Alþýðublaðið - 26.08.1972, Qupperneq 1
FYRSTU BÍLAR
AF 73 ARCERD
HINGAD
iregnað fara nýju bilarnir að
koma til landsins uppúr þvi, en að
sögn nokkurra bilainnflytjenda,
sem blaðið hafði samband við i
gær, er ekki mikilla breytinga að
vænta frá 1972 árgerðunum,
nema þá helzt hvað verð snertir,
— það hækkar eitthvað i flestum
tilfellum.
Breytingar á amerisku Ford-
bilunum verða meira að segja
litlar, sem stafar af þvi, að þeir
eru framleiddir eftir tveggja ára
áætlun, og siðast urðu á þeim út-
litsbreytingar i fyrra. Fyrstu bil-
arnir af þeirri gerð eru væntan-
legir i loknæsta mánaðar. Einu
breytingarnar á Ford-bilunum
eru, að ljós og hljóðmerki hafa
verið tengd við öryggisbeltin.
Ýmsar tæknilegar breytingar
verða á Cortinunni, en að öðru
leyti verður hún óbreytt til 1974.
Þá verður Bronco fáanlegur með
sjálfskiptingu og stærri 6 strokka
vél en áður hefur verið.
Saab 99 hefur ekki breytzt mik-
ið i útliti, helzta breytingin, er að
nú eru allir bilarnir framleiddir
með sama grill og var i E-gerð-
inni i ár, og allir nema tveggja
dyra bilarnir verða lika með
sömu vél og hann, eða tveggja
litra sænska vél. Tveggja dyra
bilarnir verða framleiddir áfram
með 1,8 litra Triumph vélinni.
Á sjöundu siðu i dag er nánar
sagt trá Volvo 1972.
Kins og Alþýðublaðið liefur
skýrt frá liefur verið ákveðið að
livila flaggskip íslenz.ka flotans,
(íullfoss, i vetur.
Nú licfur blaðið fregnað eftir
áreiðanlegum heimildum, að
glcyin/.t hafi að tilkynna þessa
ákvörðun einum aðila, sem lilut á
að máli, eða áhöfn skipsins.
Áhöfnin frctti fyrst um þessa
ákvörðun í útvarpinu.
KOMNIR
Bilar af árgerð næsta árs eru nú
farnir að koma til landsins, en
þeim fyrstu var skipað upp úr
irafossi á miðvikudagsmorgun-
inn. Það voru átta bilar af gerð-
inni Saab 99 og 96, en Veltir h.f.
hefur tiikynnt komu fyrstu Volvo-
bilanna um miðjan næsta mánuð.
Að þvi er Alþýðublaðið hefur
Þorskblokkin heldur sinu striki
á Amerikumarkaðinum. Eftir
miklar hækkanir á blokkinni fyrr
á þessu ári. hefur hún haldið sér i
47 sentum pundið um langan
tima. og gerir enn.
Guðmundur Garðarsson hjá SH
sagði þetta vera toppverðið. Litl-
ar likur væru á hækkunum, og
jafnvel enn minni likur á þvi að
blokkin lækkaði i verði.
Við þurfum þvi til allrar ham-
ingju engan kviðboga að bera fyr-
ir óhagstæðri verðþróun á
Amerikumarkaðnum. Það háa
verð, sem blokkin komst i i fyrra,
virðist ætla aö halda sér.
Til samanburðar má geta þess,
að á árinu 1969, þegar efnahags-
kreppa dundi yfir tslendinga, þá
féll verðið á þorskblokk á Banda-
rikjamarkaði allt niður i u.þ.b. 19
cent fyrir pundið á móti 47
sentum, sem nú fást greidd fyrir
þessa þýðingarmiklu afurð okk-
óób
METÁR f SÓLU OG FRAMLEIDSLU A SEMENTI
SEMENTSVERKSMIÐJAN GETUR
VARLA ANNAÐ EFTIRSPURN
Allar likur benda til þess, að
árið 1972 verði metár i
sementsframleiðslu og
sementssölu. 1 lok júli hafði
Sementsverksmiðja rikisins á
Akranesi þegar framleitt 62.700
tonn. en á sama tima i fyrra var
framleiðslan liðlega 54.000 tonn.
