Alþýðublaðið - 25.01.1973, Síða 2
36 f jölskyldur
í ðlfusborgir
Alþýöusamband tslands hefur
boöiö nauöstöddum Vestmanna-
eyingum ölfusborgir til afnota.
Er hér um aö ræða 36 hús, sem
verkalýösfélögin eiga viö
Hverageröi og notuð hafa veriö
sem sumarbúöir fyrir meölimi
þeirra.
Mun Alþýöusambandið ráö-
stafa þessum ágætu húsum til
þeirra, sem verst eru settir, og
munu meðlimir verkalýösfélag-
Drengileg
rausn
trygging-
arfélags
í fyrradag barst skeyti frá
aöalforstjóra tryggingafélagsins
„Ansvar International” í Stokk-
hólmi, til Abyrgöar hf., trygg-
ingafélags bindindismanna, sem
er umboðsaðili hérlendis, þar
sem hann lagði fyrir félagið aö
greiöa öllum Vestmannaeying-
um, sem hafa heimilistryggingu
hjá þvi fyrirtæki, kr. 20 þúsund
fyrir hjón og kr. 10 þúsund fyrir
hvert barn. Er þetta óendurkræf
aðstoð félagsins við þetta fólk, og
stendur i engu sambandi viö
tjójiabætur til þess.
Tómas Simonarson, fulltrúi hjá
Abyrgð hf., sagði blaðinu, aö þaö
hefði verið sérstaklega ánægju-
legt aö inna þessar greiöslur af
hendi.
Nokkrir komu i gær og sóttu
þessa kærkomnu hjálp. Tómas
kvað ekki liggja fyrir, hver
heildarhæð þessara greiöslna
yrði, en mikil ánægja væri hjá
bæði veitendum og þiggjendum
með þessa drengilegu rausn.
anna i Vestmannaeyjum ganga
fyrir að öðru jöfnu.
Hús þessi eru öll vel búin hús-
gögnum, heimilistækjum, borð-
búnaði og jafnvel sængurfatnaöi.
Upplýsingaþjónusta
Vestmannaeyja tjáöi blaöinu i
gær, aö þegar heföu einhverjir
hug á að nota sér þessa kær-
komnu aöstoö.
Ókeypis
læknishjálp
A þriðjudaginn barst blaðinu
eftirfarandi orösending frá
stjórnum Læknafélags tslands og
Læknafélagi Reykjavikur:
t tilefni þeirra hörmunga, sem
yfir ibúa Vestmannaeyja hafa
dunið, hafa stjórnin Læknafélags
tslands og Læknafélags Reykja-
vikur beint þeim tilmælum til
félagsmanna sinna að þeir veiti
fólki frá Vestmannaeyjum
læknishjálp án endurgjalds.
Fjárbændur í Eyjum á fundi
KOMA LANDBUNADI
SÍNUM f GEYMSLU
Halldór Pálsson, búnaðarmála-
stjóri, fór i gær austur á
Rangárvelli til að kanna þar að-
stöðu til að taka við sauðfé fjár-
bænda i Vestmannaeyjum.
Sæmundur Friðriksson, for-
stjóri sauðfjárveikivarna, sagði
blaðinu, að i ráði væri að kanna
húsakost og aðrar aðstæður i
Ketilhúshaga, næsta bæ við
Gunnarsholt. Að Ketlu var áður
stórbú, en þar hefur nú ekki
verið búið i nokkur ár.
Einar Gislason, formaður
Fjárbændafélagsins i Vest-
mannaeyjum, boöaði til fundar i
félaginu i gærmorgun á Hótel
Sögu. Mætti Búnaðarmálastjóri
á fundinum, sem og Sæmundur
Friðriksson, fulltrúi frá Dýra-
verndarsambandinu og fleiri.
Guðmundur Kristjánsson, einn
fjárbændanna, sagði að af
ýmsum ástæðum hefðu fáir fé-
lagar verið mættir. Taldi hann
vafalaust, að fjáreigendur i
Eyjum aefðu mikinn hug á þvi
aö flytja fé til lands. Kvað hann
rúmlega 6 hundruð fjár vera i
eyjum, þar af um 60 iúteyjum.
Værinúalltfé i Heimaey á gjöf
og allir hestar i góðri vörzlu.
Formaður Dýraverndunarsam-
bands tslands fór til Eyja i
fyrradag við þriðja mann, til
þess að vinna að umsjá og flutn-
ingi búpenings i samvinnu við
heimabændur og aðra aðila þar.
5 hestar komu með m/s Heklu
til Þorlákshafnar i gær og
ákveðið að flytja alla hesta til
lands, en þeir munu vera 40
alls. óráðið mun, hversu fer um
hænsnin,en þau eru fóðruð enn-
þá.
