Alþýðublaðið - 19.12.1973, Qupperneq 2
KÍKT í
BOKA-
BÚÐIR
Senn aftur
orðnir tiu
„Tiu litlir negrastrákar” er
enn einu sinni komin út, en þessi
bók er, þótt merkilegt kunni að
virðast, orðin nánast sigild
barnabók hér norður á hjara
veraldar., þar sem aldrei hafa
verið saman komnir i einu
svona margir þeldökkir strák-
ar.
,,Tiu litlir negrastrákar” eru
að þessu sinni i nýstárlegu
formi þannig, að um leið og
henni er flett fækkar svörtu
strákunum um einn við hverja
siðu, sem lesin er. Eins og áður
eru visurnar um negrastrákana
ortar undir laginu, sem flestir
munu þekkja frá fyrri útgáfum
þessar vinsælu barnabókar.
Otgefandi er Repró sf.,
Reykjavik.
Flug ofar
jafnsléttu
„Hvað er San Marino?” er
nýútkomin bók eftir Thor Vil-
hjálmsson. 1 nafninu felst á-
skorun, sem geðþekkt er að
mæta, þvi að þetta safn geymir
ákaflega persónulegar ferða-
sögur, og þætti um myndlist og
leiklist. Thor Vilhjálmsson hef-
ur sem rithöfundur aldrei sett
það á oddinn að þóknast lesand-
anum. Þótt hann haldi i þessari
bók strikinu að þvi leyti, er hún
svo sannferðug i lýsingum.og á-
reitnislaus um alíar niðurstöö-
ur, að kynni lesandans af höf-
undi verða þægileg og ljúf, eins
og flug langt ofar jafnsléttu. Út-
gefandi er tsafoldarprent-
smiðja.
Horfin
silfurveröld
„Hrundar borgir” eftir Þor-
stein Matthiasson segir frá
þrem byggðarlögum, Djúpavik,
Ingólfsfirði og Gjögri, sem nú
mega öll muna sinn fifil fegri,
voru fyrr meir útgerðar- og at-
hafnapláss með öllu þvi ólgandi
lifi, sem alls staöar hefur fylgt
silfri hafsins, sildinni. A báðum
þessum stöðum voru sildar-
verksmiðjur og sildarsöltun.
Þeir, sem muna þessi ár kann-
ast við söguna um siglingu Jóns
skipstjóra Sigurðssonar frá
Blómsturvöllum, þegar hann
sigldi gamla Suðurlandinu upp i
fjöru i Djúpavík, þar sem það
var notað sem hótel fyrir sildar-
fólk. Gjögur var útgerðar- og
verslunarstaður á Ströndum við
vestanverðan Húnaflóann.
Þessir staðir eiga sér mikla og
merka sögu, sem nú heyra til
liðinni tið sem athafnapláss.
Útgefandi er Bókamiðstöðin.
Himnarnir taka undir
„Svo hátt, svo hátt, aö himnar
taki undir" nefnist sálma- og
ljóöalög eftir Björn Jakobsson
frá Varmalæk i Borgarfiröi. 1 60
ár hefur Björn verið organisti
við ýmsar kirkjur i Borgarfirði,
en lengst við Bæjarkirkju. Þess
utan hefur hann starfað að
söngmálum almennt, stjórnaö
kórum, annast söngkennslu,
auk þess, sem hann var starfs-
maður farkjui^rasambandsins
um sktlf ”
1 þessu hefti eru 19 sálmalög
og 24 önnur sönglög við texta
cftir mörg fremstu sálmaskáld
"þjóðarinnar og önnur þjóðskáld.
Biörn er nú 79 ára aö aldri og
á, auk þess, sem fyrr er talið, að
baki langan starfsferil sem
kennari og bústjóri, og ritstjóri
félagsrits Kaupfélags Borgfirð-
inga, sem gefur Sálma- og
ljóðalögin út.
Til móðurinnar
„Myndir og minningarbrot”
heitir bók, sem Ingveldur Gisla-
dóttir helgar hundrað ára minn-
ingu móður sinnar, Guðrúnar
Þorleifsdóttur. Aður hefur kom-
ið út eftir Ingveldi „Lækning-
in”, sem kom út 1951.
