnumenn landsins út-
nefndu Gunnar Oddsson (þáver-
andi fyrirliða Leifturs) besta leik-
Gunnar Oddsson hefur veríð einn jafn-
besti leikmaður landsins undanfarin
tvö ár, er ekki kominn tími til að
landsliðið njóti krafta hans?
mann íslandsmótsins í fyrra. Þá
þegar hafði honum verið hampað
sem slíkum á síðum þessa blaðs.
Þrátt fyrir útnefningu leikmanna
sjálfra hlaut Gunnar ekki náð fyrir
augum landsliðsþjálfarans Loga Ól-
afssonar, en það hlýtur að vera
einsdæmi að besti maður mótsins
sé ekki í landsliðsklassa. Eru þá all-
ir þeir sem spila með „stórliðum"
erlendis — og segjast undantekn-
ingalítið hafa átt stórleik þegar
fréttamenn hringja í þá — endilega
betri en þeir sem spila á klakanum?
Gunnar lét þetta lítið á sig fá og
sagðist skilja þá ákvörðun lands-
liðsþjálfarans að velja sér yngri
menn. Hann væri þó klár ef í sig
yrði hóað. Það er spurning hvort
ekki veiti af að hafa jafn vinnusam-
an og yfirferðarmikinn leikmann og
Gunnar í liðinu.
Oddssoninn, eins og hann er
gjarnan nefndur, tók að sér, ásamt
Sigurði Björgvinssyni, að þjálfa iið
Keflvíkinga í sumar og afraksturinn
hingað til er ekkert slor. Menn
spyrja sig hvernig standi á þessu og
eins og alltaf er ekki til neitt eitt al-
gilt svar. Áður hefur verið rakið
hvernig ungu mönnunum í liðinu
hefur verið treyst og hvernig þeir
hafa höndlað þá ábyrgð.
Heimamenn
Eina af ástæðum velgengninnar
rekja menn til þess að liðið skipa
nær eingöngu heimamenn, í það
minnsta Suðurnesjamenn. Ef ég
man rétt þá er Eysteinn Hauksson
undantekningin, en hann er frá Eg-
ilsstöðum. Eysteinn er mjög góður
miðjumaður og fær þá einkunn hjá
hinum bráðefnilega Hauki Inga að
hann standi einna fremst allra
íþróttamanna. Víst er að Eysteinn
er góður knattspyrnumaður og á
köflum trúlofaður fótboltanum svo
að suma óar við, en hitt vita færri
að „Nostone" er geysihæfileikamik-
ill söngvari, minnir um margt á
kvennagullið frá Wales, Tom Jones,
og lætur ljós sitt skína með reglu-
legu millibili í sturtu.
I Keflavík, eins og Rúni Júl., fót-
boltakappi númer 1, kýs að kalla
byggðina, hefur tekið sig upp göm-
ul leikgleði sem aðdáendur liðsins
vonast til að fleyti því langt.
Hvað gera Guðni Rúnar og félagar?
Frammarar umkringdir óvinveittum aðdáend-
um fá það óþvegið fyrir norðan
Kefivíkingar verða að standa undir nafni og
sigra í Borgarnesi.
Skaginn tapar varla fyrir Stjörnunni.
Einhverra hluta vegna hafa Valsarar iðulega
haft gott tak á KR-ingum.
Ekki er allt sem sýnist í boitanum. Hvað halda menn að hér sé að gerast? Er þetta brot eða hvað?
Andy Möllerar íslendinga
Hingað til hafa verið fisk-
aðar tvær vítaspyrnur. Lista-
mennirnir sem léku ímynduð
brot eða ýktu um fleiri
hundruð og fimmtíu prósent
hafast ólíkt að. Helgi Sig-
urðsson, sem enn á eftir að
setja mark sitt á deildina,
fiskaði víti gegn Skaganum
en skoraði ekki. Fletti maður
upp orðinu ofleikur í orða-
bók væri sjálfsagt að finna
þar mynd af Helga. Ekki fæst
betur séð á myndbandi en
Þórður hafi mögulega snert
Helga, en Helgi hefði auð-
veldlega getað staðið og
væntanlega skorað. Þess í
stað ákvað hann að fleygja
sér flötum og fiska víti. (Mað-
ur spyr sig hví Þórður var
ekki rekinn út af fyrst Card-
aklija var rekinn út af í Borg-
arnesi á dögunum, en það er
önnur saga og greinilega
snúnari samkvæmt Guð-
mundi Stefáni, dómara leikj-
anna.)
Á þessu atviki hefur Helgi
ekki beðið nokkurn mann af-
sökunar og stefnir ekki að
því samkvæmt heimildum
HP.
Kollegi hans í Eyjaliðinu,
sem heldur betur er á skot-
skónum í ár, gerði sig sekan
um enn alvarlegra brot er
hann fleygði sér flötum í víta-
teig Skagamanna án nokkurr-
ar snertingar varnarmanns.
Þórður sá við honum eins og
Helga, en það er ekki málið.
