Alþýðublaðið - 31.10.1973, Qupperneq 5
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmála-
ritstjöri Sighvatur Björgvinsson.
Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson.
Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggs-
son. Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Freysteinn Jóhannsson. Aðsetur rit-
stjórnar/ Skipholti 19. Sími 86666. Af-
greiðsla: Hverfisgötu 8-10. Simi 14900.
Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10. Sími
86660. Blaðaprent hf.
MKVÆn FRAMLAG
Á þvi hálfa þriðja ári, sem núverandi rikis-
stjórn hefur setið að völdum á íslandi, hefur hún
drýgt margar og stórar syndir i efnahagsmálum
þjóðarinnar. Henni hefur með öllu mistekist i
baráttunni við verðbólguna. Að sögn hins fyrr-
verandi stjórnarþingmanns Bjarna Guðnasonar
hefur verðbólga aldrei verið meiri á Islandi en
nú að striðsárunum undanskildum.
Rikisstjórninni hefur einnig með öllu mis-
tekist að nýta eindæmagóðar ytri aðstæður
þannig, að þjóðin fengi notið hins fyllsta á-
vinnings af þeim. Hinar öru verðhækkanir á is-
lenskum útflutningsafurðum hafa einungis
getað forðað algeru hruni i efnahagsmálum,
sem ella hefði orðið og staða launþega er nú slik,
að þeir þurfa að heyja varnarbaráttu i miðju
góðærinu.
Þannig hefur rikisstjórninni gersamlega mis-
tekist i glimunni við öll atriði efnahagsmála. Þó
eru mestu mistökin sennilega enn ótalin — en
þau mistök hefur rikisstjórnin gert i skatta-
málunum. Engum blandast vist hugur um það
lengur, að öll afskipti stjórnvalda af skatta-
málunum hafa verið til hinna mestu óþurfta og
sú skoðun er almenn á Islandi, að þótt viða þurfi
að taka til höndum eftir rikistjórnina, þá sé
þörfin brýnust á sviði skattamála — þar þurfi
mest, skjótast og best úr að bæta. Þetta kemur
m.a. greinilega fram i kröfum launþegasamtak-
anna nú, en þar er höfuðáhersla lögð á úrbætur i
skattamálum og felst i þeirri kröfugerð að sjálf-
sögðu óorðuð vantraustsyfirlýsing á störf
þeirrar rikisstjórnar, sem við upphaf starfs-
ferils sins gaf sjálfri sér heitið „stjórn hinna
vinnandi stétta”.
Það er i sjálfu sér ákaflega auðvelt að gagn-
rýna aðgerðir rikisstjórnarinnar i skattamálum
sem og á ýmsum öðrum sviðum — sú gagnrýni
á við svo mörg og auðsæ rök að styðjast. Margir
stjórnmálaflokkar i stjórnarandstöðu hefðu
látið sér slika gagnrýni nægja — þ.á.m. nú-
verandi stjórnarflokkar hefðu þeir setið i
stjórnarandstöðu við þær aðstæður sem nú eru.
En Alþýðuflokkurinn lætur sér ekki nægja að
benda aðeins á það, sem miður hafur farið og
skamma þá, sem ábyrgðina bera. Hann vill
starfa sem jákvæður stjórnarandstöðuflokkur
og þykir honum eitthvað miður fara þá vill hann
jafnframt geta bent á hina réttu leið.
Þær ábendingar hefur Alþýðuflokkurinn nú
komið fram með i skattamálunum Hann hefur
lagt fram á Alþingi tillögur um gjörbyltingu á
islenska skattakerfinu — byltingu, sem er i þvi
fólgin, að hætt verði með öllu að leggja tekju-
skatt á venjulegar launatekjur venjulegra laun-
þega en þess i stað verði farið að skattleggja
eyðsluna jafnframt þvi, sem hátekjur verði
áfram skattlagðar.
Þegar núverandi rikisstjórn gerði þær
breytingar á skattalögunum, sem hún hefur
orðið óvinsælust fyrir, mótmælti Alþýðuflokkur-
inn á Alþingi og benti á með ljósum dæmum
hvert þær breytingar myndu leiða.
Nú snýr Alþýðuflokkurinn sér til þjóðarinnar
með merkustu tillögur i skattamálum, sem
fram hafa komið á íslandi um áratuga skeið og
biður hana að hlusta. Taki þjóðin tillögum Al-
þýðuflokksins vel mun Alþingi láta undan
þrýstingi almenningsálitsins og framkvæma
þær. Almenningur á íslandi á þvi næsta leik.
