Alþýðublaðið - 26.07.1973, Page 4
FHA JFLUC.FElLAC.I/VU
Frá mönnum
og málefnum
Skandi-
navískan
í munni
okkar
Sá ósiður hefur löngum við-
gengizt i samskiptum okkar við
frændþjóðirnar að tala
skandinavisku, það er sam-
bland af norsku, sænsku og
dönsku. Enginn veit hvaðan sú
kvöð er runnin tslendingum i
fang að tala eitthvað anhað en
islenzku á norrænum manna-
mótum, þegar frændur okkar
tala sitt móðurmál, og öllum er
gert að skilja.
Það er stundum verið að
hlæja að þjóðum eins og
Rússum og Frökkum, sem
staðfastlega neita að tala annað
en móðurmál sitt á fjölþjóða-
mannfundum, og krefjast þess
að slikir mannfundir hafi á að
skipa túlkum, sem sjái um þá
hlið málsins, er lýtur að því að
gera þá skiljanlega. Fulltrúa
þessara þjóða mundi ekki
varða, þótt enginn túlkur væri
til að snúa máli þeirra. Þeir
myndu tala samt, óskiljanlegir
öörum.
Hér þætti það sjálfsagt fordild
aö fara að kref jast túlka á nor-
rænum mannfundum, en íslend-
ingar eiga að hætta þessari
skandinavisku sinni. Hún fer
þeim ekki vel i munni, og mál
sitt rpyndu þeir flytja með ólikt
meiri glæsibrag, ef þeir töluöu á
fslenzku, sem siðan væri þýdd
jafnóðum. Þannig héldu þeir
fullkomlega virðingu sinni. 1
staðinn klæmast þeir á Norður-
landamálunum eins og vixlaðir
hestar. Við getum öll gert
okkur i hugarlund hvernig er að
heyra langa ræðu útlendings,
sem reynir að tala á islenzku.
Ambögurnar, áherzlurnar og
hreimurinn gerir mál hans
mjög óáheyrilegt, jafnvel þótt
hann sé allgóður i islenzkunni.
Og það er einmitt þannig mál,
sem Islendingar hafa vanið sig
á að tala á norrænum mótum.
Það er raunar mesta furða, af
hve mikilli alvöru frændur vorir
hafa hlustað á þá.
Það er mál til komið að gera
breytingu á þessu. A næsta
fundi Norðurlandaráðs á að tala
á islenzku. Norðurlandaráð
verður að kosta þvi til að hafa
túlka. Menn geta svo æft sina
skandinavisku yfir glasi á eftir.
VITUS
LIR UG SKAHIGKIFIR
KCRNELÍUS
JONSSON
SKÖLAVÖRÐUSI l(J 8
BANKASIRí TI6
ih*)88 • teooo
j Askriftarsíminn er
! 86666
Staða fræðslustjórans
i Reykjavik er laus til umsóknar.
Starfið veitist frá 1. október 1973.
Laun samkv. kjarasamningi borgarinnar
og Starfsmannafélags Reykjavikurborg-
ar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist skrifstofu borgar-
stjóra fyrir 17 ágúst n.k.
Reykjavik 25. júli 1973.
Borgarstjórinn i Reykjavik.
Skólastjóra
vantar að Alþýðuskólanum Eiðum,
umsóknarfrestur til 5. ágúst. Upplýsingar
i menntamálaráðuneytinu og hjá Sigurði
Blöndal, Hallormsstað.
Skólanefndin.
BORGARNESHREPPUR
óskar að ráða starfsmann. Hér er um að
ræða starf gjaldkera og fulltrúa sveitar-
stjóra. — Starfið er fjölbreytt og gefur
hæfum umsækjanda góða möguleika á að
kynnast flestum þáttum sveitarstjórnar-
málefna.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, ásamt meðmælum, sendist
skrifstofu Borgarneshrepps, fyrir 1. ágúst
n.k.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður i
sima 2707 i Borgarnesi.
Sveitarstjórinn i Borgarnesi.
Lausar stöður
Tvær kennarastöður við Menntaskólann á
Akureyri önnur i islenzku, en hin i lifefna-
og efnafræði, eru lausar til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir með ýtarlegum umsóknum um
menntun og starfsferil sendist mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykja-
vik, fyrir 25. ágúst n.k. — Umsóknareyðu-
blöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
25.júli1973.
UTBOÐ
Vatnsveita Neskaupstaðar óskar eftir til-
boðum i gerð 600 rúmmetra vatnsgeymis
og lokahúss úr steinsteypu ásamt tilheyr-
andi lögnum.
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrif-
stofunum i Neskaupstað og Verkfræði-
stofu Sigurðar Thoroddsen sf., Ármúla 4,
Reykjavik gegn kr. 3.000.00 skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofunum
i Neskaupstað þriðjudaginn 14. ágúst 1973
kl. 11 f.h.
Bæjarstjóri.
Afgreiðslumenn óskast
Flugfélag íslands óskar að ráða tvo
afgreiðslumenn til starfa i farþega-
afgreiðslu á Reykjavikurflugvelli.
Verzlunarskóla- eða Samvinnu-
skólamenntun nauðsynleg.
Umsóknareyðublöðum, sem fást i
skrifstofum félagsins, sé skilað til starfs-
mannahalds i siðasta lagi föstudaginn 6.
ágúst n.k.
FLUCFELACISLANDS
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Staða sálfræðings við GEÐDEILD
BARNASPÍTALA HRINGSINS er
laus til umsóknar og veitist frá 1. okt.
1973.
Staða FÉLAGSRÁÐGJAFA við
GEÐDEILD B ARNASPÍTALA
HRINGSINS er laus til umsóknar.
2 stöður AÐSTOÐARLÆKNA við
KLEPPSSPÍTALA eru lausar til
umsóknar. önnur veitist frá 1. sept.
1973, en hin frá 1. okt. 1973.
Umsóknir með upplýsingum um
aldur, námsferil og fyrri störf,
sendist stjórnarnefnd rikisspital-
anna, Eiriksgötu 5, fyrir 1. sept. 1973.
Reykjavik 24. júli 1973
SKRIFSTOFA
RlKISSPÍTALANNA
EIRlKSGÖTU 5.SÍM111765
Ferðafélagsferðir
Föstudagur 27. júli kl. 20
Landmannalaugar — Eldgjá — Veiðivötn
Kerlingarfjöll — Snækollur — Hveravellir
Hvítárvatn — Karlsdráttur (bátsferð á vatninu)
Nýidalur — Tungnafelssjökull
Laugardagur kl. 8. Þórsmörk.
Sumarleyfisferðir
28.-31. júli. Ferð á Vatnajökul (Ekið á „Snjóketti”)
28. júli - 2. ágúst. Lakagigar — Eldgjá — Landmanna-
laugar
Ferðafélag tslands, öldugötu' 3.
Símar 19533 ig 11798.
Islenzki
dansflokkurinn
Stjórnandi: Alan Carter, sýnir i Félags-
heimili Seltjarnarness, næstu sunnudags-
og fimmtudagskvöld kl. 21.15. Miðasala
opin frá kl. 19 sýningardagana. Pantanir i
sima 22676.
o
Fimmtudagur 26. júlí 1973.