Alþýðublaðið - 17.09.1975, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 17.09.1975, Qupperneq 12
alþýðu (Jtgefandi: Blaö hf. Framkvæmda- stjóri: Ingólfur P. Steinsson. Rit- stjóri: Sighvatur Björgvinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Bjarni Sigtryggsson. Auglýsingar og af- greiðsla: Hverfisgötu 10 — simar 14900 og 14906. Prentun: Blaða- prent hf. Askriftarverð kr. 800.- á mánuði. Verö I lausasölu kr. 40.-. KÓPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 12 SENDI8IL ASTÖDIN Hf r Veórrió I dag eru menn bjart- sýnir á að fá þurrt veöur siðdegis, þvi austanáttin á að snúast i norðaustur. Mun þá létta til með kvöldinu, en búast má við skúrum fyrir hádegi. Hiti verður frekar litill, 6—8 stig. Gátan 'MSTÍVfifi v/ÐS'oT LA bvftm í-fíR SLefT fi* _ 7/^L TUSKft LE LP6/P 9 JfíPLI " 'ftRfi FjölD! — FfíuT/ IflfírM MjlW m’ftL □ Pomnn MfíR HfíPÐ/ H/66)U m/rrr SV/K fíf>/ L 1 þVOÍT 'OSjflL rbm r/NF\ ftllLLI UPP DM MEGUM VIÐ KYNNA Guðmundur Óskar Ólafsson, Frikirkju- prestur i Hafnarfirði fæddisti önundarfirði 25/11 ’33 og ólsthann þarupp till6ára aldurs. Guðmundur tók kennarapróf árið 1955 og kenndi siðan i Hliðaskóla um nokkurra ára skeið. Stúdents- próf tók hann siðan utanskóla og innritaðist i guðfræðideild Há- skólans árið 1964 og lauk þaðan prófi árið 1969 og tók vigslu siðar það ár. Varð hann farprestur strax eftir vígslu og þjónaði Mosfells- prestakalli, Reykhólum og Valla- nesi. Hefur verið Frikirkjuprest- ur i Hafnarfirði undanfarin 4 ár, en það er aðeins hálft starf. Full- um vinnudegi skilar Guðmundur með þvi að sinna kennslustörfum auk preststarfa. Um áhugamál sin segir Guðmundur: ,,Þau eru öll samtengd starfi minu, og má þar nefna félagsmál og æskulýðsmál, utan skóla sem innan. Um fyrir- bærið prestskosningar hefur séra Guðmundur sinar meiningar: „Prestskosningar tel ég óeðlilegt fyrirbæri. Ég hef enga „patent- lausn” handbæra, en alls kyns umsvif, sem eru samfara prests- kosningum eru óæskileg mál- efninu og þeirri einingu, sem á að rikja i söfnuðum. Trúaraáhugi er mikill á íslandi, og ég held að hann fari vaxandi. Allt tal um að nútima kynslóð sé fráhverf kristindómi tei ég fásinnu. En aðalvandamálið er, að það eru of fáir virkir i starfi safnaðarins. OKKAR Á MILLI SAGT Helsinki-sáttmálinn.sem riki austurs og vesturs gerðu með sér til aö staðfesta þiðu I samskiptum sinum, ætti að vera þeim Vladimir Ashke- nazipianósnillingi og föður hans gleðiefni... Meöal margra mannrétt- indamála, sem sáttmálinn fjallar um, eru skýr ákvæði um skyldur rikj- anna til að veita þegnum sinum ferðaleyfi til að hitta ættingja sina er- lendis reglulega... Eftir er að sjá, hvort Sovétstjórnin stendur við þetta eins og fleiri atriði samkomulagsins. Ef dæma má eftir vlgsluathöfn ferjunnar AKRABORGAR er til- koma skipsins eingöngu afrek framsóknarmanna, sem við það tæki- færi hældu hver öðrum upp i hástert... Sannleikurinn er sá, að um máliö var frá upphafi samstaöa allra flokka I bæjarstjórn Akraness, stjórn Skallagríms og meðal viðkomandi þingmanna... Hörð and- staða var þá gegn málinu á Alþingi undir forustu framsóknarþing- mannsins BJÖRNS PÁLSSONAR, sem kallaði Akraborg skemmti- snekkju og fótboltaskip Akurnesinga, og tóku fleiri framsóknarmenn undir það. Akveðið er, að forseti Allsherjarþings Sameinuöu þjóðanna verði að þessu sinni forsætisráðherra Luxembourg, Gaston Thorn...Hann var eitt sinn ræðismaður tslands i heimalandi sinu. Finasta utanferð, sem Islenskir ráðamenn fara á ári hverju, er til aðalfunda Alþjóðabankans og Alþjóðá gjaldeyrissjóðsins, en á þeim fundi I Washington hafa þeir nú meðal annarra verið ráðherrarnir ólafur Jóhannessonog Matthias Mathiesen... Þessir fundir eru haldnir ' annað hvert ár i Washington en hitt árið á einhverjum af glæsilegustu fundastöðum heims... Bankinn greiðir riflegan ferðaeyri, svo þetta kostar okkur litið, auk þess sem tsland hefur