Alþýðublaðið - 22.06.1972, Blaðsíða 8
LAUGARASBlO Sími 32075
Dauðinn i rauða
jagúarnum
Hörkuspennandi þýzk-amerisk
njósnamynd i litum, er segir frá
ameriska F.B.l. lögreglumannin-
um Jerry Cotton sem var agn fyr-
ir alþjóðlegan glæpahring
Isl. texti.
George Nader og Nerinz Weiss
Sýnd kl. 5,7 og 9
Bönnuð börnum innan 14 ára.
HAFNARBÍÓ
Léttlyndi
bankastjórinn
K:
H°r5jf\sd°T('
TlRfNCf A[lXAHUt« SAHAH ATRINSON. SAIIY IIA/IIV IJfRfK IHANOS
OAVIO lOOGl • CAUt WXITSUN JONfS anl -j SAflV .IfSON
Hin sprenghlægilega og fjöruga
gamanmynd i litum. Einhver vin-
sælasta gamanmynd sem sýnd
hefur verið hér i áraraðir.
islenzkur texti
Endursýnd kl. 5 — 7 — 9og 11.
KÓPAVOGSBIÓ
Synir Kötu Elder.
Viðfræg amerisk litmynd.
Æsispennandi og vel leikin.
íslenzkur texti.
John Wayne
Dean Martin
Martha Hyer
Endursýnd kl. 5,15 og 9.
Bönnuð börnum.
HAFNARFJARÐARBIÓ
Ungfrú Doktor
Sannsöguleg kvikmynd frá
Paramount um einn frægasta
kvennjósnara, sem uppi hefur
verið — tekin i litum og á breið-
tjaldi.
islenzkur texti.
Aðalhlutverk:
Suzy Kendall
Kenneth More
Sýnd kl. 9
Bönnuð börnum innan 12 ára.
HASKÓLABÍÓ
Tálbeitan
(Assault)
Ein af þessum frægu sakamála-
myndum frá Rank. Myndin er i
litum og afarspennandi. Leik-
stjóri: Sidney Hayers.
islenzkur texti
Aðalhlutverk:
Suzy Kendall
Frank Finlay
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
®----------------------------
TÓNABÍÓ Sími 31182
Viðáttan mikla
(The Big Country)
Heimsfræg og snilldar vel gerð
amerisk stórmynd i litum og
Cinemascope.
islenzkur texti
LeikStjóri: William Wyler
Aðalhlutverk:
Gregory Peck,
Jean Simmons,
Carroll Baker
Charíton Heston,
Burl Ives.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
13. maðurinn
(Shock Troops)
Afar spennandi frönsk-itölsk
mynd i litum.
Leikstjóri:
COSTA-GAVRAS
Aðalhlutverk:
MICHEL PICCELI,
CHARLES VANEL
FRANCEIS PERRIER.
Bönnuð börnum innan 16 ára
Sýnd kl. 5 og 7
Isl. texti.
.STJÖRNUBÍÓ
Launsátur
(The Ambushers)
Islenzkur texti
Afar spennandi og skemmtileg ný
amerisk njósnamynd i Technicol-
or. Leikstjóri: Henri Levin. Eftir
sögu „The Ambushes” eftir Don-
ald Hamilton. Aðalhlutverk:
Dean Martin, Senta Berger,
Janice Rule.
Sýnd kl. 5,7 og 9.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
wódleTkhúsið
iIVERSDAGSDRAUMUR OG
ÓSIGUR
sýning i kvöld kl. 20.
Siðasta sinn.
ÓKLAHOMA
sýning föstudag kl. 20.
Næst siðasta sinn.
OKLAHOMA
sýning laugardag kl. 20.
Síðasta sinn.
SJALFSTÆTT FÓLK
sýning sunnu-dag kl. 20.
Siðasta sinn.
Gestaleikur:
BALLETTSÝNING
DAME MARGOTFONTEYN OG
FLEIRI.
20 manna hljómsveit: einleikarar
úr Filharmóniunni i Miami
Stjórnanadi: Ottavio de Rosa
Sýningar þriðjudag 27. júni og
Miðvikudag 28. júni kl. 20.30.
Uppselt
Athygið breyttan sýningartima
Aðeins þessar tvær sýningar
Aðgöngumiðasalan opin frá kl.
13.15 til 20. Simi 1-1200.
IKFELAG
YKIAVfKDlC
DÓMINÓ
i kvöld kl. 20.30.
Siðasta sýning á leikárinu.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er opin
frá kl. 14. Simi: 13191.
VISSARA AÐ PANTA 1
sunnu, en það kemur til af þvi, að
nær eingöngu útlendingar snúa
sér að þeirri bilaleigu á sumrin.
Hjá hinum bilaleigunum, Fal
og Vegaleiðum, fengum við þær
upplýsingar, að yfir há annatim-
ann séu viðskiptavinir r.okkuð
jafnt tslendingar og útlendingar.
