Alþýðublaðið - 25.04.1972, Blaðsíða 9
|»'. . ,3L
$£ áí^ ''i
fMMlTIR 2
FIMM
NÝIR í
OLYMPÍU
ÆFINGAR
Landsliösnefndin i hand-
knattleik valdi um helgina 5
leikmenn til viðbótar i æfinga-
hópinn fyrir Ólympiuleikana.
Þessir menn eru Guðjón
Magnússon og Einar Magnús-
son úr Vikingi, Sigurður
Einarsson og Þorsteinn
Björnsson úr Fram og Bjarni
Jónsson úr Val.
Ekki er ljóst hvort Bjarni
hefur tök á þvi að æfa með
hópnum, en likur eru taldar á
þvi að hinir fjórir ætli sér að
vera með. Æfingahópurinn
verður þvi að likindum 18
manns, þvi Axel Axelsson er
ennþá meiddur og Jón Hjalta-
lin við nám erlendis. Jón mun
hafa lýst þvi yfir að hann sé
fús til þess aö æfa með
hópnum í hálfan mánuð fyrir
leikana.
Æfingarnar eru að hefjast
þessa dagana og eru þær undir
stjórn Hilmars Björnssonar.
ALLS STAÐAR
Fimleikameistaramót Islands
verður háð miðvikudagskvöldið
26. april og föstudagskvöldið 28.
april n.k. i Laugardalshöllinni og
hefst bæði kvöldin kl. 20.00.
A miðvikudagskvöld verður
keppt i skylduæfingum karla og
kvenna.
Stúlkurnar keppa i gólfæfing-
um, sláaræfingum og stökki á
hesti. Það verða 8 stúlkur, sem
taka þátt i keppninni að þessu
sinni, 6 frá Ármanni og 2 frá
Stjörnunni i Garðahreppi.
Piltarnir keppa i gólfæfingum,
stökki á langhesti, æfingum i
hringjum, á tvislá, svifrá og
hesti.
Það verða 11 piltar, sem keppa
á mótinu 5 frá Ármanni og 6 frá
K.R.
Á föstudagskvöld kl. 20.00 verð-
ur siðan keppt i frjálsum æfingum
karla og kvenna i öllum framan-
greindum greinum.
Lögð eru saman stig i hverri
grein i skylduæfingum og frjáls-
um æfingum og sá sem flest stig
hlýtur i hverri grein er Islands-
meistari i henni. Fimleikameist-
arar verði þau, sem flest stig
hljóta samanlagt.
Tveir lyftingamenn, þeir Guð-
mundur Sigurðsson og Óskar
Sigurpálsson úr Armanni taka
þátt i Evrópumeistaramótinu i
lyftingum sem fram fer I
Rúmeniu um miðjan næsta
mánuð. Með þeim fer einn
fararstjóri.
Um helgina lauk heims-
meistarakeppninni i isknattleik,
og sigruðu Tékkar i þetta sinn,
eftir hörkubaráttu við Rússa.
Keppnin fór fram i
Tékkóslóvakiu, og var gleði
heimamanna mikil eins og
vænta mátti. Þess má geta, að
Rússar hafa orðið heims
meistarar i siðustuio skipti.
UMFS verður að hliða þeim
örlögum að leika i 2. deild i
körfuknattleik næsta ár. Þrátt
fyrir hetjulega baráttu tókst lið-
inu ekki að sigra HSK i siðasta
Ástráður Gunnarsson IBK og Hörður Jóhannesson
baráttu, en hér leikur Hörður með knöttinn.
ÍA háðu oft harða
Mynd: Friðþjófur.
HAUKAR SKRUHI OVÆNI
Fjórir leikir fóru fram i knatt-
spyrnunni um helgina. Óvæntustu
úrslitin urðu i leik Hauka og
Breiðabliks, en þar sigruðu
Haukarnis óvænt 3:1. Leikurinn
var liður i litlu bikarkeppninni.