haft mikið gagn af þessum stofnunum og væri t.d. alger gjaldeyrisskömmtun nú, ef sjóðsins nyti ekki við. t sambandi við landhelgisdeilurnar er rétt að rifja upp, að 1974 keyptu islendingar vörur fyrir 23,6 milljarða af löndum Efnahags- bandalagsins, en þau keyptu af okkur aðeins fyrir 9,5 milljarða... Hvað mestur er munurinn I viðskiptum við Þjóðverja (6,3 á móti 2,8) og er furðulegt langlundarlgeð að halda áfram svo ójöfnum viðskiptum, meðan V-Þýskaland beitir okkur viöskiptaþvingunum, sem valda okkur tuga og hundraða milljóna tjóni. Seðlabankinn er grimmur við þá, sem gefa út innistæðulausa tékka, sem von er... En er ekki bankinn sjálfur sifellt að senda seðla i umferð, sem verðmæti eru ekki til fyrir og eru þvi hluti verðbólgunnar? Visir og Dagblaöiö berjast nú ákaft um blaðsölubörnin. Bæði blöðin hafa I frammi ýmis gylliboð til þeirra er vilja taka að sér sölu blaðanna. Dagblaðiö býður ókeypis bióferð einu sinni I viku og þátttöku I happ- drætti þar sem vinningurinn er utanlandsferð. Visir hefur þann hátt að vera með happdrætti sem dregið er i viku- lega og munu vinningar vera hinir veglegustu. 5ÖRVAR HEFUR 0RÐIÐt=>l Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri Timans, hefur ritað margar forystu- greinar um, að Fram- sóknarflokkurinn hafi ekki „sótt upphefð sina að utan” — þ.e.a.s. að hann sæki stefnu sina ekki til alþjóðlegra stjórnmála- kenninga heldur hafi framleitt hana heima, liklega i Edduhúsinu. Er nú Þórarinn heldur farinn að sækja sig i málinu. Nú eru það Utlendu flokkarn- ir, sem farnir eru að ramba til á linunni eftir þvi hvort Framsóknar- flokkurinn stendur i hægri fótinn eða þann vinstri. Á meðan Framsóknar- flokkurinn vann til vinstri — einkum og sér i lagi i tið Eysteins Jónssonar — þá skrifaði Þórarinn mik- ið I Timann um Fram- sóknarflokkinn sem vinstri flokk og vildi helst likja honum við flokka jafnaðarmanna á Norð- urlöndum. Nú stendur Framsóknarflokkurinn i hægri fótinn og opinber lina flokksforystunnar er sú, að nú sé Framsókn miðflokkur. Auðvitað skrifar Þórarinn Þórar- insson leiðara sina i sam- ræmi við það. En ein- hvem fastan punkt vill hann þó hafa i hinni póli- tisku tilveru. Sá er, að samt sem áður sé Fram- sóknarflokkurinn keim- likur norrænum jafnaðar- mönnum. Þvi var það i leiðara nýlega, þegar Þórarinn fjallaði um dönsk stjórnmál, að hann sá ekkert ráð vænna en að flytja danska jafnaðar- mannaflokkinn til i póli- tikinni og gera hann að miðflokki! Framsóknarflokkurinn er sem sé orðinn merki- legri flokkur i heimspóli- tikinni, en menn hafa haldið. 1 takt við pólitiskt ramb hans millum hægri og vinstri rambar öll heimspólitikin. Þegar flokkurinn hallast til hægri kemur miðflokks- slagsiða á norræna krata. Þegar flokkurinn tekur slaginn til vinstri fellur norræn jafnaðarstefna I farið sitt aftur. Það væri þvi óskemmtilegur við- burður fyrir heimspóli- tikina ef Framsóknar- flokkurinn hrykki ein- hvern tima upp af stand- inum á rambinu. PIMM a förnum vegi Hvernig bregst þú við hækkununum? Birna Björnsdóttir, skrifstofu- stúlka: Mér finnst mjög slæmt, að fá hana, þar sem engin kaup- hækkun, kemur i kjölfarið. Hallvaröur Guðlaugsson, trésmíðameistari: Hún er alveg hrein geðbilun, þar sem kaup- mátturinn stendur alveg staður. Þetta eru dálaglegir vesalingar sem stjórna þessu. Steindór Briem, verkamaður: I siðustu samningum, var þvi lofaö, að verö á Iandbúnaðar- vörum skyldi haldið niðri, þvi sé ég ekkert samhengi i þessu, þar sem ég býst ekki við neinum launahækkunum. Jón. Sölvason fiskvinnsluskólanemi: Meðan neytendur standa ekki saman og mótmæla slikum aðgerðum, þá munu þær ganga i gegn, eins og undanfarin ár. Henry Þór Henrýsson, eftirlits- maöur: Launahækkanir hafa stöðvast i tvö ár, en verðbólgan heldur áfram.Stefnan verður að gjörbreytast. Eina úrræðið er betri samstaða launþega.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.