Alþýðublaðið - 18.11.1975, Blaðsíða 6
í TILEFNI flLDARFiÓRÐUNGSflFMÆLIS
ALBERTS RUNARS AÐALSTEINSSONAR
HÆTTI HJÁ NÁTTÚRU
ÞEGAR HANN FÉKK GOTT
BOÐ FRÁ SVANFRÍÐI...
Albert Rúnar Aðal-
steinsson heitir maður
nokkur sem fæddist i
Reykjavik, þvi miður að
hans sögn, fyrir 25 árum
siðan. Flestir þekkja
Albert sem rótara, en það
hefur hann verið frá þvi
elztu menn muna, og
einnig var hann diskótek-
ari i Las Vegas i eitt ár,
meðan það var og hét. Nú
ekki alls fyrir löngu tróð
Albert upp i Tónabæ, þar
sem hann hélt konsert og
flutti hann þar nokkur
frumsamin lög ásamt
textum eftir sig við undir-
deik nokkurra liðsmanna
Change. Til þess að kynna
manninn betur fyrir les-
endum, þá ætlar hann að
rekja s'in helztu afrek til
þessa.
,,Ég keypti mér gitar
árið 1965, eins og allir
aðrir, en ckki fór mikið
fyrir kunnáttunni, en það
sem ég gat spilað, hafði
ég frá inóður minni. Ég
og nokkrir vinir minir,
sem að sjálfsögðu áttu
hljóðfæri lika, æfðu upp
sjö lög, og vorum fengnir
til að spila þau á ein-
hverskonar æskulýðskon-
sert. Næsta skrcfið scm
ég tók, var til U.S.A., en
þangað fór ég árið 1967,
og var þar i 9 mánuði. Er
heim kom spilaði ég með
nokkrum strákum i um
átta mánuði, og kölluðum
við hIjómsve i tina
„Thunders”, cn það fór
ekki mikið fyrir henni.
Arið 1969, gcrðist ég
diskótekari i Las Vegas,
og var ég það i eitt ár, en
einnig rak ég staðinn i
nokkurn tima. A þessum
tima var ég búinn aö
kynnast fjöldanum öllum
af poppurum, og eftir
þetta eina ár i Las Vegas,
fór ég að róta hjá Trú-
brot, en það hefur verið
um 1970. Ég fór yfir til
Náttúru þegar hún var
stofnuð, og rótaði hjá
þcim um tima, en siðan
fékk ég gott boð frá Svan-
friði, en þeir voru á leið-
inni til London í plötuupp-
töku. Frá Svanfriði fór ég
svo aftur til U.S.A., þar
sem ég hippaðist i fimm
mánuði, i dýrlegum
blómafagnaði.
Þegar heim kom fór ég
að vinna i Cudo gler, þar
sem mikið ágætisfólk
vann, fyrir utan hiö góöa
gler, sem við framleidd-
um. Siðan kemur hljóm-
sveitin Changc til sögunn-
ar, og fór ég þá að starfa
með þeim, alveg þar til ég
fór á undan heim til Lond-
on, þá hætti ég. Þá var
planið hjá Change aö taka
bara upp plötuna og svo
hcim aftur, en ég lagðist
fast gegn því, af þvi að
það var þar sem hlutirnir
voru að gerast. Að lokum
fór þannig, að ég kom
hcim, en þeir voru eftir
úti. Eftir Londonreisuna
fór ég aftur til Cudo, og
var það hinn þrumuhressi
vcrkstjóri sem réði úrslit-
um i þvi. Ég hætti i Cudo
þcgar Brimkló bað mig
að róta hjá sér, og var
veran hjá Brimkló eigin-
lega mesta stuðið sem ég
hafði verið i, fram að
þcssu. Leið siðan ekki
langur timi, þar til
Change bað mig að koma
aftur til þeirra, en ég setti
Albert Icefield á
konsertinum f Tónabæ.
það skilyrði, að ég hætti
hjá þeim, þegar allt væri
komið i stand, og annar
væri kominn inn i rótara
starfið.
