Alþýðublaðið - 30.10.1975, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 30.10.1975, Qupperneq 7
Dagur á saumastofu Iðnó Saumastofan Höfundur og leiksstjóri: Kjartan Ragnarsson Leikmynd: Jón Þórisson Kvennaár, kvennafri, misrétti og fleira i þeim dúr hafa tröllriðið islenzkum fjölmiðlum undanfarnar vikur. Satt bezt að segja var það þvi með hálfum hug sem undirritaður sótti frumsýningu Leikfélags Reykjavikur á nýju i islenzku leikriti er ber nafnið Saumastofan. Maður átti hálfpartinn von á að fá yfir sig enn eina dembuna um nauðsyn á auknu jafnrétti karla og kvenna ásamt tilheyrandi baráttu- söngvum, enda tekið fram i leikskrá, að þetta verk hafi verið samið i tilefni kvennaársins margumrædda. Ekki var langt liðið á sýningu ljós kom að hér er á ferðinni bráð- smellinn gamanleikur meö alvarlegu ivafi þó. Sex konur vinna saman á saumastofu. Leikritið gerist á einum degi þegar forstjórinn, sem að sjálf- sögðu er karlmaöur, þarf að bregða sér norður í land. Það kemur j ljós, að elzta saumakonan hafði átt sjötugs afmæli daginn áöur og birgt sig upp af víni og brauði handa gestunum. En það voru aðeins tvær vinkonur hennar sem komu i veizluna og önnur templari svo litið hafðisaxastá veizluföngin. Másegja að þarna komi höfundur strax að einu af vandamálum nútimans. Enginn man eftir gamla fólkinu, ekki einu sinni þeg- ar það á stórafmæli. Nema hvað: gamla konan kemur með veizluföngin i ferðatösku og eftir að for- stjórinn hefur látið stúlkurnar framkvæma hina reglulegu morgun- leikfimi og horfið á braut er hellt i glösin og brátt fer að lifna um tungutakið hjá suma konunum. Þarna er kona sem er á kafi i lifsgæðakapphlaupinu og er að byggja, önnur er gift ofdrykkjumanni, sú þriðja fyrrverandi áfengissjúklingur og þarna er einstæð móðir með tvö börn auk Lillu sem er átján ára steipa og ólétt. Þetta er hópurinn auk Kalla klæö- skera, sem er hommi, og liimma sénd- ils. Konurnar segja frá lifshlaupi sinu i stórum dráttum og þá einkum sam- skiptum sinum við hitt kynið. Til að ná fram sterkari áhrifum fer höfundur þá leið að láta fara fram leiksýningar innan leiksins og tekst hún mætavel. Sigga gamla sjötuga segir frá þvi hvernig hún hefur alla ævi þjónað öðrum, bræðrum sinum i 20 ár hvað þá annað, og finnst þetta ósköp eðlilegt allt saman. Tvær stúlknanna bregða sér i karlmannsföt og bregða upp augnabliki af samskiptum hennar við bræðurna. Það er Sigriður Hagalin sem fer með hlutverk Siggu og tekst mætavel að sýna okkur rólega eldri konu sem er orðin svolitið skilningssljó en vill umfram allt að allir lifi i sátt og samlyndi.Magga er verkstjóri á staðnum, en maður hennar hafði áður verið eigandi saumastof- unnar en drukkið hana út eins og önnur íyrirtæki sem hann var að vasast i Brugðið er upp mynd af samskiptum hjónanna, hinum sterka manni sem i raun og veru er alltaf að berjast við að sýnast sterkari en hann er. Það er hann sem öllu ræður á heimilinu, hvenær eiginkonan fer i frúarleikfimi hvað þá annað og hún lætur sér það vel lika. En þegar hann brotnar og leitar á náðir flöskunnar ris konan upp og nú er það hún sem