Alþýðublaðið - 22.06.1972, Blaðsíða 3
SVORUÐU FULLYRÐINGUM UM
HUG OKKAR TIL FÆREYINGA
1 vor birtist i færeyska blaðinu
14. september viðtal við Lúðvik
Jósefsson sjávarútvegsráðherra.
Sögðum við frá þessu hér i blað-
inu á sinum tima.
Ummæli Lúðviks i fyrrnefndu
viðtalivöktu mikla athygli i Fær-
eyjum, og hafa spunnist af þeim
töluverð skrif i færeyskum blöð-
um.
1 viðtalinu hafði blaðið það eftir
Lúðvik, að með ákvörðun sinni,
um að færa ekki landhelgi Fær-
eyja úr 12 milum i 70 milur,
hefði Lögþing Færeyja „rekið
ryting i bak tslendinga”, og þessi
ákvörðun gæti haft slæm áhrif á
samninga íslands og Færeyja um
sérréttindi Færeyinga innan is-
lenzku landhelginnar.
Þessi ummæli og fleiri, sem
blaðið hafði eftir Luðvik, vöktu
mikla athygli i Færeyjum, og tvö
blöð gerðu þau að umtalsefni i
forystugreinum sinum. 1 blaðinu
Sosialurinn er talað um bak-
tjaldapólitik Lúðviks Jósefs-
sonar, og blaðið spyr hvers vegna
Lúðvik hafi ekki snúið sér beint til
færeyskra yfirvalda ,,i stað þess
að snúa sér til Erlendar Paturs-
sonar og vina hans”.
Þá lýsir blaðið yfir furðu sinni
vegna ummælanna sem höfð eru
eftir Lúðvik.
1 blaðinu Tingakrossur er slegið
á svipaða strengi og i Sosialnum.
Þar segir að Lúðvik hafi komið
inn um bakdyrnar i færeyskum
stjórnmálum. 1 stað þess að snúa
sér beint til Landsstjórnarinnar,
hafi hann snúið sér til Erlendar
Paturssonar og 14. september
haft uppi stór orð.
Siðan gefur Tingakrossur það i
skyn, að kannski vilji Islendingar
með þessu sýna Lögþinginu og
Landsstjórninni litiisvirðingu,
„þvi tregir voru þeir að viöur-
kennan fánann okkar, og kannski
vilja þeir beita sömu aðferðum
við Lögþingið og Lands-
stjórnina”.
Tingakrossur segir i lok for-
ystugreinarinnar, að Færeyingar
séu á móti baktjaldapólitlk þeirri,
sem Lúðvik Jósefsson reki, og
þeir vilji beinar viðræður milli
Færeyja og Islands.
1 blaöinu 14. september er for-
ystugreinunum i Sosialnum og
Tingakrossi svarað 10. og 13.
Framhald á bls. 8.
Eins og Alþýðublaðið skýrði frá
fyrir skömmu fékk bæjarfógeta-
embættið i Kópavogi til með-
ferðar stærsta „gúmmitékka-
mál” sinnar tegundar á Islandi.
Saksóknari rikisins fór fram á
dómsrannsókn, en af henni hefur
ekki orðið enn, þar sem bæjar-
fógetinn i Kópavogi, Sigurgeir
Jónsson, óskaði eftir þvi að vikja
sæti i málinu.
Nú hefur dómsmálaráðuneytið
skipað setudómara i þvi og er það
Guðmuiodur L. Jóhannesson,
fulltrúi bæjarfógetans i
Hafnarfirði.
Má þvi búast við þvi, að skriður
komist á rannsókn þessa máls,
sem snýst um útgáfu innistæðu-
lausrar ávisunar að upphæð 6.9
milljónir króna.
STOFUBLÚM
Prentsmiðja Jóns Helgasonar
hefur sent frá sér bæklinginn
stofublóm, en i honum eru itar-
legar en samþjappaðar upplýs-
ingar um meðferð og umhirðu
innijurta.
Helztu kaflar bæklingsins eru:
birtan, - vökvun - hiti - umpottun -
fjölgun með græðlingum
áburðargjöf - kvillar og varnir
meðferð afskorinna blóma.
SIGURÐUR JÚHANNS-
SON SKIPSTJÓRI
(Jtför Sigurðar Jóhannsson-
ar skipstjóra fór fram frá Fri-
kirkjunni i gær. Séra Jón Auð-
uns jarðsöng. Félagar i Odd-
fellow stóðu heiðursvörö i
kirkju og skipstjórar Eim-
skipafélagsins báru kistuna úr
kirkju.
Mikið fjölmenni var við út
förina.
