Alþýðublaðið - 01.10.1975, Page 9
Keflvíkingar áttu aldrei möguleika og töpuðu 4:0
6:0 þegar báðir leikirnir
eru taldir.
Það var auðséð i byrj-
un að Dundee ætlaði
ekki að nota sömu leik-
aðferð og þeir gerðu i
leiknum hér heima,
enda bættu þeir einum
manni i sóknina
Sturrock og léku þvi
ekki með „sweeper”
eins og þeir höfðu gert
hér. Eins og fyrr segir
þá voru þeir mun sterk-
ari aðilinn i leiknum og
áttu 4:0 sigur fyllilega
skilið. Keflvikingar áttu
litla möguleika gegn at-
vinnumannaliðinu, en
börðust þó hetjulegri
baráttu. Bestur i liði
þeirra var Þorsteinn
Ólafsson eins og svo oft
áður. Lið Keflvikinga i
leiknum var þannig
skipað: Þorsteinn Ólafs-
son, Gunnar Jónsson,
Hjörtur Zakariasson,
Einar Gunnarsson, Gisli
Torfason, Hilmar
Hjálmarsson, Grétar
Magnússon, Hörður
Ragnarsson, ólafur
Júliusson og Jón ólafur
Jónsson.
Evrópuleikir
Tveir leikir voru haldnir i
Evrópukeppni bikarhafa I gær-
kvöldi. Báðir leikirnir voru siöari
leikir liðanna. Úrslit:
FC Valetta Möltu — Haladas
Vasutas Ungverjalandi 1:1,
Haladas vann þvi samanlagt 8:1.
Coleraine Irlandi — Frankfurt
V-Þýskalandi 2:6, Frankfurt
vann 11:3 samanlagt.
Liverpool vann Edinborgarliðið
Hibernian i seinni leik liðanna i 1.
umferð UEFA keppninnar i gær-
kvöldi 3:1. John Toshack gerði öll
mörk þeirra i leiknum, en Ed-
wards gerði mark Skotanna.
Liverpool kemst þvi i 2. umferð
með hagstæðari markatölu, 3:2
samanlagt.
Það fór eins og skosku
dagblöðin voru búin að
giska á. Keflvikingar
áttu litla möguleika
gegn Dundee United á
Tannadice Park leik-
vanginum i Dundee, þó
svo að þeir væru án sins
aðal markaskorara
Andy Gray, sem seldur
var i siðustu viku til
Aston Villa. Eftir að
Keflvikingar höfðu stað-
ið i atvinnumönnunum i
um það bil hálftima,
gáfu þeir loks eftir á 30.
minútu þegar Hall — en
hann lék ekki i Keflavik,
— gerði ágætis mark.
Eftir það var nánast um
einstefnuað ræða. Siðari
hálfleikur byrjaði eins
og sá fyrri með mikilli
orrahrið af hálfu Skot-
anna. Á átta minútna
timabili gerðu þeir tvö
góð mörk. Það fyrra
kom með þeim hætti, að
skotið var á mark Kefl-
vikinga. Boltinn stefndi
framhjá Þorsteini
Ólafssyni i markinu,
þegar svo Hjörtur
Zakariasson fékk knött-
inn i hendi, þar sem
hann stóð á marklin-
unni. Hegarty — sá
sami og skoraði úr vita-
spyrnu á móti Celtic á
laugardaginn — tók
spyrnuna og skoraði af
öryggi. Seinna markið
gerði svo Sturrock — en
hann var einnig vara-
maður hér i Keflavik —
og eftir það má segja að
vonir Keflvikinga i
Evrópukeppni væru
endanlega úr sögunni.
Þorsteinn ólafsson hafði
mikið að gera það, sem
eftir var leiksins og
varði oft vel, en hann
kom þó ekki i veg fyrir
að Hall gerði sitt annað
mark fimm minútum
fyrir leikslok, og fjórða
mark Dundee United i
leiknum. Samanlagt
vann þvi Dundee liðið
Einar Gunnarsson haföi mikið að gera í gærkvöldi.
