Alþýðublaðið - 30.05.1972, Blaðsíða 6
m ■ 1 m - Æ
% jBwMk
v £ { ir
“ Vffgm dHT ií /*> 1 1 frjPHi $
cl • i >v &
Tvær brasilískar bregða sér hingað á hátíðina
Listahátíð í Reykjavtk 1972 hefst nú eft-
ir tæpa viku, á sunnudaginn kemur, og
stendur i 10 daga. Á þessum tíma verður
margt að sjá og heyra viðsvegar um
borgina í flestum helztu samkomuhúsum
og sýningarsölum, alla dagana.
Þessi hátíð er einkanlega hugsuð fyrir
íslendinga þó hún sé að visu um leið hin
prýðilegasta landkynning. Nokkuð hefur
líka verið um, að útlendingar pöntuðu
miða á hin ýmsu atriði: talsvert hefur
borizt af pöntunum frá Bretlandi og svo
nokkuð frá Bandaríkjunum, en það fólk
virðist þó helzt vera viðdvalar farþegar.
þe. ætlar að stanza daglangt og sjá og
heyra það sem það kemst yfir á lista-
hátíðinni. Þá er von á tveimur kven-
mönnum alla leið frá Brazilíu. Sem dæmi
um þá athygli, sem hátíðin hefur vakið
erlendis má geta þess, að Paris Match
verður hér með mann eða menn, svo og
ýms önnur erlend blöð.
Kostnaður af Listahátíð er áætlaður um
15 milljónir króna, en miðaverð í algjöru
lágmarki, enda vekur það furðu þeirra
útlendinga, sem hingað ætla að koma.
Á öll sýningaratriði þar sem erlendir
listamenn koma fram var fyrir helgi búið
að taka frá allt að helming aðgöngumiða
og stundum betur. Þá var uppselt á Steins
Steinars dagskrána.
Áður en við snúum okkur að því að at-
huga hvað gerist á hátíðinni má kannski
geta þess sérstaklega, að Sögusinfónía
Jóns Leifs verður nú færð upp eins og
hún leggur sig í fyrsta skipti í ein 20 ár.
Það er í frásögur færandi, að auk venju-
legra hljóðfæra fá menn þarna að heyra
hljóðið i fornaldarlúðrum, skjöldum,
steðjum og steinum af ýmsum stærðum.
„ÆÐISGENGNASTA KLAPP
ÁRSINS” YAR SAGT EFTIR
FRUMRAUN ANDRÉ WATTS
Á Listahátið koma fram margir
þekktir listamenn, innlendir og
erlendir, leikarar, söngvarar og
hljóðfæraleikarar, auk þess sem
allmargir myndlistarmenn mjög
þekktir hér á landi, og er þvi
ástæða til að kynna stuttlega þá
sem okkur tókst að afla upplýs-
inga um i siðustu viku.
bess skal getið, að hygmyndin
er að kynna lika að minnsta kosti
hina yngri islenzku listamenn
sem fram koma, og það sem þeir
hafa fram að færa á hátiðinni, á
næstu dögum (svo framarlega
sem hægt verður að ná tali af
þeim öllum, þvi vitaskuld hafa
þeir óskaplega mikið að gera ein-
mitt þessa dagana).
John Shirley-Quirk
Brezki söngvarinn John
Shirley-Quirk er talinn i fremstu
röð baritónsöngvara nútimans og
mjög eftirsóttur af helztu hljóm-
sveitum veraldar og stærri tón-
listarfélögum. Hann vákti fyrst
heimsathygli þegar hann söng
með „English Opera Group”, þar
sem hann söng aðalhlutverkin i
kirkjuóperum Brittens, og nú
vinnur Britten að smiði óperu,
sem er beinlinis samin fyrir John
Shirley-Quirk og á að frumfíytja
að ári.
Ariö 1969 hóf hann að syngja
með skozku óperunni og söng þar
m.a. Don Alfonso i Cosi fan tutte.
t>á hefur hann sungið i sjónvarpi
á Bretlandi i Billy Budd og
Eugene Onegin, sömuleiðis söng
hann i Owen Wingrave, óperunni
sem Britten samdi að beiðni BBC
og var sjónvarpað samtimis um
alla Evrópu.