Frá síðustu kjördæmisþingum Afþýðuflokksins
RADDIR AD NORDAN
Nýlega voru haldin á Norður-
landi tvö kjördæmisþing Alþýðu-
flokksins — kjördæmisþing Al-
þýðuflokksins i Norðurlandskjör-
dæmi vestra á Sauðárkróki og
kjördæmisþing Alþ.fl. i Norður-
landskjördæmi eystra á
Akureyri.
Bæði þessi þing voru ágætlega
sótt og umræður góöar. Gestir
þingsins á Sauðárkróki voru þeir
Gylfi Þ. Gislason og Bragi
Sigurjónsson, en auk þeirra flutti
Pétur Pétursson framsögu, en
gestir þingsins á Akureyri voru
Gylfi þ. Gislason og Pétur Péturs-
son, en Bragi Sigurjónsson flutti
framsögn á þinginu auk þeirra.
Með þessum tveimur þingum
lauk kjördæmisþingum Alþýðu-
flokksins, sem haldin hafa verið i
öllum kjördæmum landsins sið-
sumars og i haust. Alla fundina
sótti Gylfi Þ. Gislason, formaður
Alþýðuflokksins, og flutti þar
yfirlitsræður um stjórnmálavið-
horfin með sérstöku tilliti til efna-
hagsmála, landhelgismálsins og
sameiningarmálsins, en mikill
áhugi kom fram á öílum fundun-
um fyrir þessum málaflokkum A
kjördæmisþinginu á Sauðárkróki
voru eftirfarandi ályktanir gerð-
ar:
NORÐURLAND V.
VERKALÝÐSMAL
Kjördæmisþing Alþýðuflokks-
ins i Norðurlandskjördæmi
vestra, haldið á Sauðárkróki 13.
okt. 11173, telur, að verðbólguþró-
un siðustu ára hafi leitt i Ijós galla
á visitölukerfinu i núverandi
mynd þess.
Telur þingið að vinna verði að
þvi að upp verði tekið kerfi þar
sem svo verði um hnútana búið að
það geti ekki orðið stjórntæki i
höndum valdhafa, heldur raun-
veruleg vörn fyrir launþega gegn
verðbólgunni.
Þingið telur að ellilaun eigi i
öllum tilfelium að vera skatt-
frjáls og telur það óhæfu að smá-
vægileg vinna gamals fólks eða
greiðsla úr lifeyrissjóði skuli
verða til þess að skeröa ellilifcyri
úr alm.tr.
Þingið telur að stefna beri að 5
daga vinnuviku allra launþcga og
að til orlofs verði reiknaðir 5 dag-
ar á viku en ekki 6 eins og nú er.
Þá telur þingið að vinna verði
áð þvi af fullum þunga að lifeyris-
sjóðir launþega verði verð-
tryggðir, þannig að greiðslur úr
þeim til lifeyrisþega haldist i
hendur við aimennt verðlag i
landinu, eins og það er á hverjum
tima.
LANDSHLUTA-
SAMTÖK
Fundurinn styður eindregið
hugmynd um sérstakt samband
sveitarfélaga i Nl. kjörd. vestra
og átelur þann drátt sem orðinn
er á stofnun þess. Beinir fundur-
inn þvi til sveitarstjórnarmanna
flokksins i kjördæminu að vinna
að þvi eftir megni, að samband
þetta verði að veruleika sem allra
fyrst.
LANDHELGISMALIÐ
Kjördæmisþiug Alþýðuflokks-
ins i Norðurlandskjördæmi
vestra, lialdið á Sauðárkróki 13.
okt. 11173, hvetur til áframhald-
andisamstöðu þjóðarinnar i land-
helgismálinu uns fullur sigur ná-
ist.
SKATTAMÁLIN
Kjördæmisþing Alþýðuflokks-
ins i Noröurla nds k jördæin i
vestra, haldið á Sauðárkróki 13.
okt. 11)73, telur, að brýna nauðsyn
beri til að gera róttækar breyting-
ar á skattakerfi þjóðarinnar og
létta stórlega skattabyrðina á
lág- og meðaltekjufólki.
NORÐURLAND E.