vinnur fyrir heimilinu og i ljós kemur að samband þeirra batnar að mun þótt maðurinn haldi áfram drykkj- unni. Asdis Skúladóttir leikur Möggu á sannfærandi og öruggan hátt. Þá er komið að Ásu, konunni sem er að byggja og þóttt maður hennar hafi rokna tekjur vinnur hún úti þvi ,,ég ber það ekki saman að búa i raðhúsi eða blokk” og það þarf að borga þakrennuna auk alls annars. Svo er það hjólhúsið sem þau hjón verða endilega að kaupa og þrátt fyrir veikburða mótmæli eigin- mannsins gefst hann upp þegar hann fréttir að meira að segja litli bróðir hans er búinn að kaupa eitt. Það fer enginn i grafgötur um hver er húsbóndi á þvi heimili, en Ása man þó eftir þvi svona i framhjáhlaupi að þau hjón eiga börn; Hrönn Steingrimsdóttir er hressileg i hlutverki Asu og er vaxandi leikkona. Gunna, fyrrv. áfengissjúklingur virðist helzt hafa orðið fyrir barðinu á ófullkomnum lögum um fóstureyðingar. Hún hafði fengið rauða hunda um með- göngutimann en leyfi til fóstureyðingar kom of seint. Barnið deyr tæplega árs- gamalt og hún ásakar sjálfa sig fyrir dauða barnsins án þess að það komi fram i leikritinu hvort sú ásökun eigi við rök að styðjast eöa ekki. En Gunna verður bitur út i lifið, yfirgefur heimili, mann og börn og steypir sér út i gjálifið. Nú er hún á Kleppi með leyfi til að vinna úti i bæ. Soffiu Jakobsdóttir tekst mjög vel að lýsa biturleik Gunnu út I allt og alla, en þó fannst mér höfundur ekki gefa okkur nægilega sterkar forsendur fyrir þessum gifurlega biturleik. Margrét Helga Jóhannsdóttir lék Diddu, einstæða móður með tvö börn sem bjó i óvigri sambúð þar til maðurinn sparkaði henni og börnunum út. Hún stritast við að vinna fyrir sér og krökkunum, en er samt sem áður kona fyrst og fremst. Skreppur á dansleik á föstudagskvöldum og einhverveginnfer það svo að hún fær gjarnan heimfylgd sem oftar en ekki endar uppi i rúmi áður en hún veit af. Margrét Helga brá upp mynd af konu sem allir kannast við og gerði það prýðilega. Siðast er það svo Lilla sem er átján ára og á von á barni. Áður hafði hún latið eyða fóstri hjá skottulækni. Kagnheiður Steindórsdóttir er ung leikkona og er þetta að öllum likindum hennar stærsta hlutverk til þessa. Hún leikur af æskufjöri og þokka og Lilla verður einkar geðþekk i meðförum hennar. Höfundur leikrits, söngtexta og laga, Kjartan Kagnarsson hefur lýst þvi yfir við fjölmiðla, að með þessu leikriti sé ætlunin að bregða upp mynd af stöðu lconunnar i dag. Hvort lif saumakvenn- anna er þverskurður sem allir sætta sig við er svo mál hvers og eins. En það er léttur blær yfir leikritinu, Iögin falla vel að efninu og textinn hnökralitill. Saumakonurnar eru á senunni allan timann sem sýningin stendur en samt tekst að halda uppi hæfilegum hraða allan timann. Sigurður Karlsson fer með hlutverk forstjórans. Litið hlutverk sem ekki gefur mikil tækifæri. Er ekki kominn timi til að þessi ungi leikari fái tækifæri til að glima við stærri verkefni? Karl Guðmundssonlék Kalla klæðskera, sem jafnframt er hommi og i leikritinu er skýrt frá ástæðunni. Karl sem er vanur leikari, brá upp skemmtilegri týpu og vakti ósvikinn hlátur. Loks er að geta Haralds G.IIaraldssonar en hann lék Hi mma sendil. Litið hlutverk sem Haraldur fór vel með. Leikmynd Jóns Þórissonar er frumleg og fellur vel að leikritinu. 