Alþýðublaðið - 25.09.1975, Qupperneq 9
Lítið um langferðir
á laugardaginn
6. leikvika getrauna verður
leikin á laugardaginn. Á þeim
seðli eru margir mjög erfiðir
leikir, þar eð mörg lið frá sömu
borg leika saman. Fyrsti leikur-
inn á þessum seðli er einmitt
þannig.
Aston Villa —
Birmingham City X.
Bæði þessi lið koma frá næst
stærstu borg Englands, eins og
menn sjálfsagt vita, Birming-
ham. Eftir að Freddy Goddwin
var rekinn frá Birmingham-lið-
inu i siðustu viku hefur St.
Andrew’s-liðið leikið 2 leiki i 1.
deild og unnið báða. Burnley
siðasta laugardag 4:0 og New-
castle á þriðjudagskvöldið 3:2.
bað virðist þvi sem þeir séu að
ná sér eitthvað á strik og ættu
þvi að ná alla vega ööru stiginu
gegn Aston Villa, liði, sem er
nokkuð sterkt á heimavelli, en
frekar slakt á útivelli. Jafntefli,
en leikurinn getur þó farið á
báða vegu.
Burnley—Leeds X.
Það er ekki langt á milli þess-
ara borga i Norður-Englandi.
Heimavöllur segir þvi sennilega
ekki mikið. Burnley tapaði illa
fyrir Birmingham i siðustu viku
á útivelli, en Leeds gerði jafn-
tefli við Tottenham á heimavelli
1:1. Bæði liðin hafa sennilega
verið nokkuð óánægð með þau
úrslit, og berjast þvi liklega af
grimmd á laugardaginn. Jafn-
tefli eru ekki ósennileg úrslit en
þó getur þessi leikur farið þann-
ig að annaðhvort liðið sigri og
þá hallast ég meir að Burnley,
sem er of gott lið, til að tapa
þremur leikjum i röð, en þeir
töpuðu lika fyrir Sheffield Unit-
ed i fyrrakvöld 2:1.
Everton—Liverpool X.
Leikur hafnarborgarliðanna
frá Liverpool er einn af þessum i
leikjum, þar sem best er næst-
um þvi að loka augunum, þegar
tippað er á hann. Bæði liðin eru
mjög sterk, eins og þau hafa
nær alltaf verið siðastliðin 12 ár.
Liverpool hefur að visu þekktari
nöfn i sinu liði, en þar með er
ekki vist að þeir eigi sterkara
liöi á að skipa, þvi að i liði Ever-
ton eru lika margir mjög góðir
leikmenn eins og t.d. Bob Latch-
ford — áður Birmingham — og
Martin Dobson — áður Burnley.
Frekar er það liklegt að þessi
leikur endi með jafntefli, þó svo
að sigurinn geti lent hjá hvoru
liðinu, sem er.
Ipswich Town —
Middlesbrough 1.-
Ipswich hefur farið mun verr
af stað, en búist var við. Það má
ef til vill einnig segja um
Middlesbrough. Margir mjög
góðir leikmenn eru I báðum lið-
unum, þótt Ipswichhafi liklega
nokkuð betri leikmenn.
Middlesbrough er þó liklega
með meiri baráttu, en það nægir
þó ekki til þess að hreppa stig
gegn Ipswich á Portman Road.
Heimasigur ætti að vera nokk-
urn veginn öruggur.
Leicester City —
Coventry 1.
Coventry er ekki langt frá
Leicester, svo ekki ætti þreyta
ferðalags að hrjá Coventry —
leikmennina. Leicester stendur
betur að vigi, þar sem þeir eru á
heimavelli, en annars eru liðin
nokkuð áþekk. Coventry hefur
nú á 4 dögum leikið tvo leiki I
röð á heimavelli og tapað báð-
um. Fyrst fyrir Stoke 0:3 og svo
I fyrradag fyrir Middlesbrough
0:1. Þeir hafa þó hlotið 3 stigum
meir en Leicester, sem aöeins
hefur hlotið 6 stig. Leicester
vinnur en ótrúlegt að það verði
með stórum mun.
Manchester City —
Manchester United 1.
Þessi leikur er verðugur þess
að vera kallaður leikur um-
ferðarinnar. Maine Road leik-
vangur Manchester City verður
alveg örugglega troðfullur, þeg-
ar dómarinn flautar til leiks og
ekki ósennilegt að slagsmál
brjótist út milli aðdáenda félag-
anna. Manchester City er gott
lið á heimavelli, en það er
kannski ekki hægt að tala um
heimavöll í þessu sambandi,
þar eð andstæðingarnir United
búa aðeins 5 km frá Maine
Road. City hefur meiri mögu-
leika á að hljóta sigur, en þó má
ekki alveg afskrifa Old Trafford
liðið, sem hefur komið mjög á ó-
vart það, sem af er þessu
keppnistímabili. Sigur City, eða
United með jafntefli.
