Alþýðublaðið - 22.11.1972, Side 9
o
Iþróttir 2
HANN VEROUR BfSNA ENFIDUR
RÚDURIHN Hlí IN’PLHNINNM
ENSKU ILEIKIIIM HELGARINNAR
l>ótt árangur okkar spámanna blaöanna hafi verið heldur
skárri i siöustu viku, en undanfarnar vikur, komu úrslitin
s.l. laugardag mörgum á óvart. Hið óvænta virðist sem sé
ennþá raða gangi mála þar.
Athyglisvert er, að tvö lið töpuðu sinum fyrsta heimaleik,
en það voru West Ham og Stoke og liðin sem lögðu þau af
velli cru i hópi neðstu iiða i 1. deild.
Tveir fyrstu leikirnir á siðasta seöli, sigur Arsenal yfir
Everton og Coventry yfir Sheff. Utd. enduðu eins og búizt
hafði verið við. Athygli vakti að C.Pai. náði jafntefli við
Leeds og ef ég man rétt, hefur Leeds aldrei náð meira en
jafntefli við C.Pal á Selhurst Park siöan C.Pai. kom ! 1.
deild.
Nú um næstu leiki er ekkert sérstakt að segja, en athygli
vakti sigur Southampton yfir Chelsea. Söniu sögu er að
segja um útisigur Derby yfir West Ham. Þá má líka minn-
ast á þriöja tap Úlfanna i röð á heimavelli, að þessu sinni
fyrir Ipswich.
Það mætti segja mér, að það hafi verið úrslit siðustu
ieikjanna á seðlinum, sem gerðu vonir ijiargra um góðan
árangur að engu eða litlu.
Næsti getraunaseðill, sem er nr. 35 býður upp á marga
skemmtilega og erfiða leiki til að fást við. Mér sýnist þar
fátt um örugga leiki, a.m.k. við fljótlega athugun. En við
vonum hið bczta og snúum okkur að þvi að ræða litillega um
þá leiki:
IJIRMINGHAM-NORWICH X
Þessi lið urðu samferða úr 2. deild i lok siðasta keppnis-
timabils og er þetta þvi i fyrsta skipti sem þau mætast i 1.
deild. Norwich hefur gengið mjög vel og er i hópi efstu liða
með 21 stig, en Birmingham er eitt af botnliðunum með 14
stig. Birmingham vann Norwich i fyrra i 2. deild á St. And-
rews með 4-0, en að þessu sinni tel ég jafntefli liklegustu úr-
slitin.
CIIELSEA-CRYSTAL PAL. 1
Það er að sjá, að allar þær milljónir króna, sem Crystal
Pal. hefur varið til kaupa á nýjum leikmönnum að undan-
förnu, séu að byrja að gefa af sér vexti, þótt ekki hafi það
dugað til að koma liðinu af botninum. Jafntefli um s.l. helgi
við Leeds eru úrslit sem C.Pal. má vel við una. Vel má vera
að aftur takist að krækja i stig gegn Chelsea á Stamford
Bridge á laugardaginn, en ég reikna frekar með heimasigri,
eins og i fyrra er Chelsea vann 2-1.
DERBY-ARSENAL 2
Derby vann sinn fyrsta útisigur á keppnistimabilinu um
s.l. helgi gegn West Ham og léku þá að sögn eins og meistur-
um sæmir. Að þessu sinni er andstæðingurinn Arsenal, sem
nú er i 2. sæti i 1. deild og vann Everton á Highbury um s.l.
helgi i góðum leik.
Þetta er nokkuð erfiður leikur, þvi Derby hefur náð góð-
um árangri á heimavelli, en eigi að siður hallast ég frekar
að þvi að Arseanal vinni leikinn.
EVERTON-WEST HAM 1
West Ham hefur tapað siðustu tveim útileikjum og tapaði
auk þess á heimavelli um s.l. helgi fyrir Derby. Það hefur
gengið á ýmsu fyrir Everton á heimavelli, sem aðeins hefur
hlotiö þar eitt stig i siðustu þrem leikjum. úrslit þessa leiks
verða þvi að teljast nokkuð óráöin og vissulega eru allir
möguleikar fyrir hendi. Ég spái Everton sigri, en bendi á
jafntefli til vara.
MAN.UTD.-SOUTHAMPTON 1
Þótt þetta sé einn erfiðasti leikurinn að minum dómi á
þessum seðli þykist ég sjá það fyrir að honum muni arinað
hvort ljúka með heimasigri eða jafntefli. En hvorn kostinn
eigum við að taka? Man.Utd. tapaði fyrir Man. City um s.l.
helgi, en Southampton vann óvæntan heimasigur og verð-
skuldaðan yfir Chelsea. Einhvernveginn segir mér svo hug-
ur um að Man. Utd. hafi betur að þessu sinni og spá min er
þvi heimasigur.
NEWCASTLE-LEICESTER 1
TOTTENIIAM-LIVERPOOL X
Liverpool vann Newcastle um s.l. helgi og heldur þvi enn
forystunni i 1. deild með 26 stigum, einu stigi umfram
Arsenal. Þeim verður róðurinn eflaust ekki léttur á White
Hart Lane gegn Tottenham, sem gerir ekki mikið af þvi að
tapa leikjum þar.
Þetta er enn einn tvisýnn leikur á þessum seðli og finnst
mér þvi rétt að fara varlega og spa' jafntefli.
