Alþýðublaðið - 25.01.1973, Qupperneq 1
BJARGRAÐA-
SJOÐUR
BLANKUR
BREGST
LOÐNAN
LÍKA?
BAKSÍÐU
Verði Vestmannaeviahöfn evðileggingunni að bróð
FRAMTÍÐAR-
BORG VIÐ
DYRHÓLAEY?
Þeirri hugmynd hefur skotið
upp, að byggja mætti landshöfn
við Dyrhólaey, ef höfnin i Vest-
mannaeyjum yrði eyðilegging-
unni aö bráð, og útgerð þaöan
hætti.
,,Ég er þeirrar skoðunar að
byggja megi mjög þokkalega
höfn við Dyrhólaey fyrir 250
milljónir króna, og sterka og ör-
ugga höfn fyrir 1500 milljónir”,
sagði Einar Oddsson sýslumað-
ur i Vik i Mýrdal, er blaðið
ræddi við hann i gær um mögu-
leika hafnargerðar við Dyrhóla-
ey.
Einar Oddsson benti á, að við
Dyrhólaey væri eina hugsan-
lega hafnarstæðið á 360 kiló-
metra strandlengju frá Stokks-
eyriað Höfn i Hornafirði. Þarna
mætti byggja upp byggðakjarna
i kringum höfnina, með fisk-
vinnslustöðvum og öðrum at-
vinnurekstri. Til landsins væru
ákaflega góðar sveitir allt i
kring, auðvelt væri að ná i vatn
og þarna væri hlýjast á landinu.
,,Og ekki má gleyma þvi, að
þarna undan eru beztu fiskimið
landsins, og engin höfn stæði
betur við þeim en einmitt höfn
við Dyrhólaey”, sagði Einar
Oddsson.
Gerð hafnar við Dyrhólaey
hefur lengi verið draumur
margra Skaftfellinga. Hafa þeir
barizt fyrir þessu máli með oddi
og egg, en ekki ætið fundið
hljómgrunn hjá ráðamönnum.
Vita- og hafnarmálaskrifstof-
an hefur látið gera könnun á
hafnargerö við Dyrhólaey.
Niðurstaða útreikninga stofnun-
arinnar benti til þess að kostn
aöur við hafnargerðina yrði 2200
milljónir króna. Var þá reiknað
með stórum hafnargarði, eins
konar brimbrjót, og svo minni
höfn þar fyrir innan.
Einar Oddsson sýslumaður
sagði að Skaftfellingar hefðu
ekki verið ánægöir með þessa
Kramhald á bls. 4
í
eins og i
grautarpotti/ þannig að
illfært var um hana af
þeim sökum".
Þannig komst Magnús
Magnússon, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, í
þættinum „Bein lína" í
útvarpinu í gærkvöldi.
Magnús sagði ennfrem-
ur:
„Ýmsir voru þannig
hræddir um, að þarna
væri gos neðansjávar.
En lóðsinn hefur farið
nokkrum sinnum út í dag
og hefur dýpið verið
mælt á tveggja tíma
fresti. Sem betur fer
hafa þessar mælingar
bent til þess, að
hraunstreymið sé i aust-
ur frá eyjunni, en alls
ekki i áttina til hafnar-
innar.
RENSLIÐ
SVIPAÐ
0G í
S0GINU
Samkvæmt upplýsing-
um fréttamanns blaðs-
ins, um miðnættið í gær,
var gígurinn, sem opn-
aðist i gær og beindi
hraunstraum í átt til
byggðar, hættur að
gjósa. Hinar gosstöðv-
arnar voru fremur stillt-
ar, en þrátt fyrir það er
hraunrennslið úr þeim,
sem allt ferá haf út, tal-
ið álíka mikið og rennsli
Sogsins í Grímsnesi.
Vestmannaeyingar reknir frá borði
Heimferðarbann!
