Alþýðublaðið - 25.09.1975, Síða 12
alþýðu
Veórrið
— k-
Væntanlega munum við
njóta sólarinnar áfram i
dag. Norðanstrekkingur-
inn kemur þó liklega til
með að hægjast nokkuð.
Við megum þvi' búast við
aðeins meiri hlýindum
um miðjan daginn, en
kólna mun með kvöldinu
og verður næturfrost i
nótt.
Útgefandi: Blað hf. Framkvæmda-
stjóri: Ingólfur P. Steinsson. Rit-
stjóri: Sighvatur Björgvinsson.
Hitstjórnarfulltrúi: Bjarni
Sigtryggsson. Auglýsingar og af-
greiðsla: Hverfisgötu 10 — símar
14900 og 14906. Prentun: Blaða-
prent hf. Askriftarverð kr. 800,- á
mánuði. Verð i lausasölu kr. 40.-.
KOPAVOGS APOTEK
iOpið öll kvöld til kl. 7
ÍLaugardaga til kl. 12
□ DU& LEtWk //fíM/ 'fífíxT
STURL UÐ
[
HLUT #&/ /9r s kop mií>
• smjbfl L’ua
mj>un Sfírf) HA Wfífí /rwL- V£&0 L/R
run BflTT NJOP.
Doufí LECt
WffíU SrtWT
fbfíiK.
f BPfíP £///K S T
T/m B/L 5PRU 6
BfíT M
MEGUM
VIÐ KYNNA
Einar Bergmann, kaup-
maður
er fæddur i Ólafsvik og ólst þar
upp til fermingar. Siðan fór hann
á sjóinn til að vinna sjálfur fyrir
sér.
Haustið 1941 innritaðist Einar i
Verslunarskóla íslands, útskrif-
aðist þaðan árið 1944. Stríðsárin
var hann i siglingum, enda voru
þær vel borgaðar, vegna áhætt-
unnar sem fylgdi þeim á þessum
tima. A þessum árum fengu sjó-
menn nær öll sín laun greidd i er-
lendum gjaldeyri og stundum lét
nærri að ekki væri hægt að kom-
ast á ball vegna þess að ekki voru
til Islenskar krónur til að innleysa
gjaldeyrinn. Eftir striðið hélt
Einar ,Ut á land og stundaði
verslunar- og frystihúsastörf til
ársins 1953 að hann flytur til
Reykjavikur og hefur búið hér
siðan.
Þegar til Rvikur kom, keypti
hann verslunina Kjöt & Fiskur og
hefur rekið hana siðan. Nýlega
flutti hann verslun sina I S«lja-
hverfi, fyrstur manna.
Einar hefur starfað allmikið að
félagsmálum sinnar stéttar og
hans heitasta áhugamál er að
gera verslunina frjalsa og óháða,
þvi þannig telur hann best borgið
hag beggja, neytandans og kaup-
mannsins. Hann hefur m .a. setið i
stjóm Kaupmannasamtakanna,
verið form. Fél. Matvörukaup-
manna og var einn stofnenda
IMA, Innkaupasambapds Mat-
vörukaupmanna, en það er fyrir-
HEYRT, SÉÐ OG HLERAÐ
greiðslustofnun sem er opin öllum
kaupmönnum sem i hana vilja
ganga.
Einar sagði að kaupmenn væru
misjafnlega metnir og liklega
væri það arfur frá þeim illu ein-
okunarkaupmönnum sem hrjáðu
landslýð á sinum tima. Þó þessi
arfur væri lifséigur og jafnan ó-
sanngjam þá gerðist það oft i
dagsins önn að kaupmenn rækjust
á atriði sem yljuðu um hjartaræt-
urnar.
Einar Bergmann er kvæntur og
á fjögur börn.
LESIÐ: Frjáls verslun segir að
ýmis samtök smærri atvinnurek-
enda, sem eru i Vinnuveitenda-
sambandinu, telji sér betur borg-
iö utan sambandsins og að semja
beint við starfsmenn slna.