Ingveldur er ein þeirra, sem
sluppu nauðuglega úr húsbruna
I Hafnarfirði 1931, er Siglfirð-
ingahúsið brann þar, þá var hún
17 ára aö aldri. Er meðal annars
sagt frá þessu atviki I bókinni.
Þá er i henni getið þeirra, sem
stunduðu nám i Flensborgar-
skólanum árið 1899—1900.
íslendingur
i Vesturheimi
„Eirikur Hansson” eftir Jó-
hann M. Bjarnason er upp-
vaxtarsaga islensks drengs á
landnámsárum Vestur-tslend-
inga i Vesturheimi. Hann var 10
ára gamall, er hann fluttist
vestur um haf með afa sinum og
ömmu. Fáum árum siðar er
hann einn og munaðarlaus á
hrakningum úr einum stað i
annan. Lýkur sögunni, er hann
istofnar heimili með hinni ungu
og fögru konu sinni.
Fyrsti hluti þessarar bókar
var gefinn út i Kaupmannahöfn
rétt fyrir siðustu aldamót, en nú
kemur hún i þriðju útgáfu, og er
það Bókaútgáfan Edda, sem
sendir hana frá sér, en Arni
Bjarnason bjó hana undir prent-
un.
Höfundurinn var Norð-Mýl-
ingur, sem fluttist til Nova Scot-
ia árið 1875, og siðar til Mani-
toba i Kanada 1882, en varð sið-
ar kennari i bænum Geysir,
skammt frá Winnipegvatninu.
Vopnuð ljóð
„Ort á öxi” heitir ný ljóðabók
eftir Ingimar Erlend Sigurðs-
son. sem einnig hefur gert
bókarmyndir. Gunnar S.
Magnússon hefur gert kápu-
mynd.
1 þessari bók kennir margra
grasa, en meðal Ijóðatitla má
nefna: Astarsaga. Bogmaður,
Einfeldni, Vögguljóð, Ferðalok,
Gömlu fötin keisarans, Kos-
miskar setningar. Ort á öxi, Af-
brýði, Einmanaleiki, Kæri Walt.
Þetta er þriðja ljóðabók höf-
undar. sem gefin er út, en auk
þess hafa komið út eftir hann
smásögur og tvær skáldsögur.
Útgefandi er Bókaútgáfan
Kjölur.
Stórviðburðir í myndum
og máli
„Árið 1972 — Stórviðburðir
liðandi stundar i myndum og
máli meö islenskum sérkafla”
er komin á bókamarkaðinn frá
Þjóðsögu. Þetta er áttunda ár-
bókin en tvær þeirra, 1965 og
1966, eru nú uppseldar, en aðra
árganga má fá eftir að viöbótar-
upplög voru prentuð.
Þjóðsaga gefur árbókina út i
samvinnu við Weltrundschau-
Verlag A.G. i Sviss og var
islenska bókin nú prentuð i Dan-
mörku. íslenski textinn var
settur i Prenthúsi Hafsteins,
Guðmundssonar. Ritstjórn er-
lenda kaflans annaðist Gisli
Ölafsson. ritstjóri, en Björn Jó-
hannsson. fréttastjóri, tók sam-
an islenska sérkaflann.
t árbókinni nú taka Olympiu-
leikarnir i Munchen mikið pláss
og eru myndir i islenska sér-
kaflanum þvi færri nú en venju-
lega.
Meö útgáfu árbókanna dregur
Þjóðsaga til eigulegs bókasafns
um menn og málefni.
