Alþýðublaðið - 06.08.1975, Page 1
alþýðu
I
148. TBL. - 1975 - 56. ÁRG.
VIÐ KYNNUM
NÝTT ANDLIT
Á SKJÁNUM
- Á BAKSÍÐU B-
MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST
Rltstjórn Síöumúla II - Slmi 81866
Neytendasíða í opnu
Grænmeti,
myndlist
og kynding-
arkostnaður
OKKAR
Á MILLI
SAGT
BAKSIÐA
Prjónakoniir með
150 kr. á tímann
Konur sem sitja heima hjá sér
og prjóna lopapeysur, sem þær
siðan selja i verslanir, eru verst
launaði vinnuhópur landsins og
njóta engra þeirra friðinda, sem
nú er talið sjálfsagt að allir
launþegar njóti. Erfitt er að segja
nákvæmlega til um hver laun
þessar konur fá, en miðað við
hæst verð sem almennt er greitt
fyrir lopapeysur má áætla að
timalaunin séu ekki mikið yfir 150
krónum á timann. Er þar um að
ræða brúttó laun, sem m.a. efnis-
kostnaður er greiddur af.
Prjónakonurnar eru i engum
launþegasamtökum og eru raun-
verulega i svipaðri aðstöðu og
verkafólk var á fyrstu áratugum
þessarar aldar, þe. atvinnurek-
endur ákveða launin upp i sjálf-
dæmi og sá hugsunarháttur virð-
ist rikjandi hjá þessum konum
að þær megi vera fegnar hverju
litilræði sem þær fá fyrir þessa
heimavinnu sfna. A vegum Iðju
félags verksmiðjufólks, hefur
verið reynt að skipuleggja þenn-
an launþegahóp innan sinna vé-
banda, samkvæmt upplýsingum,
sem Alþýðublaðið fékk á skrif-
stofu Iðju, en fengið litlar undir-
tektir hjá konunum sjálfum. Var
þarna um að ræða konur, sem
stunda saumaskap heima hjá sér,
auk prjónakvennanna.
Konur hafa oftsinnis leitað til
Iðju i þvi skyni að fá upplýsingar
um það hvað hæfilegt sé að taka i
laun fyrir heimilisiðnað af þessu
tagi, og hefur i svörum verið
miðað við fjórða taxta Iðju, sem
er kr. 288,90 að viðbættum
35—50% til að standa straum af
efniskaupum, véla- og húsnæðis-
kostnaði, orlofi og ýmsum öðrum
launatengdum gjöldum, sem
kaupendur varanna sleppa nú al-
veg við að greiða. Miðað við 40%
álag á fjórða taxta Iðju ætti tima-
kaupið að vera um kr. 406, en er
nálægt kr. 150, eins og fyrr segir.
Er þá miðað við, að konurnar
selji peysurnar á kr. 2400, en
algengasta verðið er kr.
2000—2400, i einstaka tilfellum
hærra.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Alþýðublaðið hefur aflað sér er
ekki vanætlað, að 16—18 klukku-
stundir taki að prjóna eina lopa-
peysu. Samkvæmt þeim stað-
reyndum, sem gefnar voru hér að
framan væri þvi nærri lagi, að
konurnar fengju 5—7000 krónur
fyrir peysuna.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Alþýðublaðið hefur aflað sér er
ekki vanætlað, að 16—18 klukku-
stundir taki að prjóna eina lopa-
peysu. Samkvæmt þeim stað-
reyndum, sem gefnar voru hér að
framan væri þvi nærri lagi, að
konurnar fengju 5—7000 krónur
fyrir peysuna.
Verslunin Rammagerðin hefur
A sunnudagskvöld siðast-
liðið gerði maður tilraun til að
stela áfengisflösku af bar i
veitingahúsinu Glæsibæ en var
svo óheppinn, að á leiðinni út
datt flaskan upp úr buxna-
streng hans, féll i gólfiö og
brotnaði. Komst þá upp um
kauða sem ætlaði að fara
nestaður áf staðnum.