Nýlega söng John Shirley-Quirk
i h-mollmessu Bachs með
Chicaco sinfóniuhljómsveitinni,
og með sömu hljómsveit söng
hann i War Requiem eftir Britten.
1 San Fransisco söng hann Des
Knaben Wunderhorn, og með
Ormandy Filadelfiuhljómsveit-
inni söng hann i Mattheusar-
passiu Bachs. Hann syngur einnig
reglulega i Madrid, Stokkhólmi,
Berlin, Munchen og Vin.
John Williams
John Williams er rúmlega
þritugur Ástraliumaður, og
byrjaði að leika á gitar sjö ára
gamall.
Þegar fjölskyldan fluttist til
Lundúna árið 1952 kynntist hann
spænska gitarsnillingnum Sego-
via og sótti tima hjá honum.
Samkvæmt meðmælum hans
hlaut Williams fimm ára styrk
við Accademia Musicale
Chigiana di Siena á ttaliu. og þar
hélt hann siöar fyrstu einleiks-
tónleikana, sem haídnir hafa ver-
ið af námsmanni við þann skóla.
Þegar hann kom til Englands aft-
ur stundaði hann framhaldsnám
við Royal College of Music og
lagði stund á tónfræði og pianó-
leik jafnframt gitarnum.
„Gitarinn hefur eignazt prins i
tónlistarheiminum” skrifaði
Segovia eftir fyrstu tónleika
Williams árið 1958. Arið 1960 hélt
hann tónleika i Paris og Madrid,
og með þessu var frægðarferill
hans hafinn.
Siðan hefur Williams farið i
tónleikaferðir til Sovétrikjanna,
Japan og Bandarikjanna, en
þangað hefur hann siðan farið i
reglulegar tónleikaferðir. Hann
hefur leikið óhemjumikið inn á
plötur, þ.á.m. alla gitarkonserta.
En Williams heldur sig ekki
eingöngu við klassikina, hann
hefur m.a. oft leikið fyrir Ronnie
Scott’s Jazz Club.
Þá má nefna.að mörg tónskáld
hafa samið fyrir Williams þ.á.m.
spænska tónskáldið Torroba.
Stephen Dodgson samdi
„Partita” fyrir hann, og fyrir
skömmu frumflutti hann Gitar-
konsert eftir André Previn með
London Symphony Orche^tra,
undir stjórn höfundar.
André Watts
André Watts vakti fyrst heims-
athygli i febrúar 1963, þegar hann
var á sautjánda ári, og það var
Leonard Bernstein sem kynnti
hann fyrir sjónvarpsáhorfendum
á Tónleikum unga fólksins.
Leikur hans vakti þvilika athygli
að nokkrum dögum seinna var
hann beðinn að hlaupa i skarðið
fyrir Glenn Gould, sem veiktist
skyndilega á áskriftartónleikum
New York Philharmonic
Orchestra. „Æðisgengnasta lófa-
tak ársins”, sagöi eitt stórblaö-
anna eftir tónleikana.
André Watts hélt áfram
háskólanámi sinu en skrapp þó i
stuttat tónleikaferðir, og „sigraði
Berlinarbúa með gáfu sinni og
yfirþyrmandi krafti”, að söng
Der Telegraf, i einni ferðinni.
Skömmu siðar hófst sigurganga
hans um Munchen, Milano,
Aþenu og Theran, en henni lauk i
New York þar sem Harold Schon-
berg skrifaði i New York Times:
„Hann hefur þroskazt i rétta átt,
brætt saman tækni og gáfur.
Þessi flutningur á B-dúr konsert
Brahms skipaði Watts i flokk úr-
vals pianósnillinga vorra daga”.
Þennan sama konsert leikur
Watts á lokatónleikum Lista-
hátiðar i Reykjavik i Laugardals-
höllinni.
Nú hófust reglulegar tónleika-
ferðir Watts, og sem dæmi um
þær undirtektir sem hann fékk
má nefna, að Nixon Bandarikja-
forseti valdi hann til að leika fyrir
gesti sina þegar hann tók við
embætti i janúar 1969.
