Alþýðublaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 5
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmála- ritstjóri Sighvatur Björgvinsson. Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson. Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggs- son. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Freysteinn Jóhannsson. Aðsetur rit- stjórnar/ Skipholti 19. Sími 86666. Af- greiðsla: Hverfisgötu 8-10. Simi 14900. Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10. Sími 86660. Blaðaprent hf. SNJðLL LAUSN HJÁ PETRI Þegar löggjöfin um sjúkrasamlög var sett var fram tekið, að ætlunin væri að láta ákvæði þeirra laga um framlög sjúkrasamlaganna i sambandi við almenna læknisþjónustu ná siðar meir til tannlæknishjálpar. Af þvi hefur þó enn ekki orðið. Tannlækningarnar standa enn utan sjúkrasamlaga og þessi nauðsynlegi liður i al- mennri heilsugæslu er þvi ekki með i trygginga- kerfinu eins og flestir eða allir aðrir þættir heilsugæslumála i landinu. Alþýðuflokkurinn hefur lengi haft áhuga á þvi, að tannlækningarnar yrðu lika teknar inn i tryggingakerfið a.m.k. að einhverju leyti. t tið viðreisnarstjórnarinnar var athugun hafin á þvi máli, en þegar efnahagskreppan mikla skall yf- ir ísland i lok sjöunda áratugsins, þá varð að fresta framkvæmdum þvi ekki var þá talið ráð- legt að ráðast i þau miklu útgjöld, sem slikri skipan fylgir. Auðvitað er það ljóst, að það kemur til með að kosta rikissjóð mikið fé að tannlækningar verði settar inn i almannatryggingakerfið á svipaðan hátt og aðrar lækningar. Eftir þvi, sem timar hafa liðið fram, hefur sú framkvæmd orðið dýr- ari og dýrari og þótt flestir stjórnmálamenn séu og hafi verið sammála um nauðsynina á þvi, að i það fyrirtæki verði ráðist, þá hefur hinn mikli kostnaður samfara þvi vaxið þeim mjög i aug- um. En einn af þingmönnum Alþýðuflokksins hef- ur komið fram með bráðsnjalla lausn á þeim málum. Það er Pétur Pétursson, alþm., en hann hefurnú á nokkrum þingum flutt gagnmerka hugmynd um framkvæmd á málinu, sem vakið hefur verðskuldaða athygli þótt alþingi hafi enn ekki afgreitt tillögur hans. Hugmynd Péturs er sem sé sú, að fram- kvæmdin verði unnin i áföngum. Fyrst verði ráðist i að taka inn i tryggingakerfið tann- læknishjálp til barna og unglinga allt að tvitugs- aldri þannig að sjúkrasamlögin myndu þá greiða hluta af kostnaði við tannlæknishjálp til þessara aldursflokka. Þegar þeim áfanga væri farsællega lokið er hugmynd Péturs sú, að þá yrði tekið til við aðra aldursflokka — t.d. elstu borgaranna — og tann- læknishjálp til þeirra yrði kostuð að hluta til af tryggingakerfinu. Þannig flyttu menn sig svo á- fram koll af kolli i áföngum uns framkvæmdinni væri að fullu lokið og tannlæknishjálp væri að öllu ieyti komin inn i tryggingakerfið eins og önnur læknishjálp. Þessa hugmynd sina hefur Pétur Pétursson flutt aftur á þvi þingi, sem nú situr, og mælti hann fyrir henni nú fyrir nokkrum dögum. í um- ræðum um tillögu Péturs kvaddi heilbrigðis- málaráðherra, Magnús Kjartansson, sér hljóðs og greindi frá þvi, að i ráðuneyti hans væri nú verið að semja frumvarp að lögum, sem einmitt byggðist á áfangahugmyndum Péturs Péturs- sonar. Væri þess ekki langt að biða, að það frumvarp yrði lagt fram á alþingi. Það er vissulega ástæða til þess að fagna við- brögðunum, sem tillaga Péturs hefur þarna fengið. Með bráðsnjallri hugmynd hans hefur nú fundist lausn á miklu þjóðþrifamáli, sem lengi hefur vafist fyrir mönnum að koma i fram- kvæmd. / Ur borgarstjórn Reykjavíkur B.