Alþýðublaðið - 09.07.1974, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 09.07.1974, Blaðsíða 11
V-Þjóðveriar eru heimsmeistarar Þeir sigruðu Hollendinga í æsisnennandi leik ★ Hollendingar skoruðu úr vítasnvrnu ★ Gerd Miiller skoraði sigurmarkið ★ V-Þióðveriar iöfnuðu úr vítasnvrnu Þaö voru 80 þúsund manns á Ólympiuleikvanginum i Munchen, sem fylgdust með hin- um æsispennandi leik Hollend- inga og V-bjóðverja um heims- meistaratitilinn og um 900 milljónir sáu leikinn i beinni sjón- varpsútsendingu. Þegar dómari leiksins Jack Taylor frá Englandi ætlaði að byrja leikinn kom i ljós að i öllum látunum og spenningnum fyrir leikinn hafði gleymst að setja niður hornafánana. Þvi var þó fljótlega kippt i lag og leikurinn gat hafist. Hollendingar byrja með bolt- ann og leika rólega saman. Rijs- bergen gefur á Cruyff sem tekur á rás inn i vitateig Þjóðverjanna þar sem hann fær óbliðar móttök- ur og er umsvifalaust felldur niöur. Það er ekkert sem dómar- inn Taylor getur annað en dæmt viti. Leikurinn hefur staðið i 60 sekúndur og vitaspyrna á Þjóð- verja. Ahorfendur trúa ekki sin- um eigin augum, þýsku áhorfend- urnir sitja sem lamaðir, en 30 þúsund Hollendingar dansa trylltan striðsdans á áhorfenda- pöllunum. Neeskens tekur vitaspyrnuna og skorar örugglega framhjá Maier með hægri fótarskoti 1-0 fyrir Holland eftir 60 sekúndur. Þetta er hræðilegt áfall fyrir Þjóðverjana og þeir leika sem i leiðslu. Hollendingar halda áfram að sækja og Berti Vogts fær gula spjaldið fyrir brot á Reensen- brinck. Upp úr aukaspyrnunni eiga svo Hollendingar skot i þver- slá. En nú taka Þjóðverjarnir við sér og á 8. min er Breitner með eitt af sinum frægu langskotum, sem Jan Jangbloed i marki Hol- lands bjargar i horn. Afram held- ur þýska sóknin og það er greini- legt að yngsti maðurinn i hollenska liðinu, Rijsbergen, sem settur hefur verið til höfuðs Gerd M'uller á i nokkrum erfiðleikum meö að gæta ,,der Bomber”. Hollendingarnir fara að brjóta á þýsku sóknarmönnunum og Van Hanegem fær að sjá gula spjald- ið. Fyrirliði Þjóðverjanna Becken- bauer stöðvar eina sóknarlotu Hollendinga, gefur á Overath, sem sendir áfram á Hölzenbein sem'tekur á rás inn i vitateig Hol- lendinga á svipaðan hátt og Cruyff hafði gert á fyrstu minútu leiksins. En þar verða þeir Haan og Suurbier fyrir þvi í samein- ingu að fella Hölzenbein og enn veröur dómarinn að dæma vita- spyrnu. Fram til þessa hafði Höness verið vitaskytta þýska liösins,ená móti Pólverjum brást honum bogalistin. Það kemur nú i hlut bakvarðarins Breitners að spyrna og hann brást ekki og skoraði örugglega. Allt ætlar um koll að keyra á áhorfendabekkj- unum, nú er komið að þýsku á- horfendunum að fagna, og þeir láta gleði sina óspart i ljós og hvetja sina menn áfram. Nú verður leikurinn spennandi, boltinn gengur á milli markanna, bæði liðin leika sóknarleik. Vogts er i góðu færi og enn bjargar Jangbloed i horn. Á 37. min. á Cruyff gott skot sem Shepp Maier ver vel. En það eru Þjóðverjarnir sem sækja og eiga Hollendingar i nokkrum erf- iðleikum með þá Höness og Grawowski sem berjast eins og ljón og enn fær Hollendingur að sjá gula spjaldið. Nú er það Neeskens fyrir brot á Hölzenbein. Aftur og aftur leika Hollending- ar Þjóðverjana rangstæða með frábærlega vel skipulagðri leik- aðferð. Það kemur þó að þvi að Þjóð- verjarnir passa sig og það er Höness sem á góða sendingu á Bonhof og nú eigast við tveir varnarmenn Hollands og tveir sóknarmenn Þýskalands. Bonhof gefur á Gerd MUller, sem skýst fram og skorar eitt af sinur.i frægu mörkum. Þýsku áhorfendurnir dansa af gleði, á 40 minútum hafði mönn- um þeirra tekist að jafna forskot- ið og komast einu marki yfir. Eft- ir að dómarinn er búinn að flauta til leikhlés, sýnir