W.IJ.A.-STOKE 1
Ef á annað borð er hægt að ganga frá einhverju visu i
sambandi við leiki i ensku knattspyrnunni, mundi eg telja
sigur Newcastle öruggan að þessu sinni. Rétt er þó að hafa
það i huga, að leikir Newcastle hafa verið.misjafnir i vetur
og Leicester á það til að koma á óvart. En þar sem
Newcastle á þennan leik á heimavelli er ég ekki i vafa um
úrslitin. Spá min er þvi heimasigur.
Báðum þessum liðum hefur gengið illa i vetur, réttara
sagt jafn illa, þvi þau eru bæði i hópi þeirra neðstu með 13
stig. Stoke tapaði fyrsta heimaleiknum um s.I. helgi fyrir
Birmingham og WBA tapaði einnig, en á útivelli fyrir Nor-
wich. Stoke vann leikinn i fyrra gegn WBA á TheHawthorns,
þar sem þessi leikur fer fram nú, en ég reikna að dæmið
snúist við og spái WBA sigri.
SIIEEF.UTD.-WOLVES 1
Úlfarnir hafa eflaust valdið aðdáendum sinum vonbrigð-
um með þvi að tapa þrem siðustu heimaleikjum og hafa
aðeins náð þrem jafnteflum i siðustu 5 útileikjum. Nú það
hefur svo sem gengið á ýmsu fyrir Sheff.Utd. i vetur, svo
það má eiga von á hverju sem er i þessum leik, en þó finnst
mér heimasigur eða jafntefli koma helzt til greina. Ég tek
fyrri kostinn og spái heimasigri.
CARDIFF-FULHAM 1
Þá komum við að 2. deildar leiknum á þessum seðli, sem
er milli welska liðsins Cardiff og Lundúnaliðsins Fulham.
Bæði mega þau muna sinn fifil fegri, þvi Cardiff er á botnin-
um i 2. deild og Fulham hangir i þvi að vera um miðju i
deildinni. Ég veit, satt bezt að segja, ekki hver eru likleg-
ustu úrslitin i þessum leik, svo það er varla verra en hvað
annað að leggja traust sitt á heimaliðið.
F’rancis I.ee og félögum hans í Manchester City hefur gengif) hærilega upp á siðkastiö, en um heigina fá þeir erfitt
verkefni, Lccds á útivelli. Það veröur einn af þrem. aðallcikjum umferðarinnar, en hinir eru Derby-Arsenal og
Tottenham - Liverpool. Myndin sýnir Lec leika listir sinar.
IPSWICH-COVENTRY X
Það er úr vöndu að ráða með þennan leik, þar sem liðin,
sem hér eigast við hafa bæði komið á óvart að undanförnu
og á þaö þó sérstaklega við með Coventry, sem nú hefur
leikið eina sjö leiki án taps, siðast 3-0 sigur yfir Sheff. Utd.
Ipswich vann Úlfana á útivelli um s.l. helgi og er nú i hópi
efstu liða með 21 stig. Erfiður leikur, en jafntefli tel ég lik-
legustu úrslitin.
LEEDS-MAN.CITY 1
Þótt eitthvað sé farið aö rætast úr fyrir Man.City, sem nú
hefur náð sér af botninum, verður þeim róðurinn eflaust
erfiður á Elland Road um helgina, þegar þeir mæta Leeds.
Man. City vann góðan sigur yfir nágrönumsinum Man.Utd.
um s.l. helgi á sama tima sem Leeds var i basli gegn botn-
liðinu C.Pal. á Selhurst Park og mátti þakka fyrir annað
stigið i þeim leik. Ég held að Leeds bæti sér það upp nú og
vinni Man. City.
AUKALEIKUR - EÐA VERÐUR
VÍKINGUR MEISTARI?
i dag tekur dómstóll Handknattleiksráðs Reykjavikur
fyrir kærumál Vikings vegna ólöglegs leikmanns ÍR-
liösins i Reykjavikurmótinu. Þetta kærumál hefur vakiö
feikna athygli, og biöa menn spenntir eftir niðurstöðum
dómsins.
i dómnuin eiga sæti þeir Helgi V. Jónsson, sem er for-
maöur, Hörður Felixson og Karl Benediktsson. Vegna
anna Helga V. Jónssonar, var ekki hægt að taka málið
fyrir fyrr en á laugardaginn. Ræddu aðilar dómsins þá
um máliö litillega, en ákváðu að kveða dóminn upp i
dag, eftir að liafa kynnt sér gögnin.
Það verður þvi i dag sem fæst úr þvi skorið hvort Vik-
ingur verður Reykjavikurmeistari að þessu sinni, eöa
hvort koma þarf til aukalciks milli Víkings og Vals um
sigurinn, en eins og kunnugt er, eru Valsmenn núverandi
handhafar titilsins, en Vikingur hefur aldrei til hans
un nið.
Kins og málið virðist liggja fyrir i dag, er vart að efa
annað en Vikingi verði dæindur sigur i leiknum gegn tR,
og hljóti þannig þetta eina stig sem nægir til sigurs i mót-
inu. Geir Thorsteinsson leikmaður úr Gróttu hafði ekki
tekið út tilskilinn biðtima áður en hann hóf að leika með
1R. Um það cru nægar sannanir.
Kn hvað um það, i dag ætti úrskurðurinn að liggja
örugglega fyrir.
Miövikudagur 22. nóvember 1972
o