Rúmensk þjóðsaga í tali
og
tónum
„Pétur og úlfurinn” eftir
Sergei Prokofief er nú komin út
hjá bókaútgáfunni Sögu. Saga
þessi, sem meistarinn Prokofief
samdi i tónum á grundvelli
rússneskrar þjóðsögu er
tvimælalaust kunnasta tónverk
i sinum flokki, sem samið er
sérstaklega fyrir börn, en allir
hafa gaman af. Með þvi segir
höfundur með tónum það, sem
rithöfundarsegja með orðum og
myndlistarmenn i linum og lit-
um. Hljóöfærin túlka persón-
urnar hverja fyrir sig. Sinfóniu-
hljómsveitin hefur flutt þetta
verk nokkrum sinnum, og hafa
þá listamenn eins og Helga Val-
týsdóttir, leikkona, Lárus Páls-
son, leikari, lesiö texta sögunn-
ar, og nú siðast Kristin Ólafs-
dóttir. Bókin, sem nú er kom-
inút er fagurlega myndprýdd af
Frans Haacken, en söguna hef-
ur Alda Ægis þýtt.
i leit að geimfari
„Leitin að náttúlfinum” eftir
Þröst J. Karlsson er saga fyrir
börn og unglinga um félagana
Namma mús, Lalla Bangsa,
Gogga páfagauk og Fúsa frosk.
Lenda þeir i ótal ævintýrum,
meðal annars i leit að geim-
farinu Náttúlfinum, sem týndist
á plánetu óravegu frá jörðinni
okkar.
Bókamiðstöðin gefur bókina
út, en hún gefur einnig út þrjár
myndskreyttar ævintýrabækur
fyrir yngstu lesendurna. Þær
heita,,Músabörnin i dýra-
garðinum”, „Ævintýrið um
fiskinn og perlurnar” og „Ævin-
týrið um Klöru og hvitu gæsirn-
ar”.
Ljóð frá 41 ári
„Hvili ég væng á voðum”
heitir safn ljóða eftir Binu
Björns (Jakobinu B. Fáfnis),
sem Björn Sigfússon hefur tekið
saman, en Helgafell gefur út. t
bókinni eru 30 ljóö, sem ort eru á
timabilinu frá 1900 til 1941; orti
skáldkonan elsta Ijóðið, þegar
hún var 17 ára, en það yngsta,
þegar hún var 66 ára. t bókarlok
ritar Björn Sigfússon ritgerð um
skáldkonuna.
Bina Björns fæddist árið 1874
á Grenjaðarstöðum en lést i
Winnigpeg árið 1941. — Bókin er
85 blaðsiður.
Síðdegissaga í
bókarformi
„Eigi má sköpum renna” eft-
ir Harvey Ferguson, er nýkom-
in á bókamarkaðinn frá Bókaút-
gáfunni Rökkri. Axel Thor-
steinsson þýddi söguna og las
hana sem siðdegissögu i út-
varpinu i sumar.
Sagan gerist i Bandarikjunum
á landnámstima þeirra og þá
aðallega i Rio Grande-dalnum,
þar sem tveggja alda gömul
menning af spænskum rótum
var þá enn við lýði. Höfundurinn
.er borinn og barnfæddur á þess-
um slóðum, og hefur hann m.a.
skrifað sagnfræðilegt rit um
þær, sem og margar skáldsög-
ur. „Eigi má sköpum renna” er
þeirra kunnugust.
Hjá sama forlagi kom út i
sumar „Skotið á heiðinni og
aðrar sögur dulræns efnis”.
Komdu
ogkysstu
mig ^
Nú er yöur óhætt. Þér getiö komiö meö hvers-
kyns litaprufur til þeirra málningarsala, sem verzla
meö Sadolin.
Sadolin, heimsþekkt málning fyrir gæöi og end-
ingu, blandar 1130 litbrigöi eftir yöar eigin óskum.
Sadolin er einasta málningin, sem býöur yöur
þessa þjónustu í lakkmálningu, olíumálningu og
vatnsmálningu.
Reyniö Sadolin og sannfærizt, - kossinn má bíöa
þangaö til þér eruö búnar aö sjá árangurinn.
Sadolin
Hafnarfjarðar Apótek
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Helgidaga kl. 2 til 4.
BLOMAHUSIÐ
simi 83070
Skipholti 37
Opid til kl. 21.30.
Einnig laugardaga
og sunnudaga.
1
(|(R0ll) ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ VERZLA Í KR0N DIÍÍIA í GMEflBflE /ími 84900
0
Miðvikudagur 19. desember 1973.