Alþýðublaðið - 11.01.1971, Síða 3
Rússneskir i
Egyptalandi
□ Alitið er, aS sovezki her-
inn hafi smám saman, svo lítið
beri á, sent herráðsforingja til
Egyptalands og tugir rúss-
neskra hershöfðingja er álit-
inn vera í þjcnustu lijá
egypzka hernum. í Tel Aviv
er einnig álitið, að þessir for-
ingjar hafi komið á fót eigin
aðalstöðvum, að nokkru leyti
háðar stjórninni í Moskvu, og
séu færir um, að grípa til að-
gerða upp á eigin spýtur, án
þess að ráðfæra sig við yfir-
menn sína heimafyrir.
Þessi starfsemi gerir Rúss-
um kieift að grípa til sneggri
aðgerða í npyðartilfellum og
minnkar einnig hættuna á
símalilerunum á línunni milli
Kaíró og Moskvu.
Engin staðfesting er fáan-
leg inn nýjan liðsstyi-k til
þeirra hersveita, sem staðsett
ar eru í Egyptalandi. Talið er
að fjöldi þeirra sé 13.000
manns í Egyptalandi auk 3000
manna, sem eru innan 50 km
markanna við Súez-skurðinn.
En nálægð mikils fjölda her-
ráðsforingja bendir eirtnig til,
að Rússar hafi í Egyptaland.i
alla nauðsynlega hluti til þess
að geta tekið yfir stórar her-
deildir, sem gæti verið flogið
til Egyptalands frá Sovétríkj-
unum innan fárra klukku-
stunda (og myndu, eí' nauðsyn
kræfi nota sov7éz,k hernaðar-
tæki, sem að nafninu til er
eign Egypta).
Sérfræðingar í Tel . Aviy
benda á, að engar stærri
ingar hafi orðið, heldur miklu
fremur stöðug síunarþróun
samfara staðsetningu sovézkra
herskipa á Miðjarðarhafi.
Úr The Jerusalem Post).
Mest atvinnuleysi
hjá verkakonum
O 1233 menn voru skráðir at-
vinnulausir um s. 1. áramót á öllu
landinu. í kaupstöðum 686, ten í
kauptúnum '547. Á sama tíma í
íyrra voru á skrá 1114. Hæst er
tala atvinnulausra á Siglufirði,
eins og í fyrra, en (þá voru at-
vinnulausir tþar í árslok 235. Næst
kemur svo Reykjavík með 114 eða
12 fleiri en í fyrra.
Mest atvinnuileysi er ihjá Verka-
konum og iðnvierkakonum. í kaup
slöðum landsins voru 273 verka-
konur á skró í árslok en í kaup-
túnunum 212. —•
□ Samtök kvikmyndagagnrýn-
end’a í Bandaríkjunum útntefndu
í gær atnerísku kvikmyndina
„Mash“ sem beztu kvikmyndina
sem gerð var á árinu 1970.
Þétta er í fyrsta skipti, sem
amerísk mynd hefur unnið tit-
ilinn síðan samtökin voru stofn-
uð árið 1966. Sænski kvik-
myndaleikstjórinn Ingmár Berg
man var kosinm bezti leikstjór-
inn fyrir myndina „Passioneni.“
t
JARÐARFÖR
RAGNARS HÁKONS JÓNSSONAR
NESVEGl 37
er andaðist 3. janúar, fer fram.frá Fossv.ogiskirkj,u. þriðju-
daginn 12. þ.m. kl. 1,30 e.h. — Blóm vinsamlega
afjþökkuð, en þeim sem minnast vitja þess .
iátna er bent á líknarsbofnanir.
Fyrir 'hönd systkina og annarna vandamanna.
HILMAR JÓNSSON
SEÐLABAHKI ÍSLANDS VILL HÉR MEÐ
VEKJA ATHYGLI Á AUGLÝSINGU SiNNI
15. JANÚAR 1970. SV0HLJÓÐANDI:
Samkvæmt reglugerð nr. 286 tró 24. nóvember 1969, sem s'ett er meS heimild í
lögum nr. 22 fró 23. opríl 1968, hefur viðskiptaróðuneytið að tillögu Seðlabanka
[slands ókveðið innköllun nokkurra eldri peningaseðla. Þessir peningaseðlar eru:
a. Allir 5, 10, 50, 100 og 500 krónu
seðlar Landsbanka fslands, sem gefn-
ir voru út samkvæmt heimild í lög-
um nr. 10 fró 15. apríl 1928, og
settir í umferð frá ársbyrjun 1948.
Myndir (forhlið) og lýsing aðalein-
kenna seðlanna:
STÆRÐ: 121 X 71 mm. MYNDIR: Jón
Eiríksson (forhlið), LandsbankahúsiS,
Reykjavik (bakhlið), AÐALLITUR:
Grænn.
STÆRÐ: 121x71 mm. MYNDIR: Jón
Sigurðsson (forhlið), Gullfoss (bak-
STÆRÐ: 136x85 mm. MYNDIR: Jón
Eiríksson (forhlið), Vestmannaeyja-
höfn (bakhíið). AÐALLITUR: Grænn.
Jón Sigurðsson (forhlið), Gaukshöfði í
Þjórsárdal (bakhlið). AÐALLITÚR:
Blór.
STÆRÐ: 151x100 mm. MYNDIR:
Jón Sigurðsson (forhlið), frá Þing-
völlum (bakhlið), AÐALLITUR: Ljos-
brúnn.
b. Állir 5 og 10 krónu seðlar Lands-
banka íslanás, Seðlabankans, sem
gefnir voru út samkvæmt heimild í
lögum nr. 63 frá 21. júní 1957
Myndir (forhlið) og lýsing aðalein-
kenna seðlanna:
STÆRÐ: 110x70 mm. MYNDIR:
Stytt'a Ingólfs Arnarsonar (forhlið),
Bessastaðir (bakhlið). AÐALLITIR: J
Rauðbrúnn (forhlið), grár (bakhlið),
fjöllitaívaf báðum megin.
STÆRÐ: 130x70 mm. MYNDIR: Jón
Eiríksson (forhlið), Reykjavíkurhöfn
(bakhlið). AÐALLITIR: Brúnn (for-
hlið), grá-grænn (bakhlið), fjöllitaívaf
bóðum megin.
c,10 krónu seðill Seðlabanka fslands,
sem gefinn var út samkvæmt heimild
í lögum nr. 10 frá 29. marz 1961.
Mynd (forhlið) og lýsing aðalein-
kenna seðilsins:
STÆRÐ: 130x70 mm. MYNDIR: Jón
Eiriksson (forhlið), Reykjavíkurhöfn
(bakhíið). ADALLITIR: Brúnn (for-
hlið), grá-grænn (bakhlið), fjöllitaívaf
báðum megin.
Frestur til að afhenda otangreinda
peningaseðla til innlausnar er 12 mán-
uðir frá birtingu auglýsingar þessarar.
Allir bankar og sparisjóðir eru skyld-
ugir að taka við peningaseðlunum og
láta i staðinn peninga, sem ekki á að
innkalla, til loka frestsins, sem er hinn
15. janúar 1971.
Peningaseðlarnir, sem innkalla á, eru
lögmætur gjaldmiðill í lögskiptum manna
til loka innköllunarfrestsins, en hætta að
vera það hinn 15. janúar 1971.
Seðlabanka fslands er þó skylt að inn
leysa ofangreinda perringaseðla eigi
skemur en í 12 mánuði eftir lok frestsins.
Reykjavík, 15. jánúar 1970.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
....................................l‘T’
MÁNUDAGUR 11, JANÚAR 1971 &