Ú.R. VERÐI STÚREFLD TILLAGA MINNIHLUTAFLOKKANNA UM BÆJARÚTGERÐARMÁL A siðasta fundi borgarstjórnar Reykjavikur var fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir árið 1974 til fyrstu umræðu. Við það tækifæri fluttuborgarfulltrúar minnihluta- flokkanna sameiginlega ýmsar tillögur um aðgerðir — einkum þó á sviði atvinnu — og félagsmála. Björgvin Guðmundsson, borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, mælti á fundinum fyrir tveim þessara tillagna. Fjallaði önnur þeirra um eflingu BæjarUtgerðar Reykjavikur og fer framsögu- ræða Björgvins, sem hann flutti með tillögunni, hér á eftir. Eitt af þeim atriðum, sem hvaö mest er deilt um i stjórnmálum, er rekstursform fyrirtækja. Það er m.a. afstaðan til rekstursform- anna, sem skiptir mönnum i flokka. Þeir flokkar, sem leggja mesta áherslu á einkarekstur fyrirtækja, eru hægri flokkar eöa ihaldsflokkar, en þeir sem beita sér fyrir opinberum rekstri fyrir- tækja — rikisrekstri eða sveitar- félagarekstri — eru vinstri flokkar eða róttækir. Avegum Reykjavikurborgar er rekið mikið og öflugt atvinnu- fyrirtæki, þar sem er BæjarUt- gerð Reykjavikur, en þaö var á sinum tima stofnað fyrir frum- kvæði Alþýöuflokksins og þaö hafa verið minnihlutaflokkarnir i borgarstjórn, sem siðan hafa haft forgöngu um eflingu BæjarUt- gerðarinnar. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur hins vegar ávallt þvælst fyrir öllum tillögum um eflingu BÚR eins lengi og hann hefur séð sér fært. Og ekki eru mörg ár sið- an nUverandi borgarstjóri, Birgir tsleifur Gunnarsson, lét orð falla hér i borgarstjórn þess efnis, að hann teldi til greina koma að leggja bæjarUtgerðina niður sem borgarfyrirtæki. En þær fyrir- ætlanir hans og annarra ihalds- manna fóru Ut um þUfur. Og i dag stendur BÚR traustum fótum i atvinnulifi Reykjavikurborgar. Þegar hinn nýji skuttogari BÚR, Snorri Sturluson, kom til Reykjavikur hélt borgarstjóri, Birgir isl. Gunnarsson, ræðu i veislu um borð i skipinu. i þeirri veislu var margt starfsmanna BÚR og nU fór borgarstjóri lof- samlegum orðum um BæjarUt- gerðina og þýðingu hennar fyrir atvinnulif Reykjavikur, ræddi meira að segja um nauðsyn þess, að BÚR eignaðist nýtt frystihUs. Aður vildi hann leggja BÚR niður — nU lofaði hann fyrirtækið. Ég vil fagna þessum sinna- skiptum borgarstjóra og vænti þess, að sá áhugi, er hann sýndi á BæjarUtgerðinni um borð i Snorra Sturlusyni sé einlægur, en það mun koma betur i Ijós, þegar til- laga sU, sem ég mun nU lýsa, verður tekin til atkvæða hér i borgarstjórn. Allir minnihlutaflokkarnir i borgarstjórn flytja sameiginlega svohljóðandi tillögu um BÚR: Borgarstjórn