Hjá Kobba Magg fór ég
að róta, þegar hann fór i
reisu um landið, með
Stuðmönnum, White
Backman, og heila klabb-
inu. Var þessi reisa mjög
góð, en erfið og þreytandi
var hún. Eftir þetta stutta
sumar tók ég það rólega,
þar til sú hugmynd fædd-
ist, að halda konsert þann
sem nýlega var haldinn.
Ég hafðisamið texta fyrir
Magnús og Jóhann, og
einnig fyrir Náttúruplöt-
una, og átti ég þvi efni i
prógram, sem var flutt á
þessum konsert og finnst
mér hann vel heppnaður,
enda skemmti ég mér
mjög vel”.
Þá er þátiðin búin, og
við komin að núinu.
þ.e.a.s. á þá minútu er
viðtalið er tekið. Næst er
það framtiðin.
„Næst á dagskrá hjá
mér er 25 ára afmælið
mitt, sem ég ætla að
halda opinberlega á kon-
sert með hljómsveitinni
Pelican, og erum við bún-
ir að æfa fjögur lög fyrir
hann, eða hálfnaðir með
æfingarnar. Þrjú eða
fjögur laganna eru eftir
mig, en eitthvað álíka cft-
ir Björgvin Cislason, en
allir textarnir eru eftir
mig. Um þessar mundir
tek ég mér fri á milli kon-
serta, og er það slæmt
upp á fjárhaginn að gera.
Ég á nóg af lögum og
textum fyrir svona kon-
serta, og kemur til
greina, að ég haldi kon-
sert með Changc um jól-
in, og jafnvel nokkra úti-
hljómleika, ef vel viðrar.
Ef svo nýja hljómsveitin
hans Ilerberts
Guðmundssonar verður
góð, þá er planið að hafa
hljómleika með þeim i
janúar eða febrúar. Ég
hef áhuga á að hafa sem
fjölbreyttast úrval hljóm-
listarmanna á þessum
konsertum mínum, þvi að
hljómlistarmenn kynnast
ekki nógu mikið i þessu
kapphlaupi sinu um kök-
una, og langar mig til
þess að þessir konsertar,
auki á samvinnu hljóm-
listarmanna á einhvern
máta,” sagði Albert
Rúnar Aðalsteinsson að
lokum.
Þá hafið þið þaö, nú vit-
iö þið allt um þennan
mann, sem þið fáið að
vita, en ef þið viljið kynn-
ast honuin betur, þá sak-
ar ekki að fara á hans
næsta konsert.
Útvarp
Þriðjudagur
18. nóvember
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustu-
gr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morg-
unbæn kl. 7.55. Morgunstund
barnannakl. 8.45: Guðrún Guð-
laugsdóttir les „Eyjuna hans
Múminpabba” eftir Tove Jans-
son (17). Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
milli atriða. Fiskispjall kl.
10.05: Asgeir Jakobsson flytur
þáttinn. Hljómplötusafnið kl.
11.00: Endurtekinn þáttur
Gunnars Guðmundssonar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar.
13.00 Viö vinnuna. Tónleikar.
14.30 Vettvangur. Umsjón: Sig-
mar B. Hauksson. 1 sjöunda
þætti er fjallað um skólalýð-
ræði.
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tónleik-
ar.
16.40 Litli barnatiminn. Sigrún
Björnsdóttir sér um timann.
17.00 Lagið mitt. Anne-Marie
Markan sér um óskalagaþátt
fyrir börn yngri en tólf ára.
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Skáldið i Strandgötunni.
Eirikur Sigurðsson talar um
Davið Þorvaldsson.
20.00 Lög unga fólksins. Sverrir
Sverrisson kynnir.
20.50 Að skoða og skilgreina.
Kristján Guðmundsson sér um
þátt fyrir unglinga.
21.30 „Misa Criola” eftir Ariel
Ramirez. Kammerkór og
hljómsveit finnska útvarpsins
flytja, Harald Andersén stjórn-
ar. (Hljóðritun frá finnska út-
varpinu).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan:
„Kjarval” eftir Thor
Vilhjálmsson. Höfundur les
(15).
22.40 Harmonikulög. örvar
Kristjánsson og félagar leika.
23.00 A hljóðbergi. Af Heklutindi
á Skálholtshlað. — Úr dagbók-
um James Wright i íslandsleið-
angri Stanleys árið 1789. Nigel
Watson les. — Siðari hluti.
