Alþýðublaðið - 26.07.1973, Blaðsíða 10
IÞ ROTTIR
HREINH
19 M?
Hreinn sterki Halldórsson af
Ströndum varpaði kúlunni i
fyrsta sinn yfir 18 metra nú I vik-
unni eða 18,18 metra. Geröist
þetta á innanfélagsmóti á Mela-
veilinum gamla. Hreinn sýnir
framfarir með hverju móti, og
ekki er óliklegt aö nýtt islands-
mct sjái dagsins Ijós, og jafnvel
að Hreinn varpi kúlunni yfir 19
metra. Met Guðmundar
Hermannssonar i greininni er
18,48 metrar, svo nú skortir Hrein
aðeins 30 sentimetra i metið.
i fyrra gekk Hreini illa lengi
sumars, en undir lok sumarsins
tók hann stórstigum framförum,
og varpaöi lengst 17,99 metra. Nú
tekur Ilreinn við sér heldur fyrr,
og ómögulegt að segja hvað hann
gerir i sumar. Þeir sem til
þekkja, segja aö Hreinn eigi auð-
vcldlega aö geta kastaö yfir 20
metra.
FRAM
KOMST
ÁFRAM
Fram tryggði sér sæti i 8-liða
úrslitum bikarkeppni KSl i fyrra-
kvöld, með 5:1 sigri yfir Haukum
á Laugardalsvellinum. Knatt-
spyrnan sem liðin sýndu var
heldur bágborin, og ekki i likingu
við veðrið sem var sérstaklega
gott i fyrrakvöld.
Fyrsta mark leiksins gerði Jón
Pétursson, sem lék miðherja i
þessum leik. Atli Jósefsson
breytti stöðunni i 3:0, en annað
markanna skoraði hann með
hjálp varnarmanns Hauka.
1 siðari hálfleik bættu Fram-
arar enn við tveimur mörkum, og
voru þeir Jón og Atli þar að verki
einnig. Staðan var orðin 5:0, en
siðasta orðið i leiknum átti Loftur
Eyjólfsson fyrir Hauka, og loka-
staðan varð 5:1. Þar með hafði
Fram tryggt sér áframhald i
keppninni ásamt FH, sem sigraði
Þrótt N 2:0 á sunnudaginn.
2.fl. kvenna
Handknattleiksmót Islands i
2.fl.kv. 1973, utanhúss, verður
haldið 10.—19. ágúst.
Þátttökugjald er kr. 1.500.—
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast fyrir 30. júli, ásamt þátt-
tökugjaldi.
Handknattleiksdeild Armanns,
Pósthólf 7149, Reykjavik.
BIKARKEPPNI KKI
Bikarkeppni Körfuknattleiks-
sambands Islands hefst i septem-
ber. Þátttökutiikynningar þurfa
að hafa borizt K.K.I. fyrir 10.
ágúst.
K.K.l.
Valsmenn sækja að marki ÍBV f fyrri hálfleik, en án árangurs. (AB mynd Friðþjófur) ^
ENN TAPA BLIKARNIR STORT
-FÁn ðVÆNT í BIKARNUM
1. deildar liðin stóð-
ust öll atrennu liðanna
úr neðri deildum i
bikarnum i gærkvöldi.
Úrslit leikjanna urðu
þau að Vestmanna-
eyingar unnu Val 1:0,
Keflavik vann Breiða-
blik5:0, Akureyri vann
ísafjörð 2:1, KR vann
Völsung:}:2 og Akranes
vann Selfoss 3:2. Þá er
aðeins einn leikur eftir
i 16 liða úrslitunum,
Þróttur R og Vikingur
leika á Melavellinum
klukkan 20 i kvöld.
Leikur Vals og ÍBV varð ekki
sú skemmtun fyrir áhorfendur
sem reiknað var með hjá tveim-
ur svona sókndjörfum liðum.
Það var einkum fyrri hálfleik-
urinn sem var slakur. Undir lok
hálfleiksins lifnaði aðeins yfir
liðunum, og sóttu Eyjamenn
heldur meira. En bezta tækifæri
hálfleiksins fékk þó Valur er Jó-
hannes Eðvaldsson skallaði að
marki, en Arsæll Sveinsson i
marki IBV varði mjög vel. Þá
var örn Óskaarsson bókaður
fyrir ljótt brot.
