Alþýðublaðið - 11.03.1972, Blaðsíða 14
ENGAH
VlNGJt
VEUDR
★ Aprílsnjór og
æskusorg
★ Heimsendir á
næstu grösum
★ Snilld og mannvit
sem eru að drepa
okkur
★ Taka hvalirnir við?
APRILSNJÖR, en samt er
marsbyrjun enn. Fölið sem
þakti jörðina á fimmtudags-
morguninn var eiginlega april
snjór, grænleitir balar gægðust
upp úr grámanum. Um
aprilsnjó er það sagt að hann sé
eins og æskusorgir, taki fljótt
upp, og þá er eins og aldrei hafi
verið neinn snjór, aldrei hafi
verið nein sorg.
ÞEIR fræða okkur um það
visindamennirnir að snjórinn sé
heitari norðuundan en vanalega
og gera má þvi ráð fyrir að ekki
vori illa þótt senniiega komi
illskusöm hret áður en sumar-
bliðan hefst fyrir alvöru. Þannig
virðist Páll vinur minn Berg-
þórsson ekki ætla að verða
sannspármeðhafisinn þetta vor
þvi ekki man ég betur en hann
teldi liklegt að sá armi gestur
yrði hér við land i nokkra
mánuði.
EF VORIÐ er gott eru
allir hlutir góðir á
íslandi. Þetta er gamalt sjónar-
mið. Þá var allt 'miðað við að
tóra fram á vorið, þvi með nýju
vori byrjaði nýtt ár með nýrri
von um góðan afla til lands og
sjávar. Mér er ekki grunlaust
um að þetta sitji enn i landanum
þótt i rauninni sé gott veður oft
meira til skemmtunar en gagns
i dag. Svo mjög hefur mannlifið
og skilyrði þess breytzt.
ÞAÐ er alltaf verið að spá
heimsendi. Nú eru trúar-
postular meira að segja ekki
einir um þá hitu, visindamenn
eru komnir með i spilið, og þeir
eru ekki lakajú postular en
aörir. Það liggur i augum uppi
að ekki er hægt að halda áfram
eins og hingað til. Við getum
ekki haldið áfram að spilla jörð-
inni og sóa hráefnum eins og
ábyrgðarlausir krakkar. En
þannig höfum við hagað okkur i
heila öld eða lengur, sérstak-
lega þó siðustu tvo áratugi.
EN ÞÖTT illa færi deyr
mannkynið varla út. Nokkrir
tóra og byrja einu sinni enn að
nýju. Fyrir tveimur áratugum
þegar mest var talað um
kjarnorkustyrjóld og eyðingu
mar.nkynsins i henni töldu
vísindamenn að nokkrir mundu
lifa af og aðlagast nýjum skil-
yrðum. Þannig mun sennilega
alltaf verða. Kannski hefur
mannkynið eytt sjálfu sér ein
hvern tima áður? Kannski eru
sagnirnar um furðuleg para-
disarriki i fortiðinni ekki alveg
úr lausu lofti gripnar?
EN SAMTIMIS þvi sem við
horfum upp á það að mennirnir
eru að eyða sjálfum sér eða
útrýma þeim skilyrðum sem
þeir sjálfir þurfa nauðsynlegast
— tölum við feimnislaust um
það „mannvit” og „snilli” sem
einmitt er að drepa okkur alla.
Ja, sér er nú hver snilldin og
mannvitið! Er nú ekki kominn
timi til að endurskoða hug-
myndir okkar um þetta tvennt?
Er ekki kominn timi til að
athuga hvort sú vizka sem
kemur fram i að geta lifað
árekstralitið við umhverfi sitt
sé ekki einna merkilegasta
vizkan?
ÞVt EF við ekki gerum það
er hætt við að hvalirnir taki við
forustunni af manninum i sam-
félagi lifveranna á jörðinni.
Sigvaldi
Þegjandi
ganga þorskar
i ála.
FIS
tslenzkur málsháttur.