1 heild er Saumastofan skemmtileikrit en jafnfram ter skyggnst undir yfir- borðið á nærfærinn hátt. Kjartan Ragnarsson ætti hiklaust að halda áfram leikritasmið og hætta sér á dýpri mið. Sæmundur Guðvinsson Útvarp FIMMTUDAGUR 30. október 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgun- stund barnanna kl. 8.45: Guð- rún Guðlaugsdóttir byrjar að lesa „Eyjuna hans Múmin- pabba” eftir Tove Jansson i þýöingu Steinunnar Briem. Til- kynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög milli atriða. Við sjóinn kl. 10.25: Ingólfur Stefánsson talar við Pál Guð- mundsson skipstjóra um sjóða- kerfi sjávarútvegsins. Morgun- tónleikar kl. 11.00: Ars Rede- viva leikur Sónötu fyrir flautu, óbó, selló og sembal eftir God- frey Finger/ Felicja Blumental og Nýja kammersveitin I Prag leika Planókonsert i C-dúr eftir Muzio Clementi, Alberto Zedda stjórnar/ Kammersveitin I Prag leikur Sinfóniu I Es-dúr op. 41 eftir Antonin Rejcha. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til- kynningar. A frlvaktinni.Margrét Guð- mundsdóttir kynnir óskalög sjórhanna. 14.30 Vettvangur. Umsjón: Sig- mar B. Hauksson. 1 öðrum þættinum er fjallað um dag- heimili. 15.00 Miðdegistónieikar. Werner Haas og Noel Lee leika ,,í hvitu og svörtu”, tónverk fyrir tvö pianó eftir Debussy. Viktoria de Los Angeles syngur „Shé- hérazade”, þrjá söngva eftir Ravel. Hljómsveit Tónlistar- skólans I París leikur með, Georges Prétre stjórnar. Arthur Grumiaux og Lamoureux- hljómsveitin i Paris Ieika Fiðlukonsert nr. 3 i h-moll op. 61 eftir Saint-Saens, Jean Forunet stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar, (16.15 Veðurfregnir). Tónleik- ar. 16.40 Barnatimi: Eirikur Stefánsson stjórnar. Flestir girnast gullið, siðari þáttur. 17.30 Framburðarkennsla I ensku. 17.45 Tónieikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Gestur i útvarpssal: Viktoria Spans syngurhollenzk þjóðlög eftir Pál ísólfsson. Emil Thoroddsen og Gunnar Reyni Sveinsson, ólafur Vignir Albertsson leikur á pianó. 20.00 Leikrit: „Andorra” eftir Max Frisch.Aður útv. I desem- ber 1963. Þýðandi: Þorvarður Helgason. Leikstjóri: Walter Firner. Stjórnandi útvarpsæf- inga og upptöku: Klemenz Jónsson. Persónur og leikend- ur: Andri/ Gunnar Eyjólfsson, Barblin/ Kristbjörg Kjeld, Kennarinn/ Valur Gislason, Móðirin/ Guðbjörg Þorbjarn- ardóttir, Senoran/ Herdis Þor- valdsdóttir, Hermaðurinn/ Bessi Bjarnason, Gestgjafinn/ Rúrik Haraldsson, Smiðurinn/ Róbert Arnfinnsson, Læknir- inn/ Lárus Pálsson. Aðrir leik- endur: Baldvin Halldórsson, Arni Tryggvason, Ævar Kvar- an, GIsli Alfreðsson. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan: „Kjarval” eftir Thor V il - hjálmsson. Höfundur les (8). 22.35 Skákfréttir. 22.40 Krossgötur.Tónlistarþáttur i umájá Jóhönnu Birgisdóttur og Björns Birgissonar. 