Nokkrum vandkvæðum kanna
að vera bundið að ná fé úr út-
eyjum, en það mun helzt i hættu
AÐEIHS TVEIR HOFBU TRVGGT
HUS GEGN NÁTTÚRUHAMFdRUM
Er það virkilega satt—Magnús Torfi?
Bragi Jósepsson
fræðslustjóri?
Alþýðublaðið hefur það eftir
öruggum heimildum, að
menntamálaráðherra hafi sett
Braga Jósefsson til eins árs i
embætti fræðslumálastjóra.
Mun dr. Bragi eiga að taka við
starfinu eftir u.þ.b. tvo mán-
uði, en þangað til mun Helgi
Eliasson, núverandi fræðslu-
málastjóri, sinna starfinu.
Atti hann að láta af störfum
um s.l. áramót vegna aldurs,
en var fenginn til þess að
gegna áfram um skamma
hrið.
Aðeins tveir Vestmannaeying-
ar höfðu húseignir sinar tryggðar
gegn tjóni af völdum eldgoss,
þegar náttúruhamfarirnar hófust
i Vestmannaeyjum.
Þetta kom fram i samtali viö
Asgeir ólafsson, framkvæmda-
stjóra Brunabótafélags tslands,
en félagið annast allar bruna-
tryggingar i Vestmannaeyjum.
Asgeir sagði, að venjuleg
brunatrygging, sem er skyldu-
trygging, taki ekki til tjóns vegna
eldgosa. Hins vegar væri til sér-
stök jarðskjálftatrygging, sem
svo er nefnd, en hún taki til tjóns
vegna jarðskjálfta og gosa, eða
elds, sem kann að kvikna i húsum
af beim orsökum.
„Fyrirfram höfðu fáir Vest-
mannaeyingar slika tryggingu,”
sagði Asgeir, en allnokkrir aöilar
hefðu keypt sér jarðskjálfta-
tryggingu, þegar gosiö varö i
Surtsey á sfnum tima.
„Nú hafa hins vegar aðeins
tveir aðilar i Vestmannaeyjum
þessa tryggingu,” sagði Asgeir.
Asgeir kvað afar erfitt fyrir
tryggingafélög að tryggja eignir
fólks vegna tjóns af völdum eld-
gosa og ýmissa annarra náttúru-
hamfara enda mjög erfitt að fá
endurtryggingu hjá erlendum
tryggingafélögum vegna slikra
trygginga nema að tiltölulega
litlu marki.
„En þó að venjulegar
tryggingar taki ekki til þess tjóns,
sem verður i Vestmannaeyjum af
völdum eldgossins, verður að
Framhald á bls4.
Ekkert frétzt af gripdeildum í mannlausu húsunum
LOGREGLAN GÆTIR BÚS OG BÍLS
Lögreglan i Vestmannaeyjum
er nú sem óðast að öðlast öll
lyklavöld i eynni, að þvi er Guð-
mundur Guðmundsson yfirlög-
regluþjónn tjáði blaðinu i gær.
Urmull af hús- og billyklum
streyma nú til lögreglunnar, svo
lögreglan hefur nú hundruð
lyklakippna undir höndum. Lög
Fyrsta bíla-
sendingin
komin i land
reglumenn, og reyndar aðrir
björgunaraðilar i eynni, hafa lagt
dag við nótt siðan gosið hófst, að
þvi er Guðmundur sagði.
Farið hefur verið i flest hús,
bæði til eftirlits og til að ganga úr
skugga um að engin hafi orðið
eftir. Guðmundur sagði að lög-
reglan vildi ekki hafa á samvizk-
unni að einhverjar eftirlegukind-
ur væriu i eynni, þar sem öll verð
mætagæzla væri i höndum henn-
ar, og verömætin skiptu milljörð-
um króna.
Ekki var honum kunnugt um að
nokkur hafi farið um með hnupli,
eftir að fólk yfirgaf heimili sin,
enda væri erfitt um slikt að segja
þar sem engin væri heima til að
sakna neins.
Nú er sem óðast verið að flytja
bila frá Eyjum, og voru um 90 bil-
ar fluttir þaöan i gær með Ms.
Heklu og Herjólfi, en skipin voru
væntanleg aftur i kvöld eða nótt,
og bjóst Guðmundur við að þau
yrðu aftur fyllt af bilum.
Um 850 bilar eru skráðir i Vest-
mannaeyjum, og bjóst Guðmund-
ur við að þeir yrðu flestir fluttir i
land nema þeir stærstu, þar sem
þeir þurfa að vera til taks ef
skyndilega þarf að flytja verö-
mæti.
i Þorláks-
höfn.
'
Fimmtudagur 25. janúar 1973