SÉÐ: Visir hefur uppgötvað að
Samtök frjálslyndra eru enn
starfandi og birta flennifyrirsögn
þess efnis á forsiðu I gær. Það
kemur fram i viðtali sem blaðið á
við Magnús Torfa, að um aðra
helgi verði haldinn flokksstjdrn-
arfundur og þar verði ákveðið
hvaða stefnu flokkurinn muni
fylgja i vetur.
HLERAÐ: Að neðan við Kára-
staði I Þingvallasveit hafi staðið
300 ferm húsgmnnur i fjölda ára.
Þama hafi Guðlaugur Rósin-
krans ætlað að byggja yfir nor-
rænu félögin á sinum tima, en
byggingin aldrei komist lengra.
Grunnurinn er enn á sinum stað,
en eigandi fyrirfinnst enginn.
SÉÐ: Að Ólafur Jóhannesson hafi
frá öndverðu reynt að beita sér
gegn útgáfu Dagblaðsins. Hafi
hann tekið Kristin Finnbogason i
karphúsið vegna afskipta hans af
málinu. Frjáls verslun telur, að
fari svo, að útgáfa Dagblaðsins
verði til að rugla eitthvað núver-
andi flokkaskipan geti það haft
hinar alvarlegustu afleiðingar
fyrir Framsóknarflokkinn, þvi
innan vébanda hans séuýmsirGli-
strupar,sem myndu rifa sig lausa
ef tækifæri byðist.
HEYRT: Að eftir að upp komst
um Ármannsfellsmálið reynist
Albert Guðmundssyni erfitt að fá
menn til að gefa i nýja Sjálf-
stæðishúsið. Þessi tregða sé svo
almenn meðal flokksmanna, að
húsið verði ekki tilbúið til notkun-
ar á þeim tima sem áætlað var
KÍIkufundir innan Sjálfstæðis-
flokksins eru sagðir óróasamir
um þessar mundir og öldur risa
þar hátt.
HEYRT: Að Sveinn og Jónas biði
eftir hæstaréttarúrskurði um
hvort Dagblaðið verði prentað á
eigendaverði i Blaðaprenti áður
en þeir ákveða hvort það verður
einkafyrirtæki Jónasar eða hið
opna hlutafélag með þátttöku
starfsfólks, sem gefur út blaðið.
Þaðverður nefnilega ýmsar fjár-
hagslegar byrðarað axla, ef blað-
ið þarf að greiða fullt verð sam-
kvæmt taxta prentsmiðjueig-
enda.
ER ÞAÐ SATT, að rannsóknar-
nefnd Sjálfstæöisflokksins i Ár-
mannsfellsmálinu hafi komist að
þeirri niðurstöðu að ken.'.j Albert
Guðmundss. um það lika að hafa
„lekið út” árásum flokksmanna
hans á hans eigið mannorð?
ÖRVAR HEFUR ORÐIÐfttf
Viðbrögð Morgunblaðs-
ins við Armannsfellsmál-
inu svonefnda hafa orðið
með tvennum hætti. 1
fyrsta lagi hefur ' blaðið
reynt að hefja „gagn-
sókn” gegn þeim, sem
fyrst komu fregnum af
málinu á framfæri, með
þvi að veitast að borgar-
fulltrúa Alþýðuflokksins,
Björgvin Guðmundssyni.
Tilgangur Morgunblaðs-
ins með þvi er einfaldlega
sá að reyna að fara út i
aðra sálma — reyna að fá
Alþýðublaðið til deilna
við sig um önnur mál en
Ármannsfellsmálið og
þar með að hjúpa það
moðreyk. t öðru lagi hef-
ur Morgunblaöið svo haf-
ið harða sókn fyrir þvi, að
þær breytingar verði
gerðar, að framlög til
stjórnmálaflokka verði
metin jafnt og framlög til
viðurkenndra liknarfé-
laga — þ.e.a.s. undanþeg-
in skatti. Svo mikla á-
herslu leggur Morgun-
blaðið á þetta atriði, að
menn hljóta að spyrja
hvað valdi. Getur það t.d.
verið, að framlög ein-
hverra fyrirtækja til
Sjálfstæðishússins komi
hvergi fram i reikningum
þeirra? Er það kjarni
vandans? Og á að greiða
úr málunum með þvi að
láta slik framlög verða
undanþegin skatti svo i
lagi sé að láta þau koma
fram?
