Alþýðublaðið - 17.09.1975, Síða 10

Alþýðublaðið - 17.09.1975, Síða 10
í HREINSKILNI SAGT í upphafi skólaárs. Um þetta leyti eru velflestir skólar landsins teknir til starfa. Tugþúsundir nemenda og þúsundir kennara eru að hasla sér völl við vetrarstarfið. Ef við litum á það fjármagn, sem fer til fræðslu hér á landi, mætti það vissulega gleðja augu liðinna kynslóða, sem urðu að lita á nám sem alger forréttindi þeirra, sem nokkurs voru megnugir fjárhagslega. Sá timi er liðinn og enginn saknar hans i alvöru. Nú eiga öll lands- ins börn þess kost, að þreyta nokkurt nám, þótt engan veginn sé þar á æski- legasti jöfnuður. En það er önnur saga. Að þessu sinni er ætlunin að dvelja lit- illega við einn þáttinn i skólastarfsemi okkar. Sá þáttur hefur verið og hlýtur að verða um sinn einn af þeim gildustu i námi — bækurnar. Undanfarna áratugi hafa nemendur i skyldunámsskólum okkar átt þess kost, að fá ókeypis velflestar kennslubækur, sem hver skóli hefur kosið að hagnýta. Raunar má segja, að þar hafi ekki verið margra kosta völ i ýmsum greinum, þótt nokkuð hafi valið getað aukizt á sið- ari timum. Skyldunámsskólarnir hafa þvi, að mestu, verið bundnir við 1-2 kennslubækur i hverri grein. Að sjálf- sögðu hefur mörgum þótt hér um heldur fátæklegan garð að gresja, en við ramman reip að draga, vegna þess mikla kostnaðar, sem nýjar kennslu- bækur hafa i för með sér. Þetta leiðirsvo hugann að öðru, sizt ó- merkara efni, sem örugglega hefur oft og lengi brunnið i hugum skólayfirvalda og kennara. En það er meðferð nem- enda á bókum, sem þeim eru i té látnar. Okkur verður vist ekki sérlega hrósað fyrir sparsemi eða ráðdeild. Og sá þátt- ; urinn, sem að meðferð námsbóka snýr, ber okkur ekki fagurt vitni almennt. Það liggur við, að manni renni alvarlega i skap, að sjá bækur, sem nemendur hafa fengið i hendur nýjar af nálinni á haust- nóttum, vera orðnar þannig útleiknar að I nokkrum vikum liðnum, að þrifið fólk [ gæti vart hugsað sér að snerta á þeim ' nema með glóandi töngum! ■ Flestir skólar munu leggja nemend- I um það á herðar, að setja hlifðarkápur 1 utan um bækur sinar. En þetta nær þó Hugleiðingar að 1 haustnóttum aðeins skammt. Landlægur er sá ósiður, að krota og krassa innan i bækurnar, unz þær verða þaktar innan allskonar 1 skripamyndum og miðlungi kurteislegu orðfæri. Nú skal það fram tekið, að eng- anveginn allir nemendur eiga hér óskil- ið mál,en alltof margir, þvi miður. Hér þurfa sannarlega að verða straumhvörf, I og gildir einu, þótt börnin og ungling- ; arnir viti, að þau eiga kost nýrra og hreinna bóka næsta ar. En við skulum nú freista þess, að fylgja málinu eftir ofurlitið lengra fram á leið. Flestir nemendur úr skyldu- námsskólunum stunda nokkru lengra nám en þar er kostur á. Þá kemur að þvi að bækurnar eru ekki lengur gefnar eða afhentar ókeypis. Þá kemur að þvi að menn verða að greiða álitlegar fúlgur i bókakaup. Það er ýmsum allþungur Eftir Odd A. Sigurjónsson baggi. Hafi nemendur tamið sér