Nú er svo komið, að panta verð-
ur Watts til tónleika tvö ár fram i
timann, og er það þvi hin mesta
heppni að fá hann til að leika á
Listahátið i Reykjavik.
Ase Kleveland og
William Clauson
Ase Kleveland hélt tónleika i
Norræna húsinu fyrir ári, og
komust þá færri að en vildu. Nú
syngur hún þjóðvfsur, ástarvisur
og baráttusöngva á Listahátið,
við undirleik Svians Williams
Clauson.
Kleveland er norsk að uppruna
en fædd i Stokkhólmi, 23 ára að
aldri og þekkt um öll Norðurlönd
sem framúrskarandi skemmti-
kraftur, bæði á leiksviði, i tón-
leikasal og i sjónvarpi.
William Clauson er meðal allra
vinsælustu skemmtikrafta i Svi-
' þjóð og er mjög fjölh. maður.
Hann syngur, leikur á altogitar,
safnar þjóðvisum og er jafnframt
þekkt tónskáld.
En áhugamál Clausons eru fjöl-
þættari, hann rekur nú tvö
veitingahús i sviþjóð ásamt
öðrum og hefur fullan hug á að
samtengja list sina og viðskipti.
Birgit Finnila
Birgit Finnila söng fyrst opin-
berlega i Gautaborg árið 1963, og
voru allir gagnrýnendur þá þegar
sammála um að mikils væri að
vænta af henni. Það stóö heldur
ekki á tilboðunum, þau bárust frá
beztu og þekktustu hljómsveitum
Sviþjóðar, kórar og hljómsveitir i
Ráðstjórnarikjunum, Bandarikj-
unum Ástraliu, Asiu og Suöur-
Ameriku vildu fá hana.
Islenzkir tónlistarunnendur
þekkja söng Birgit Finnila af
hljómplötum hennar. Einkum
hafa plöturnar þar sem hún syng-
ur verk Gustav Mahler vakiö að-
hygli. Hún hefur lika sungið á
plötur verk eftir Bach. Telemann
og Bruckner.
Lilla Teatem
Þá skulum viö aö lokum lita á
þann hinn fræga leikhóp Lilla
Teatern frá Helsinki, sem kemur
nú i fyrsta sinn með leikflokk til
tslands.
Lilla Teatern var stofnað árið
1940, þegar siðari heims-
styrjöldin stóð sem hæst. Stofn-
endur voru tveir leikarar, Oscar
og Eja Tengström, og voru þau
með leikhúsið á flækingi i niu ár.
Loksins fengu þau gamalt kvik-
myndahús fyrir starfsemi sina,
en árið 1962 flutti Lilla Teatern i
hentugt og gott húsnæði, þar sem
það rekur starfsemi sina enn
þann dag i dag.
A fyrstu árunum flutti leikhúsið
einkum létt verkefni, reviur, og
vinsæl gamanleikrit, en siöan
þróaðist starfsemin i framúr-
stefnuátt. Um tima var Lilla
Teatern talið meðal fremstu leik-
húsa á þessu sviði.
Lilla Teatern varð þekkt og virt
fyrir tilraunir sinar i leikhúsmál-
um, og siðan 1967 hefur leikhúsið
lagt áherzlu á „eigiö verkefni”,
ádeiluverk i náinni samvinnu við
leikarana og aðra starfsmenn.
Ennfremur hafa síg. verk veriö
flutt við góðan orðsti, verk eftir
Shakespeare, Brecht og nú ný-
lega Þrjár systur systur eftir
Anton Tsjekov.
1 gamla húsnæðinu rekur Lilla
Teatern núna einskonar útibú,
sem kallað er Pikka Lillan, eða
Gamla Lillan. Hér er verkefna-
valið gjörólikt: reviur, sem fjalla
um málefni líöandi stundar, oft
með stjórnmálalegum borddi.
Það sem Lilla Teatern býður
okkur uppá á Listahátiðinni er
„Umhverfis jörðina á 80 dögum”,
eftir Jules Verne, i búningi Bengt
Alfors.
DAGSKRÁ
Listahátíð í Reykjavík
Opnunarathöfn Listahátiðar fer
fram i Háskólabiói á sunnudag-
inn, 4. júni og hefst klukkan tvö.