Sjávarútvegsmál
og togveiðar
Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar efnir til almenns fundar um
SJAVARÚTVEGSMAL OG TOGVEIÐAR miðvikudaginn 8.
marz n.k. i Alþýðuhúsinu I Hafnarfirði og hefst fundurinn kl.
20,30.
Fundarefni:
1. Sýnd kvikmynd um veiðar skuttogara.
2. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, flytur
erindi.
framsögu-
Ahugafólki um sjávarútvegsmál er bent á þetta tækifæri tii
þess að kynnast horfum i togveiðum og rekstri skuttogara.
Fundurinn er öllum opinn.
t dag er laugardagur 11. marz,
71. dagur ársins 1972. Ardegishá-
flæði i Reykjavík kl. 03,19. Sið-
dcgisháflæði kl. 15,55. Sóiarupp-
rás kl. 08.00. Sólarlag kl. 9,17.
APÓTEK
Kvöld- og helgidaga varzla i
apótekum Reykjavikur vikuna 4.
marz til 11. marz er i höndum
Ingólfsapðteks og Laugarness-
apóteks. Kvöldvörzlunni lýkur kl.
11, en þá hefst næturvarzlan i
Stórholti 1.
LÆKNAR
Læknastofur eru lokaðar á
laugardögum, nema læknastofan
að Klapparstig 25, sem er opin
milli 9-12 simar 11680 og 11360.
Við vitjanabeiðnum er tekið hjá
kvöld og helgidaga vakt, simi
21230.
Læknavakt i Hafnarfirði og
Garðahrcppi: Upplýsingar i lög-
regluvarðstofunni i sima 50181 og
slökkvistöðinni í sima 51100, hefst
hvern virkan dag kl. 17 og stendur
til kl. 8 að morgni. Um helgar frá
13 á laugardegi til kl. 8 á mánu-
dagsmorgni. Simi 21230.
Sjúkrabifreiðar fyrir Reykja-
vik og Kópavog cru i sima 11100.
Mænusóttarbólusetning fyrir
fullorðna fer fram i Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur, á inánudög-
um kl. 17-19. Gengið inn frá
Barónsstig yfir brúna.
Tannlækna vakt er i Heilsu-
verndarstöðinni, þar sem slysa-
varðstofan var, og er opin laugar-
daga og sunnudaga kl. 5-6 e.h.
Simi 22411.
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustuna i borginni eru
gefnar i simsvara læknafélags
Reykjavikur, simi 18888.
FÉLÖG
A—A SAMTÖKIN.
Viðtaistimi alia virka daga kl.
18.00 til 19.00 i sima 1-63-73.
Otvarp
LAUGARDAGUR ll.marz
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar,
Tilkynningar.
12.25. Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Óskalög sjúklinga.
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
14.30. Viðsjá. Haraldur
Ólafsson dagskrárstjóri
flytur þáttinn.
15.00 Fréttir
15.15 Stanz. Jón Gauti og Arni
Ólafur Lárusson stjórna
þætti um umferðarmál og
kynna létt lög.
15.55. tslenzt máL Endurtek-
inn þáttur dr. Jakobs
Aðalfundur
Afengisvarnanefndar kvenna i
Reykjavik og Hafnarfirði verður
haldinn á þriðjudaginn 14. þ.m.
kl. 8.30 siðd. að Frikirkjuvegi 11
Stjórnin.
Kvenfélag Óháða safnaðarins.
Aðalfundur félagsins verður
sunnudaginn 12. marz kl. 3 i Kirk-
jubæ.
Frá Guðspekifélaginu.
t kvöld kl. 21 flytur Baldur
Bjarnason erindi eftir J. Khristna
Murti. Gestir velkomnir. Stúkan
Baldur.
Kvenfélag Laugarnessóknar
býður eldra fólki i sókninni til
skemmtunar og kaffidrykkju i
Laugarnesskóla sunnudaginn 12.
marz klukkan 3, e.h. Nefndin.
Benediktssonar frá s.l.
mánudegi.
16.15 Veðurfregnir.Barna
tími. 16.45. Barnalög
17.40 Úr myndabók
náttúrunnar. Ingimar
Óskarsson náttúrufræðingur
talar um alparósir.