23.30 Fréttir I stuttu máli. Ðag- skrárlok. Niður- | launbegamál stöður Frá ráð- # TCiöt* oo* starfs- stefnu ASI f\Jor °6 hLaua ogBSRB kvenna í | hópa atvinnulífinu J SIÐARI HLUTI mðarnfsl ráðstefna á búa ia»r. I þelrri nefnd voru af hálfu 1 Niðurstöður starfshóps um menntunarmál 1. Baráttan fyrir jafnrétti og menntunarmöguleikar. a) Skapa ber öllum þegnum landsins, óháð búsetu og fjár- hagsaðstöðu, sama möguleika til menntunar. b) Skólakerfið byggir á bóklegu námi, verklegt nám (5 sinnum dýrara) situr á hakanum. c) Stúlkur, sem ekki velja menntaskóla, verzlunarskóla- nám, hafa um fáar valbrautir að velja, hverfa þvi frekar frá námi eftir 9.-10. bekk. d) Astæður fyrir þvi að stúlkur velja siður iðngreinar eru upp- eldislegar og vegna fordóma. e) Skólastefna, sem sérhæfir einstaklinga, æskilegri en sú, sem skapar úrval. f) Með nýja fjölbrautarskólan- um virðast ekki opnast fleiri möguleikar á valbrautum fyrir stúlkur. g) Möguleikar á framhalds- námi á fullorðinsfræðslustigi fyrir fólk, sem vill auka þekk- ingu sina, áhuga eða starfs- möguleika. h) Opinn háskóli fyrir fólk, sem er 25 ára og hefur starfað 5 ár á vinnumarkaðinum. 2. Skólinn sem mótandi aðili. a) Útrýma ber öllu misrétti I fræðslukerfinu. 1) t.d.-I kennslu i Iþróttum og handavinnu. 2) t.d. I kennslubókum. b) Fræðsluyfirvöld verði stefnumótandi i fræðslu i jafn- rétti I skólum. 1) undirbúningur kennara til að taka að sér fræðsluna 2) samið kennsluefni fyrir skól- ana um jafnrétti, eðlilegast að það tengistkennslu i samfélags- fræðum 3) við endurskoðun námsefnis ber að hafa jafnrétti i huga. c) Fræðsluyfirvöld leggi á- herzlu á þjálfun barna og ung- linga i félagsmálum t.d. fram- sögn og tjáningu. d) Fræðlsuyfirvöldkomiaf stað umræðum um skóla og upp- eldismál á jafnréttisgrundvelli. Niðurstöður starfshóps um hefð og fordóma I. Um mismunandi eðli kynj- anna. Vel getur veriðaðeðli karla og kvenna sé að einhverju leyti ó- likt, en fráleitt er að meta kven- eðlið minna en karleðlið og að nota sérkenni kveneðlisins gegn konum I stað þess að meta þau til jafns við sérkenni karleðlis- ins. Hópurinn er sammála um að drengjum sé t.d. mismunað hvað snertir tilfinningalegt upp- eldi. Þeim sé alltaf ætlað að vera sá sterki. Þeir verða fyrir meiri tifinningalegri bælingu, drengir gráta aldrei. Hætta er á að þetta valdi afbrotahneigð hjá sumum drengjum. Aftur á móti þykir eðlilegt að stúlkur láti til- finningar sinar I ljósi. Erfitt er að gera greinarmun á eðli og uppeldisáhrifum. Uppeldið — umhverfið hefur áhrif á tilfinningallf barna. Drengir gætu ekki farið út með dúkkuvagn nema einu sinni. Drengir sem sauma út eru jafn- vel taldir afbrigðilegir. Hópur- inn leggur áherzlu á að nauð- synlegt sé að gefa börnum samskonar gjafir (ekki eftir kyni). 