Alþýðublaðið - 09.07.1974, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 09.07.1974, Blaðsíða 6
Nýr Guðfaðir í vetur Hinn 35 ára gamli, dökki svartskegg jaði Francis Ford Cappola, eða maðurinn á bak við Guðföðurinn, lætur sannarlega ekki staðar numið þótt hann sé nú búinn að þéna nægilega mikið á þeirri mynd til að lifa góðu lífi til ævi- loka i sínu 30 herbergja húsi, með útsýni yfir San Franciskóf lóann. Hann er nefnilega langt kominn með Guð- föðurinn 2, sem væntan- lega verður frumsýnd í desember, en þar verða sömu aðalleikarar og í hinni fyrri, nema Brando, sem hlaut hægt andlát í þeirri mynd, svo sem kunnugt er. Myndin hefst þar sem hin hætti, en ekki er enn vitað hvernig fjölskyld- unni mun reiða af núna. 1 nýjustu fimmáraáætlun Rússa, þeirri niundu, er lögö áhersla á aö auka neyslu i landinu. Kaupmátt- ur launafólks hefur aukist um 5,4% á skömmum tima og um 13,5% siöan þessi áætlun tók gildi. Þaö hef- ur að sjálfu sér i för meö sér að fólk verslar meira og að verslun eykst. Myndin er úr vöruhúsi i smábæ einum, Ustlabinsk i Krasnodar, og er ekki annaö aðsjá en verslunin hafiyfir sér vestrænan blæ. Risasveppirnir, sem stúlkan á myndinm er með, fundust nýlega i Ástralíu, en svo stórir sveppir hafa ekki fundist þar í tiu ár. Þeir vega um þrjú pund hver, og eru á stærð við matardisk, en venjulegir risasveppir eru 6 til 8 tommur i þver- mál. Stúlkan á myndinni, Katrin, er systir finn- andans. m>m>m m jp*** Þessi mynd er frá Addis Abeba I Ethfopiu, þaöan sem herinn tók nýlega völdin. Nokkurs óróa hefur gætt þar siöan og þar hefur ríkt vandræöaástand um langan tima, svo sem hungursneyð. Myndin ber ekki beint meö sér að mikill uppgangur sé I borginni, né þar sé mikió um að vera, svo sem í öðrum höf- uðborgum. Svarta veran á myndinni er hálfapi, og fæddist nýlega í dýragarðinum í Köln i Þýskalandi. Ekki er vitað til svona afbrigða fyrr, og þykir þetta hin rnesta furóu- skepna enda ovitað með öllu hvaða skepna hef ur ruglað reitum með apamóðurinni, sem hér er einnig á mynd inni, því þaðævintýri hefurskeð í Madagaskar, þaðan sem apamóðirin var flutt fyrir nokkru. 0 Þriðjudagur 9. júli 1974

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.