Alþýðublaðið - 04.11.1975, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 04.11.1975, Blaðsíða 4
Björgvin S. Haraldsson sýnir í Norræna húsinu Björgvin Sigurgeir Haraldsson sýnir nú i Norræna húsinu fjölbreytt listaverk. Sýningin, sem opnuð var 1. þ.m. mun standa til 9. nóvember. Hér gefur að lita tússmyndir, túss- og vatnslitamyndir, kolmyndir, oliumyndir og skúlptúr. Af þessu má sjá að Björgvin er ekki við eina fjöl felldur um myndgerð. Björgvin er mikill völundur i höndunum og afar vandvirkur, hefur honum i engu fatazt um handbragðið. Um list- gildi verka hans vill undir- ritaður ekki dæma, þar er á ferðinni myndverk.sem stendur ofan og utanvið sem lærðari menn verða að fást við. Hitt er nokkuð augljóst, að miðað við fyrri einkasýningu (1968) hafa viðfangsefnin tekið veru legum breytingum. Meðferð öll orðið frjálsari og vikkað svið yfirferðar, að verulegum mun, er þar um að ræða nýjungar, sem ekki hafa borið fyrir augu undirritaðs áður. Björgvin hefur stundað nám alllengi, þótt ekki hafi verið óslitið, bæði innan lands og utan. Unnendur nútimalistar geta eflaust séð margt forvitnilegt á sýningu hans. O.sig. Lausar stöður íslenzka járnblendifélagið h.f. auglýsir hér með eftir umsóknum um eftirtalin störf við járnblendiverksmiðju félagsins að Grundartanga i Hvalfirði. Verzlun Ellingsen komin út á Granda 1. Stýritölvufræðingur (process control computer engineer) 'Umsækjendur þurfa að hafa B.S. próf eða jafngildi þess i rafmagnsverkfræði og gott vald i enskri tungu. Starfsreynsla i gerð forskrifta og notkun tölva er æskileg, en ekki nauðsynleg. Umsækjendur verða að vera fúsir til þess að fara innan skamms til Bandarikjanna til þjálfunar og starfa að hliðstæðum verk- efnum hjá Union Carbide Corporation, og að þvi búnu að vinna að uppsetningu, próf- un, gerð forskrifta og starfrækslu stýri- tölvu verksmiðjunnar. 2. Málmfræðingur (metallurgist) Umsækjendur þurfa að hafa menntun á sviði málmfræði eða ólifrænnar efnafræði, og gott vald á enskri tungu. Starfsreynsla er æskileg, en ekki skilyrði. Umsækjendur verða að vera fúsir til þess að fara utan til þjálfunar, ef þörf krefur. Starfið er fólgið i stjórnun i ofnhúsi undir yfirstjórn tæknilegs framkvæmdastjóra. Það nær til reksturs ofnanna, hráefna- blöndunar, aftöppunar og málmsteypu. Skriflegar umsóknir sendist til íslenzka járnblendifélagsins h/f, Lágmúla 9, Reykjavik—fyrir 17. nóvember 1975. Reykjavik, 24. október 1975 íslenska járnblendifélagið hf. Verzlun O. Ellingsen alflutt I Ánanaust viö Grandagarö, eftir nær 60 ár á sama staö. 0. Ellingsen opnaði verzlun með veiðarfæri og málningarvör- ur 16. júni I9l6fyrst i Kolasundi, en flutti i desember 1917 i nýtt húsnæði i Hafnarstræti 15, beint upp af Steinbryggjunni, sem þá var miðdepill athafnasvæðisins við höfnina. Othar Ellingsen (eldri) fæddist i Norður-Þrændalögum 30. ágúst 1875 (aldarminning i ár). Hann varð útlærður bátasmiður um tvi- tugt og ári siðar vann hann silfur- verðlaun og aðrar viðurkenning- ar á bátasýningu i Þrándheimi 1896 fyrir smiði á ósökkvandi björgunarbát. 1903 kom Ellingsen ásamt konu sinni Marie (sem enn er á lifi) til Reykjavikur að tilstuðlan Tryggva Gunnarssonar alþingis- manns og bankastjóra til að veita forstöðu Slippfélaginu i Reykja- vik. Þar hætti hann 1916 er hann hóf eigin verzlunarrekstur. O. Ellingsen rak verzlun sina af miklum dugnaði og viðsýni til dauðadags 12. jan. 1936. Fyrir- tækinu var þá breytt i hlutafélag og hefur Othar Ellingsen (yngri) veitt þvi forstöðu siðan. Vorið 1956 flutti Veiðarfæra og vinnufatadeild i nýtt húsnæði við Tryggvagötu áfast við Hafnar- stræti 15, og rýmkaðist aðstaða þá verulega. Húsnæðið varð smá saman of litið, og vörugeymslum varö að dreifa á marga staði. Erfiðleikar viðað fá bilastæði i miðborginni eru einnig stöðugt að aukast og er þetta sérstaklega til- finnanlegt fyrir verzlanir sem selja þungavörur. Nú hefir verzlunin flutt alla starfsemi sina i nýtt og mjög hentugt verzlunarhúsnæöi að Ánanaustum við Grandagarð. Verzlunin er þannig á ný komin miðsvæðis við athafnasvæði veiðiflotans, og er verzlunin þó skammt frá miðborginni og er mjög vel staðsett við samgöngu- æðar borgarinnar og býður nú viðskiptavinum sinum næg bila- stæði. Arkitekt verzlunarinnar er Gisli Halldórsson arkitekt. Teiknistofan Ármúla 6. og er verzlunarhúsið byggt áfast við gömlu Ánanaustahúsin sem breytthefirveriði vörugeysmlur. Innréttingar eru teiknaðar af Gunnar H. Pálssyni, verkfræðing, Verkfræðistofan Onn. Verjum gróður - verndum land -landvernd ^ ^ ^ ^ ^ m » » » ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ . V Alþýðublaöið Þriðjudagur 4. nóvember 1975

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.