Alþýðublaðið - 27.09.1973, Side 3
PJUtlHA IIUAK-
PENSILINN Á
LOFT. MÁLARAR
Myndlistin hefur heldur
betur oröiö útundan i
samræðum um listir á
Þjóðhátíö 1974. Einar
Hákonarson, hefur brotiö
þetta tómlæti á bak aftur
með því að taka upp hjá
sjálfum sér aö gera sögu-
lega mynd um Apavatns-
förina. Á myndinni má
sjá Einar hjá listaverki
sínu, og er þess nú bara að
vænta, að fleiri mynd-
listarmenn sjái sér fært að
minnast afmælisins 1974
með pensli sinum— án
þess að til þess hafi komið
opinber samkeppni.
I
'i
1
%
,¥é
•Æ
RÁÐUNEYTIÐ
LIGGUR ENN
Á GRÆNA
LJÓSINU
Milli 20 og 30 ungmenni
hafa sýnt áhuga á því að
sækja um inngöngu í leik-
listarskóla þann, sem leik-
húsin í Reykjavik og Félag
íslenskra leikara hafa sótt
um til menntamálaráðu-
neytisins að fá að reka, en
ráðuneytið hefur enn ekki
gefið grænt Ijós um stofnun
hans, þótt nokkuð sé liðið á
haustið. Eins og Alþýðu-
blaðið skýrði frá í sumar
gengu leikhússtjórarnir á
fund Magnúsar Torfa og
lögðu þessar tillögur fyrir
hann, og reiknuðu þá með
því, að skólinn tæki til
starfa í haust, yrði hann
samþykktur. Létu bæði
Vigdís Finnbogadóttir og
Sveinn Einarsson, leikhús-
stjórar, í I jós vonbrigði með
gang þessa máls, þegar
Alþýðublaðið ræddi við þau
í gær.
,,Leikfélag Reykjavíkur
hættiaðtaka inn nemendur
árið 1966 og útskrifaði þá
síðustu 1969 í því skyni að
reka á eftir stofnun ríkis-
leiklistarskóla", sagði
Sveinn við Alþýðublaðið,
„og Þjóðleikhússkólinn út-
skrifaði síðustu nem-
endurna árið 1972. Nú er
þörfin fyrir leikara undir
tvítuguorðin mjög brýn, og
með þessum leiklistarskóla
í veturætluðum við að brúa
bilið þar til ríkisskólinn
verður stofnaður, en ekki er
að búast við, að það verði
fyrr en eftir tvö til fjögur
ár."
Það fyrsta, sem gerðist í
þessu máli eftir að til-
lögurnar voru lagðar fyrir
ráðherra í sumar var, að
Knútur Hallsson skrifstofu-
stjóri í menntamálaráðu-
neytinu kallaði leikhús-
stjórana á sinn fund i gær-
morgun, og voru til-
lögurnar þá ræddar. Að
sögn Sveins var hugmyndin
að fá Lindarbæ undir
skólahaldið, en fresturinn
til að ákveða hvort hús-
næðið verður tekið eða ekki
er löngu útrunninn. Því er
óvíst, hvort það fæst, eða
hvarskólinn fær inni, verði
af stofnun hans i haust.
Pylsurnar
ná austur á
Hornafjörð!
A fyrstu 7 mánuðum ársins
framleiddi Kjötiðnaðarstöð
S.l.S. 200 tonn af ýmiskonar
pylsum. Er þetta veruleg
aukning frá þvi, sem var á
fyrra ári, segir i fréttabréfi
Sambandsins, sem nýlega hef-
ur borist. Mun láta nærri, að
óslitin pylsuröð Kjötiönaðar-
stöövarinnar nái frá Reykja-
vik til Hafnar i Hornafiröi i
árslok, miðað við sömu afköst
það sem eftir er ársins, en
þangað eru nálægt 1000
kilómetrar eftir þjóðvegi.
t bilainnflutningi Sam-
bandsins er það nýmæli, að i
fyrsta skipti á 15 ára timabili,
hefur nú verið selt nokkuð
magn bandariskra vörubila,
en Biladeildin hefur nú þegar
fest kaup á 33slikum bilum, og
i ráði er að gera pöntun á 40
vörubilum til viðbótar frá
Bandarikjunum.
VOTMÚLINN
Á HREINT
Á LAUGAR-
DAGINN
„Sýslunefndarfundur í
Árnessýslu verður haldinn
næstkomandi laugardag og
verða þá kaup Selfoss-
hreppsá jörðinni Votmúla í
Sandvíkurhreppi tekin
fyrir, „sagði Páll Hall-
grímsson sýslumaður við
Alþýðublaðið.
Fundurinn hefst upp úr
hádeginu og verður honum
væntanlega lokið fyrir
kvöldið, að sögn sýslu-
manns.
Verslunarráðið
varar við slitum
gegn Bretum
Verslunarráð tslands varaði i
gær alvarlega við slitum stjórn-
málasambands við Breta. Segir
ráðið i tilkynningu, að skaöi okk-
ar viðskiptalega mundi verða
mun meiri en skaði Breta, komi
tilslita viðskiptalegra sambanda.
1 tilkynningu Verslunarráðsins
segir orðrélt:
Framferði Breta á miðunum nú
getur bent til þess, að þeir vilji fá
átyllu til þess að rjúfa öll viðskipti
við okkur. Bresk stjórnvöld vita,
að þau geta á þann hátt valdið
okkur stórfelldu tjóni, án þess aö
hagsmunir þeirra skaðist veru-
lega.
t þvi sambandi vill V.t. vekja
athygli á eftirfarandi:
Meiri hluti landbúnaðarvéla er
breskur og rekstur þeirra háður
varahlutaþjónustu þeirra.
Ýmsar þýðingarmiklar rekstr-
arvörur sjávarútvegs og iðnaðar
koma frá Bretlandi.
Stór hluti bifreiða landsmanna
er háður breskri varahlutaþjón-
ustu.
Rekstur flugfélaga okkar bygg-
ist að nokkru leyti á flugi til
breskra flugvalla og á þvi að
flytja breska ferðamenn.
Fjölmargir islenskir náms-
menn sækja menntun sina til
Bretlands.
Miðstöð alþjóðlegra endur-
trygginga.sem við verðum að
hafa aðgang að, er i London.
Fjölmargir sjúklingar eru ár-
lega sendir til Bretlands til með-
ferðar við alvarlegum sjúkdóm-
um, sem erfitt er að fá fram-
kvæmda annars staðar.
Ennfremur er rétt aö hafa i
huga, að Bretar, ef þeir beita sér,
hafa mjög góða aðstöðu til þess að
gera okkur erfitt fyrir um nýjar
lántökur á alþjóðlegum peninga-
markaði, og getur hver maður
sem vill, séð hverjar afleiðingar
slikt myndi hafa fyrir verklegar
framkvæmdir og gjaldeyrisstöðu
landsins.
NOTUM
FREKAR
SÍMANN
Okkur tslendingum er gjarnt
að gripa til simans og þvi
notum við póstinn minna en
tiðkast i nágrannalöndunum.
Siðastliðið ár nam aukningin i
póstsendingum 2,9%, en það
samsvarar 546 þúsundum
sendingum.
Fimmtudagur 27. september
o