Alþýðublaðið - 31.10.1973, Qupperneq 3
Danir
vilja
ekki
sjá
friðun í
Norður-
sjónum
Eins og fram kom i Alþ.bl.
fyrir skömmu, blasir eybing
við sfldarstofninum i Norður-
sjónum, ef ekkert er að gert.
Er það fyrst og fremst
gegndarlaust smásildardráp
Dana sem sett hefur stofninn i
hættu.
Nýlega áttu þeir aðilar sem
veiðarnar stunda með sér
fund, og kom þar fram að'af-
staða Dana er óhagganleg.
Þeir vilja ekki faliast á neinar
veiðitakmarkanir né friðanir.
Höfðu þó komið fram marg-
vislegar tillögur, svo sem um
340 þúsund lesta árskvóta,
sem skiptist á hinar ýmsu
þjóðir, sem veiðar stunda i
Norðursjó.
Fiskifræðingar hafa haldið
þvi fram, að ekki þurfi að
koma nema einn til tveir
slæmir sildarárgangar i
Norðursjónum, þá sé sildar-
stofninn þar glataður.
Milljón króna tap
ó Eddu-hótelunum
Samkvæmt nýútkomnum rikis- I Ferðaskrifstofa rikisins rekur á
reikningi fyrir árið 1972 virðist sumrum, ekki hafa borið sig.
rekstur Eddu-hótelanna, sem Beinar tekjur af rekstrinum
Lendingargjöld í
Keflavík hækka
um helming
Lendingarg jöld á
Keflavíkurflugvelli hafa
nú veriö hækkuö um
53/8% miðað við dollara
og eru nú orðin 72% dýrari
en i Glasgow, 21% dýrari
en á Shannon og 28,6%
dýrari en á Kennedyflug-
velli.
Hækkun þessi kemur
verst niður á islensku
flugfélögunum þar sem
þau eiga lang flestar
lendingar farþegavéla á
vellinum, eða 67% allra
lendinga fyrstu átta mán-
uði þessa árs.
Bein útgjöld Flugleiða
vegna þessarar hækkunar
er talin munu nema 34
milljónum króna fyrsta
árið, enda hækka gjöldin
fyrir hverja lendingu úr
388 dollurum í 598 dollara.
Grétar B. Kristjánsson,
aðstoðarforst jóri Loft-
leiða, sagði í viðtali við
blaðið, að hækkun þessi
hafi komið mjög á óvart,
og hafi ekki farið fram
neinar viðræður við Flug-
leiðir um hana. Flugleiðir
hafa nú hins vegar farið
fram á viðræður við yfir-
völd vegna þessa, en ekki
er komið svar frá þeim.
Þá sagði Grétarað með
hliðsjon af þessari hækk-
un og því, að nú sé búist
við 40% hækkun á elds-
námu skv. rekstarreikningi 34,6
millj. króna árinu, en bein
rekstrargjöld 34,775 millj. kr. auk
þesssem 894 þús. kr. voru greidd-
ar til menntaskólanna á Akureyri
og Laugárvatni, en þar rekur
Feröaskrifstofa rikisins tvö sinna
hótela. Tapið á Eddu-hótelunum
nam þvi röskri milljón.
Til þess aö jafna þetta tap
greiddi Ferðaskrifstofan af
rekstrarfé sinu 2.6 millj. framlag
til reksturs Eddu-hótelanna,
þannig aö bókhaldslega reyndist
ágóöi af rekstrinum vera 1,5
millj.
Mest varö tapiö á rekstri
hótelsins i Húsmæöraskólanum á
Laugarvatni, eöa rúm milljón.
Einnig var tap á hótelunum á
Húnavöllum, Kirkjubæjar-
ktaustri, og Varmalandi. Hins
vegar mun hafa veriö hagnaöur á
hótelrekstrinum i Menntaskólan-
um á Akureyri, aö Heykjum,
Skógum, Eiöum og i Sjómanna-
skólanum i Reykjavik.
neyti flugvéla, sé greini-
legt að sú þróun undan-
farins áratugs aö fargjöld
séu stöðugt að lækka,
hljóti aö snúast við.