hann sjálfum Cruyff gula spjaldið. Seinni hálfleikur byrjar og Þjóðverjarnir eiga fyrstu sókn- ina, Bonhof skallar rétt framhjá eftir hornspyrnu Höness. Hollendingum er það nú ljóst að við svo búið má ekki standa og næsti hálftimi er algjörlega þeirra. A 6. min. bjargar Maier glæsilega skoti frá Cruyff, á 8. min. bjargar Breitner á marklinu eftir hornspyrnu og aftur ver Maier glæsilega fast skot. A 14. min. skorar Múller en er greini- lega rangstæður og markið er dæmt af. Afram heldur sókn Hollendinga og enn bjarga Þjóðverjar á mark- linu. Þjálfari Hollendinga reynir allt, hann setur óbreytta menn inn, þá de Jong og de Kerkhof, þeir reyna allt sem þeir geta. A 26. min. bjargar Bonhof á mark- linu fyrir Þjóðverja og tveim minútum siðar sýnir Maier enn snilli sina, þegar honum tekst næstum á óskiljanlegan hátt að bjarga i horn á siðustu stundu. En nú fer þreyta að segja til sin og það dofnar nokkuð yfir leikn- um siðustu 15 minúturnar. Það eru þó Þjóðverjar sem eru betri á endasprettinum og þegar 4 minútur eru til leiksloka er Hölzenbein brugðið innan vita- teigs Hoilendinga, en nú sleppir dómarinn augljósu viti. Undir lokin voru allir leikmenn Hollands i sókninni og i einni skyndisókn Þjóðverjanna tókst Jongbloed að stöðva Miiller með þvi að gefa langt út fyrir vitateig og skalla boltann fram. Þegar dómarinn flautaði leik- inn af braust út gifurlegur fögn- uður meðal áhorfendanna og hylltu þeir lið sitt ákaft þegar það tók á móti verðlaununum. Hollendingarnir voru lika ákaft hylltir fyrir frábæran leik og þar með var einum skemmtilegasta knattspyrnuleik frá upphafi lokið. A myndinni sjáum við fyrirlið- ana þá Beckenbauer og Cruyff. Báðir áttu þeir góðan ieik og hvöttu sina menn óspart. Þetta er sennilega hátindurinn á frægð Beckenbauers, hann hefur nú unnið flest verðlaun sem hægt er að vinna til i knattspyrnu. Shepp Maier sýndi stórkostlega inarkvörslu i þýska markinu og varði hvaðcftir annað frábærlega vel, sérstaklega i siðari hálfleik þegar sóknarlotur Hollending- anna voru sem ákafastar. Hann átti mikinn þátt i sigrinum. Gerd Miiller skoraði sigurmarkið i leiknum gegn Holiandi. t HM i Mexlkó skoraði hann 10 mörk, en I þessari keppni hafði honum ekki gengið sem best að skora. Hann skoraði tvö þýðingar mestu mörkin fyrir lið sitt, það var gegn Pólverjum i undanúrslitunum og i sjálfum úrslitaleiknum i báðum þessum leikjum skoraði hann sigurmörkin. Allt er þegar þrennt er segir mál- tækið. i HM I Englandi hlutu V- Þjóðverjar silfrið, i Mexikó bronsið og nú loksins hið lang- þráða gull. Frábær árangur hjá landsliðsþjálfaranum Helmut Schön. Johan Cruyff átti nokkuð erfitt uppdráttar I ieiknum. Það var Berti Vogts sem hafði það hlutverk að gæta þessa frábæra leikmanns og tókst það með slikum ágætum að Cruyff sást ekki langtimunum saman i leiknum. Eftir að dómarinn hafði flautað til leikhlés fór hann að röfla, en hafði það eitt út úr þvi að hann fékk að sjá gula spjaldið. Pólverjar í þriðja sætið Pólverjar sigruðu Brasiliumenn I tilþrifalitlum leik um þriðja sætið I keppninni á ólympiuleikvanginum I Munchen. Það var eins og hvorugt liðið hefði nokkurn áhuga fyrir leikn- um og þau væru ekki búin að ná sér eftir tapið á miðvikudag- inn. í leikhléi var staðan 0-0. í seinni hálfleik tóku Pólverjarnir á sig nokkra rögg og þega 14 ntinútur voru til leiksloka braust Lato I gegn og skor- aði eina mark leiksins. Skömmu áður komst einn Brasiliumannanna einn innfyrir vörn Pólverja sem notuðu þá bolabrögð til að stöðva hann. Þvi miður fyrir Brasiliu var brotið fyrir utan vitateig, þannig að Pólverjar sluppu með áminningu og aukaspyrnu. sigruðu Brasilíu í daufum leik Þriðjudagur 9. júli 1974 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.