18.00 Söngvar i léttum tón
Franski söngvarinn Charles
Aznavour syngur.
18.25. Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 t sjóhending. Sveinn
Sæmundsson talar á ný við
Brynjólf Jónsson og nú um
Halaveðrið og ýmsa merka
togaramenn.
SKIPIN
Skipadeild StS
Arnarfell fór I gær frá Akureyri
til Rotterdam og Hull Jökulfel!
lestar á Austfjörðum, Disarfell er
væntanlcgt til Reyðarfjarðar frá
Lubeck 14. þ.m., Helgafell er á
leið til Reykjavikur frá Svenborg,
Mælifell er i Gufunesi, Skaftafell
er i Borgarnesi, Hvassafeii er i
Gdynia, fer þaðan til Heröya,
Stapafeli fór i fyrradag frá
Iiafnarfirði til Rotterdam, Litla-
fell kom til Faxaflóa I gær.
Skipaútgerð ríkisins.
Esja er i Reykjavik, Hekía er
áAus>tfjarðahöfnum á norður leiö.
Herjólfur kom I morgun til Vest-
mannaeyja frá Reykjavik,
Baldur fór i gærkvöldi frá Reyk-
javik áleiðis til Snæfellsness- oe
i Breiðafjarðarhafna.
20.00 Hljómplöturabb.
17.00 Fréttir. A nótum æskunn-
ar. Pétur Steingrimsson og
Andrea Jónsdóttir kynna
nýjustu dægurlögin.
21.15. Sitthvað i hjali og
hljómum. Knútur R.
Magnússon flytur þátt um
tónskáldið Arthur Benja-
min.
21.40 óvisinjdalegt spjall um
annað land. Örnólfur Arna-
son flytur fjórða pistil sinn
frá Spáni.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (35).
22.25 Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárslok.
Laugadagur 11. marz.
16.30 Slim John.Enskukennsla
i sjónvarpi. 16. þáttur.
16.45 En franeais. Frönsku-
kennsla i sjónvarpi. 28. þátt-
ur. Umsjón Vigdis Finn-
bogadóttir.
17.30 Enska knattspyrnan.
Úrsiitaleikur i bikarkeppni
ensku deildanna. Chelsea-
Stoke City.
18.15 lþróttir. Landsleikur i
knattspyrnu milli ttala og
Grikkja, og siðari hluti golf-
keppni milli Jack Nicklaus
og Sam Snead.
Umsjónarmaður Ómar
Ragnarsson.
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Skýjum ofar. Brezkur
gamanmyndaflokkur um
TyUSú' -EP AÍ4.fURBd‘-tiÓ5J
M ALi'ic.j — li/válT riNiN‘5r)
i /
INI
A
ÓAA’ANJ /\p' v iT-rt,
:lVÍ3v-j 'zíaiNA
Hólvi .*v cR 'Yív ~'hA
tvær flugfreyjur og ævintýri
þeirra. Berti frændi á biðils-
buxunum. Þýðandi Kristrún
Þórðardóttir.
20.50 Vitið þér enn? Spur-
ningaþáttur i umsjá Barða
Friðrikssonar. Keppendur:
Séra Agúst Sigurðsson og
Eirikur Eiriksson frá Dag-
verðargerði i Hróastungu.
21.25 Nýjasata tækni og vis-
indi. Umsjónarmaður
örnólfur Thorlacius.
21.55 Kærleikur. Ungversk
biómynd frá árinu 1970.
Leikstjóri Kárloy Makk.
Aðalhlutverk Lili Darvas,
Mari Turocsik og Ivan
Darvas. Þýðandi Heba
Júliusdóttir. Myndin
greinir frá aldraðri konu,
sem liggur rúmföst.
Tengdadóttir hennar heim-
sækir hana iðulega og færir
henni fréttir af syninum*
sem ekki á hægt um vik að
heimsækja móður sina.
23.20 Daeskrárlok.
o
Laugardagur n. marz 1972