hirðu- leysi um námsbækur sinar um árabil, er hætt við, að haldið sé áfram á þeirri braut. Þarf ekkiað rekja söguna lengra. Kreppuárin eru stundum máluð á vegg inn sem einstök hrollvekja. En ég minn- ist þess, sem nemandi á þeim árum, að meðferð kennslubóka i höndum nem- enda var þá öll önnur. Fólk hafði ekki úr að spila meira fé en svo, að oft þurfti að velta krónunni (ef hún var þá til) áður en kaup voru gerð. Þá þóttist hver sæll og heppinn, sem gat aflað sér gamalla bóka að vori, til náms næsta ár. Skólayfirvöld ýttu beinlinis undir þessa hætti. Fróðlegt væri að vita, hversu mörgum, fátækum nemendum þetta skilaði fram á leið. örugglega voru þeir ótaldir. Nú er öldin önnur, og mér hefur borist til eyrna, að ýmsir framhaldsskólar beinlinis reki olnbogana i þá starfsemi nemenda, að verzla með gamlar náms- bækur! Slikter furðuleg afstaða, ef satt er.Vera má,að viðséum rik og að krón- an okkar sé litils virði. En er það samt ekki óhæfilegur flottræfilsháttur, að lóga blygðunarlitið öllu þvi fjármagni, sem fer til nauðsynlegs bókakosts i skól- um landsins og það eftir örskamma notkun? Grundvöllur undir frekari hag- nýtingu er svo auðvitað, að meðferðin frá upphafi, hafi verið manneskjulegri en nú er tiðast. fðlk Þaö er af sem áður var. Sú var tiðin, að allur heimurinn vissi, ef Jackie Kennedy Onassis þurfti að bregða sér bæjar- leið, eða bara ef hún skrapp út að versla, slik voru tií- þrifin. En nú er öldin önnur. Kvinnan vill endilega vera sem minnst áberandi og forðast blaðamenn og ljós- myndara eins og heitan eldinn og gerir nú allt til þess að vera sem minnst áberandi. Hún reynir nú að lifa lifinu eins og hver önnur venjuleg manneskja. Er hætt að aka um í Cadillac, með einkabilstjóra og sömu sögu er aðsegjaaf hinum frægu innkaupaferðum hennar með einkaþotu til annarra landa. Nú fer hún fótgangandi i búðarrápið og fer i biðröð við kassann, til að borga, rétt eins og annað fólk. Hún reynir á allan mögulegan hátt að lifa rétt og slétt, eins og annað fólk. Vill ekkert fremur en að fá að vera i friði með börnum si'num tveimur, Caroline og John. Þvi kom fregnin eins og þruma úr heiðskiru lofti, þegar sex-blaðið Hustler upplýsti lesendur sina um það, að nú væri ætlunin að bjóða uppá fjórar litsiður með myndum af Jackie, alls- nakinni, rétt eins og Guð skapaði hana. Myndir þessar hafa verið birtar i ýmsum karlmannatimaritum um Evrópu alla, siðustu mánuðina og vakið mikið umtal fólks á meðal. Mynd- irnar tók ljósmyndari nokkur, með sterkri aðdráttarlinsu,af frúnni, þar sem hún var við sólbaðsat- hafnir á eyju Onassis heitins, Skorpion. Að visu eru gæði myndanna, frá fagurlegu sjónarmiði, ekkert til að hrópa húrra fyrir, en samt sést á þeim allt það, sem konur kjósa venjulega sjálfar að ráða hvenær þær opinbera. Það þarf væntan- lega ekki að taka það fram, að ljósmyndarinn hefur grætt offjár á þessum myndum sinum. Haft er eftir útgefanda Hustler, sem ætlar að birta myndirnar i Ameriku, að þetta sé