A ANDARTAKI
gert mikið af þvi um árabil að
kaupa heimaprjónaðar lopapeys-
ur, og sagði Haukur Gunnars-
son, verslunarstjóri við Al-
þýðublaðið i gær, að þeir
hefðu einmitt verið að hækka
verðið til prjónakvennanna þá um
daginn um 10—20%. Sagði hann,
að nú væru greiddar 2—2400
krónur fyrir peysuna, og meira
séu þær sérstaklega vel gerðar.
„Vitanlega vildum við gjarnan
borga meira fyrir þetta”, sagði
Haukur, ,,en við verðum lika að
hugsa um að útsöluverðið verði
ekki of hátt”. Þá sagði Haukur,
að konurnar, sem hann skiptir
við, fái lopa á lágu verði og einnig
eru þeim útvegaðar tölur. Sagðist
hann vona að þrátt fyrir allar
verðhækkanir þurfi þeir ekki að
hækka lopann að sinni, „nema
kannski um tólf prósentin”, sagði
Haukur Gunnarsson.
VOLVOBOÐIÐAÐ
KAUPA VOLVO
VELTIR H.F. — Volvoumboðið
i Reykjavik — hefur boðið Volvo-
verksmiðjunum i Svíþjóð að
kaupa 49% hlutabréfa I Velti h.f.
Að sögn Gunnars Ásgeirssonar,
forstjóra, hefur svar enn ekki
borist frá Volvo-verksmiðjunum.
— Við vonum bara, að það verði
jákvætt, þvi öðru vísi er ekki unnt
að reka bilaverslun á tslandi i
dag, sagði hann.
Veltir h.f. bauð Volvoverk-
smiðjunum I Sviþjóð upp á þessi
kjör með það i huga að fá betri
þjónustu frá verksmiðjunum, og
þá m.a. I formi ráðgjafaþjónustu.
Gunnar sagði enn fremur: „Við
erum einnig að falast eftir þessu
með það i huga að bæta rekstur-
inn, ef að af þessari breytingu
yrði ekki, þyrftum við að breyta
og bylta okkar rekstri eins og
hann er i dag, og fækka starfs-
fólki, en það viljum við forðast i
lengstu lög. Fyrir allan rekstur
fyrirtækisins I dag, fáum við 181.
kr. á klukkustund, en þyrftum að
fá milli 400 og 500 kr, á klst. til
þess að hann stæði fyllilega undir
sér.
Við sóttum nýlega um leyfi til
hækkunar á útseldri þjónustu
okkar til viðskiptamálaráðherra,
en var synjað um leyfið. Ég er
ekki að segja, að fyrirtækið hætti
starfsemi sinni, ef Volvo neitar,
en það yrðu stórfelldar breyting-
ar á honum, ef svo færi,” sagði
Gunnar að lokum.
ICECAN
SLITINN
Simasæstrengurinn milli
íslands og Kanada, Icecan,
slitnaði I fyrradag á grynningum
út af Nýfundnalandi.
Bilun þessi er á nákvæmlega
sama stað og strengurinn slitnaði
á fyrir um einum og hálfum
mánuði siðan, milli 13. og 14.
magnara frá Nýfundnalandi, en á
þessum slóðum eru mikil fiskimið
og slitnar sæstrengurinn af völd-
um togara, sem þar eru aö
veiðum.
Til viðmiðunar má geta þess,
að á milli Nýfundnalands og
Grænlands eru 38 magnarar á
strengnum i sjó.
Ekki hefur enn frést af þvi að
viðgerðaskip hafi verið sent á
staðinn, en skip frá Stóra
Norræna simafélaginu, sem er
eignaraðfli að strengnum, er við
störf á þessum slóðum og mun
væntanlega framkvæma viðgerð
á strengnum.
Þeir voru harðir af sér,
bindindismennirnir, á Galta-
lækjarhátiðinni. Söngvari
einnar hljómsveitarinnar var
talinn vera undir áhrifum
áfengis á föstudagskvöldið og
var umsvifalaust visað brott.
