Alþýðublaðið - 16.03.1976, Side 10
lO STJORNMÁL ____________________________Þriðjudagur 16. marz 1976 blSófó
Otgefandit Alþýöuflokkurinn. Rekstur:
Reykjaprent hf. Tæknilegur fram-
kvæmdastjóri: Ingólfur Steinsson. Rit-
stjóri og ábyrgðarmaöur: Arni Gunnars-
son. Ritstjóri: Sighvatur Björgvinsson.
Ritstjórnarfulltriii: Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórnar er I
5 iðumúla 11, simi 81866. Auglýsingar: simi 28660 og 14906. Prentun:
Blaðaprent h.f. Áskriftarverð: 800 krónur á mánuði og 40 krónur i
liusasölu.
Verkalýðspólitík og vinstri hreyfing
Alþýðuflokkurinn minntist 60 ára afmælis síns
með miklum myndarbrag um sl. helgi. A laugar-
daginn var haldinn sérstakur f lokksstjórnarfundur
þar sem lögð var fram tillaga að nýrri stefnuskrá
fyrir Alþýðuflokkinn. Drög að þessari stefnuskrá
voru samin fyrir síðasta þing Alþýðuflokksins, sem
haldið var á s.l. hausti. Fjölmargar breytingatillögur
bárust við stefnuskrárdrögin á f lokksþinginu og var
samþykkt að fela flokksstjórninni að endurskoða
texta stefnuskrártillögunnar með hliðsjón af þeim.
Því verki er nú lokið og var stefnuskrártillagan í
þeirri mynd rædd á flokksstjórnarfundinum s.l.
laugardag. Á þeim fundi var svo ákveðið að senda
tillöguna eins og hún liggur fyrir til meðferðar í
flokksfélögunum og hefur stefnuskrártillagan verið
sérprentuð í þeim tilgangi. Á næsta reglulegu þingi
Alþýðuflokksins, sem haldið verður næsta haust,
verður hin nýja stefnuskrá svo endanlega afgreidd
og verður hún einhver sú ítarlegasta og umfangs-
mesta stefnuskrá, sem Alþýðuf lokkurinn hefur sett
sér.
Á sunnudaginn var svo haldið hið eiginlega
afmælishóf Alþýðuflokksins. Hófið var haldið í
Súlnasal Hótel Sögu og var salurinn þéttskipaður
Alþýðuf lokksfólki. Á hátíðinni voru flutt ávörp og
ræður forystumanna flokksins fyrr og nú og fjöl-
margar kveðjur og árnaðaróskir bárust bæði frá inn-
lendum aðilum og bræðraf lokkunum erlendis. Þótti
Alþýðuf lokksmönnum vænt um allar þessar
árnaðaróskir en þó yljaði hún okkur mest
bróðurkveðjan frá Alþýðusambandi íslands,
tviburasamtökum Alþýðuflokksins, sem í heilan
aldarf jórðung voru skipulagslega samgróin Alþýðu-
f lokknum og hafa ávallt síðan verið nátengd Alþýðu-
f lokknum.
Stofnun Alþýðuflokksins varð á sama stað og
samri stundu og stof nun Alþýðusambands íslands og
ávallt haf a þessi tvö alþýðusamtök átt samleið. Þrátt
fyrir hörð átök milli einstakra skoðanahópa, sem
leiddu í eina tíð til þess að svo virtist sem alger
klof ningur ætlaði að verða í hinni faglegu hreyf ingu
verkafólks, tókst þó að afstýra slíkum ótíðindum og
varðveita samheldni hinnar faglegu hliðar verka-
lýðsbaráttunnar innan Alþýðusambands islands.
Hefur styrkur ASí stöðugt farið vaxandi unz nú er
svo komið, að Alþýðusambandið er eitt máttugasta
framfaraaflið í samfélagi okkar — samtök, sem
sækja f ram til aukinna áhrifa á öllum sviðum og vart
verða sniðgengin þegar leysa á erfið vandamál
þjóðarbúsins.