Þá komu FH-ingar einnig á óvart
ÞAUURDU
MEISTARAR
Úrslit liggja nú fyrir i öllum •
flokkum Islandsmótsins i hand-
knattleik. Eftirtöld félög urðu
meistarar:
Mfl. karla; Fram
Mfl. kvenna: Valur.
1. fl. karla: Vikingur
2. fl. karla: FH
3. fl karla: FH
4, fl karla: Þróttur.
1. fl. kvenna: Valur
2. fl. kvenna Armann
3. H. kvenna: Valur
Úrslit einstakra leikja verða
birt siðar ásamt myndum af
sigurliðunum.
með þvi að gera jafntefli við
landsliðið 2:2. Upphaflega átti
landsliðið að fara til Vestmann-
eyja, en þoka var svo mikil i Eyj-
um, að ekki sást milli húsa.
KR sigraði Þrótt á laugardag-
inn i Reykjavikurmótinu 2:0
Mörk KR gerðu þeir Arni Steins-
son og Gunnar Gunnarsson, og
var mark Gunnars sérlega fall-
egt. Heldur var leikur liðanna til-
þrifalitill.
Keflvikingar sigruðu Akurnes-
inga i Litlu-bikarkeppninni, en
leikurinn fór fram á Akranesi á
laugardag. Það var Eyleifur Haf-
steinsson, sem skoraði fyrsta
mark leiksins á 13. min. eftir góða
sendingu frá Haraldi Sturlaugs-
syni. Jón ólafur jafnaði fyrir IBK
á 18. min. eftir sendingu frá Ólafi
Júliussyni og Steinar marka-
kóngur Jóhannsson skoraði úr-
slitamarkið á 25. min.
Akurnesingar voru betri aðilinn
i þessum leik og hefðu verðskuld-
að bæði stigin, en mörkin sem
þeir fengu á sig voru mjög ódýr.
Teitur Þórðarson, Eyleifur og
Jón Gunnlaugsson voru beztir hjá
Akurnesingum, en Einar
KNATTSPYRNAN
UM HELGINA
Gunnarsson, Guðni og Jón Ólafur
hjá IBK.
Akurnesingar unnu Keflvikinga
1 leik varaliðanna með 2-1.
Litla-bikarkeppnin er nú hhlfn-
uð og er staðan sú, að Keflviking-
ar og Akurnesingar hafa hlotið 4.
stig, en Hafnfirðingar og Kópa-
vogur 2. stig.
leik sínum i mótinu. Bæði KR og
1R unnu sina leiki og mætast um
næstu helgi. UMFN kemur upp 1
1. deild á nýjan leik.
Úrslit leikja um helgina urðu
sem hér segir. 1. deild:
UMFS—IS 76:70
Armann—Þór 80:69
KR—Þór 105:73
HSK—UMFS 76:74
ÍR-IS 91:64
2. deild
UMFN—Snæfell Nánar á morgun. 71:39
Hlaupgarpurinn Jim Ryan
hljóp ensku miluna á 3,57,1
minútum á móti um helgina, og
bendir það til þess að hann sé nú
að ná sér á strik.
VIÐ MEGUM
BARA VERA
ANÆGÐIR. ..
„Miðað við allar aðstæður, þá
heíd ég að við megum vera nokk-
uð ánægðir”, sagði Valgeir
Ársælsson formaður HSl i gær,
þegar iþróttasiðan innti hann eft-
ir þvi hvernig honum litist á riðil-
inn sem Island sendir lendir i á
Ólympiuleikunum i Munchen.
Og við fyrstu sýn virðist svo, að
heppnin hafi verið með okkur i
þetta sinn, enda þótt þung og erfið
þraut verði að komast áfram i
milliriðil. Erfiðustu keppinaut-
arnir verða Austur—Þýzkaland
og Tékkóslóvakia, en reikna
verður með sigri yfir Túnis, enda
þótt litið sé um getu þeirra vitað.