Var honum meinuð aðganga
að mótssvæðinu það sem eftir
var helgarinnar, svo gestir
urðu af söngnum þeim — og
söngvarinn væntanlega af
talsverðum tekjum.
Á ANDARTAKI
□ □ □Union Carbide sniðgengur Islendinga!
Alþýðublaðsfréttin
þýdd fyrir Parsons
Asgeir Magnússon, forstjóri
Málmblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga, skýrði Alþýðu-
blaðinu frá þvi I gær, að hann hafi
gert ráð?tafanir til þess að fá for-
siðufrétt Alþýðublaðsins frá s.l.
laugardegi um að útiloka eigi is-
lenska verktaka frá fyrstu mann-
virkjagerð á Grundartanga
þýdda yfir á ensku.
— Ætlunin er sú að senda
breska verkfræðifyrirtækinu
Parsons fréttina og fá umsögn
þeirra, sagði Asgeir. Verkfræði-
fyrirtæki þetta hefur umsjón með
byggingu Málmblendiverksmiðj-
unnar og gerði m.a. útboðslýsing-
arnar varðandi fyrstu mann-
virkjagerðina, sem Alþýðublaðið
skýrði frá á laugardag að væru
þannig gerðar, að Islensk fyrir-
tæki ættu varla möguleika á að
senda tilboð i þetta fyrsta stór-
verkefni á vegum verksmiðjunn-
OLÍ UPALLASMÍÐIN
ÚT UM ÞÚFUR ?
„Sá erlendi aðili sem hefur sýnt
áhuga á að láta smiða hér á landi
olluborpalla til oliuleitar á
Norðursjó, er heldur daufari en i
vor, þannig að óvist er hvort af
þessu verður”, sagði Arni Snævar
ráðuneytisstjóri iðnaðarráðu-
neytisins I samtali við Alþýðu-
blaðið I gær.
„Samt sem áður verður unnið
að forkönnunum á Reyðarfirði i
þessum mánuði, og m.a. gerðar
jarðvegsathuganir, þ.e. segul-
og bergmálsdýptamælingar,
vegna hugsanlegra mannvirkja,
sem reist verða ef af smiðinni
verður”, sagði hann. Niðurstöður
þeirra rannsókna liggja væntan-
lega fyrir I haust, en hverjar svo
sem þær verða er ómögulegt að
segja fyrir um það nú hver
framvinda þessa máls verður.
Hugmyndin var, að þessi oliu-
leit, sem hér um ræðir, yrði gerð i
norsk-dansk- íslenskri samvinnu,
og átti okkar hlutverk eingöngu
að vera smiði þessara borpalla að
sögn ráðuneytisstjórans.
ar.
Alþýðublaðiö spuröi Asgeir
Magnússon, forstjóra verk-
smiðjunnar, hvort hann hefði
ekkert um málið að segja, en
hann svaraði þvi til, að hann væri
ekki nægilega kunnugur þvi til
þess að tjá sig um það. Hann
sagðist hins vegar búast við þvi,
aö svar frá Parsons, hinu breska
verkfræðifyrirtæki, gæti borist i
þessari viku.
Þá gerði Alþýðublaðið
itrekaðar tilraunir til þess aö ná
tali af iðnaðarráöherra, Gunnari
Thoroddsen, og fá álit hans á
málinu, en ráðherra var ekki við-
látinn. Hins vegar náði blaöið tali
af ráðuneytisstjóranum i
iðnaðarráðuneytinu, Arna
Snævarr, en hann sagðist ekkert
um mál þetta vita.
Nýr grasvöllur í Laugardal
Nýr grasvöllur er nú að komast i gagnið i Laugar-
dalnum iReykjavik oger hann staðsettur við annan
enda þess gamla, á milli hans og Laugardalshallar-
innar. Er nú verið að ganga frá rammgerðri
griðingu umhverfis hann, svo að enginn eigi mögu-
leika á að sjá leikinn „fritt,” og ætti það að taka i
mesta lagi þrjár vikur i viðbót. Væntanlega verður
sá nýi svo ekki bannfærður af FIF A eftir fyrsta leik-
inn, eins og komið er fyrir þeim gamla.