Hugmyndin sjálf — að
undanþiggja gjafir til
stjórnmálaflokka skatti
— er engu að siður allrar
umræðu verð, hvað sem
liður bollaleggingum um
tilurð hennar. Hvernig
myndi hún reynast i
framkvæmd og hverjir
myndu fyrst og fremst
hafa hag af henni? Auð-
vitað þeir, sem hafa fjár-
magnssterkustu aðilana
að bakhjarli. Þeir aðilar,
sem hafa efni á að gefa
stjórnmálaflokki milljón
eða meira — og þeir
stjórnmálaflokkar, sem
eiga slika gefendur að
einkavinum.
Hvernig gæti þetta t.d.
litið út I framkvæmdinni?
Við skulum setja upp litið
dæmi. Jón Jónsson er for-
stjóri og aðaleigandi
fyrirtækisins Jónsson og
Jónsson h.f. og þiggur
laun frá fyrirtækinu skv.
framtali þess að upphæð
kr. 2 millj. Fyrirtækið
tekur þá ákvörðun að
gefa 1 millj. kr. til Sjálf-
stæðishússins. Jón Jóns-
son afhendir féð og fær til
baka kvittun: JVióttekið
frá Jóni Jónssyni sem
gjöf til byggingar Sjálf-
stæðishúss kr. 1 milljón.
Kvittun þessa heftir Jón
Jónsson við skattafram-
talið sitt og fær upphæð-
ina frádregna frá skatti.
Skattgjaldstekjur hans
nema þvi 1 millj. kr. —
þ.e.a.s. ef fjölskylda Jóns
er visitölufjölskylda að
stærð verður hann hart-
nær skattlaus. Hefur
jafnvel möguleika á að fá
neikvæðan skatt, ef vel er
á málum haldið.
Beri menn svo saman
möguleika Jóns Jónsson-
ar, forstjóra, i þessu
dæmi og Jóns Jónssonar,
verkamanns, sem ákveð-
ur að styrkja flokkinn
sinn með 10 þús. kr. gjöf.
Báðir geta notið skatt-
friðinda vegna framlaga
sinna — og báðir standa
jafnir fyrir lögunum, eða
hvað?
FIMM á förnum vegi
Hvernig finnst þér strætisvagnaþjónustan í Breiðholti?
Hólmgrlmur Rósenbergs ., sjó-
maður: Mér finnst ómögulegt
að vagnarnir gangi ekki oftar en
þeir gera hingað upp i Iðufell og
á þær slóðir. Einnig er ég ekki
nógu ánægður með tiðni ferða
hingað.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
húsmóðir:Mér finnst þjónustan
ekki vera nógu góð, sérstaklega
er slæmt að ekki skuli hafa verið
komið á hringferð um hverfin og
einnig eru samgöngur milli
hverfa ekki nógu góðar. Vagn-
arnir fara ekki i öll hverfin hér.
Kristjana Guðmundsdóttir, hús-
móðir: Samgöngur milli hverf-
anna eru ekki nógu góðar, né
heldur innan þeirra. Mér finnst
vanta hringferð innan hvers
hverfis.
Halla Másdóttir, afgreiðslu-
kona: Mér finnst að vagnarnir
mættu ganga lengra inn i Selja-
hverfið og fara meira um það.
Fjöldi ferðanna held ég að sé
nógur, það er ferð hingað upp
eftir á 15 min. fresti.
Sigurður Skúli, deildarstjóri:
Mér finnst þjónustan fara batn-
andi. Nýlega hófust ferðir hing-
að i Seljahverfið en áður þurfti
maður að fara I Norðurfell eða
niður i Breiðholt II til að ná i
vagna. Eftir breytinguna tekur
ferðin ekki nema um hálftima.
■09