Q.P.R.—Newcastle 1. '
Thomas, Bowles, Givens og
Francis ættu að sjá um sigur
fyrir Lundúna-liðið I þessum
leik. Newcastle svipar dálitið til
Manchester City að þvi leyti, aö
þeir vinna yfirleitt nokkuð ör-
ugglega á heimavelli, en tapa
svo oftast á útivelli. Þó er það
ekki alltaf þannig hjá þeim, og
geta þeir, ef þeir ná vel saman,
unnið hvaða lið á útivelli, sem
er. Þeir ættu samt ekki að fá
tækifæri til þess að smella vel
saman gegn Q.P.R., sem er tal-
ið vera eitt besta lið á Bret-
landseyjum um þessar mundir,
og enskir iþróttafréttaritarar
virðast aldrei eiga nógu stór
orð, til þess að lýsa leikni leik-
manna, eins og Thomas, Bowies
og Francis. Heimasigur fyrir
Lundúnaliðið.
Sheffield United —
Norwich City X.
Sheffield liðið hlaut sinn
fyrsta sigur á þriðjudaginn, er
þeir unnu Burnley 2:1 á Bramall
Lane, heimavelli Sheffield.
Flestir eru á þeirri skoðun, að
lið þeirra sé of gott, til þess að
vera svo neðarlega — en þeir
hafa aðeins 3stig. Norwich er þó
betra lið I dag en menn halda, og
ætti markakóngurinn Dougall
að sjá til þess að Norwich skori
mark, sem nægir þeim til jafn-
teflis.
Stoke City—Derby X.
Stoke hefur unnið tvo siðustu
leiki sina og virðist vera að ná
þeirri getu, sem búist var við af
þeim i upphafi keppnistimabils-
ins. Það er ekki vist að þeir sigri
Derby þó það verði að teljast
liklegt. Það verður eflaust gam-
an að fylgjast með þessum leik
þar sem áhorfendur geta séð tvo
mjög snjalla og leikna miðju-
menn sem koma upphaflega frá
Lundúnum og voru þar mjög
umdeildir persónuleikar,
þ.e.a.s. þeirra Alan Hudson,
Stoke, ög Charlie George,
Derby, sem virðist óðum að
nálgast sitt gamla og góða form,
sem hann var I, þegar hann lék
með Arsenal á velgengnisárum
þeirra.
Tottenham Hotspur —
Arsenal 1.
Það er með þennan leik, eins
og flesta aðra leiki á getrauna-
seðlinum, að þau félög, sem
leika á útivelli þurfa ekki að
ferðast langt til leikvangs and-
stæðinganna. Eins og flestir
vita, er White Hart Lane, leik-
vangur Tottenham, aðeins norð-
ar i Lundúnum, en Highbury,
leikvangur Arsenal. Bæði félög-
in eiga það sameiginlegt, að þau
eru að yngja upp liðið hjá sér.
Tottenham hefur 3 stigum
minna heldur en Arsenal en ætti
að minnka þann mun um helg-
ina. Spurs hefur leikið allvel
það, sem af er þessu keppnis-
timabili, en verið heldur
óheppnir. T.d. hafa þeir tapað
öllum leikjum sinum með
minnsta mun, þ.e.a.s. með einu
marki, en nú ætti að koma að
þvi að þeir sigri með eins marks
mun. Arsenal er svona sæmilegt
lið um þessar mundir, ekki gott,
en heldur alls ekki slæmt. Þeir
tapa þessum leik, þótt ekki sé ó-
sennilegt að þeir nái að knýja
fram jafntefli.
Wolves — West Ham X.
Wolves liðið er ekki gott um
þessar mundir enda er fram-
kvæmdastjóri liðsins Bill
McGarry mjög valtur i sessi. Er
búist við þvi að hann fái reisu-
passann fljótlega, ef Wolves fer
ekki að skána. West Ham er i
efsta sæti, eins og stendur á-
samt Manchester United og ætti
þvi að eiga meiri möguleika, ef
fara á eftir stöðu liðanna i deild-
inni. Wolves, sem leikur á
heimavelli ætti að ná öðru stig-
inu, ef að likum lætur.
