Helgarpósturinn - 29.05.1997, Side 24
HELGARPÓSTURINN
29. MAÍ 1997 21. TBL. 4. ÁRG. VERÐ 250 KR.
kki var annars að vænta en að Ragnar Hall legðist gegn
endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála. Það er nánast
hans hlutverk sem setts ríkissaksóknara. Ragnar lenti þó í
vissum erfiðleikum við að rökstyðja þetta álit þar sem ákvæði í
lögum styðja augljóslega endurupptöku málanna. Settur ríkis-
saksóknari þurfti því að grípa til þess ráðs að lýsa
því yfir að lög um endurupptöku væru alltof rúm og
fara fram á að lögin yrðu túlkuð mjög þröngt. Þetta
samsvarar því nokkurn veginn að settur saksóknari
færi fram á það við Alþingi að það lögfesti að Guð-
mundar- og Geirfinnsmál mætti aldrei taka upp...
ótel Cabin við Borgartún hefur nú verið opið og tekið á
móti gestum I rúman hálfan mánuð en raunar án tilskilinna
leyfa. Byggingarnefnd frestaði enn á fundi sínum þann 7. maí
að afgreiða umsókn Jóns Ó. Ragnarssonar um að öll herbergi
við útvegg í húsinu mættu vera tveggja manna. Teikningar sem
fylgdu með umsókninni voru taldar ófullnægjandi. Leyfisleysið
virðist þó sem sagt ekki há starfseminni...
Hrafn Gunnlaugsson má býggja anddyri úr
timbri og verandir við hús sitt í Laugarnesinu.
Byggingarnefnd Reykjavíkur féllst á beiðni Hrafns
um þetta á fundi sínum nýlega en setti þó það skil-
yrði að Hrafn fjarlægði gám og skúra af lóðinni
ásamt afgangsbyggingarefni og jafnaði lóðina. Þessu á að vera
lokið innan þrjátíu daga frá því að nýja anddyrið verður fokhelt.
Það fylgir reyndar ekki sögunni hvað gerist ef gámurinn og
skúrarnir verða enn á lóðinni eftir þessa þrjátíu daga. Kannski
byggingarnefndin ætli þá að mæta á staðinn og byrja að rífa...
Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott.
Þetta gamla máltæki var reyndar nærri því að
sannast í leik íslendinga og Norðmanna á heims-
meistaramótinu í handbolta. Lengi vel horfði T sigur
Norðmanna og norski sjónvarpsmaðurinn sem lýsti
leiknum var svo ánægður með sitt lið og „slaka" frammistöðu
íslendinga að hann lofaði íslendingum ótakmárkaðri veiði í
Smugunni ef þeir héldu svona áfram. „Strákarnir okkar" létu
þetta hins.vegar sem vind um eyru þjóta og unnu leikinn. Þar
meö klúðruðu þeir sem sagt tækifæri okkar til að ná hagstæð-
um samningum um Smuguveiðar. Nú bíða menn spenntir eftir
viðbrögðum Kristjáns Ragnarssonar, formanns LÍÚ.
Svanfríður Jónasdóttir hefur vakið athygli fjöl-
miðla með yfirlýsingum sínum um að hlutverki
Þjóðvaka sé lokið. Jóhanna Sigurðardóttir hefur
ekki viljað taka undir þetta og segir að hlutverki
Þjóðvaka Ijúki ekki fyrr en með sameiningu jafnað-
armanna í einn flokk. Sjálf hefur hún einnig þver-
tekið fyrir að vera á leið í Alþýðuflokkinn aftur. Al-
þýðubandalagið kæmi ekkert síðurtil greina, segir
Jóhanna. Kunnugir telja að yfirlýsing Svanfríðar
helgist að nokkru leyti af því að hún þurfi fljótlega
að fara að huga að þingsetu sinni eftir næstu
kosningar og vilji vera komin í Alþýðuflokkinn tím-
anlega fýrir væntanleg átök við Sigbjöm Gunnars-
son um efsta sætið á N-eystra...
