Alþýðublaðið - 01.10.1974, Page 3
Lögreglan mun
varla taka hart
nagladekkjum
úr þessu
„Ef aðstæður verða þannig,
að þær krefjast sérstaks út-
búnaðar á hjólum, viljum við
að sjálfsögðu að menn hafi
hann þótt ekki sé kominn sá
timi, sem leyft er að aka á
nagladekkjum að öllu jöfnu, —
en þótt færð batnaði siðan aft-
ur áður en nagladekkjatiminn
rennur upp býst ég varla við
þvi að lögreglan færi að amast
við þvi þótt menn skiptu ekki
yfir á sumardekk”, sagði Ósk-
ar ólason, yfirlögregluþjónn
umferðarmála, þegar Alþýðu-
blaðið hafði tal af honum i
gær.
„Reglugerðin segir, að ekki
megi aka á nagladekkjum fyrr
en eftir 15. október, og vafa-
laust vill gatnamálastjóri
hlifa götunum sinum og reynir
þvi að ýta á, að við höfum
eftirlit með þessu áfram”,
sagði óskar ennfremur, en
benti á, að það sé dýrt fyrir
bifreiöaeigendur að skipta i si-
fellu á milli sumardekkja og
nagladekkja. „Auk þess ber
það alltaf við, að menn ætli að
aka vestur eða norður i land
og setji þvi nagladekk undir
bila sina. Hvað eigum við þá
að gera, ef við stöðvum menn-
ina?” sagði Óskar.
Ólafur Waiter Stefánsson
hjá dómsmálaráðuneytinu
sagði, að lögreglan hefði allt
framkvæmdamál á reglugerð-
inni, þegar við bárum þetta
undir hann, en benti hinsvegar
á, að frétti hann af þvi að
menn væru farnir að setja
nagladekk undir bila sina hóp-
um saman fyrir 15. október,
færi hann að hugsa til þess að
láta gera eitthvað i málinu.
Samkvæmt upplýsingum,
sem Alþýðublaðið aflaði sér
hjá einu dekkjaverkstæðanna
i gær, kostar 740 krónur að
skipta um dekk á fjórum felg-
um. Burt séð frá kostnaðinum
væri vafalaust óframkvæm-
anlegt, að allir skiptu um dekk
oft á sama haustinu — hjól-
barðaverkstæðin mundu ekki
anna þvi.
HORNIÐ
Nýja kerfið rúmar 600 þúsund bíla
Nú er á lokastigi hjá bifreiða-
eftirliti rikisins undirbúningur
undir gjörbreytingu á
skrásetningarkerfi bifreiða, og
má búast við þvi, að ekki liði á
löngu þar til lagðar verði fyrir
Alþingi nauðsynlegar laga-
breytingar til þess að þessu nýja
kerfi verði komið á.
Guðni Karlsson forstöðumað-
ur bifreiðaeftirlits rikisins stað-
festi við fréttamann Alþýðu-
blaðsins i gær, að unnið sé að
undirbúningi að þessari breyt-
ingu, og verið sé að setja allar
þær upplýsingar, sem bifreiða-
eftirlitið hefur yfir að ráða, inn
á tölvuspjöld. Sagði Guðni, að á
þessu stigi málsins gæti hann
ekki veitt nánari upplýsingar
um breytingarnar á skrásetn-
ingarkerfinu, en staðfesti þó
það, sem Alþýðublaðið hafði
fregnað, — að nýju númerin
verði með tvo bókstafi og þrjá
tölustafi fyrir aftan, og með þvi
lagi verði hægt að skrásetja um
600 þúsund bifreiðar án nokk-
urra breytinga á kerfinu.
Nýju númeraspjöldin verða
hvit með svörtum stöfum, og
verða þau sett á bifreiðar þegar
við skráningu i framtiðinni og
fylgja þeim þar til þær verða
endanlega afskráðar, þannig að
umskráningar verða alveg úr
sögunni. Ekki er gert ráð fyrir
þvi, að númeraspjöldin verði
mismunandi eftir lögsagnarum-
dæmum, en verði þau hönnuð á
svipaðan hátt og t.d. i Sviþjóð,
þar sem þetta kerfi var nýlega
lögleitt, er ætlað pláss milli bók-
stafanna og tölustafanna fyrir
einkenni hvers lögsagnarum-
dæmis, sem eigendur bifreið-
anna geta þá sett á sjálfir.
Meðnýjanún erakerfinu»’erður
kappblaupið u.n lágu númerin
ekki með öllu úr sögunni, en á
hinn bóginn verður það á valdi
tölvu að ákveða, hverjir fá lágu
númerin, og verður þvi væntan-
lega ekki breytt, — og i hvert
skipti sem bilí er seldur verður
númerið að fylgja. Að öllum lik-
indum verður lægsta númerið
AA 001.
