Alþýðublaðið - 31.10.1973, Page 1
Átt þú
pening
I • / B #J • ■ f\ ^
h a rikinu r
Ósóttir vinningar
nema röskum tveimur
milliónum króna
sé ekki vitjaö, en aö sögn
Jóns Dan ríkisféhirðis
liggja enn hjá honum
nokkrir 250 króna vinn-
ingar i happdrættis-
skuldabréfum, sem byrj-
aö var aö selja um 1950.
Sagöi Jón, að kannski
mætti telja þessa ósóttu
vinninga i tugum þús-
unda, en auk þeirra eru
nokkuö margir vinningar,
sem eru fyrndir.
242. tbl.
Miðvikudagur 31. okt. 1973 S4. arg.
NU MA SPRINGA
Miklum áhyggjum
ætti nú að vera létt af
mörgum ökumannin-
um, þar sem hafinn er
innflutningur á efni,
sem nota má til að gera
viö sprungna hjólbarða
i einni svipan. Efni
þetta, sem nefnist
„Puncture Pilot 77” er
hollenskt og er lim-
kvoða, blandað gasi,
sem er dælt i dekkin úr
þrýstidunk 23 til 25
punda þrýstingur fæst i
dekkið með hjálp þessa
efnis, og að sögn inn-
flytjendanna er óhætt
að aka nokkur þúsund
kilómetra án þess að
hugsa frekar um
sprungna hjólbarðann,
nema skemmdir séu þvi
meiri.
Ekki virðast allir vera
mjög áfjáðir i að vitja
happdrættisvinninga,
sem þeim hefur fallið i
skaut, þvi samkvæmt
upplýsingum, sem Al-
þýðublaðið fékk hjá
Seðlabankanum i gær
nemur upphæð ósóttra
vinninga, sem hafa verið
dregnir út i happdrættis-
skuldabréfum rikissjóðs
vegna hringvegarins,
hvorki meira né minna en
tveimur milljónum og 150
þúsundum króna.
1 fyrra var dregið tvisv-
ar sinnum i A-flokki, um
samtals 14 milljónir, og
hefur enn ekki verið vitj-
að um 54 tiuþúsund króna
vinninga og þrjá 100 þús-
und króna vinninga.
Dregið var i B-flokki 30.
júni sl. um 9.1 milljón
króna, og hefur ekki verið
vitjað um fimm 100 þús-
und króna vinninga og 82
tiu þúsund króna vinn-
inga. Sé ekki vitjað um
vinninga þessa innan
fjögurra ára renna þeir til
rikissjóðs.
Það er svosem engin ný
bóla, að vinninga i happ-
drættislánum rikissjóðs
Fyrningartiminn var
fimmtan ár. Til saman-
burðar má geta þess, að
hæsti vinningurinn i
þessu rikishappdrætti var
70 þúsund krónur.
Svo er að sjá, að aug-
lýsingaherferðin um
happdrættisskuldabréfin,
sem Seðlabankinn hóf i
hausl fyrir sölu miða i C-
flokki, hafi borið nokkurn
árangur. Aður en út i her-
ferðina var lagt hafði ver-
iðselt fyrir um 30 milljón-
ir i C-flokki, en siðan hef-
ur sú upphæð tvöfaldast.
Heildarupphæðin er 100
milljónir, og á að ljúka
sölu happdrættisskulda-
bréfa fyrir þá upphæð
fyrir 20. des. nk., en þá
verður dregið.
Rikissjóður hefur nú
fengið að láni h.já al-
menningi 1410 milljónir
króna með sölu happ-
drættisskuldabréfa og
verðtryggðra spariskir-
teina, en sala þeirra hófst
árið 1964.
KLEIFARVATNS-
MÁLIÐ ER NÚ
HJÁ UTANRÍKIS-
RÁÐUNEYTINU
Kleifarvatnsmálið,
eða gátan um fjar-
skiptatækin, sem þar
fundust i haust, virðist
ætla að verða flókin
gáta, og hefur málið
farið á milli ýmissa
aðila.
Rannsóknarlögreglan
i Hafnarfirði sá um
frumrannsókn málsins,
og sendi bæjarfógeta-
embættinu þar skýrslu
að þvi loknu. Það emb-
a'tti sendi svo embætti
saksóknara rikisins
skýrsluna til ákvörðun-
ar um frekari rannsókn.
Hja þvi embætti liggur
rannsókn nú niðri i mál-
inu, en skýrsluna sendi
embættið dómsmála-
ráðuneytinu.
Þaðan var hún svo
send utanrikisráðuneyt-
inu til umsagnar og kom
hún þangað i gær. Enn
er þvi óljóst um Irekari
ferðalög skýrslunnar.
Það er óvenjulegur
gangur, að lögreglu-
skýrsla l'ari til utan-
rikisráðuneytisins til
umsagnar, nema hún sé
eitthvað varðandi er-
lendan aðila eða riki, en
Fétur Thorsteinsson
ráðuneytisstjóri i utan-
rikisráðuneytinu, sem
Gufuþurrkari
til að slá á
Ný fiskimjöls-
verksmiðja
peningalyktina I í Orfirisey
Um næstu áramót
tekur væntanlega til
starfa ný fiskimjöls-
verksmiðja i Reykja-
vfk. Heitir verksmiðjan
Stjörnumjöl hf. og verð-
ur staðsett i örfirisey. 1
þessari verksmiðju
verður mjölið unnið á
annan hátt en tiðkast
hefur hérlendis: það
verður þurrkað i gufu-
Sérgóðir
Sunnlend-
— Vestfirðingar hafa nú
búið við rafmagns-
skömmtun jafn lengi og
Nóaflóöið stóð. A morgun
verða liðnir 40 dagar og 40
nætur frá þvi sæstrengur-
inn yfir Dýraf jörð slitnaði
og jafn lengi hafa hinar
fjölmennu byggðir á
norðanverðum Vestfjörð-
um ekki fengið rafmagn
frá Mjólkárvirkjun svo
mikill orkuskortur hefur
herjað þar til stórtjóns
fyrir framleiðsluatvinnu-
vegi og heimili. Þannig
fórust Matthiasi Bjarna-
syni, alþm., orð i ræðu,
sem hann flutti utan dag-
skrár á alþingi i gær
vegna þess, að um rösk-
lega eins mánaðar skeið
hefur verið vanrækt aö
gera við bilun á særaf-
streng frá Mjólkárvirkj-
un, sem flytur norðurhér-
ubum Vestfjarða raforku.