1 því sambandi var talið nauðsyn á að halda námskeið fyrir verzlunarfólk um jafn- réttismál (t.d. vegna spurninga þess: Er það fyrir dreng eða stúlku?) II. Skólinn. Hópnum þykir sjálfsagt að drengir og stúlkur séu saman i leikfimi (sbr. nefndarálit um i- þróttakennslu 1975), handa- vinnu og heimilisfræðum. Einn- ig var talin nauðsyn að upplýsa iþróttafélögin vegna sterkrar kyngreindrar innrætingar sem þau viðhafa og sem kemur i veg fyrir að strákar og stelpur leiki sér saman. Hér gæti samræmd leikfimi, iþróttakennsla, e.t.v. komiö I veg fyrir þetta. Rætt var um kynferðisfræðslu og að hún væri ekki nægjanleg i skólum eins og er. 1 einum skóla var gerð könnun á afstöðu for- eldra til þeirrar kennslu i 7 ára bekk skv. nýju námsefni i sam- félagsfræðum sem er að koma I skólana. Enginn mótmælti þeirri kennslu. III. Áhrif leikskóla og dagvista- stofnana og nauðsyn þeirra. Tekið var undir samþykkt norrænu kvenréttindafélaganna um löggjöf sem tryggi öllum börnum dvöl á dagheimili rétt eins og I skóla. Þjóðfélagið hefur vanrækt að byggja dagheimili. Hópurinn var sammála um að sú þróun að konur vinni nærri einar uppeldisstörf (fóstrui; kennarar) sé slæm. Brýn nauð- syn er þvl að bæta laun þessara stétta svo karlmenn sæki i þær. IV. Vegna spurningarinnar: Hvernig verða heimilin I fram- tiöinni með báða foreldra vinn- andi úti i atvinnulifinu? Nokkrar spurningar koma þá upp á móti. a) Viljum við að allir fari til vinnu á sama tima og börn þá i skóla og dagvistastofnanir? Hvað þá með umferðina á morgnana og á kvöldin? b) Geta allir hjálpazt að heima? (Er verið að hjálpa mömmu?) c) Eru konur tilbúnar að missa verkstjórnina á heimilinu? d) Eru ekki til aðrir sambýlis- hættir? Geta ekki fjölskyldur búið saman? sbr. t.d. sameigin leg þvottahús i blokkum. Af hverju ekki fleira sameiginlegt? e) Koma byggingarhættir i veg fyrir aö fólk skipti um sambýlis- form? Meðan konur vinna heimilis- störf einar verður ekki um jafn- rétti að ræða. V. Um fyrirvinnuhugtakið Nauðsynlegt er að ala drengi og stúlkur eins upp með tilliti til fyrirvinnuhugtaksins. Allir verði fyrirvinnur sjálfs sins og barna sinna. Um skatta: Að áiiti hópsins mun hug- myndin sem komið hefur fram um hrein helmingaskipti milli hjóna við skattgreiðslu (Hjón telji fram hvort i sinu lagi siðan séu tekjur lagðar saman og skipt til helminga) dragi úr þátttöku kvenna i atvinnulifinu og er sérstakt vanmat á störfum heimavinnandi húsmæðra sem yrðu þar með einskis metin. VI. Jafnréttisnefndir. Rætt var um að skora á öll sveitarfélög að koma upp jafn- réttisnefndum hliðstæðum við jafnréttisnefnd i Kópavogi sem geti þá beitt sér fyrir fræðslu og námskeiöum fyrir foreldra og kennara um jafnréttismál (vit- að er um erlendar kennslukvik- myndir um þessi mál) og geri úttekt á stööu og vilja kvenna i sinu umdæmi. Ef við ætlum að koma á jafn- rétti kynjanna og losna við for- dóma og hefðir að þessu leyti er mikilverðast að vænta þess sama af stúlkum og drengjum. Niöurstöður starfshóps um félagslega þjónustu Umræöuhópurinn fjallaði um framlagða minnispunkta um fé- lagslega þjónustu. 1. Tækifæritil heimaveru vegna barnsburðar. Rætt var um framkvæmd 3ja mán. fæðingarorlofs opinberra starfsmanna og talið nauð- synlegt að gera konum i þjón- ustu rikis og bæja ljóst að þenn- an rétt eiga þær án nokkurra kvaða. Hópurinn leggur áherzlu á að hraðað verði reglugerð um fæð- ingarorlof kvenna i verkalýðs- félögum og tryggt verði að kon- ur úr félögunum fái sæti I nefnd þeirri er semur reglugerðina. Þá telur hópurinn mjög mikil- vægt aö bráðabirgðaákvæði lag- anna um fæðingarorlof, sem samþykkt var á Alþingi 16. mai 1975 verði að veruieika. 