Alþýðublaðið - 17.09.1975, Page 5

Alþýðublaðið - 17.09.1975, Page 5
Islenska sendi- nefndin - hópnum', i viðkomandi undir- nefnd. Siðan gera fulltrúarnir, Allsherjarþing Samein- uðu þjóðanna var sett í 30. sinn í gær og hafa aldrei verið fleiri mál á dag- skrá þingsins. Að jafnaði stendur þingið yfir í þrjá mánuði, frá miðjum sept- ember til jóla. Á Allsherj- arþingið koma til leiks fulltrúar allra aðildar- ríkjanna til þess að ræða þau mál, sem þar eru tek- in til meðferðar og setja fram þá stefnu sem við- komandi ríki fylgja í ut- anríkismálum. Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar 24. október 1945 og árið eftir gerðust Islendingar aðilar að samtökunum. öll að- ildarrikin hafa fleiri eða færri fulltrúa sem starfa við aðal- stöðvarnar og eru umsvif hinna einstöku rikja æði misjöfn eftir stærð þeirra og einstökum á- huga- og hagsmunamálum. Eins og flestir vita er Island eitt af fámennustu rikjum S.þ. og er hið fasta starfslið okkar þar þvi einnig mjöf fáskipað. A Alls- herjarþingið koma siðan sendi- nefndirnar og þá venjulega und- ir forystu viðkomandi utanrikis- ráðherra, en auk hans eru i sendinefndunum ýmsir embætt- ismenn og sérfræðingar og svo að lokum fulltrúar stjórnmála- flokkanna. Skipan hinna ein- stöku sendinefnda er þó með ýmsum hætti og fer það meðal annars eftir stjórnskipan, fjölda stjórnmálaflokka og ýmsu öðru. Hjá islensku sendinefndinni hefur sá háttur verið við hafður að stjórnmálaflokkarnir hafa, hver um sig, mátt senda einn fulltrúa til Allsherjarþings- ins og taka þessir fulltrúar þátt i störfum þingsins meðan það stendur yfir. Starf þessara full- trúa er aðallega i þvi fólgið að sitja fundi i undirnefndunum ásamt fastafulltrúunum og ef til vill einstökum embættismönn- um utanrikisráðuneytisins sem sitja þingið hverju sinni. Yfir- leitt er það svo, að einn eða tveir fulltrúar úr sendinefndinni taka sæti i hverri undirnefnd og fylgjast þá með störfum hennar, greiða atkvæði i nefndinni fyrir Islands hönd og sitja auk þess fundi með fulltrúum hinna Norðuriandanna. Norðurlanda- hver um sig, grein fyrir þvi sem rætt er i viðkomandi undir- nefnd, á fundi sendinefndarinn- ar i heild ásamt fastafulltrúun- um. Enda þótt Island sé búið að vera aðili að Sameinuðu þjóðun- um siðan 1946 hafa Islendingar aldrei sýnt i verki mikinn áhuga á þvi að taka virkan þátt i störf- um Allsherjarþingsins eða öðr- um stofnunum S.þ. Norðurlönd- in hafa t.d. skipst á um að setja fulltrúa i einstakar mikilvægar nefndir og ráð, þ.á.m. öryggis- ráðið, en tsland hefur hvað eftir annað hafnað þátttöku, sem hef- ur þá komið i hlut hinna Norður- landanna. Yfirleitt virðist sú stefna ráðandi, að tslendingar eigi að fylgja hinum Norður- löndunum að málum. Þetta hef- ur komið sérstaklega fram i störfum Norðurlandahópanna, sem starfa innan hverrar undir- nefndar. Sú skoðun hefur oft komið fram að islenska sendi- nefndin sé svo fáliðuð að ekki sé unnt að kanna einstök mál til hlitar og sé þvi rétt að láta frændur vora á hinum Norður- löndunum leggja linurnar. Að visu hafa Norðurlöndin ólika stefnu i ýmsum málum, en vinna þó sameiginlega að undir- búningi fjölmargra mála. t þessum hópum hefur frum- kvæði tslendinga þvi miður verið af skornum skammti og oft á tiðum hefur islenska nefndin talið niðurstöður hinna Norðurlandanna góða og gilda vöru án þess að gera nokkra sjálfstæða könnun á málinu. Þetta hefur svo verið afsakað með þvi að við tslendingar séum svo fáliðaðir. Að visu erum við fáliðaðir, en það réttlætir á eng- an hátt að sendinefnd tslands, sé bara einskonar puntnefnd, sem ekkert sjálfstætt geti lagt til alþjóðlegra mála. Það verður þó að segja utanrikisráðuneyt- inu til hróss, i þessu sambandi, að hafréttarmálin hafa verið flutt af festu og öryggi og er það út af fyrir sig góðra gjalda vert. En þó að islenska "nefndin á Allsherjarþinginu geti gætt hagsmuna okkar i