Að sögn Guðmundar Guð-
mundssonar. efnaverkfræðings
hjá Sementsverksmiðjunni, læt-
ur nærri, að framleiðslan i júli-
lok sé helmingur ársframleiðsl-
unnar. Með sama áframhaldi
ætti heildarsementsframleiðsl-
an á þessu ári þannig að komast
upp i 125.000 tonn.
..Sementssalan hefur verið
mjög mikil á árinu og meiri en
nokkru sinni fyrr, enda höfum
við varla undan”. sagði Guð-
mundur i samtali við Alþýðu-
blaðið i gær.
Sagði Guðmundur, að salan
hefði hafizt talsvert miklu fyrr á
þessu ári en venjulega áður.
llinn mildi vetur hefði glætt lifi i
sementssöluna strax i febrúar-
mánuði.
Farmhald á 2. siðu.
OL I
DAG
SETNING OG
SEREMONÍUR
Ólympiuleikarnir i Munchen
verða settir i dag. Það er
Gustaf Heinemann forseti
Vestur-Þýzkalands sem setur
leikana, og eftir setningarorð
hans hefjast tilheyrandi
seremoniur. Blöðrum og dúf-
um verður sleppt lausum i
þúsundatali og skotið verður
úr fallbyssum.
Mitt i öllum látunum kemur
svo vamtanlega 18 ára piltur
hlaupandi eftir Olympiu
leikvanginum með kyndil i
hendinni. Hann mun hlaupa
upp tröppurnar að eldstæði
ólympiueldsins og tendra
hann. Nafn þessa pilts er
Gunter Zhan. og hann var val-
inn eftir vandlega yfirvegun.
Ba'ði er hann ungur og efnileg-
ur iþróttamaður, og það sem
kannski skiptir meira máli,
hann er Ijóshærður, bláeygur
og stuttklipptur.
Olympiueiðinn sver vestur
þýzka stúlkan Heidi Schuller,
21 árs gömul. l>að er venjan að
keppandi úr liði gestgjafanna
sverji eiðinn, og Heidi var val-
inn eftir gaumgæfilega athug-
un. Hún er mjög fjölhæf
iþróttakona, hennar bezta
grein er grindahlaup, en hún
er einnig á himsmælikvarða i
langstökki. Myndin er af Heidi
i langstökkskeppni.
Framhald á 2. siöu.
DULARFULU HLUTURINN I STÖL
SPASSKlS REYNDIST VERA KÍTTI
Þegar búið var að rannsaka
allan ljósabúnað hallarinnar og
bera saman við teikningar og
litljósmyndir. sem teknar höfðu
verið i upphafi einvigisins sást
ekki neinn munur.
Þá voru stólarnir rannsakaðir
hátt og lágt. sýni tekin úr leðr-
inu. ef ske kynni að einhver efni
hefðu getað stungizt inn undir
húð Spasskis og haft áhrif á
skynjun hans, en við efnagrein-
ingu reyndust öll hin sömu efni i
stólum beggja.
Og stjórnarmenn Skáksam-
bandsins. sem ásamt fulltrúum
Hússa og Bandarfkjamanna
þinguðu i gærdag inni i Laugar-
dalshöll vegna ásakana Gellers
um að.
Bandarikjamenn hefðu beitt
kemiskum efnum og rafeinda-
tækni til að hafa neikvæð áhrif á
taflmennsku heimsmeistarans
komust að þeirri niðurstöðu að
rafeindatækni væri vart hugs-
andi. enda myndi hún að öllum
likindum hafa sömu áhrif á
báða keppendur.
Það virtist þvi sem ásakan-
irnar hefðu við engin rök að
styðjast. Það var þvi boðað til
blaðamannafundar kl. sjö i
gærkvöldi til að skýra frá þess-
um niðurstöðum.
En þá datt einhverjum i hug
að láta röntgenmynda stólana
báða. Og viti menn. Við saman-
burð á röntgenmyndunum kom i
ljós svartur blettur i stól
Spasskis, sem ekki var að finna
i hinum stólnum. Og þetta
seinkaði blaöamannafundinum.
Þvi var ekki um annað að
ræða en fá lögregluvörð til að
gæta stólanna og iönaðarmenn
til að skrúfa þá i sundur. Þarna
virtist loks vera komin skýring
á ásökunum Gellers.
En eftir öllum sólarmerkjum
að sæma virðist trékitti hafa
sömu eiginleika og málmar til
að bera að þvi er varðar
röntgenmyndun. Þvi kitti sem
Framhald á 2. siðu.