Istjórn Kísiliðjunnar í Mývatnssveit eru menn
þessa dagana sagðir hálfslegnir eftir brotthvarf Bjama
Bjamasonar framkvæmdastjóra, sem á mánudaginn var ráð-
inn framkvæmdastjóri Járnblendifélagsins í stað Jóns Sigurðs-
sonar. Ráðningu Bjarna bar brátt að því honum mun ekki hafa
verið boðið starfið fýrr en á sunnudaginn, daginn áður en geng-
ið var frá ráðningunni. Bjarni hafði þá sérstöðu sem fram-
kvæmdastjóri að vera ekki viðskiptafræðingur. Menntun hans
er á sviði jarðfræði og námaverkfræði og er sögð hafa nýst afar
vel í starfi. Erjafnvel talað um að næsti framkvæmdastjóri
veröi ekki valinn úr hópi viðskiptafræðinga, enda segja menn
að nú þegar starfi ágætlega færir bókhaldarar á skrifstofunni.
Menn verða hins vegar að hafa hraöar hendur við að finna eftir-
mann Bjarna, semtekurvið Járnblendinu 15. júlí...
Mikil leynd hefur hvílt yfir því hvaða verkefni verður fyrir val-
inu hjá Leikfélagi íslands í sumar. Forsvarsmennirnir hafa
varist allra frétta fram undir þetta en nú er komið á hreint að LÍ
sýnir „Veðmálið" eftir bandaríska höfundinn Mark Medoff
sem er sagt vera „leikrit með tóndæmum". Þessi höfundur er
sennilega þekktastur hér á landi fýrir leikrit sitt
„Hvenær kemurðu aftur, rauðhærði riddari?" sem
Nemendaleikhúsið og síðar Leikfélag Akureyrar
sýndu við feikilegar vinsældir fyrir fáeinum árum.
Leikstjóri verður að sjálfsögðu Magnús Geir Þórð-
íurson og eins og viö nefndum í síðustu viku verð-
ur sýnt í Loftkastalanum...
pylsur
Pylsa m/rækjusalati
Pylsa m/kartö#lusalati
Pylsa m/lauksalati
Frönsk pylsa
-þorir þú að prófa?
Sumartilraunirtakast, aðrar mistakast. Nú er
Ijóst að tilraunin sem gerð var með Bjórkjall-
arann í Kringlunni mistókst. Bjórkjallarinn, sem
er í eigu Tómasar Tómassonar, þess hins sama
og hamborgarar voru lengi kenndir
við hérlendis, var opinn í síðasta
sinn um helgina, - a.m.k. í bili.
Þarna var boðið upp á 200 bjórteg-
undir auk bjórs sem bruggaður var á
staðnum. Opinberlega heitir það svo
aö staðurinn sé lokaður vegna breytinga en
sannleikurinn mun hins vegar sá að aðsóknin
hefur einfaldlega ekki veriö nógu góð og þannig
alveg óvíst um framhaldið...
Ekkert skal til sparað að árangur íslendinga í
Japan verði sem glæsilegastur og sigrarnir
sem flestir. Nú skortir jafnvel ekki peninga. Eim-
skipafélag íslands ætlar að greiða 15 þúsund
krónur fyrir hvert mark gegn Ungverjum í dag og
200 þúsund krónur að auki fyrir sigur. Tuttugu
mörk og sigur þýðir sem sagt hálfa milljón. Heil
milljón er hins vegar fjarlægt markmið. Til að ná
þeirri tölu þyrftu Geir Sveinsson og félagar að
vinna sigur og skora 54 mörk. Leikurinn við Ung-
verja verður sýndur beint klukkan níu og ef vel
tekst til verður hann örugglega endursýndur í dag
eða kvöld. Ef við töpum gæti hins vegar allt eins
fariö svo að við fengjum að sjá leikinn gegn
Norðmönnum einu sinni enn. Hann var ágætur...