hafréttar- málum, ætti það eitt ekki að vera afsökun fyrir þvi að láta allt annað sigla sinn sjó og gauf- ast siðan i hinu og öðru til mála- mynda. Það virðist óneitanlega ekki bera vott um mikla reisn i á grín utanrikisstefnu þjóðarinnar né ábyrgðartilfinningu að standa þannig að málum á Allsherjar- þinginu, sem raun ber vitni. Það má, út af fyrir sig, teljast merkilegt hversu mikið skipu- lagsleysi og ringulreið hefur einkennt alla starfsemi islensku sendinefndarinnar á Allsherjar- þinginu. Þarna hafa þó koinið við sögu fjöldinn allur af þing-' mönnum, ráðherrum og flokks- leiðtogum, svo ekki ætti það að standa i vegi fyrir lagfæringu. En ef til vill er skipulagsleysið trúnaðarmál, og svinariið þar með verndað með lögum. Það ætti þó ekki að vera neitt laun- ungarmál að lengst af hafa ekki gilt neinar ákveðnar reglur um það hvernig skuli ákveða af- stöðu Islands ef upp kemur á- greiningur innan islensku sendi- nefndarinnar i einstökum mál- um. Að visu hefur utanrikisráð- herra úrslitavald. En hvert er hið raunverulega vald sendi- nefndarinnar og hvernig ber að meðhöndla skýrslur einstakra fulltrúa frá störfum þeirra i hin- um ýmsu undirnefndum Alls- herjarþingsins. Eða eru störf þeirra i nefndunum aðeins þáttur i þvi að uppfræða þessa menn um gang alþjóðamála og um leið framtaksleysi íslend- inga á þessum vettvangi? Enda þótt Allsherjarþingið hafi nú byrjað störf, mun enn liða heill mánuður þar til full- trúar stjórnmálaflokkanna leggja af stað. Þetta sýnir meðal annars afstöðu stjórn- valda til þess starfs, sem þessir menn eru sendir til að vinna. Eða er þetta allt upp á grin, sýndarmennskan i fullum skrúða hjá æðstu valdastofnun þjóðarinnar, Alþingi? Fulltrúar þeir sem sendir verða fyrir stjórnmálaflokkana að þessu sinni eru: Garðar Sigurðsson og Sigurður Blöndal fyrir Alþýðubandalagið, Eggert G. Þorsteinsson og Eyjólfur K. Sigurjónsson fyrir Alþýðuflokk- inn, Jón Helgason og Björn Fr. Björnsson fyrir Framsóknar- flokkinn og Pétur Sigurðsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Magnús Torfi Ólafsson fyrir Samtökin. Enda þótt gert sé ráð fyrir einum fulltrúa fyrir hvern flokk, hefur sú hefð komist á, að tveir fulltrúar skipti á milli sin starfstimanum, sem verður þá tæpur mánuður fyrir hvorn full- trúa. Síðustu fréttir af fundi Allsherjarþingsins í gær Fulltrúi Sýrlands flutti ræðu á Allsherjarþinginu i gærdag og sagði þá að ísrael ætti ekki heima á þessum vettvangi.l ræðu sinni sagði Mouffak Allaf fulltrúi Sýrlands: „Fulltrúar Zionista- stjórnarinnarinnar, sem hafa komið til þessarar ráðstefnu, eru umboðsmenn rikisstjórnar, sem framfylgir kynþáttastefnu og of- beldisstefnu og hefur tekið með valdi landssvæði af þjóðum, sem eru fullgildir meðlimir Samein- uðu þjóðanna og með þvi brotið grundvallarlög sem aðildarrikin hafa öll samþykkt.” Fulltrúi Sýrlands sagði siðan að af þess- um sökum bæri Israel að vikja af Allsherjarþinginu. Fulltrúi tsraels, Chaim Herzog, visaði á bug öllum fullyrðingum Sýrlands, sem hann taldi að hefðu verið óviðeigandi með öllu og i ósamræmi við þann vilja flestra þjóða heims að draga úr spennu og átökum. Noregur: Hægri flokkurinn og Verkamannaflokkurinn vinna á 1 sveitarstjórnakosningunum i Noregi unnu Jafnaðarmenn á miðað við siðustu þingkosningar 1973. Að visu töpuðu þeir meiri- hluta i nokkrum sveitarstjórnum og borgum, þar á meðal i Osló og mun það vera allmikið áfall fyrir flokkinn. Hægri flokkurinn vann sinn stærsta sigur i 40 ár og hlaut um það bil 20% greiddra atkvæða. Þeir, sem verst fóru út úr kosn- ingunum voru flokkarnir vinstra megin við Jafnaðarmenn og var atkvæðamagn þeirra nátægt helmingi minna en i þingkosning- unum 1973. Aðal kosningamálin voru atvinnumál, skattar og verðbólga og gefa kosningar þvi nokkra visbendingu um fylgi flokkanna, ef um þingkosningar hefði verið að ræða. Frakkar fá ekki að leggja víntollinn á