23.40 Fréttir i stuttu máli. Dag-
skrárlok.
SJénvarp
Þriðjudagur
18. nóvember
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 Þjóðarskútan. Þáttur um
störf alþingis. Umsjónarmenn
Björn Teitsson og Björn Þor-
steinsson.
21.35 Svona er ástin. Bandarisk
gamanmyndasyrpa. Þýðandi
Jón O. Edwald.
22.15 Bate og billinn hans. Rosk-
inn maður I Englandi framleiö-
ir metan-gas úr húsdýraáburði
og notar það i bifreiö sinni i
stað bensins. Þýðandi Jón O.
Edwald.
22.30 Utan úr hcimi. Þáttur um
erlend málefni ofarlega á
baugi. Umsjónarmaður Sonja
Diego.
23.00 Dagskrárlok.
Sl.islos hF
PL-ASTPOKAVE RKSMIO JA
Sfnw 82Ó39—82655
Vetn®göf6
Box 4064 — ReyVjavik
Pípulagnir 82208
Tökum að okkur alla
pipulagningavinnu
Oddur Möller
löggildur
pipulagningameistari
74717.
Hafnaríjar&ar Apótek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9-18.30
Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasími 51600.
Birgir Thorberg
málarameistari simi 11463
únnumst aila
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gomul húsgögn
launt»eðamál
Utilokað með öllu að efna til
kapphlaups við verðbólguskriðuna
25%-30% HÆKKUN
TIL AO NÁ SÍDUSTU
KJARASAMNINGUM
„ Ég hygg, að ekki sé fráleitt að meðaltimakaup verka-
manna þyrfti nú að hækka um 25—30%, ef halda ætti
kaupmætti verkamannalauna eins og hann var á því
augnabliki, þegar kjarasamningar voru gerðir í febrúar
1974," sagði Björn Jónsson, forseti Alþýðusambands is-
lands, í viðtali við launþegasíðu Alþýðublaðsins.
Björn Jónsson,
forseti ASÍ:
Kjaramálin eru
óleysanleg með
hefðbundnum aðferðum, - nú
verður að beita aðferðum
oliÁen mrtlolnrro rx A I i r>
1 viðtalinu benti Björn á, að
miðað við að kaupmáttur tima-
kaups verkamanna, sem tekur
laun samkvæmt 6. taxta Dags-
brúnar, hefði verið 100 hinn 1.
desember 1973, hefði hann verið
orðinn 110 hinn 1. marz 1974, en 1.
nóvember 1975 hefði hann verið
aðeins 85.
Væri kjararýrnun trésmiða at-
huguð á sama hátt, kæmi i ljós, að
kaupmáttur þeirra launa hefði
minnkað ennþá meira en launa
verkamanna.
Ef reiknað væri með, að kaup-
máttur timakaups trésmiða hefði
verið lOOhinn 1. desember 1973,
hefði hann verið orðinn 114 hinn 1.
marz 1974, en hins vegar rýrnað
niður i 86 hinn 1. nóvember 1975.
Þessar tölur eru glögg dæmi
um þá gifurlegu kjararýrnun,
sem launafólk hefur orðið fyrir á
siðustu nitján mánuðum.
Eins og kunnugt er hvatti fram-
kvæmdastjórn Vinnuveitenda-
sambands tslands nýlega til þess,
að nú yrði haft fyrra fallið á þvi
að hef ja viðræður um nýja kjara-
samninga. Við spurðum Björn
Jónsson álits á þessu:
„Við höfum haft samband við
Vinnuveitendasambandið i gegn-
um fastanefndina, sem ákveðið
var i siðustu kjarasamningum að
starfa skyldi á samningstimabil-
inu, og minnst á þessi mál þar.
Vinnuveitendum er ljóst eins og
öðrum, að við erum ekki tilbúnir
að hefja viðræður, fyrr en við höf-
um haldið ráðstefnu okkar og
borið saman bækur okkar i
verkalýðshreyfingunni og mótað
stefnu okkar á lýðræðislegan
hátt.