Agreiningurinn á milli hinna pólitísku af la á vinstri
væng íslenzkra stjórnmála er enn fyrir hendi. En þær
aðstæður eru nú í þjóðfélaginu að líkur ættu að vera
til þess, að vinstri öf lin gætu starfað meira saman nú
en oft áður. Að f rumkvæði ASI hafa í haust og vetur
átt sér stað sameiginlegir viðræðufundir milli full-
trúa ASI, fulltrúa Alþýðuflokksins og fulltrúa
Alþýðubandalagsins. Á þessum fundum hefur ekki
verið rætt um neins konar sameiningu hinna pólitísku
vinstri fylkinga— grundvallarágreiningur jafnaðar-
manna og kommúnista er of mikill til þess að hún
geti verið á dagskrá — heldur samstarf þessara aðila
um að standa vörð um líf skjör og réttindi alþýðunnar
í óðaverðbólgu undir ihaldsstjórn. Að áliti þessara
aðila og þá ekki hvað sízt Alþýðusambands Islands er
nú nauðsynlegt að hinar stríðandi f ylkingar á vinstri
væng stjórnmálanna slíðri nú sverð sín um hríð og
snúi baráttunni að sameiginlegum andstæðing
alþýðu manna. Af því samstarfi, sem tekizt hefur
milli þessara aðila, hefur nú þegar orðið umtals-
verður árangur m.a. með því að það hefur styrkt
mjög stöðu Alþýðusambands Islands og því geta
menn gert sér vonir um, að enn frekari ávinningur
geti af því hlotizt.
Jafnaðarmenn og kommúnistar hafa ekki leyst
ágreiningsefni sín Þau hafa aðeins verið lögð til
hliðar um sinn vegna þess að eins og sakir standa
þarf alþýða þessa lands á því að halda, að þeir, sem
bera hag hennar f yrir br jósti, reyni að hafa við hana
samstarf um leiðir í efnahags- og kjaramálum.
Alþýðuflokkurinn vill fúslega taka þátt í viðræðum
um slíkt jafnvel þótt hann sé jafn ákveðinn í því nú
og áður að koma í veg fyrir f ramsókn kommúnisma
á Islandi og greini jafn mikið á við kommúnista um
grundvallarafstöðu í stjórnmálum og ávallt hefur
verið.
alþýðu-
blaöið
Alþýðuflokksfélögin í
Reykjaneskjördæmi halda
AFMÆLISHÁTlÐ
í félagsheimilinu Festi, Grindavík,
laugardaginn 20. marz klukkan 19:30
Benedikt
Kristln
Jón Ármann
Emil
ALÞYÐU-
LOKKURINN
10 ÁRA
n
Sætaferöir:
Frá Keflavik kl: 18:45
Frá Njarövik 19:00
Seltjarnarnesi 18:15
FráKópavogi 18:30
Frá Garðabæ 18:30
Frá Hafnarfirði 18:30
GESTIR:
Benedikt
Gröndal
Kristín Guð-
mundsdóttir
Jón Ármann
Héðinsson
Emil Jónsson
Ragnar
Guðleifsson
Svavar Árnason
Veizlu-
stjóri:
Hrafnkell
r
Asgeirsson
Skemmtiatriði
Þjóðlagatríóið Þremill
Fjöldasöngur
Happdrætti
Miðaverð kr. 2500 og
sætaferðir innifaldar
Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar
Selfossi, leikur fyrir dansi
Miðasala og upplýsingar
á eftirtöldum stöðum:
Grindavfk — Jón Hólmgeirsson, s. 8058
Sandgerði — Brynjar Pétursson, s. 7599
Keflavik — Óli Þór. s. 1240
Njarðvik — Guðjón Helgason, s. 2821
Hafnarfjörður — Gissur V. Kristjánsson, s. 50216
Garðabær, — Orn Eiösson,
Kópavogur — Steingrimur Steingrimsson, s. 43981
Seltjarnarnes — Guðlaugur Árnason, s. 25656
Ennfremur á skriftofu flokksins i Reykjavik.
Húsið
opnað
klukkan 19
Veitingar á
staðnum