1 þvi á- kvæði felst að tryggður skuli tekjustofn i þvi skyni að veita öllum konum á landinu sam- bærilegt fæðingarorlof. 2. Barnagæzla. Hópurinn telur brýnt að sveit- arfélög geri áætlun um upp- byggingu dagvistunarheimila og taki þá m.a. tillit til óska og þarfa foreldra vegna vinnu utan heimilisins. Um leið leggur hópurinn á- herzluá að auknar verði f járveit- ingar rikisins og sveitarfélaga til bygginga dagvistunarstofn- ana og að byggingar verði sem hagkvæmastar. Hugmyndir komu fram um hvort ekki væri eðlilegt að tekið yrði tillit til tekna forráða- manna i sambandi við greiðslur þeirra til dagvistunarstofnana. Bent er sérstaklega á mikla þörf á skóladagheimilum. 3. Skyldunám. Lögð er áherzla á að skyldu- námsskólinn taki að sér að gegna þvi hlutverki að vera börnum athvarf meðan foreldr- ar eru við vinnu. Börnum gefist kostur á að fá mat eftir þvi sem nauðsyn kref- ur og þeim jafnframt sköpuð vinnuaðstaða I skólanum til að ljúka námsverkefnum sínum. 4. Heimilishjálp. Hópurinn telur mikilvægt að sveitarfélög starfræki viðtæka heimilishjálp I samræmi við gildandi lög. Samkvæmt þeim Framhald á 11. siðu. launþesamðl Breytilegur vinnutími Alþjóðavinnumálastofn- unin í Genf segir: ,,fleiri og fleiri verkamenn um heim allan fá að ráða vinnutíma sínum, sam- kvæmt könnunum". Þetta kerfi „breytilegs vinnutíma", sem fer sífellt í vöxt í vestrænum heimi, hefur ekki aðeins áhrif á aukna ánægju starfsliðs- ins, heldur og á vestrænan hagvöxt, eftir því, sem könnunin segir. „Breytilegur vinnutími" er nafnið, sem kerf ið hef ur hlotið. Þetta kerfi verka- manna, sem leyf ir þeim að afkasta vikulegum eða mánaðarlegum afköstum að vild. Könnunin bendir einnig til þess, „að það væri naumast unnt að finna annað kerfi, em hefði í för með sér svo jafnan og mikinn áhuga allra, sem hlut eiga að máli.". BREYTILEGUR vinnutimi leysir umferðarvandann sem verður þegar allir fara I vinnuna og úr á sama tima eða i og úr mat — eins og við þekkjum glögglega hcr i Reykjavik. Þetta nefnist á ensku „Flexi-time” — og hefur reyndar verið tekið upp hjá örfáum fyrir- tækjum hér á landi, svo sem hjá Skeljungi, að litlu leyti. Með þvi móti vinna starfsmenn fastan og ákveðinn kjarna, svo sem frá klukkan 10 árdegis til 2 siðdegis, en hafa frjálsar hendur um það að öðru leyti hvernig þeir ljúka vinnuskyldunni. Þetta eru að visu aðeins vinnu- veitendur og vinnandi fólk. Kerfið leyfir fólki ekki aðeins að laga vinnutima sinn að eigin hags- munum, heldur og að daglegri vinnu. Þeir, sem vilja t.d. fara heim i mat og eiga stutt að fara, geta valiö sér lengra matarhlé, en aðrir geta farið fyrr heim á kvöldin og fengið styttri matar- tima. Sá, sem ris snemma úr rekkju, getur hafið vinnu fyrr en sá, sem vill fara seint að sofa. Ef hjónin eru bæði við vinnu geta þau ákveðið sin á milli, hvort þeirra á að byrja og hvort að ljúka fyrr, svo að það henti skóla- tima barnanna. „Þá er unnt að samræma vinnutíma fjölskyld- unnar”, segir i