Þá gerði kjördæmisþingið á
Akureyri svofellda ályktun um
landhelgismálið og ber þess að
geta, að sú ályktun var gerð um
það leyti, sem ólafur Jóhannes-
son, forsætisráðherra, hafði
kynnt árangur viðræðna sinna við
Edward lleath I Lundúnum:
„Kjördæmisfundur Alþýðu-
flokksins á Norðurlandi eystra,
haldinn á Akureyri 14. okt. 1973,
gerir svofelldar eftirfarandi á-
lyktun um landhelgismál:
Um leið og fundurinn lýsir yfir
einhuga stuðningi sínum við út-
færslu fiskveiðilögsögunnar i 50
milur og baráttu þjóöarinnar fyr-
ir viðurkenningu hennar, lætur
hann uppi þá skoðun sina, að rétt
sé af ríkisvaldinu að freista þess
að ná viðhlitandi bráðabirgða-
samkomulagi við Vestur-Þjóð-
verja og Brcta uin veiðar hér við
land, svo að firra mcgi þvi hættu-
ástandi, sem rikt hefir undanfarið
hér á miðunum, og vinsamleg
samskipti þjóðanna geti haldist.
Fundurinn lýsir yfir fyllsta
stuðningi við 200 inilna fiskveiði-
og auðlindalögsögu strandrikja
og treystir því, að islensk stjórn-
völd láti einskis ófreistaö að fá þá
lögsögu viðurkennda á næstu ár-
um á alþjóðavettvangi.
Fundurinn leggur áherslu á, að
hraða verði setningu löggjafar
um skipulag á veiðum og nýtingu
landsmanna á miðum innan fisk-
veiðilögsögu sinnar, og telur að
slika löggjöf verði að setja hið
hráðasta, svo að ekki komi til of-
veiði af hálfu tsléndinga sjálfra.”
WICKMANN AD HÆTTA
Sænski utanrikisráðherrann,
Krister Wickmann, hefur nú til-
kynnt opinberlega, að hann
muni láta af störfum sem utan-
rikisráðherra á árinu. I Sviþjóð
er talið nokkuð auðsætt, að
Wickmann muni taka við störl'-
um sem bankastjóri sænska
Seðlabankans.
Talið er, að tveir menn komi
einkum til greina sem arftakar
Wickmanns i utanrikisráðherra-
embættinu. Þeir eru Ingemund
Bengtson, landbúnaðar- og um-
hverfismálaráðherra, og Kjell-
Olof F.eldt, viðskiptamálaráð-
herra.
Bengtson er 54 ára að aldri og
hefur um margra ára skeið
verið mikill áhugamaður um
utanrikismál. Hann var m.a. i
forsæti hinnar fjölmennu ráð-
stefnu um umhverfismál, sem
Sameinuðu þjóðirnar efndu til i
Stokkhólmi lyrir tveim árum.
Bengtson á einnig sæti i sænska
þinginu.
Kjell-Olof Feldt er einnig
nefndur sem arftaki Wick-
manns m.a. vegna þess, að
ráðuneytunum tveim — utan-
rikisráðuneytinu og viðskipta-
ráðuneytinu — hefur fyrir
nokkru verið „slegið saman” i
eitt ráðuneyti, þótt það ráðu-
neyti hafi haft tvo ráðherra:
Wickmann utanrikisráðherra
og Feldl viðskiptaráðherra.
Feldt á einnig sæti i sænska
þinginu og hefur að undanförnu
látið mjög til sin taka á sviði
norrænnar samvinnu og fer með
þau mál i sænsku rikisstjórn-
inni.
RÍKISSTJÓRN
Eins og kunnugt er af fréttum,
þá hefur ný rikisstjórn tekið við
völdum i Noregi undir forystu
Trygve Bratteli — minnihluta-
stjórn jafnaöarmanna.
BRATTELIS
Mynd þessi var tekin nýlega
af hinni nýju stjórn. Frá vinstri:
Odd Sagör, Inger Louise Valle,
Jens Evensen, Per Kleppe,
Bjartmar Gjerde, Thorstein
Treholt, Sonja Ludvigsen,
Trygve Bratteli, Knut Fryden-
lund, Alv Jakob Fostervoll,
Annemarie Lorentzen, Leif
Aune, Tor Halvorsen, Ingvald
Ulveseth og Eivind Bolle.
Miövikudagur 31. október 1973