Sigurðar veröur minnst hér i
blaðinu á morgun og skrifa þá
um hann Valdimar Björnsson
og Vilhelm Ingimundarson.
Fara þeir yfir pollinn með veginn?
1 sumar verður tekin um það
ákvörðun hvar þjóðvegurinn yf-
ir Eyjafjörð verður lagður.
Tvær lausnir koma til greina, að
láta hann liggja áfram á þeim
staö sem hann er nú, norðan
flugbrautar, eða leggja hann
þvert yfir Akureyrarpoll, um
einn kilómetra sunnan við flug-
brautina. Myndi hann þá liggja
yfirsvokallaðan Leirugarð, sem
sést hér á meðfylgjandi mynd,
eyrarnar þrjár sem sjást á
myndinni.
Skiptar skoðanir hafa verið
um það meðal kunnáttumanna á
hvorum staðnum vegurinn á að
liggja. Var skipuð nefnd sem
ákveða átti vegastæðið, og eiga
fimm menn sæti i þeirri nefnd.
Mun hún skila áliti i sumar,
enda er oröiö nokkuð aðkallandi
að ákveöa vegarstæöið vegna
hraðbrautarframkvæmda sem
nú standa yfir I Eyjafiröi.
Að sögn Sigfúsar Arnar Sig-
Framhald á bls. 8.
Skodabíllinn á myndinni gerði heiðarlega en jafn-
framt misheppnaða tilraun til þess að komast inn f
Verzlunarbankann upp úr hádeginu i gær.
Honum hafði verið lagt rétt fyrirofan bankann, en
allt i einu tók hann upp á því að renna stjórnlaust niður
brekkuna og stefndi staðfastur á glugga Verzlunar-
bankans.
Þarendaði hann og braut í leiðinni stóra rúðu.
Skýringin er reyndar ekki sú, að bíllinn hafi tekið
þetta upp hjá sjálfum sér, heldur mun sjö ára drengur,
sem vareinn i bílnum, hafa fiktað eitthvað við stjóm-
tæki hans.
ÓVÆNT
HEIM-
SÓKN
BANASLYSID
VATMSDALMUM
Pétur Eggerz Pétursson, við-
skiptafræðingur lézt i fyrradag,
þegar bifreið hans lenti beint
framan á annarri á móts viö bæ-
inn Valageröi i Vatnsskarði i
Skagafirði. Pétur var fertugur.
1 bilnum með honum voru þrjú
börn hans og sluppu þau meö
skrámur, en i hinum bilnum voru
ung hjón ásamt barni sinu og
slösuðust hjónin töluvert, konan
meira. Barnið slapp hins vegar
ómeitt.
Héraðslæknirinn á Sauðárkróki
sagöi i viðtali viö Alþýðublaöiö 1
gærkvöldi, að hjónunum liði vel
eftir atvikum, og taldi þau hafa
sloppið vel miðað við aðstæður.
Þetta hörmulega slys átti sér
stað með þeim hætti, að Pétur
heitinn ók Cortinu bifreið norður
eftir Vatnsskarði, en ungu hjónin,
sem óku Mercedes Benz bifreið
voru á suðurleið.
A móts við Valagerði, sem er
innsti bærinn i Skagafirði, skullu
bilarnir beint framan á hvorn
annan af miklu afli.
Einmitt á þessum stað er afliö-
andi beygja og er talið, að báðir
bilarnir hafi verið á mikilli ferð,
þvi bremsuför þeirra beggja
mældust 20 metrar.
SETUDOMARI
SKIPAÐUR í
ÁVÍSUNARMÁLI
ÞAÐ VARÐ A
AFLÍÐANDI
BEYGJU
Haukur Yngvason, bóndinn á
Valagerði, mun hafa orðið vitni
að slysinu og gerði hann lögregl-
unni á Sauðárkróki strax viðvart.
Lögregla og sjúkrabilar ásamt
lækni, lögðu tafarlaust af stað á
slysstaðinn eftir að tilkynningin
barst þeim um kl. 15.50 i fyrra-
dag.
Rannsókn vegna slyssins er
ekki lokið, en við athugun á um-
merkjum viröist bifreiö Péturs
heitins hafa verið ekið að ein-
hverju leyti á vinstra vegarhelm-
ingi.
Báðir bilarnir eru taldir ónýtir.
Gert var að meiðslum barna
Péturs á slysstaðnum, en þau eru
11 ára drengur og tvær stúlkur 14
og 15 ára.
1 viðtali við Alþýðublaöiö i gær
sagði Jóhann Salberg sýslumaöur
á Sauðárkróki, að ekkert benti til
þess, að bilun i annarri hvorri bif-
reiðinni væri orsök slyssins.
Fimmtudagur 22. júni 1972.