Reykjavikur telur að stórefla þurfi Bæjarútgerð Reykjavikur. Borgarstjórn sam- þykkir þvi eftirfarandi.: 1. Haldið verði áfram cndurnýj- un togaraflota BÚR og stefnt að þvi að endurnýja alla togara Ut- gerðarinnar. Gömlu togararnir verði seldir, er nýir berast. Haf- inn verði nú þegar undirhúningur að kaupum á 4. skuttogaranum fyrir BÚK, og samin áætlun um frekari togarakaup á næstu ár- um. 2. Athugað verði, hvort ekki er hagkvæmt fyrir BÚR að eignast fiskibáta af heppilegri stærð. :i. llafin verði nú þegar hönnun á nýju frystihúsi fyrir BÚR og fjármagns- og fjáröflunaráætlun gerð. Hiðnýja frystihús skal búið fullkomnustu véium og tækjum og við miðað, að það geti fullbúið unnið úr um 200 tonnum af fersk- um fiski á dag. Borgarráð úthluti BÚR þegar heppilegri lóð undir hið nýja frystihús. 4. Keypt verði ný og fullkomin isframleiðslutæki fyrir BÚR. Eg vildi leyfa mér að fara nokkrum orðum um tillöguna. t 1. lið tillögunnar segir, að stefna skuli að þvi að endurnýja alla togara BÚR. BæjarUtgerðin átti 8 togara, þegar mest var, en i dag rekur BÚR aðeins 4 skip. Að visu eru þar af 2 nýir skuttogarar, sem smiðaðir voru á Spáni — Bjarni Benediktsson og Snorri Sturluson. Þremur gömlu togurunum var lagt á þessu ári. Gömlu togararnir, sem eru siðutogarar, eru mjög dýrir i rekstri og viðhaldsfrekir — t.d. mun tapið á Þormóði goða nema um 14 m.kr. á þessu ári. Er mikil Björgvin Guðmundsson nauösyn á þvi að t'á ný skip á næstu árum fyrirgömlu skipin og leggja þeim gömlu, er ný berast. Hefja þarf þegar undirbUning að kaupum 4. skuttogarans iyrir BÚR enda þótt ekki verði unnt að verja á næsta ári neinum fjár- munum til kaupa á þvi skipi. IVlá nota næsta ár til þess að undirbUa kaupin, athuga hvar ætti að láta smiða næsla skip. T.d. finnst mér ekki sjálfgefið, að það yrði keypl frá Spáni, þegar hafðir eru i huga þeir gallar, sem komið hafa lram i togurunum, sem þar voru keyptir. Þó vil ég benda á i þessu sambandi, að ekki helur enn verið tekin ákvörðun um, hvaða aðilar kaupi skuttogara þá, sem ÚA hafði pantað frá Spáni og eru þau skip nU laus. Eðlilegt má teljast, að samin veröi þegar áætlun til nokkurra ára um endurnýjun togara BÚR, þar á meðal fjármögnunar- áætlun. 1 sambandi við slika áætlun þarf að athuga, hvort BÚR mundi henta að fá togara af minni gerð- inni einnig, en auk þess þarf sér- staklega að athuga, hvort ekki sé nauðsynlegt fyrir BÚR að eignast einhverja fiskibáta. Það er mjög slæmt að minu áliti fyrir BÚR að þurfa að reiða sig algerlega á báta frá öðrum aðilum. BÚR hef- ur ávallt reynt að semja viö nægi- lega marga bátaeigendur um, að þeir legðu upp afla sinn hjá Fisk- iðjuveri BÚR, en það hefur gengið misvel. Og ávallt er hætta á, að BÚR missi siika báta á ný Ur viðskiptum. Það væri aukið ör- yggi fyrir BÚR ef fyrirtækið ætti sjálft einhverja báta. Þá segir i tillögunni, lið 2, að hefja þurfi þegar i stað hönnun á nýju frystihUsi fyrir BÚR . Það er nú liöið eitt ár siðan ég flutti hér i borgarstjórn tillögu um, að ákveðið yröi að reisa nýtt frysti- hús fyrir BÚR — fullkomið frysti- hUs, sem