]] Nóg verkefni fyrir karlmenn og ekkert að óttast, segir forstjóri
frystihúss — en Almannavarnaráð vill sem fæsta á ferli í Eyjum
A meðan landsmenn vinna
kappsamlega að þvl, allir sem
einn, að bjarga verðmætum
frá skcmmdum i Vestmanna
eyjum, hafa vélstjórar I
Reykjavik boðað eyðileggingu
milljónaverðmæta i frystihús-
unum þar.
Vélstjórar við frystihúsin i
Reykjavik hafa verið i verk-
falli frá 11. janúar. Frá 1.
febrúar höfðu þeir hótað að
hætta að halda frosti á frysti
geymslum, en þar eru
milljónaverðmæti.
1 gær tilkynntu þeir svo
bréflega, að frá klukkan 11
fyrir hádegi I dag, fimmtudag,
myndu þeir hætta að halda.
frosti á frystigeymslunum.
Tilkynntu þeir þessa breyt-
ingu með aðeins sólarhrings-
fyrirvara.
— Margir hér i Vestmannaeyj-
um eru dálitið sárir yfir þvi, að
svo til allir bæjarbúar voru drifn-
ir í burtu frá eyjunni morguninn
eftir að gosið hófst. Fyrir vikið
lamaðist öll starfsemi við fisk-
vinnslustöðvarnar.
Alþýöublaðið ræddi i gær við
forstjóra eins af stærstu frysti-
húsunum I Eyjum i gærkvöldi.
Lögregluþjónn rekur Vest-
mannaeying í land úr
Heklu í Þorlákshöfn,
Maðurinn hafði ekki heim-
ferðarleyfi undirritað af
Almannavarnaráði.
Sagöi hann, að enginn starfs-
manna fyrirtækisins hafi oröið
eftir i Eyjum nema hann sjálfur
og einn verkstjórinn. Svo mikið
heföi óöagotið verið við að koma
fólkinu burtu á þriðjudags-
morguninn, að þeir sem höfðu
lyklavöld að peningaskáp og
skjalageymslu fyrirtækisins,
hafi haft alla lykla með sér.
Þá sagði hann, að raunverulega
hefði engin lifshætta verið á ferð-
um eins og sakir stóðu um morg-
uninn.
í gær voru menn að reyna að
komast til Eyja aftur til að huea
að eignum sinum og eins til þess
að starfa við frystihúsin. En að-
eins örfáir þeirra fengu leyfi til
þess frá Almannavörnum.
Hins vegar komu hingað til
Vestmannaeyja fjöldi manns frá
Bæjarútgerð Reykjavikur til að
skipa út freöfiski. Að þvi Eyja-
menn fréttu, var heimamönnum
ekki verið leyft að fara heim,
þar sem taliö væri, aö þeir
strykju úr vinnu til að ná i búslóð
sina.
Forstjórinn, sem við ræddum
við, sagði, aö aldrei hefði átt að
flytja burt annað fólk en konur,
börn, sjúklinga og gamalmenni.
En úr þvi sem komið væri ætti
skilyrðislaust að flytja út aftur
hópa af friskum karlmönnum.
Nóg væri að vinna við að bjarga
verömætum, en tugir eöa hundr-
uð tonna af óverkuöum fiski lægju
undir skemmdum, þar eð ekki
hefði verið mannafli til að isa
fiskinn. —ÞORRI
rí MIÐJUM-i
ÞJÓÐAR-
VANDA
VÉLSTJÓRAR
STÖÐVA
FRYSTIHÚSIN
llllllillllFyrsta rýmkunin: þriggja tíma viðdvöl
Um 200 Vestmannaeyingar fóru I
til Vestmannaeyja i gær, með ms.
Heklu, til að huga að eigum sinum
og sækja brýnustu nauðsynjar, og |
hafði hópurinn þriggja tima land-
vistarleyfi.
Þetta er fyrsti hópurinn sem
hefur fengið ferðaleyfi til Eyja
eftir að gosið hófst, en þessháttar
leyfum verður áfram úthlutað á
skrifstofu i Hafnarbúðum næstu
daga.
Enginn hópur má hafa nema 3ja
tima viðdvöl og verður fylgzt með
að allir komi aftur.