Við erum búnir að ákveða, að
árlegur sambandsstjórnarfundur
Alþýðusambandsins verði hald-
inn 1. desember og 2. desember
verður kölluð saman fjölmenn
ráðstefna, sem nær eingöngu mun
fjalla um kjaramál. A þeirri ráð-
stefnu verður væntanlega gengið
frá meginkröfum verkalýðs-
hreyfingarinnar og stefnan á-
kveðin i komandi samningavið-
ræðum.
Þessi mál eru að sjálfsögðu
þegar komin á athugunarstig, ef
svo má að orði komast. A fundi
miðstjórnarinnar á fimmtudag
lagði ég og framkvæmdastjóri
ASl fram fyrstu hugmyndir að
kjarna hugsanlegrar ályktunar
um kjaramálin.”
Er mögulegt við núverandi að-
stæður að ná árangri i kjara-
samningum án þess að rikis-
stjórnin sé beinn eða óbeinn aðili
að viðræðum ykkar og vinnuveit-
enda?
„Það hefur verið haldinn einn
fundur fulltrúa verkalýðshreyf-
ingarinnar og fulltrúa rikisstjórn-
arinnar og forstöðumanns Þjóð-
hagsstofnunar, þar sem gerð var
grein fyrir ástandi og horfum i
efnahagsmálum, en siöan þessi
fundur var haldinn er nú liðið
talsvert á annan mánuð.
Það er mitt álit og þorra mið-
stjórnarmanna, að mál séu þann-
ig vaxin núna, þegar verðbólgan
er um eða yfir 50% á ársgrund-
velli, að útilokað sé með öllu að
efna til kapphlaups við verð-
bólguskriðuna. Hversu sterk sem
verkalýðshreyfingin væri, hefði
hún aldrei við þeirri ófreskju sem
verðbólga undangenginna mán-
aða er.
Vandi launafólksins verður að
minu viti ekki leystur með kaup-
hækkunum einum saman, sem
sjálfsagt yrðu horfnar um sama
leyti og staðið væri upp frá samn-
ingaboröinu, heldur miklu fremur
með þvi, að gangráður verðlags-
ins yrði stöðvaður.
Það er mitt álit, aö kjaramálin
séu nú óleysanleg með hefð-
bundnum aðferðum. Nú verður að
beita öðrum aðferðum stjórn-
málalegs eðlis, ef árangur á aö
nást.
Verkalýðshreyfingin hlýtur að
leggja höfuðáherzlu á, að með
einhverju móti verði hafður hem-
ill á verðhækkunum. Takist það
ekki, er óhugsandi að einu sinni sé
hægt að viðhalda núverandi
lifskjörum, hvað þá að bæta
þau.”
Um samstöðu verkalýðsfélaga i
komandi samningum sagði Björn
Jónsson:
„1 þremur siðustu kjarasamn-
ingum hefur viðtæk samstaða
náðst milli hópanna, sem inynda
Alþýðusambandið, þó að alltaf
hafi viljað brenna við, að ein-
hverjir hópar hafi ekki viljað
vera með i þessu samfloti og þá
venjulega gert samninga eftir að
hin félögin hafa rutt brautina og
gengið frá samningum sinum.
Nú virðist mér hins vegar gæta
minni tilhneigingar i þessa átt hjá
félögunum. Ég held, að það sé
vilji fyrir þvi, að aðalsamninga-
gerð fari fram sameiginlega og
ég held, að menn skilji betur nú
en oft áður eins og málum er nú
háttaö, að verkalýðshreyfingin
þarf að koma fram sem ein, sterk
heild.
Ég er bjartsýnn á, að nú muni
nást sterkari samstaða innan
hreyfingarinnar en nokkru sinni
áöur og það muni koma i ljós á
kjaramálaráðstefnunni 2. desem-
ber og slðan eftir þá ráðstefnu,”
sagði Björn Jónsson að lokum.
Sókn á
bratt-
ann í
sigti
Um þessar mundir
eru verkalýðsfélögin
hvert af öðru að sam-
þykkja uppsögn
kjarasamninga sinna
við atvinnurekendur
frá og með næstu ára-
mótum.
Samtök verkalýðsins i land-
inu eru nú að búa sig undir
nýja kjarasamninga, sókn,
sem áreiðanlega verður á
brattann eins og allt er i pott-
inn búið i efnahagsmálum
landsmanna nú um stundir.