Þar flytur Sinfóniuhljómsveitin
hátiðarforleik, en að honum lokn-
um ávarpar menntamálaráð-
herra gesti. Þá syngja þau
Guðrún Á. Simonar og Guðmund-
ur Jónsson en að lokum flytur
Sinfóniuhljómsveitin Sögusin-
fóniu eftir Jón Leifs, og verður
það i fyrsta sinn i tuttugu ár sem
hún er spiluð öll i sinni uppruna-
legu mynd.
Margar sýningar.
Að opnunarathöfninni lokinni,
eða klukkan fimm verða opnaðar
þær listsýningar, sem tengdar
eru Listahátið, en þær eru niu
talsins, og þar af tvær úti undir
beru lofti.
Ekki er ótilhlýðilegt að nefna
fyrst sýningu á mannamyndum
eftir Jóhannes heitinn Kjarval i
Kjarvalshúsinu að Sæbraut 1. Þá
veröur i myndlistahúsinu á
Miklatúni Norræn málverkasýn-
ing og sýning á innlendri og er-
lendri húsagerðarlist. 1 Norræna
húsinu verður Norræn grafisýn-
ing en i Listasafni Islands verða
sýndar höggmyndir eftirSigurjón
Ölafsson. Á Skólavörðuholti verð-
ur sömuleiðis höggmyndasýning,
og sýna þar nokkrir islenzkir
myndhöggvarar. Málverkasýn-
ing verður i Bogasalnum, en
SÚM-arar halda hvorki meira né
minna en tvær sýningar, i
Gallerie SÚM og Asmundarsal.
Og siöast en vafalaust ekki sizt
veröur á sama tima opnuö afrisk
sýning I Casa Nova nýbyggingu
Menntaskólans i Reykjavik.
Leiklistin
Að kvöldi þessa fyrsta/ dags
Listahátiðar veröur forsýning á
Dóminó eftir Jökul Jakobsson i
TVÖ NÝ ÍSLENZK LEIKRIT,
JAZZKANTATA OGNÓA
FLÓÐ í BÚSTAÐAKIRKJU
Iðnó, og hefst sú sýning klukkan
sex, en klukkan átta sýnir Þjóð-
leikhúsið Sjálfstætt fólk. t
Norræna húsinu hefst ljóða- og
tónlistardagskrá klukkan hálf
niu, en hana flytja Liv StrcStröm-
sted Dommersnes og Liv
Glaser, og ber dagskráin nafnið
„Um bjartar nætur”.
Mánudaginnn fimmta júni
verður fyrrnefnd dagskrá endur-
tekin i Norræna húsinu á sama
tima, en klukkan fimm verður
sýnd i Bústaðakirkju barnaó-
peran Nóaflóð eftir Benjamin
Britten. Margir ættu að fá tæki-
færi til að fara með börn sin á
þessa óperu, þvi sýningar verða
alls átta.
í Þjóðleikhúsinu verða sýndir
þetta kvöld tveir einþáttungar
eftir Birgi Engilberts. Þeir verða
ekki sýndir nema tvisvar, i seinna
skiptið mánudaginn 12. júni.
Kammertónlist
og vísnasöngur
A þriðjudaginn verður dagskrá
kynning á á verkum Steins Stein-
ars i Iðnó, en i Austurbæjarbiói
hefjast klukkan hálf sex
kammertónleikar, þar sem verða
leikin verk eftir Atla Heimi
Sveinsson. 1 Norræna húsinu
flytur BirgitFinnila ljóðasöng, en
á sama tima, klukkan niu, hefst i
Laugardalshöll leikur Sveriges
Radioorkester, og þar leikur ein-
leik á fiðlu Arve Tellefsen. Þessi
hljómsveit leikur einnig á mið-
vikudag, en þá veröur einleikari á
pianó John Lill. Stjórnandi er
Sixten IErhling.
Miðvikudaginn 7. júni verða á
dagskrá aörir kammertónleikar,
en þá verða leikin verk eftir
Schumann, Dvorákk, Þorkel
Sigurbjörnsson og Stravinski.
Umhverfis jöröina
A fjölum Þjóðleikhússins
verður Lilla Teatern frá Helsinki
þetta kvöld og sýnir söngleikinn
Umhverfis jörðina á 80 dögum, en
önnur sýning á þvi verður næsta
kvöld, fimmtudaginn 8. júni.