könnuninni. En aðalatriöið er eftir þvi, sem könnunin segir: „Aukin nýting fristunda”. Þá forðast menn um- ferðatafir, velja bezta tima dags til innkaupa og annarra leikja og eyða þvi minna af vinnutima til einskis. „Nýja kerfið gerir félagslegt menningarllf einnig auðveldara. Það veldur þvi, að unnt er að eyða meiri tima til skemmtana og menningariðkana og auðvelda um leið almenna menntun.” Það getur „ekki aðeins aukið almennt andrúmsloft og þátttöku almennings i menningarlegum iðkunum, heldur og frekari nautn við vinnu.” Aukin afköst Þetta kerfi vinnur gegn vax- andi álagningu, skipulagningu og tækni, sem einkennir svo nútima þjóðfélög, og i þvl er verkamönn- um veitt meira tækifæri til að taka þátt i vinnu sinni og áhugi þeirra á henni vakinn. Þetta getur leitt til aukinnar framleiðni, betri vinnuskipulagn- ingar, hagnýtingu betri stjórnun- ar, eða m.ö.o. „aukningu arðsemi yfirleitt”. Erfiöleikar En nýja kerfið getur aðeins unnið innan vissra marka. Það hentar ekki vaktavinnu eða færi- bandavinnu, þvi að þar er oft krafizt skiptandi starfskrafta. I sumum tilfellum er unnt að hafa vikjanlega vinnutima, sem geta aftur orsakað innbyrðis erf- iðleika, sem hafa i för með sér ó- notaðan vinnutima, rifrildi og má vera, þrætur meðal starfsmanna. Þetta kerfi getur valdið vandræð- um, ef verkefnin eru mjög ein- staklingsbundin. Það er unnt að auka hæfni kerfisins með þvi, að starfslið, hiti og ljósakerfi sé látið starfa lengur. En skýrslan segir, að þessir erfiðleikar séu ekki „yfirgnæf- andi hindrun til kynningar á breytilegum vinnutima”. Framvinda mála Að mati utanaðkomandi sér- fræðinga, græða rúmlega 30% launþega i Sviss — en þar hefur kerfið „hlotið ótrúlega út- breiðslu” — vegna breytilegs vinnutima. 1 Vestur-Þýzkalandi „sýna staðreyndir greinilega, að kerfið hefur veriö til framfarar” — þó ekki jafnmikið og spáð var 1972 (fyrir helft fyrirtækja árið 1975) Sérfræðingar i Benelux-löndun- um eru i sivaxandi mæli að taka það til athugunar, Frakkland, Italia, Spánn, England, Skandinavia, Bandarlkin, Japan og Ástralia. Af hálfu vinnuveitenda þarf, hvað viðkemur breytilegum vinnutima, velvilja verkamanna og aðild þeirra að framgangi fyrirtækisins og traust þeirra á verkþega. Verkamennirnir þurfa að sýna tryggð, ábyrgö og sam- vinnuvilja. Þróun kerfisins fer sérlega eftir vilja og notum verkamanna. „Þetta er orðið annað og meira en sýningargripur, hvar svo sem á- hugamál forráðamanna þess (kerfisins) kunna að hafa verið. Það mun innan skamms verða tækniatriði, sem sýnir gæði sin og/eða vankanta og krefst óhlut- drægrar athugunar,” segja kann- anir. 150 fulltrúar sátu þing Iðnnemasambands íslands 33. þing Iðnnemasambands tslands var haldið dagana 17., 18. og 19 október sl. að Hótel Loftleiðum. Þingið ályktaði um eftirfarandi málaflokka: Iðnfræðslu, kjaramál, félags-og fræðslumál og þjóðmál. Þinginu lauk seint á sunnudagskvöld. Umræður urðu mjög frjóar og málefnalegar. Á þinginu sátu um 150 fulltrúar viðsvegar af landinu, og lýsir það mjög vel áhuga iðnnema á baráttumálum sinum. Á þinginu var kosin sambandsstjórn, og úr henni