Þriðjudagur 1. október 1974.
Islensk rokkhljómsveit í London:
Change ytir-
gefa Orange
— fjársterkur elnkaaðili tekur
hljómsveitina upp á arma sína
Islenska rokkhljómsveitin
Change, sem verið hefur i Lond-
on i sumar, er þessa dagana að
ganga frá nýjum hljómplötu-
samningi ytra. Er sá samningur
við fjársterkan einkaaðila og,
að sögn Magnúsar Sigmunds-
sonar i Change, mun hagstæðari
en fyrri samningur hljómsveit-
arinnar við breska hljómplötu-
fyrirtækið Orange.
Orange-samningurinn er að
vfsu ekki enn runninn út, en þeir
félagar sögðu fréttamanni
blaðsins, sem var i London um
helgina, að þegar það gerðist,
um næstu mánaðamót, þá gerðu
þeir sér vonir um að Orange
vildi ekki framlengja hann.
Þeir félagar eru um þessar
mundir að vinna að nýrri LP-
plötu og hefja upptökur um leið
og nýi samningurinn getur
gengið i gildi, eða 2. nóvember
næstkomandi. Verður hún gefin
út á þeirra eigin merki en dreift
á alþjóðlegan markað. Það mun
gerast þannig, að sögn þeirra
félaga, að hljómplötufyrirtækið,
sem þeir stofna i félagi við áður-
greindan kaupsýslumann, gerir
dreifingarsamning við eitthvert
hinna fjölmörgu erlendu dreif-
ingarfyrirtækja.
Þær vonir, sem félagarnir i
Change gerðu sér um samstarf-
ið við Orange Records, hafa
ekki leitt til mikils og þykir
þeimþeir hafa himin höndum
tekið með þessum nýja samn-
ingi. — Á þennan hátt fáum við
sjálfir að ráða öllu, sagði Magn-
ús fréttamanni blaðsins. — Við
setjum á plötur okkar það, sem
við viljum sjálfir hafa þar og
ákveðum ailt sjálfir. Þessi aðili,
sem ég tel ekki rétt að nafn-
greina, borgar allan kostnað er-
lendis og siðan skiptist ágóðinn
á milli hans og okkar. Það er
náttúrlega töluverður munur
frá þvi sem var, þegar við feng-
um 7% hjá Orange og af þeim
prósentum var allur kostnaður
greiddur.
ÚRSLIT GÓD-
AKSTURS BFÖ
Góðaksturskeppni Bindindisfé-
lags ökumanna fór fram á laug-
ardaginn i Reykjavik, og lauk
henni með sigri Magnúsar Helga-
sonar, sem ók Mercedes Benz
220D og hafði rásnúmer 15. Annar
varð Ómar Þ. Ragnarsson á Fiat
126 með rásnúmer 1.
Nánar verður sagt frá góðakst-
urskeppni BFO á bilasiðu i sunnu-
dagsblaðinu, og birtar myndir,
sem Friðþjófur tók i keppninni.
„Hvað er eiginlega selt upp úr þessum tunnum?” spurði maður-
inn sem gaukaði að okkur þessari mynd, sem hann sagðist hafa
tekið við Umferðarmiðstöðina.
Skrásetningakerfi bilreiða
gjörbreytist á næstunni
Árbæjarsafni
lokað í vetur
Árbæjarsafn verður lokað i
vetur, þó þannig, að kennarar
og aðrir, sem vilja komast
með gesti á safnið geta pantað
þar tima.
Þetta er i fyrsta skipti, sem
Arbæjarsafn er lokað á þenn-
an hátt, en svo fáir hafa gest-
irnir verið yfir vetrartimann,
að ekki þykir svara kostnaði
að halda safninu opnu.
Afhendir íslensk skjöl
Á föstudaginn mun Dagfinn
Mannsáker, rikisskjalavörður
Noregs, afhenda Þjóðskjalasafni
íslands að gjöf ýmis islensk skjöl,
sem upphaflega eru komin úr
dönskum stjórnardeildum.
Hér er um að ræða skjöl, sem
Danir afhentu Norðmönnum eftir
sambandsslitin við Danmörku
1814, en meðal þessara skjala
voru ýmis, sem snerta islensk
málefni. Þar á meðal gömul
skjalabók frá 1597, svokölluð
jarðabók, sem er heimild um kon-
ungsjarðir og jarðir biksupsstól-
anna.
Bjarni Vilhjálmsson, þjóð-
skjalavörður, veitir gjöfinni mót-
töku.
íAuglýsið í Alþýðublaðinuj
: Sími 28660 og 14906 \