Ýmsar hinna stærri eininga
verkalýðshreyfingarinnar
hafa þegar haldið þing sin i
haust. Má þar nefna nýlega
afstaðin þing Alþýðusam-
bands Vestfjarða og Alþýðu-
sambands Norðurlands svo og
10. þing Landssambands
verzlunarmanna. Þá standa
nú fyrir dyrum 20. þing Verka-
mannasambands Islands, sem
hefst 21. nóvember n.k., og
þing Landssambands iðn-
verkafólks. Fundur full-
skipaðrar Sambandsstjórnar
Alþýðusambands Islands
verðurhaldinn 1. desember og
næsta dag verður siðan stofn-
að til fjölmennrar kjaramála-
ráðstefnu ASl, þar sem
væntanlega verða teknar
stefnumarkandi ákvarðanir
varðandi málflutning og
vinnubrögð i þeim viðræðum,
sem framundan eru við at-
vinnurekendur og ef að likum
lætur við stjórnvöld.
Auðsætt er, að erfitt verður
fyrir verkalýðshreyfinguna og
samtök atvinnurekenda að
gera kjarasamninga af viti,
nema stjórnvöld eigi beinan
eða óbeinan hlut að máli. Þeg-
ar þessa er gætt, er vist öllum
ljóst, að vandi launþegasam-
takanna er ærinn, enda er
reynsla þeirra af núverandi
rikisstjórn ekki slik, að hún
veki mikið traust.
F ræðslustarfsemi
verkalýðsfélaganna
vekur athygli
Félagsmálaskóli Alþýðu er
starfræktur i Olfusborgum,
skammt frá Hveragerði. Skólinn
er starfræktur af Menningar- og
fræðslusambandi Alþýðu (MFA)
en framkvæmdastjóri þess er
Stefán ögmundsson. Skólanum
veitir forstöðu Bolli Thoroddsen
og hafði Alþýðublaðið samand við
hann i gær út af starfsemi skól-
ans.
Bollisagði m.a.: „Skólinn hófst
sunnudaginn 2. nóvember s.l. og
er áætlað að hann starfi til 15.
þ.m. Þátttakendur eru nú 16 tals-
ins frá 12 verkalýðsfélögum viðs-
vegar að af landinu, en hámarks-
fjöldi þátttakenda er 20.”
Þá var Bolli Thoroddsen spurð-
ur um námsefnið og kennslutil-
högun. Meðal námsgreina nefndi
hann: (1) skipulag verkalýðs-
hreyfingarinnar, (2) fjármál og
rekstur, (3) félagsstörf og
fundarstörf, (4) ræðugerð og
flutningur, (5) alþjóðasambönd,
alþjóðastofnanir, og tengsl þeirra
við Alþýðusambandið, (6) saga
verkalýðshreyfingarinnar, (7)
vinnulöggjöfin, (8) heilbrigði og
öryggi á vinnustöðum, (9)
trúnaðarmaðurinn á vinnustað,
(10) áhrif isl. verkalýðshreyfing-
ar á isl. stjórnmál, (11) félags-
málaþróun, (12) samningamál og
samningatækni.
Þá sagði Bolli: „Við leggj-
um áherzlu á mikla hópvinnu
þannig að fólkið starfi sem mest
sjálft. Að visu koma hingað
margir leiðbeinendur, eða rúm-
lega tuttugu talsins. Þessir leið-
beinendur opna málin með lengri
eða skemmri inngangsorðum.
Siðan eru málin tekin til umræðu
annað hvort i hópnum sem heild
eða honum er skipt upp i smærri
umræðuhópa.”
Meðal viðfangsefna skólans er
einnig listkynning og bókmennta-
kynning. Sagði Bolli að þeir hefðu
tekið nokkur kvöld til þeirra
hluta. M.a. hefði Hjörleifur
Sigurðsson forstöðum. Listasafns
ASl komið og kynnt myndlist,
Svava Jakobsdóttir hefði komið
og lesið úr verkum sinum og einn-
ig hefðu þeir haft kvikmynda-
kvöld, þar sem isl. kvikmynda-
gerðarmaður, Þorsteinn Jónsson,
hefði sýnt þrjár myndir sem hann
hefði gert. Augljóst má vera af
þessu að skólinn reynir að hafa
sem mesta fjölbreytni i allri
starfsemi sinni.