Þó sagði Sigurbergur Svanbergs-
son hjá Vegaleiðum, að út-
lendingar fari oft upp i 60% við-
skiptavina á sumrin. Hann sagði
ennfremur að það væru eingöngu
útlendingar, sem tækju á leigu
stærri bila, þ.e. Land—-Rover og
svefnbila. <
Gjald fyrir bilaleigubila hefur
verið óbreytt i 2—3 ár, en það er
fyrir minnstu bilana 590 kr. á
sólarhring og 5 kr. á hvern ekinn
kilómetra.
ÁREKSTRARTÍÐNIN 1
Miklatorg 43
Kringlumýrarbraut / Sléttu-
vegur 40
Miklabraut / Grensásvegur 37
Kringlumýrarbraut / Hafnar-
fjarðarvegur 32
Vesturlandsvegur / Skeið-
vallarvegur 32
Miklabraut / Háaleitisbraut 32
Eins og sést af ofantöldu, koma
Miklabraut og Kringlumýrar-
braut oftast við sögu og er
ástæðan sú,að einmitt þessar
götur eru umferðarþyngstar.
Guttormur Þormar, verkfræð-
ingur hjá Reykjavikurborg,
hefur unnið skýrslu um þessi mál
og sagði hann i viðtali við Alþýðu-
blaðið i gær tilganginn vera þann
að geta fylgzt með þróuninni ár
frá ári eða jafnvel ársfjórðungs-
lega.
Hann nefndi, að hingað til hefði
gefizt mjög vel að setja
stöðvunarskyldu á gatnamót með
hárri árekstrartölu.
ÞEIR FLUGU_________________1_
þessu einvigi sterkasta skák-
mann i heimi. Hann svaraði
þeirri spurningu afdráttarlaust
játandi.
Þá var hann spurður, hvort
hann áliti það sigur fyrir Sovét-
rikin ynni hann, og var svarið á
þá leið, að hann liti fyrst og
fremst á sig sem listamann i
skák, ekki stjórnmálamann.
Þegar átti að fara lengra út i
þessa sálma sagði hann: Later,
gentlemen, later. — Með það
steig hann upp i svartan, rúss-
neskan limósin frá rússneska
sendiráðinu.
Mótið þar sem Spassky ver
heimsmeistaratitilinn, verður
sett 1. júli.
HREINN ______________________9^
inn Sanejev og hástökkvarinn
Abramow svo einhverjir séu
nefndir. Þá verða einnig á þessu
móti beztu frjálsiþróttakonur
Sovétmanna, og auk þess fjöldi
erlendra frjálsiþróttamanna.
Frá Moskvu halda Islending-
arnir til Osló, en þar taka þeir
þátt i Bisletleikunum svokölluðu,
sem er eitt frægasta frjálsiþrótta-
mót sem haldið er i Noregi. Fer
mótið fram dagana 3. og 4. júli.
Fjöldi þekktra garpa verða þar til
staðar.
Heim kemur islenzki hópurinn
5. júli.
DÆMDUR GILDUR 9
inum, að fyrri hálfieikur hefði aö*
eins farið þrjár minútur fram yfir
venjulegan leiktima, og hefði
ástæðan verið leiktafir.
Samkvæmt þessum framburði
dómara og linuvarða, gat dómur-
inn ekki gert annað en dæma leik-
inn gildan, og voru dómarar sam-
hljóöa. t dómnum áttu sæti auk
Bergs þeir Sveinn Helgason og
Guðni Magnússon.
Liklegt má telja, að KR-ingar
áfrýji þessum úrskurði til
tþróttadómstóls KSt. Þá er eins
liklegt að umræður blossi að nýju
upp um þennan fræga leik, þvi
tugir ef ekki hundruð manna á
vellinum voru þeirrar skoðunar
að hann hefði staðið 9-12 minútum
of lengi i fyrri hálfleik.
ATVINNULYÐRÆÐI 5
MENNTUN
Lög og samningar skapa út af
fyrir sig ekki lýðræði i atvinnulif-
inu. Hér þarf til að koma breyting
á hugsunarhættifólks og aukin al-
menn menntun um rekstur fyrir-
tækja. Samtök launafólks þurfa
þvi að stofna til námskeiða um
þjóðhagfræði, stjórnun fyrir-
tækja, reksturshagfræði og
félagsfræði.
1 framtiðinni verður sjálft
skólakerfið að veita æskufólki
grundvallarkennslu i þeim mál-
efnum, sem atvinnulýðræðið
varða.
Færi vel á þvi, að menn tækju
nú að hugleiða þessi málefni, þar
eð margra skoðun er, að það sem
mest ábótavant sé hér á landi sé
stjórnun fyrirtækja.
ÁTTRÆÐUR________________4_
liðinu i Hvalfirði en 1945 er hann
ráðinn sem umsjónarmaður raf-
lagna hjá Rafveitu Hafnafjarðar
til ársins 1963.