Sagði hann að t.d. IATA
félögin hafi þegar farið
fram á verulega hækkun
á Norður-Atlantshafsleið-
inni, og eigi aðeins eftir
að fá samþykki yfirvalda.
Ljóst er einnig að islensku
félögin verði að hækka sin
fargjöld, en það mál er
enn á frumstigi.
Og Flugleiðir verða verst úti
HORNID
REYKJARSVÆLA
í MUSTERINU
„Áhugamaður um hand-
bolta" skrifar:
„Mér þykirskjóta nokk-
uð skökku við að í sjálfu
musteri iþróttanna,
Laugardalshöllinni, skuli
á kappleikjum vera nærri
ólíft á áhorfendapöllun-
um fyrir reykjarsvælu úr
vindlingum áhorfend-
anna.
Loftið er nægilega
þungt fyrir , þegar á-
horfendapa I larnir eru
fullsetnir, svo ekki komi
þessi ábót á molluna.
Að sjálfsögðu eru reyk-
ingar stranglega bannað-
ar þarna, og fyrir nokkr-
um árum var af og til
kallað til áhorfenda um
að hætta að reykja, þeg-
ar til þeirra sást.
Það er nú hins vegar úr
sögunni og amast starfs-
menn nú ekkert við þess-
um ósið, með þeim afleið-
ingum að áhorfendur
færa sig stöðugt meira
upp á skaftið og reykja al-
mennt núorðið.
Væri nú ekki tilvalið
tækifæri að skera upp her-
ör gegn þessum ósóma á
landsleiknum á sunnu-
dag, þá verður vafalaust
fullt hús og mikiö reykt,
eða hafa umsjónarmenn
hússins eða hreinlega
iþróttahreyfingin öll, gef-
ist upp fyrir reykjarsvæl-
unni?".
TAKK
PÁLL
HEIDAR!
„Útvarpshlustandi” hringdi i
Hornið:
,,Ég get nú ekki setið á mér,
aö koma fram, þakklæti til hans
Páls Heiðars fyrir þáttinn hans
úr dagblöðunum, sem var á
dagskrá á mánudaginr,. Ég get
ekki betur séð en þetta verði
einn allra skemmtilegasti þátt-
ur dagskrárinnar, fái þátturinn
að halda áfram i sama dúr.
Hann var með svipaðan þátt á
laugardögum i sumar, en sá
dofnaði, þegar á leið, einhverra
hluta vegna. Við skulum vona
að púðrið endist Páli lengur
núna”.
Eru engir bágstaddir
lengur vegna gossins?
ÞAÐ FLÓIR UT UR?
Ávarp til sex þingmanna Suður-
lands-kjördæmis og reyndar allra
hinna sextíu útvöldu.
Tilefni þessarar greinar er frumvarp
það, er flutt hefir verið á Alþingi, um
smiði standferðaskips, til Vestmanna-
eyja-ferða á kostnað Viðlagasjóðs.
Nýlega birtist grein á forsiðu Visis og bar
fyrirsögnina : FLÓIR ÚT ÚR EYJASJÓÐI.
Útskýrt er þetta nauðsynjamál og birtar
eru tilvitnanir úr greinargerð, er fylgir
frumvarpinu. En fylgir ekki eitthvað lika,
sem kemur við samvisku sexmenninganna
og ef til vill fleiri manna? Tiivisanirnar úr
greinargerð frumvarpsins virðast nú benda
til þess.
Hvað halda mennnirnir að hinir örlátu
gefendur, viðsvegar að, hafi haft i huga, er
framlögin streymdu að? Við vitum það
óll. Það var hjálp til bágstaddra.
Eru þá engir bágstaddir lengur, af völd-
um eldgossins? Við vitum það lika. Þeir
eru margir. Þeir hafr. ekki átt erindi til að
veita móttöku bóta, þessa siöustu daga.