Um starfsdaginn sagði for-
stöðumaður skólans þetta: „Við
byrjum á morgnana klukkan 9 og
vinnum nánast sleitulaust þar til
kl. 6, að sjálfsögðu með matar-og
kaffihléum. Svo þegar við erum
með eitthvað á kvöldin þá hefst
það'kl. 8.30 og stendur oft fram
undir miðnætti.”
Um fjármálin og fjármögnun
starfseminnar sagði Bolli
Thoroddsen: „Verkalýðsfélögin
greiða fæðis- og uppihaldskostnað
fyrir fólkið, auk þess ferðakostn-
að og vinnulaun, sem eru miðuð
við dagvinnu. MFA leggur hins-
vegar til kennslugögn, en ASl
leggur fram kennsluhúsnæðið og
laun til leiðbeinenda.”
Hvernig eru þátttakendur vald-
ir? „Þetta gerist með þeim hætti
að nokkru áður en skólinn hefst
eru send út bréf til allra verka-
lýðsfélaganna á landinu og þar
gerð grein fyrir námsefni og allri
starfstilhögun. Verkalýðs-
félögunum er þar gefinn kostur á
að koma fólki hingað i skólann, en
hámarksfjöldi sem við tökum er
20.”
Þegar forstöðumaður var
spurður um áframhald starfsem-
innar, árangur og hugsanlegar
breytingar, sagði hann á þessa
leið: „Þetta er i annað sinn sem
skólinn starfar. Hann hóf starf-
semi sina i vetur, i febrúar. Þá
byrjuðum við með, það sem við
höfum nefnt, fyrstu önn. 1 þetta
skipti er einnig starfandi fyrsta
önn. Siðar i vetur, sennilega i
febrúar, hugsum við okkur að
halda aðra önn og gefa þá þeim
sem sótt hafa 1. önn kost á að
sækja 2. önn, en starfstimi hverr-
ar annar er tvær vikur.Við höf-
um i hyggju að vikka út starfið,
auka fjölbreytnina og læra af
reynslunni.”
Forstöðumaður taldi að húsa-
kynni þarna i ölfusborgum væru
mjög heppileg fyrir þessa starf-
semi. Þeir hefðu breytt vinnu-
skálum þannig að þar væri mjög
heppileg aðstaða fyrir skólann,
þ.e.a.s. fyrir þennan f jölda. Einn-
ig kom fram að þeir teldu ekki
heppilegt að hafa fleiri en 20
hverju sinni, það væri sem sagt
mjög heppileg stærð til þess að
góður árangur næðist.
Að lokum sagði Bolli að sér
virtist fólkið sem þarna dveldi
væri mjög ánægt með skólann og
sama væri að segja um þá sem
stæðu fyrir starfseminni. Fyrir
þá væri einnig margt að læra og
margar góðar ábendingar kæmu
einmitt frá þátttakendunum.
Hann kvaðst vonast til að skólinn
gæti þróazt eðlilega og vikkað
smátt og smátt út starfsemi sina
þannig að hann kæmi að sem
beztum notum fyrir verkalýðs-
félögin og það fólk sem er virkt i
félagsmálastarfinu.
angarnir
Teppahreinsun
llreinsum gólfteppi og húsgögn I
hcimahúsum og íy rirlækjum.
Eruin meft nýjar vélar. Góft þjón-
usta. Vanlr menn.
SIGFÚS BIRGIR
82296 40491
Útvarps.og
sjónvarpsviðgerðir
Kvöld og helg-
arþjónusta.
10% afsUttur til
öryrkja og aldr-
aftra.
SJÓNVARPS-
VIÐGERÐIR
Skúlagötu 26 —
slmi 11740.
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 74200 — 74201
Dúnn i GlflEflBAE /íml 64900
T-ÞÉTTILISTINN T-LISTINN ER in.igreyptur og C3 ! .
þolir alla veðráttu. LBU'
TLISTINN A:
úlihurðirsvalahurðir
hjaraglugga og VL'
\eltiglugga l - --^JB
CluooaimlO|an «*>"*u*o K - hn>< JJTK 1 1— J