Tvö lið úr hverjum riðli komast
áfram i milliriðla, en fyrirkomu-
lagið á Ólympiuleikunum verður
það sama og i undankeppninni.
Austur—Þjóðverja eiga tvimæla-
laust á að skipa sterkasta liðinu i
riðlinum, svo búast má við að
keppnin um annað sætið standi
milli Islands og Tékkóslóvakiu.
Landslið okkar hefur yfirleitt
staðið sig vel i baráttu við Tékk-
ana, þótt sigrarnir séu ekki
margir að státa af. Við höfum að-
eins mætt Tékkum einu sinni er-
lendis, á HM 1961 þegar okkar lið
kom mjög á óvart með þvi að
gera jafntefli 15:15. Siðan leikum
við næst við þá heima 1967 hér
heima, og töpum 19:19 og 14:18. 1
ársbyrjun 1969 leikum við þá aft-
ur hér heima, og töpum 17:21 og
12:13. I vetur unnum við svo
Tékkana eins og mörgum er enn
i fersku minni.
Riðlaskiptingin verður annars
eins og hér segir: A—riðill: Dan-
mörk, Sviðþjóð, Rússland og Pól-
land. B—riðill: Austur—Þýzka-
land, Tékkóslóvakia, Island og
Túnis. C—riðill: Rúmenia,
Vestur—Þýzkaland, Noregur og
Spánn. D—riðill: Júgóslavia,
Ungverjaland, Japan og USA.
ROSKUN A REYKJA-
VÍKURMÚTINU
BIRGIR TEKUR EKKI AÐ SER FH
Birgir Björnsson hefur komið
að máli við iþróttasiðuna vegna
skrifa sem birtust i þættinum ,,í
hreinskilni sagt” á laugardaginn.
I þættinum var þvi haldið fram,
að Birgir hafi tekið að sér þjálfun
FH fyrir næsta keppnistimabil.
Birgir kvað þetta alrangt. Þetta
hefði að visu komið til tals, en um
enga formlega ráðningu væri að
ræða, enda hefði Einar Mathiesen
formaður handknattleiksdeildar
FH dvalið erlendis að undan-
förnu.
Iþróttasiðan taldi sig hafa mjög
áreiðanlegar heimildir fyrir
fregninni, en svo reyndist ekki
vera þegar til kom. Biður hún
Birgi og aðra hlutaðeigandi vel-
virðingar á mistökunum.
Alls 10 cic Kolla
Vegna landsliðsæfinganna 1
kanttspyrnu verður veruleg
röskun á Reykjavikurmótinu I
knattspyrnu. Af þeim sökum
þykir rétt að birta leikskrána upp
á nýtt. I kvöld fer fram einn
mikilvægur leikur, Fram og
Vikingur keppa klukkan 20. Allir
leikirnir fara fram á Mela-
vellinum.
Þriðjud. 25.aprfl. Fram-Vík. kl.
20.
Miðvikud. 26.april. Valur-KR kl.
20
Föstud. 28.aprll. Vik.-Þróttur kl.
20
Laugard. 29.april. Valur-Arm. kl
14.
Þriðjud. 2.mai. KR-Fram kl. 20
Miðvikud. 3.mai. Vik-Valur kl 20
Fimmtud. 4.mai. Arm.-KR kl. 21
Laugard. 6.mai. Þróttur-Fram kl.
14.
Þriðjud. 9.mai. Fram-Arm. kl. 20.
Miðvikud. lO.mai. Þróttur-Valur
kl 20
Fimmtud. ll.mai. KR-Vik. kl. 14.
Laugard. 13.mai. Valur-Fram kl.
14.
VIÐ ERUM BUIN AD FA NYTT SIMANUMER. ÞAÐ ER 8-66-66
Þriðjudagur 25. apríl 1972