Þegar hann kemur suður
kynntist hann Sólveigu ólafsdótt-
ir, kaupkonu. Þau byggðu sér
heimili að Skúlaskeiði 16, i Hafn-
arfirði. Sólveig lézt fyrir 7 árum.
Þegar við hinir yngri reynum að
skyggnast inn i fortiðina, og ger
um okkur grein fyrir þvi hvernig
þeirra daglega lif var, rekumst
við á margt sem nútimafólki væri
framandi, og þarf ekki að fara
langt til baka i þvi sambandi. Það
þurfti oft að styðjast við frumstæð
verkfæri og óheppileg efni á
bernskudögum iðnaðarins hér á
landi og oft á tiðum æfintýri likast
hvað hægt var að gera. Við stofn-
un Félags eftirlitsmanna með
raforkuvirkjum F.E.R. sem hann
meðal annars beytti sér fyrir
sýndi hann i verki hug sinn til
samstarfsmannanna og með til-
komu minningarsjóðsins um for-
eldra hans sem tengdur er þessu
sama félagi, leggur hann áherzlu
á gildi aukinnar menntunar
þeirra sem leiðbeina eiga um raf-
lagnir og vinnubrögð i framtið-
inni. Peningum minningarsjóðs-
ins er ætlað að styrkja rafmagns-
eftirlitsmenn til kynningar og
námsferða hverskonar. Er þessi
sjóður nú kominn i á annað-
hundrað þúsund krónur.
F.E.R. gerði hann að heiðursfé-
laga fyrir mikið og gott starf i
þágu þess. Við starfsfélagar þinir
þökkum þér í íilefni af þessum
timamótum i æfi þinni allt sem þú
hefur miðlað okkur af lifsreynslu
þinni og hlýhug. Við vonum að þú
megir sem lengst vera á meðal
okkar. S.V.Þ.
FARA ÞEIR YFIR POLLINN 3
fússonar verkfræðings hjá
Vegagerðinni, ganga hrað-
brautarframkvæmdir eftir
áætlun. Nú er unnið að gerð
vegakaflans meðfram strönd-
inni og i áttina til flugvallarins.
Sést vegakaflinn á myndinni,
þar sem hann liggur frá bryggj-
unni. Glittir I hann fyrir ofan
trén.
Næstu stórframkvæmdir i
vegamálum i Eyjafirði verður
nýr vegur út Svalbarðsströnd,
og svo verður farið að huga að
nýjum vegi yfir Vaðlaheiði.
Koma þar tveir möguleikar til
greina, vegur yfir heiðina á
sama stað og nú, og vegur utar
með Eyjafirði, yfir svokallaða
Vikurskarð. Það yrði lengri leið,
en miklu snjóléttari á vetrum.
SVÖRUÐU_____________________3_
þessa mánaðar, og eru það tveir
Færeyingar búsettir á Islandi
sem það gera, Elis Poulsen og
Vestarr Lúðviksson.
Elis, sem er ungur matreiðslu-
nemi og starfar á Hótel Esju,
segir i grein sinni, að tslendingar
standi sem einn maður um út-
færslu landhelginnar i 50 milur.
Þá segir hann ennfremur, að það
sé misskilningur, að íslendingar
noti baktjaldapólitik i þessu máli,
heldur verði það að kallast bak-
tjaldapólitik þegar Færeyingar
snúi sér til Dana og biðji þá um að
semja við Islendinga um sér-
réttindi i landhelginni.
Þá vill Elis fá nánari skýringu á
þvi hjá Tingakrossi, á hvern hátt
Islendingar hafi verið seinir til að
virðurkenna færeyska fánann, og
hvort blaðið geti nefnt um það
dæmi að Islendingar liti niður á
Færeyinga.
Vestarr Lúðviksson er einnig
ungur að árum, og starfar við
Útvegsbankann i Reykjavlk.
Hann er nú islenzkur rikis-
borgari.
1 grein sinni ræðir hann um
málið á likan hátt og Elis, og spyr
hvort það sé baktjaldapólitik hjá
Islendingum að tilkynna um-
heiminum ákvörðun sina um út-
færslu landhelginnar.
Þá lýsir Vestarr yfir undrun
sinni vegna ákvörðunar Lögþing-
sins, og segir að það hefði verið
happasælast fyrir Færeyinga að
fylgja Islendingum og færa sina
landhelgi út einnig.
Búast má við frekari skrifum
um málið i færeyskum blöðum.
Júnimót Ármanns i lyftingum fer
fram næstk. laugardag.
ORLOF 1972
Undirrituð samtök vilja hér með vekja at-
hygli á þvi, að samkvæmt lögum nr.
87/1971 um orlof, er lágmarksoriof fyrir
þá, sem unnið hafa fullt orlofsár 22 virkir
dagar árið 1972. Það skal tekið fram að
laugardagar eru virkir dagar i þessu sam-
bandi.
ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS VINNUVEITENDASAMBAND
ÍSLANDS
VINNUMÁLASAMBAND
SAMVINNUFÉLAGANNA
Fimmtudagur 22. júní 1972