Það kvöld verður einnig i
Norræna húsinu finnskt visna-
kvöld, sem Maynie Sirén og Einar
Englund sjá um, og fjórða sýning
á Nóaflóði.
Föstudaginn 9. júni er röðin
komin að islenzkum þjóölögum,
sem Guðrún Tómasdóttir flytur
við undirleik Ölafs Vignis
Albertssonar i Norræna húsinu,
og hefst sá flutningur klukkan
12.15. Um kvöldið verður siðan
visnakvöld, en i þaö skipti syngja
Áse Kleveland og William
Clauson. Enn eitt atriði á dagskrá
Listahátiðar verður flutt i
Norræna húsinu þennan dag, kl.
fimm má hlýða þar á jazz og ljóð-
list. Þjóðleikhúsið verður þetta
kvöld með aðra sýningu á Sjálf-
stæðu fólki, en i Laugardalshöll-
inni leikur Yehudi Menuin á fiðlu,
ásamt Sinfóniuhljómsveitinni.
Stjórnandi er Larsten Andersen.
Á laugardagskvöld dansa i
Þjóðleikhúsinu meðlimir úr
konunglega danska ballettinum,
en John Williams leikur einleik á
gítar í Háskólabiói. T Austur-
bæjarbiói syngur Kim Borg við
undirleik Roberts Levin.
Eftir lifa
fjórir dagar
Sunnudaginn 11. júni er Lista-
hátið hefur staðið i viku, og eftir
lifa fjórir dagar, verða
þriðjukammertónleikarnir, en þá
verða leikin verk eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson, Pál P. Páls-
son, Hafliða Hallgrimsson og
Jónas Tómasson. Þá sýna
konunglegu dönsku ballettdans-
ararnir aftur i Þjóðleikhúsinu
klukkan þrjú, en um kvöldið verð-
ur þriðja sýning á Sjálfstæðu
fólki. Nóaflóð verður sýnt i sjötta
sinn þennan dag og hefst sýningin
klukkan fimm.
Flutningur á jazzkantötu
Gunnars Reynis Sveinssonar og
Birgis Sigurössonar, hefst klukk-
an 21 um kvöldið i Austurbæjar-
biói, en kl. 9 hefst flutningur
Eriks Mörk á dagskrá um H.C.
Andersen i Háskólabiói. Hálftima
áður hefst i Norræna húsinu ein-
söngur sópransöngkonunnar
Taru Valjakka.
Leikhúsálfar
og Ashkenazi
Leikhúsálfarnir eftir Tove
Janson verða frumsýndir i Iðnó
klukkan fimm á mánudaginn, en
kl. hálf niu um kvöldið leika þeir
Menuhin og Sshkenazi i Laugar-
dalshöll.
Leikhúsalfarnir veröa sýndir i
annað sinn þriðjudaginn 13. júni
klukkan 5, og á sama tima hefst
siðasta sýning á Nóaflóöi.
Nútimatónlist leikin á gitar og
lútu og sungin hefst i Norræna
husinu kl. hálf niu, en á sama
tima byrja þeir að leika og syngja
i Háskolabiói Ashkenazy og John
Shirley-Quirk.
Miðvikudagurinn 14. júni er
næstsiðasti dagur Listahátiðar,
og þá verða Leikhúsálfarnir enn á
dagskrá, og hinir fjórðu karamer-
tónleikar i Austurbæjarbiói, og
verða flutt verk eftir Jón Leifs,
Seiber og Beethoven. Tónleik-
arnir hefjast klukkan fjögur, en
kl. hálf niu um kvöldið hefjast
einleikstónleikar Andrés Watts i
Háskólabiói.
Þarmeð er dagskrá Lista-
hátiðar að mestu tæmd, lokatón-
leikarnir einir eru eftir. Flutn-
ingur Sinfóniuhljómsveitarinnar
á þeim hefst i Laugardalshöll
klukkan hálf niu um kvöldið, og
verður André Watts einleikari,
en stjórnandi André Prévin.
Þríðjudagur 30 maí 1972
Þriðjudagur 30 maí 1972