eitt af pottþéttasta söluefni sem þeir hafi komist yfir i lengri tima og eru sannfærðir um að selja blaðið i risastóru upplagi, bara útá mynd- irnar. Það er ekki ofsögum sagt að segja: Aumingja Jackie! Raggi rólegi Fjalla-Fúsi Alþýöublaöið Bíódn Leíkhúsdn lÁSKÓLABÍD simi 22140*' t Lausnargjaldið Ransom Afburðaspennandi brezk lit- mynd, er fjallar um eitt djarf- asta flugrán allra tima. Aðalhlutverk: Sean Connery Jan I\Ic. Shane ISLENZKUR TEXTI. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum. ^ÞJQÐLEIKHÚSIf Stóra sviðið ÞJÓÐNÍÐINGUH laugardag kl. 20 Litla sviðið RINGULREII) miðvikudag kl. 20,30 fimmtudag kl. 20,30. Matur framreiddur frá kl. 18 fyrir leikhúsgesti kjallarans. Sala aðgangskorta (ársmiða) er hafin. Miöasala 13,15-20. Simi 1-1200. ’ÖNABÍð Slmi :iima Umhverfis jörðina á 80 dögum Heimsfræg bandarisk kvik- mynd, sem hlaut fimm Oscarsverðlaun á sinum tima, auk fjölda annarra viöurkenn- inga. Kvikmyndin er gerð eftir sögu Jules Verne. Aðalhlutverk: David Niven, Cantinflus, Robert Newton, Shirley MacLaine. (I mynd- inni taka þátt um 50 kvik- myndastjörnur). ISLENZKUR TEXTI. Leikstjóri: Michael Anderson, framleiðandi: Michael Todd. Endursýnd kl. 5 og 9. HAFNARBÍÚ s.-n,i Villtar ástríður 'ÍASIMAHCOIOIJ Fimlers l[ee|iers... hí vers Weejiers! Anne CHAPMAN • Paul LOCKWOOD Jan SINCLAIR • Duncan McLEOD• Spennandi og djörf bandarisk litmynd, gerö af Russ (Vixen) Meyer. Bönnuð innan 16 ára. Endursýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. AUGARÁSBÍd Dagur Sjakalans ^LÉIKFEíÍG^ öfj^EYKJAVÍKUyC SKJALDIIAMRAR 4. sýning fimmtudag uppselt rauð kort gilda. 5. sýning föstudag kl. 20,30 blá kort gilda. 6..sýning laugardag kl.-20,30 græn kort gilda. Aögöngumiðasalan i Iðnó er opin frá kl. 14. Simi 1-66-20. •STJÖRNUBÍd ði-i iHuae „ 1 Undirheimar New York Hörkuspennandi amerisk sakamálakvikmynd i litum um undirheimabaráttu i New York. Aðalhlutverk: Burt Reynolds, Dyan Cannon. ÍSLENZKUR TEXTI Endursýnd kl. 6, 8 og 10. Bönnuð innan 14 ára. KÓPAVOGSBÍÓ m„.í IBióinu lokaö um óákveðinn tima. i Fred Zinnemanns fllm of tiii; invoi THliJA(Iíi\L A JohnWoolf Fioductíon Based on the book by Frvderick Hirsylh LJI "'inbnicd Ia C.iKia.I.il.mrtliw.l Ori«crtk». ^ Framúrskarandi bandarisk kvikmynd stjórnað af meist- aranum Fred Zinnemann, gerð eftir samnefndri met- sölubók. Frederick Forsyth sjakalinn, er leikinn af Ed- ward Fox. Myndin hefur hvar- vetna hlotiö frábæra dóma og geysiaðsókn. Sýnd kl. 5, 7,30 og 10. Bönnuð börnum. TRCJLÖFUNÁRlIRINGAR Fljót afgreiösla. Sendum g»gn póstkröfu GUÐM. ÞORSTEINSSON gullsmiöur, Bankastr. 12 Kerndum ^llf verndum yotlendi Vélhjólaeigendur Moto-x - Moto-x Ctbúnaður, hanskar hlífar. Lewis leðurjakkarog stígvél. Plaköt ofl. Bögglaberar f. IIONDU 350.KETT. hanskar. DUNLOP-dekk. MÖLTUKROSS speglar og aftur- Ijós. ofl. ofl. Póstsendum. Velhjolaverslun Hannes Úlafsson Skipasundi 51. Slmi 37090 Miðvikudagur 17. september 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.