I siðari hálfleik færðist heldur
fjör i leikinn, oft skall hurð
nærri hælum við mörkin. Menn
áttu hálfpartinn von á að leikur-
inn myndi enda 0:0, og að annan
leik þyrfti til. En undir lokið
náðu Eyjamenn upphlaupi, örn
Öskarsson gaf knöttinn fyrir,
Tómas Pálsson skallaði að
marki, og þar stóð nýliðinn Við-
ar Eliasson og skallaði i netið
mjöglaglega. Viðar er aðeins 17.
ára, og þetta var hans annar
leikur i meistaraflokki. Eyja-
menn stóðust þar með fyrstu at-
rennu bikarvarnarinnar, en þeir
unnu i fyrra.
I siðari hálfleik kom fyrir at-
vik sem getur orðið Val afdrifa-
rikt. Hermann Gunnarsson
sparkaði þá af tilefnislausu i
Þórð Hallgrimsson, og var Her-
manni vikið af velli. Hann fær
nú leikbann, jafnvel tvo leiki, og
verður örugglega ekki með gegn
IBK i toppuppgjörinu um næstu
helgi i Keflavik.
Yfirburðir ÍBK voru algerir
gegn Breiðabliki, og vann liðið
stórt, 5:0. Eru Blikarnir orðnir
vanir þvi að fá á sig mörg mörk.
Steinar Jóhannsson 2, Grétar
Magnússon, Gunnar Jónsson og
Karl Hermannsson skoruðu
mörk IBK. Staðan i hálfleik var
2:0.
A morgun verður fjallað um
bikarleikina.
— SS.
ÞAÐ VERDUR ÞRAUTIN ÞUNG
Eins og skýrt hefur verið frá
fara fram undanúrslit Evrópu-
hikarkeppninnar i tugþraut og
fimmtarþraut kvenna hér i
Reykjavik dagana 11. og 12.
Iágúst. Keppt er i þremur riðlum
en hinir riðlarnir verða i Inns-
bruck i Austurriki og Sofia i
Búlgariu sömu daga. tJrslit
keppninnar verða svo i Bonn
Pl
v
HiSÉpl
Þekkið þið þennan?
Enskt blað lagði nýverið þessa þraut fyrir
lesendur sina. Hver er þessi glaðlegi piitur?
Hann varð átrúnaðargoð milljóna manna, og er
enn vinsæll og virtur þótt hann sé farin að eldast.
Hann hefur litrikan feril að baki.
I Bretlandi, þar sem svo til hvert mannsbarn
kannast við manninn, voru aðeins örfáir sem
könnuðust við hann af myndinni. Ef þú getur
ekki leyst gátuna, þá snúðu blaðinu á haus, og ef
þú kemur andlitinu ekki fyrir þig samt, geturðu
lesið nafn mannsins á iþróttasiðunni i gær.
''V..
Vestur-Þýzkalandi dagana 22. og
23. september.
Hér i Reykjavík keppa eftir-
Italdar þjóðir, auk Islands: Bret-
land, trland, Frakkland, Belgia,
Holland og Danmörk. Þessar
þjóðir eiga margt af bezta afreks-
fólki heims i fjölþrautum, má
m.a. nefna Mary Peters, sem
varð olympiumeistari i fimmtar-
þraut i Munchen og setti glæsilegt
heimsmet. Ýmsir tugþrautar-
mannanna hafa og náð um og yfir
8000 stigum.
Aðeins ein þjóðanna hefur sent
skrá yfir keppendur sina en það
•eru Frakkar. Keppendur þeirra
eru, bezti árangur innan sviga og
hvorttveggja er landsmet:
Tugþraut:
Yves Leroy (8140 stig)
Jean-Pierre Schoebel (7577)
Michel Lerouge (7535)
Frédéric Roch (7524).
Fimmtarþraut kvenna:
Marie-Christine Wartel (4432
stig)
Florence Picaut (4229)
Odette Ducas (4165)
Martine Fenouil (3933).
Þriggja mann dómnefnd er og
væntanleg frá Evrtkpusam-
bandinu, en slikt gerist ávallt á
slikum mótum. Formaður
nefndarinnar er Professor Dr.
Georg Wieczisk, formaður
Austur-þýzka Frjálsiþróttasam-
bandsins. Hinir dómnefndar-
mennirnir eru Juan Manuel de
Hoz, Spáni og Jean Frauenlob frá
Sviss.
Fimmtudagur 26. júli 1973.