Satt að segja hafa þeir, sem mest eru þurf-
andi engan stuöning fengið. Þar er átt við
hina öldruöu, sjúku og eignalausu. Við vit-
um það öll að ekki er neitt viöunandi ástand
i þeirra málum Það er hvorki fyrir hendi
pláss á sjúkrahúsum né dvalarheimilum.
Allar dyr eru þeim lokaðar.
Kæru vinir. Gerið ekki þá hluti, er verða
okkur til ævarandi skammar. Notið þið
gjafaféð, sem réttsýnir menn. Notið það
eins og gefendurnir óskuðu. Notiö það i
þágu þeirra er eiga það.
Þegar það hefir verið gert og fyrst þá er
rétt að hyggja að hvort út úr flóir.
Siguröur Agústsson frá Melstað , Vest-
mannaeyjum.
GUNNAR
LOKSÁ
HEIMLEIÐ
Almenna bókafélagið hefur
sent frá sér Fjallkirkju Gunn-
ars Gunarssonar i þremur
bindum og eru þá fimm verk
þessa afburðahöfundar okkar
komin út með hans eigin hand-
bragði i endanlegri gerð.
Hyggst Almenna bókafélagið
gefa út öll verk Gunnars i
þessum flokki og segir i
„Fréttabréfi AB”, að þegar
útgáfunni sé lokið megi i raun
réttri segja, að „Gunnar
Gunnarsson sé i fyrsta sinn al-
kominn heim”.
A.B hefur einnig sent á
markaðinn bók á ensku eftir
dr. Gylfa Þ. Gislason: „The
problem of being an Iceland-
er, past present and luture”,
en bókinni er ætlað „að svara
spurningum útlendinga um
sögu landsins fyrr og nú”.
Bókin er prýdd 16 litmynda-
siðum og hefur
Gunnarllannesson tekið Ijós-
myndirnar.
Margir vilja
í Kópavoginn
Kópavogsbær auglýsti ný-
lega að hann myndi úthluta
bygginga lóðum i Fossvogin-
um, og stendur til að úthluta
122 einingum undir einbýlis-
rað- og fjölbýiishús.
Eftir þvi sem Alþýðublaðið
Iregnaði á bæjarskrifstofun-
um i Kópavogi i gær, höfðu á
þriðja humdruð umsóknir
þegar borist, auk þess sem
fjöldi umsóknareyðublaða er
enn ókominn. Er þvi Ijóst, að
lærri komast að en vilja i
Kópavoginum nú, en lóðum
þessum verður úthlutað um
miðjan næsta mánuð,—
SKAUPSKÍFA
MEÐ GUDRÚNU
Á. SÍMONAR
Aðdáendum Guðrúnar Á.
Simonar gefst eftir hálfan
mánuð tækifæri á að eignast
nýja plötu þar sem hún syngur
ýmis lög, m.a. verðlaunalagið
„Apres toi...” Auk Guðrúnar
syngja þeir Karl Einarsson,
eftirherma og Hrafn Pálsson
úr hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar og verða með
gamanmál.
Platan mun heita „SKAUP
73” og er verið að pressa hana
úti i Noregi. Á plötuumslagi
verða teikningar eftir hinn
drátthaga Árna Elfar.
SKAUP 73 verðu stór plata
— og efnið eins og nafnið bend-
ir til, söngur, grin og gleði.
Barnahótel
Nokkuð nýstárlegt hótel var
opnað i Danmörku fyrir
skömmu en það er eingöngu
ætlað börnum og er i Klitgard-
en nálægt Nödebro Strand.
Hugmyndin er sú að börnin
geti dvalið þar á meðan for-
eldrar þeirra eru veikir, i
ferðalögum eða þurfa af ein-
hverjum öðrum ástæðum að
koma börnum sinum fyrir um
tima. Fullorðnir starfsmenn
eru börnunum til halds og
trausts á hótelinu, en að öðru
leyti er það með svipuðu sniði
og venjuleg hótel.
D
Miðvikudagur 31. október 1973