Stjórn Efnahagsbandalagsins samþykkti i dag að Frakkar gætu ekki lagt tolla á innflutning léttra vina frá ttaliu, sem þeir höfðu ákveðið, en hörð deila hefur kom- ið upp út af þessu máli milli landanna. Þá hefur Efnahags- bandalagið lagt til að vinyrkju- bændur fengju greiddar uppbætur á framleiðslu sina þannig að þeir gætu selt afurðir sinar til landa utan Efnahagsbandalagsins Einnig hafa aðrar þjóðir innan Bandalagsins verið hvattar til þess að beina viðskiptum sinum á léttum vinum til Italiu. Rödd jafnaðarstefnunnar „Málefni kerfisins” Hversu langt er eðlilegt að handhafar fram- kvæmdavaldsins geti gengið i þvi að halda mikilvægum upplýsingum leyndum fyrir almenningi? Er t.d. æskilegt að ráðuneyti eða ráðherra geti skipað stofnun eins og Hafrann- sóknarstofnuninni að þegja um tillögur, sem hún gerir um friðunaraðgerðir þegar málum er svo komið, að ráðuneytið svarar ekki tilmælum stofnunarinnar og á meðan er áfram haldið við athæfi, sem sérfræðingar stofnunarinnar telja hættulega rányrkju. Á ráðherra að geta skipað háttsettum opinberum embættismanni að þegja um alvarlega ágalla, sem hann þykist sjá á starfsemi embættisins og rekið hann úr starfi, ef hann skýrir frá þvi opinberlega, að hann telji að þurfi að athuga málið? Hvorttveggja þetta hefur átt sér stað — en er það eðlilegt og æski- legt? Alþýðublaðið telur svo ekki vera Framkvæmdavaldið á íslandi hefur um marga hluti meiri ráð i sinum höndum en eðli- legt er talið að það hafi i ýmsum nálægum löndum. Það hefur ekki verið skyldað með lögum til þess að veita almenningi óhindraðan aðgang að upplýsingum um flesta starfshætti þess, eins og gert hefur verið viðast hvar annars staðar. Hér á lándi er ekki til neinn aðili hlið- stæður umboðsmönnum þjóðþinga i nágranna- löndunum, sem á að hjálpa þeim þjóðfélags- þegnum að ná rétti sinum, er telja sig hafa verið rangindum beittir af stjórnkerfinu. íslenska löggjafarstofnunin veitir framkvæmdavaldinu bókstaflega ekkert aðhald á flestum sviðum eins og sjálfsagt er talið meðal flestra lýðræðisþjóða. Það lætur meira að segja viðgangast að lögum, sem það setur, sé verulga breytt af fram- kvæmdavaldinu eftirá. Það er ekki vansalaust, að Islendingar skuli að þessu leytinu til hafa vanrækt að styrkja stoðir lýðræðislegra stjórnarhátta i landinu. Embættiskerfið i landinu er stöðugt að vaxa og styrkjast og það erósæskilegt að þvi verði ekki markaður eðlilegur bás hvað valdaaðstöðu snertir. Fyrsta verkið, sem vinna þarf, er að setja lög um upplýsingaskyldu stjórnvalda — lög, sem hafa frjálsa og óhindraða upplýsinga- gjöf sem almenna reglu en ekki þagnarsam- særi hins óttalega leyndardóms eins og frum- varp það sem tvivegis hefur verið reynt að koma i gegn á Alþingi án árangurs. Jafnhliða þvi verður Alþingi að gegna skyldu sinni að veita framkvæmdavaldinu aðhald m.a. með þvi að skipa sérstakar rannsóknarnefndir ef ástæða þykir til — en slikt mun ekki hafa verið gert nema einu sinni þótt mýmörg tilefni hafi gefist. Þá er einnig orðið mjög aðkallandi að skilið verði afgerandi á milli framkvæmdavaldsins og dómsvaldsins i landinu en það kerfi, að hand- hafar framkvæmdavalds skuli jafnframt gegna dómarastörfum, samrýmist alls ekki grund- vallarreglu lýðræðis um þriskiptingu valdsins i löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald. Á meðan handhafar framkvæmdavalds gegna jafnframt dómarastörfum er meira að segja hægt að halda þvi fram með rökum, að ísland sé ekki réttarriki, þvi slikt fyrirkomulag er ekki lengur þekkt nema hjá frumstæðum þjóðum eða þjóðum, sem búa við einræðisstjórnarfar. Það hefur margt verið vanrækt i þessum málaflokkum öllum, sem gjarna má nefna „málefni kerfisins”. Ýmislegt það, sem nefnt hefur verið spilling i opinberu lifi á íslandi á beinlinis rætur sinar þangað að rekja. Miðvikudagur 17. september 1975. o

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.