Fulham — Chelsea. 1
Craven Cottage, heimavöllur
Fulham, er aðeins nokkrum
kflómetrum sunnar en Stamford
Bridge heimavöllur Chelsea,
svo ekki þarf Chelsealiðið að
verða þreytt eftir ferðina þang-
að Það er orðið langt siðan
þessi félög hafa leikið gegn
hvort öðru i deildarkeppni. Ful-
ham er nú i einu af efstu sætum
1. deildar, en Chelsea er frekar
neðarlega. Chelsea liðið hefur
breyst gifurlega siðastliðin 2 ár
og er nær óþekkjanlegt, siðan
þeir unnu bikarkeppnina árið
1970. Þá voru i liðinu menn, eins
og Peter Osgood, Alan Hudson,
John Hollins, David Webb og fl.
Var liðið þá talið eitt það besta á
Englandi. Nú aftur á móti er
orðið frekar lágt á þeim risið, og
vinnur Fulham þá eflaust á
laugardaginn, þó jafntefli geti
komið til greina.
Spáin og
spekingarnir
Alþýðublaðið mun á næstunni birta einu sinni i viku getraunaþjónustu i
svipuðu formi og er á siðunni nú i dag. Við birtum spár sérfræðinga ensku
sunnudagsblaðanna — og að auki höfum við fengið sex hérlenda áhuga-
menn um enska deildarknattspyrnu til að koma með sinar spár. Þetta geta
menn svo borið saman að vild, borið spárnar saman við úrslit leikja sömu
liða siðustu átta keppnistimabil, og jafnframt haft til hliðsjónar hvernig lið-
unum hefur gengið i siðustu átta leikjum i deildinni i ár. Þá höldum við á-
fram að birta yfirlitsspá blaðsins um alla leiki seðilsins, og það er Eyjólfur
Bergþórsson, sem skrifar spána.
Hermann Gunnarsson
Gunnar Sigurðsson
Stefán Eiríksson
Helgi Daníelsson
Sigurjón A. ólafsson
CG P4 p • P ctf fH
<D CQ <D p
> n œ t- M p! •r~o Ö
ÍH O <D •H hU Ctf f-i vcri *H rH
Síðustu 8 Síðustu 8 Leikir 1 sömu liða <D L CQ P Ph EH <D 1—1 SUN CQ £ fci S g «H <D bD VD H T-a SAMTALS:
heimaleikir útileikir síðustu 8 árin os X w cn <D EH <D £5 <D M •H p C23 •P CO <D tU >> 1_ X 2
WWTVTV Aston Villa - Birmingham TTTVJTTT 2 1 X - - - — - 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 X 1 X 11 2 -
JTVJJJVJ Burnley - Leeds JVJTVJVT 1 1 X 2 - - X 1 2 X X X X 2 X X X X X X X - 11 2
JVJTTVW Everton - Liverpool VTVTTVJT 1 X 2 X 1 2 2 X X X X X X 1 X 2 2 2 *l X X 2 8 3
WWTJVV Ipswich - Middleshorough TTTVTJTT 2 1 1 1 1 2 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12 - 1
VWJJJJJ Leicester - Coventry TJTWJTV X X - - 1 X 2 2 X X 2 X X X 2 X X 1 X 1 1 3 8 2
VWJVJW Manch. CITY - Manch. UHITED VJVJWVT 2 X 1 I! X 1 X - 1 X X 2 1 X 2 2 1 1 2 X 1 5 4 4
VTVJVJJV Queens P. Rang. - Newcastle Untd. TJTJVTTT - X - - - 1 2 1 1 1 1 1 1 1 X 1 1 1 1 1 12 1 -
VJWJTTT Sheff. United - Norwich WJVTTJJ - 1 1 X - 1 1 - 2 X 2 X 2 2 X 1 X 1 1 1 X 4 5 4
VWJTJTV Stoke City - Derby County VVJJJJTV - - 1 1 X 1 X X 1 X 2 2 X 1 X X 1 X 1 1 X 5 6 2
VVVWJJT Tottenham - Arsenal TJTTJVJT 1 2 1 2 X 2 1 1 X 1 X X 1 X X 1 1 1 1 X 1 7 6 —
WVJTJJV Wolverhamtton - West Ham United TTTTVJJJ 2 1 1 1 1 1 X 1 X 2 2 X 2 2 X 1 2 2 2 X X 1 3 7
WJJJWT Pulham (2.deil(V- Chelsea TVTTTJTT X 1 X 1 1 X 1 1 1 1 1 X 1 1 10 3
Fimmtudagur 25. september 1975
Alþýðublaðið K