Fisk og ekki fisk. Tryggvi
sendi frá sér afsökunar-
beiðni í kjölfarið á þessu og
bað hlutaðeigandi afsökunar
á sínum eigin misgjörðum. í
vikunni var pistill í Moggan-
um um einmitt þetta og
Tryggva Guðmundssyni
hrósað fyrir að senda frá sér
umrædda afsökunarbeiðni.
Gott og vel. Greinarhöfundur
taldi að með þessu ætti mál-
ið að falla niður, allt væri fall-
ið í ljúfa löð.
Ekki alls fyrir löngu kom
upp svipað mál í Þýskalandi.
Andy Möller, margreyndur
landsliðsmaður, heimsmeist-
ari o.s.frv., gerði sig sekan
um að leika brot og fá víti.
Upp komst um pilt með hjálp
sjónvarpsmyndavéla og
kappinn var settur í átta
leikja bann, hvorki meira né
minna. Andy Möller þótti
þetta „leiðinlegt" og bað alla
hlutaðeigandi afsökunar.
Hálfgrátandi af iðrun kom
hann fram í sjónvarpi og
beiddist ásjár. Allt kom fyrir
ekki og hann fékk bannið
langa.
Spurningin er sú hvort það
nægi að segja að sér finnist
þetta leiðinlegt eða hvort
einhver önnur refsing á að
koma til. Auðvitað má ekki
gleyma því að Bundesligan
er atvinnumannadeild en hér
er hálfatvinnumennska í
mörgum liðum. Hver sem
niðurstaða dómbærra
manna verður og/eða er þá
hlýtur markmiðið að vera að
útrýma svona hátterni, ann-
ars verður háttalag Tryggva
„Cruise" öðrum til eftir-
breytni.
Valb j amarvöllur
heimaiföllur Leifturs?
Olafsfirðingar eru ekki
jafn hamingjusamir og
aðrir íslendingar um þessar
mundir. Liðinu vegnaði ekki
eins vel og bjartsýnustu
menn vonuðu til að byrja
með en svo sprakk liðið út
gegn Val. Margir Ólafsfirð-
ingar, sem finnst einum of
mikið fyrirtæki að elta liðið
hvert á land sem er, eru
svekktir yfir að sjá ekki liðið
sitt spila fyrr en 18. júní á
heimavelli. Liðið ætti raunar
að eiga heimaleik í kvöld
gegn Fram, en verður að
leika á Dalvík, við lítinn fögn-
uð heimamanna sem telja að
KSÍ hafi þvingað þá til að
spila í öðru bæjarfélagi.
Hinu má ekki gleyma að það
er ekki endalaust hægt að
draga taum Ólafsfirðinga,
menn ráða jú búsetu sinni
sjálfir. Ólafsfirðingar báðu
Frammara að skipta á
heimaleik, en það besta sem
Frammarar buðu var að láta
Valbjarnarvöllinn eftir sem
heimavöll Leifturs. Það
þætti nú saga til næsta bæj-
ar ef Skaginn spilaði í Borg-
arnesi. Leikmenn Leifturs
hafa undanfarið gert sitt til
að koma vellinum í leikhæft
ástand, mokað (snjó), sáð
og borið á, mælt út o.þ.h., en
ekki. haft erindi sem erfiði.
Því verður úrvalsdeildarleik-
ur á Dalvík í kvöld, fyrr en
Dalvíkingar áttu sjálfir von á,
en þeir segjast verða þar á
næsta ári.
Lengjupeningurinn til
krabbameinssjúkra
Fyrir að skora þrjú mörk í
leik í deildinni fá menn 100
þúsund krónur frá Lengju-
mönnum. Það er nokkuð
misjafnt eftir liðum hvað er
gert í þessum tilfellum. Bi-
bercic bauð Skagaleikmönn-
um og konum þeirra út að
borða, en mörg félög hafa
þann hátt á að þeir peningar
sem koma inn frá Lengjunni
fara í pott og svo er slegið
upp skemmtilegri grillveislu.
Norðanmenn hafa ákveðið
að gera annað og þarfara við
peningana, ætla að leggja
góðu málefni lið. Lengjupen-
ingurinn sem kemur í hlut
leikmanna Leifturs í sumar
rennur til samtaka for-
eldra krabbameins-
sjúkra barna. Gott
framtak.
Lazo í þristinn
Talan þrír virð-
ist vera happa-
tala Lazoriks,
hann er iðulega
besti maður
þriðju umferð-
arinnar og
skorar þá þrjú
mörk. Það er
s p u r n i n g
hvort hann spilar ekki fram-
vegis í þristinum. Fram til
þessa höfðu honum verið
mislagðir fætur, en með
auknu sjálfstrausti ætti hann
að styrkja liðið. Það er þó
best að minnast þess að
Lazo var sterkur í fyrstu
þremur umferðunum í fyrra
og svo
ekki
söguna
meir.
Hann
hrein-
lega
hvarf.