Hilmar Hjálmarsson í baráttu við Hegarty, í Keflavík
þann 23. sept. sl. Hegarty skoraði eitt marka Dundee
United í gærkvöldi úr vítaspyrnu.
ALI SKAUT
AÐ FRASER
„Látið mig sjá stóru ljótu gór-
illuna,” sagði Muhamed Ali — en
svo kallar hann Joe Frazier —
þegar hann rauk inn í anddyri
hótelsins sem Frazier býr á i
fyrradag. Um leið og „Smoky
Joe” kom niöur i anddyriö þá dró
Ali upp skammbyssu og skaut að
Frazier. Við þennan atburð varð
uppi fótur og fit á hótelinu, en fólk
róaðist brátt þegar kom i ljós að i
skammbyssu Muhamed voru að-
eins patrónur og kom þvi þessi
skotgleði hans ekki að sök. Sættir
tókust fljótlega og Ali hélt aftur
til hótels sins.
Til gamans má geta þess að á
laugardaginn þegar kempurnar
voru vigtaöar og mældar fyrir
keppnina á Manila i kvöld þá
mættí Muhamed Ali i bol, með
mynd af górilluapa. Undir mynd-
inni var letrað „I am going to
beat gorilla in Manila” sem þýða
mundisÉg ætla að berja gorílluna
i Manila. Já, alltaf er hann jatn
hress hvað sem á gengur. Annars
verður þessi stóri bardagi i kvöld
og er beðið eftir honum með mik-
illi eftirvæntingu, enda sjónvarp-'
að um nær alla veröld.
Badmintonmenn búa sig undir NM
Islendingar leika landsleik i
badminton við Færeyinga föstu-
daginn 31. okt. I Laugardalshöll-
inni. Keppendur verða 7 frá
hverju landi, en ekki er enn búið
að ákveða leikjafjölda. 15 leik-
menn hafa verið valdir til æfinga
fyrir þennan landsleik auk þess
sem þessar æfingar eru liður i
undirbúningi fyrir Norðurlanda-
meistaramótið sem fram fer i
Stokkhólmi dagana 15. og 16. nóv-
ember næstkomandi.
Þeir 15 menn sem valdir hafa
veriö eru
Haraldur Korneliusson,
Óskar Guðmundsson,
Steinar Petersen,
Sigurður Haraldsson,
Friöleifur Stefánsson,
Reynir Þorsteinsson,
Jóhann Kjartansson,
Jóhann L. Möller, yngri,
Magnús Magnússon,
Hængur Þorsteinsson,
Viðar Guðjónsson,
Jóhann L. Möller eldri,
Helgi Benediktsson,
Jónas Þ. Þórisson,
Sigfús Arnason,
Ottó Guðjónsson.
Sjö menn verða svo endanlega
valdir fyrir landsleikinn.
Badmintonsambandið hefur á-
kveðið að efna til hópferöar á
þetta mót, en þar gefst þátttak-
endum meðal annars tækifæri til
að sjá marga af bestu badminton-
leikurum heims, eins og t.d.
Svend Pri og Flemming Delfs og
fleiri. Þeir sem áhuga hafa fyrir
að taka þátt i þessari ferð eru
beðnir um að hafa samband við
stjórn BSt sem fyrst, og eigi siðar
en 15. okt. nk. Formaður BSI er
Karl Maack — og gefur hann nán-
ari upplýsingar.
Braunschweig efst í Þýskalandi
Úrslit i þýsku Bundesiiga á laugardaginn voru Essen—Duisburg
pm her seffir: Knrhiim—Tlnmhn
sem hér segir:
Hertha Berl.—Mönch.-gladb.
Bayer Uerdingen—Köln
B. Munchen—Hannover
Karlsruher—Schalke 04
Frankfurt—Kaiserslaut.
5:1
Bochum—Hamborg 0:3
3:0 Bremen—Dusseldorf 3:0
1:1 Brunswick—Offenbach 5:1
3:1 Eintracht Braunswick hefur þvi tekið forystuna
2:2 i deildinni með 13 stig, en Bayern Munchen og
1:1 Munchengladbach eru i 2.—3. sæti með 12 stig.
á Tanndice Park í Dundee
Miðvikudagur 1. október 1975
0