unniö gæti Ur Ur 200 tonnum fisks á dag. Þegar ég hreyfði þeirri tillögu fyrir árý sagði talsmaður meirihlutans, að ekki væri unnt að taka slika ákvörðun án þess að fyrir lægi kostnaðar- og fjármögnunar- áætlun. Af þeirri ástæðu og vegna þess, að Sjálfstæðisflokkurinn VAR á móti þvi að reisa nýtt frystihUs fyrir BÚR var tillögu minni visað til Utgerðarráðs og borgarráðs. NU, ári siðar, hefur orðið breyting á afstöðu Sjálf- stæðisflokksins til þessa máls, a.m.k. á afstöðu borgarstjóra ei marka má orð hans um borð i Snorra Sturlysyni. Og væntanlega hefur árið verið notað til þess að gera kostnaðaráætlanir og fjár- mögnunaráætlanir. Ég er þvi bjartsýnn á, að tillaga okkar m i nn i h 1 u t af 1 ok ka n na um byggingu nýs frystihUss verði samþykkt nU og tel ég mikla þörf á þvi fyrir BÚR. Útgerðarráð BÚR hefur mikinn hug á þvi, að reist verði nýtt frystihUs fyrir fyrirtækið/ enda er gamla fiskiðjuverið orðið Urelt og Ur sér gengið og fullnægir ekki lengur kröfum timans. Hefur Utgerðar- ráð þegar sótt um lóð undir nýtt frystihUs og sýnir það Ut af fyrir sig, að Utgerðarráð treystir á það, að borgarstjórn samþykki byggingu nýs frystihUss. Þá fjallar 4. og siðasti liður til- lögunnar um að keypt verði ný is- framleiðslulæki fyrir BÚR. Mikil þörf er á þvi, að slik ný tæki verði fengin. Tæki þau, sem BÚR á nU til isframleiðslu, eru orðin gömul og mjög dýr i rekstri og unnt er að fá mun fullkomnari og afkasta- meiri tæki. Er mikil þörf á,að það verði gert hið íyrsta. Eins og segir i upphafi tillögu Framhald á bls. 11 FISKSÖLU- MIÐSTÖÐ í REYKJAVÍK Siðari tillaga fulltrUa minnihlutaflokkanna i borgarstjórn, sem Björgvin Guðmundsson mælti fyrir á siðasta fundi i borgarstjórn Reykjavikur, fjallaði um stofnun fisksölumiðstöövar. Tillagan hljóðar svo: Borgarstjórn Reykjavikur telur nauðsynlegt, að fisk- dreifingin i borginni verði endurskipulögð. Telur borgarstjórnin heppilegast að komið verði á fót fisksölu- miðstöð, sem annist öflun fisks fyrir smásöluverslanir, er selja beint til neytenda. Með þvi móti mundu flutn- ingar á neyslufiski til Reykjavikur frá öðrum Ut- geröarbæjum verða á einni hendi. Borgarstjórn felur Bæjar- útgerð Reykjavikur að undirbúa stofnun slikrar fisksölumiðstöðvar. t framsögu með tillögu þessari gat Björgvin þess m.a., hversu mikill skortur á neyslufiski væri oft i Reykja- vik. Benti hann i þvi sam- bandi sérstaklega á þá stað- reynd, hve erfitt væri um að- drætti á fiski og hve van- hugsað það væri að láta fisk- salana i borginni hvern i sinu lagi um að leita að fiski um langan veg i stað þess að sett yrði upp fisksölumiðstöð, nokkurs konar fiskheildsala, til þess að hjálpa þeim að nálgast góðan fisk frá Ut- gerðarstöðunum i nágrenni Reykjavikur án of mikillar ;fyrirhafnar fyrir þá og kostnaðar fyrir þá og neyt- endur. Björgvin sagðist telja eðli- legt, að borgarstjórn Reykjavíkur hefði frum- kvæði um að koma slikri fiskheildsölu á fót, enda væri hér um að ræöa hagsmuna- mál borgarbUa allra. Miövikudagur 19. desember 1973. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.