var siðan skipuð framkvænldastjórn. I framkvæmdastjórn eiga sæti: Formaður: Kristinn Hrólfsson, v.form.: Jason Steinþórsson, ritari: Haraldur Bjarnason, 1. gjaldk.: Hallgrimur Valsson, 2. gjaldk.: Hallgrimur G. Magnússon, meðstj. Kristin Asmundsdóttir og Sveinn Ingvason. Fræðslustjóri var endurkjörinn Ragnar Bragason, og veitir hann forstöðu Félagsmálaskóla Iðnnemasambandsins. Ritstjóri Iðnnemans (málgagn Iðnnemasambandsins) var kjörinn Jakob Ólafsson. Dagsbrúnartaxti á alla vélavinnu hjá verkakonum Vcgna þeirrar röngu túlkunar sem kom fram i sjónvarpi og útvarpi á launakjörum starfskvenna i fiskvinnu, viljum við bér með biðja um eftirfarandi leiðréttingar. Það skal tckið fram, að ef konur vinna á tækjum eða öðru þvi sem ekki er framtaliö i kauptaxta Verkakvennafélagsins Framsóknar, ber þeim skilyrðislaust að fá þau laun sem þar á við i Dagsbrúnartaxta, svo og annað sem til greina gæti komið. Hvað varðar fiskvinnu, skal öllum bent á sem ekki vita betur, að öll fiskvinna er greidd samkvæmt 5. taxta félagsins að undanskilinni vélavinnu o.fl., sem er i 6. taxta, og gildir það jafnt fyrir bæði kynin. Þeimsemekki vita betur um launakjör ofangreindra vinnuhópa er vinsamlegasl bent á að leita sér upplýsinga á skrifstofu Vcrkakvennafélagsins Framsóknar og Verkamanna- lelagsins Dagsbrúnar áður en villandi upplýsingar eru gefnar. Með þökk fyrir birtinguna. Þórunn Valdimarsdóttir Guðmundur J. Guðmundsson Straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörgum mynztrum og litum. Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverjum sem hlýtur. Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og lifgið upp á litina i svefnherberginu. Reynið Night and Day og sannfærizt. CT) 3 < Samband íslenzkra samvinnufélaga Innflutningsdeild Sambandshúsiö Rvík sími28200 Pipulagnir 82208 1’lasl.os hf Tökum að okkur alla pipulagningavinnu PLA STPQKAVE R KSMiO JA Sbw B2Í3Í-B2155 Oddur Möller V Bfnagörtxjm 6 Bojc 4064 — Roykjsvlk löggildur pipulagningameistari 74717. Hafnarfjarðar Apótek Afgreiðslutimi: Virka daga kl. 918.30 'Laugardaga kl. 10-12.30. Helgidaga kl. 11-12 Eftir lokun: Birgir Thorberg máiarameistari sími 11463 önnumst alla málningarvinnu — úti og inni — Upplýsingasími 51600. - gerum upp gömul húsgögn Teppahreinsun lireinsum gólfteppi og húsgögn I heim ahúsum og fyrirtækjum. Érum mcö nýjar vélar. Góö þjón- usta. Vanir menn. SIGFÚS BIRGIR 82296 40491 Otvarps.og sjónvarpsviðgerðir Kvöld og helg- arþjónusta. 10% afsláttur til öryrkja og aldr- aftra. SJÓNVARPS- VIÐGERÐIR Skúlagötu 26 — slmi 11740. Nylon-húðun Húðun á malmum með RILSAN-NYL0N II Nælonhúðun h.f. Vesturvör 26 Kópavogi — simi 43070 ff Kasettuiönaöur og áspilun, \\ Dúnn f [ fyrtr útgefcndur hljómsveitir, | l l kóra og fl. Leitiö tilboöa. )j \\ Mifa-tónbönd Akureyri JJ \\ Pósth. 631. Simi (96)22136 í GlflEIIBflE /ími 04200 T-ÞíC TTILISTINN i T-LISTINN ER inngreyptur og þolir aíla veðráttu. TLISTINN Á: útihurðir svalahuröir hjaraglugga og l-“l seltiglugga psJ' j Cluggnsmtöjan L—--vu._J sí».«h4o /o s.m, jtrjo

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.