— Það eru aðeins fjórir
menn á Islandi — allt
Danir —, sem geta gert
vib bilanir á særaf-
strengjum og á sama
tima og ekkert hefur ver-
ið aðhafst til viðgerðar á
sæstrengnum yfir Dýra-
fjörð hafa þessir fjórir
menn verið uppteknir við
önnur verk — m.a. við að
leggja sæstreng yfir
Elliðavog, sem ekki á þó
að tengja fyrr en ein-
hvern tima i vor, sagöi
Matthias.
Hann benti jafniramt á,
að þetta væri ekki i fyrsta
sinn, sem Vestfirðingar
fengju slika „þjónustu”
frá Rafmagnsveitum rik-
isins. F'yrirskömmu hefði
slitnað raflina frá
önundarfirði yfir i Súg-
andafjörð og hefðu liðið 3
vikur áður en sú bilun var
lagfærö. önnur slik bilun,
sem hann nefndi, hefði
tekið tæpan mánuð að fá
gert við.
— Bg er hræddur um,
að Sunnlendingar myndu
ekki liða slikan af-
greiðslumáta, en þar er
jafnan strax uppi fótur og
fit, ef einhver rafmagns-
truflun verður, sagði
þingmaðurinn.
þurrkara i stað eld-
þurrkara. Þessi aðlerð
útilokar m.a. allan
fnyk, sem hefur verið
fastur fylgifiskur mjöl-
verksmiðja hérlendis.
Dr. Jakob Sigurðsson
forstjóri Sjófangs hf. og
stjórnarformaður
Stjörnumjöls hf„ tjáði
Alþ.bl. að hluthafar i
fyrirtækinu væru fimm
talsins. Væri von þeirra,
að verksmiðjan tæki til
starfa um næstu ára-
mót. Afköst hennar
verða litil i fyrstu,
120—150 hráefnislestir á
sólarhring.
Unnið hefur verið að
uppsetningu véla i verk-
smiðjuna, en þær eru
frá Atlas-Stord i Noregi.
Gufuþurrkarinn er af
Rotadisc gerð. Slikir
gufuþurrkarar hafa
verið notaðir viða er-
lendis. Sérstakur gufu-
ketill framleiðir gufu til
þurrkunarinnar. Sér-
stakar ráðstafanir
verða gerðar til þess að
slá niður gufunni og ná
niður lykt.
nú hefur skýrsluna und-
ir höndum, sagði i gær,
að enginn erlendur aðili
liggi undir grun. Ilann
hafi aðeins fengið
skýrsluna „vegna
dylgna fjölmiðla um að
tækin stæðu i sambandi
við erlent sendiráð
hér”.
Ekki gat hann að svo
stöddu íiagt um, hvert
hann myndi senda
skýrsluna, þar sem
hann var ekki búinn að
kynna sér innihald
hennar lil hlitar.
ÞAÐ A AÐ
BANNA
RJUPNA-
SKYTTUM
BLÁFJÖLL
„Þar sem auglýst
hefur verið útivistar-
svæði og skiðaland fyrir
fólk á aö sjálfsögðu að
banna mönnum að lara
með skotvopn”, sagði
Hannes Hafstein lram-
kvæmdastjóri Slysa-
varnalélags lslands við
Alþýðublaðið i gær,
þegar við bárum undir
hann óánægju manna
vegna veiða rjúpna-
skyttna i fólkvanginum
i Bláfjöllum.
Ilannes sagði, að ekki
ætti frekar að leyfa
meðferð skotvopna i
Bláfjöllum en leyfa
mönnum að skjóla skarf
og veiðibjöllu á hafnar-
svæðinu i Reykjavik —
„þar sem fólk nýtur úti-
vistar meö börnum sin-
um má það ekki eiga
von á þvi á hverri
stundu að verða fyrir
skoti frá rjúpnaskyttu”,
sagði Hannes Hafstein.
Samstarfsnefnd
sveitarfélaganna um
fólkvanginn i Bláfjöll-
um hefur engar reglur
sett um meöferð skot-
vopna þar.
SULLUM-BULL
— Þetta er nú bar-
asta hreint sullumbull.
Þannig fórust Bjarna
Guðnasyni, alþm., m.a.
orð um skattamála-
stefnu rikisstjórnarinn-
ar i framhaldsumræðu
um fjárlagafrumvarp-
ið, sem fram fór á Al-
þingi i gær.
Bjarni las ýmsar til-
vitnaðar málsgreinar
úr fjárlagaræðu Hall-
dórs E. Sigurðssonar og
fór um þær hinum hæði-
legustu orðum. Sumt
sagði hann, að væri eins
og úr gamanleik eftir
skáldið Holberg. Annað
„hreinasta súllumbúH”.