Alþýðublaðið - 16.03.1976, Síða 13
OR VMSUM ATTUM 13
alþýðu-
blaðíð Þriðjudagur 16. marz 1976
Fjölgun háskólamenntaðra manna
oooooo
OOQ#A#
•TOOOO
OOOOOO
ooo#o«
MÁLCAGN bandalags háskólamanna
BHM
Fjölgun háskóla-
menntaðra manna.
t málgagni Bandalags há-
skólamanna kemur fram, að
samkvæmt könnun, sem gerð
var á síðastliðnu sumri, hafi há-
skólamenntaðir Islendingar
verið um 5000 um sfðustu ára-
mót. Þá er áætlað, að um ára-
mótin 1980/81 verði þeir um
7400.
Háskólamenntuðum Islend-
ingum hefur fjölgað mun örar
en Háskólanefnd áætlaði 1968. 1
áætlunumnefndarinnar var gert
ráð fyrir, að háskólamenntuð-
um mönnum fjölgaði um 6—7%
að meðaltali á ári timabilið 1968
til ’85.
Samkvæmt nýgerðri talningu
og áætlun fram til 1980 kemur
hins vegar iljós, að fjölgunin er
að meðaltali 8,5% á ári á tfma-
bilinu 1968 til 1980. Sé þessi
fjölgun borin saman við fjölgun-
ina i Danmörku kemur í ijós, að
hún er mun örari hér á landi.
Veldi gömlu náms-
greinanna fer minnk-
andi.
Sé athuguð skipting háskóla-
menntaðra tslendinga i náms-
greinar á timabilinu 1968 til ’80
kemur i ljós, að veldi hinna
gömlu virðulegu nánsgreina,
eins og guðfræði, lögfræði og
læknisfræði fer siminnkandi.
Þannig voru guðfræðingar
6,6% af heildarfjölda háskóla-
menntaðra manna 1. nóvember
1968, en við áramót áramót
1980—’81 er áætlað, að þeir verði
aðeins 3,3% af heildarfjöld-
anum. Asama timabili minnkar
hlutur lögfræðinga úr 17,4% i
11% og lækna úr 16,8% i 11%.
1 árslok 1975 var gert ráð fyr-
ir, að háskólamenntaðir menn
væru 5000. Það er um 67% aukn-
ing frá 1970 og 79% aukning frá
1968.
Tímamót hjá
Slipp- stöðinni
á Akureyri
1 leiðara Islendings á Akureyri
er fjallað um merkan þátt i
starfi Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri. Stöðin hleypti fyrir nokkru
af stokkunum nyju skipi. Segja
má, að þessi atburður marki
nokkur timamót i sögu þessa
mikilvægafyrirtækis fyrir norð-
lenzkar skipasmiðar og skipa-
viðgerðir.
Slippstöðin hefur að undan-
förnu smiðað svonefnda vertið-
arbáta, 100 til 150 tonn, og náð
mjög verulegum árangri i auk-
inni ráðsmiði þessara báta.
Fyrir nokkru var söðlað um I
þessuefni og hafin smiði skipa,
sem eru bæði skuttogarar og
nótaskip, en sú gerð skipa er al-
gjör nýund hér á landi
Segir blaðið þessa nýjund at-
hyglisverðarien ella vegna þess
að nauðsynlegt sé að geta stund-
að f jölbreyttar veiðap, til dæmis
togveiðar og loðnuveiðar, til
þess að hægt sé að reka útgerð á
hagkvæman hátt. Þetta frum-
kvæði Slippstöðvarinnar á
Akureyri beri þvi vitni, að
stjórnendur stöðvarinnar hafi
gert sér grein fyrir þvi hvemig
horfi i fiskveiðum Islendinga og
hafi þeir miðað stefnu fyrirtæki-
sins við það.
Jarðskjálftaspá
bjargaði íbúunum
1 fréttabréfi frá kinverska
sendiráðinu i Reykjavik segir
frá atburði, er hafi verið krafta-
verki likastur. Þetta gerðist i
Tingchiakou—framleiðslufylk-
inu i Haichenghéraði i
norð—austur Kina.
Fyrir tiu mánuðum varð jarð-
skjálftiá svæðinu, sem mældist
7,3 stig. Enginn þeirra liðlega
800 manna,sem búa iframleið-
slufylkinu fórust eða slösuðust.
Vegna nákvæmrar forspár
reyndist þetta unnt. Ibúarnir
fengu viðvörun timanlega frá
jarðfræðingum.
Flest húsanna i fylkinu
hrundu, en þau voru aðeins i um
fjögurra kólómetra fjarlægð frá
upptökum skjálftans. Grjót-
varnargarðar hrundu og miklar
skemmdir urðu á áveitu-
tækjum.
Nú hefur allt verið endurreist
og landbúnaðarframleiðsla
aukiztfrá þvi sem hún áður var.
Þessar fréttir frá Kina leiða
hugann að þeim ráðstöfunum,
sem hér hefur verið gripið til
vegna yfirvofandi eldgosa.
Mikilvægt er, að veita jarðvis-
indamönnum alla nauðsynlega
aðstoð I þessu starfi. — Þeir,
sem sáu merkilega og vel gerða
sjónvarpsmynd frá Vik i Mýrdal
i sjónvarpinu á sunnudags-
kvöld, hljóta að hafa sannfærzt
um mikilvægi þess viðvörunar-
kerfis, sem á með nokkrum fyr-
irvara að geta boðað Kötlugos.
TEPPALAGÐIR SKÓLAR
ERU STÓRHÆTTULEGIR
Auka mjög hættu á ofnæmi oq astma
Astmafélagið i Dan-
mörku hefur nú beint
athyglínni að þeim skólum
sem teppalagðir eru horna
á milli.
Að vísu er öll hrein-
gerning auðveldari í slíku
húsnæði, en grunur leikur á
að það geti um leið verið
mjög heilsuspillandi.
Formaður danska Astma-
félagsins, dr. Jörgen Lorenzsen,
Flokksstarfid
Trúnaðarmannaráð
Alþýðuf lokksfélags
Reykjavíkur
heldur fund i kvöld, þriðju-
daginn 16 marz kl. 20,30, að
Hótel Esju.
Fundarefni: Iðnaðarál.
Frummælendur: Gissur
Simonarson, húsasmiða-
meistari og Kjartan Jó-
hannsson, varaformaður
Alþýðuflokksins.
Allt Alþýðuflokksfólk vel-
komið. — Stjórnin.
Samband ungra
jaf naðarma nna og
Félag ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík
hafa ákveðið að ráða til sin
starfsmann. Auglýsist það
starf hér með laust til
umsóknar.
Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur Bjarnason, i sima
74834. Umsóknum skal skilað
til skrifstofu Alþýuflokksins,
Hverfisgötu 10, fyrir kl. 17 n.k.
föstudag.
íþróttatími i Austur-
bæjarskólanum
klukkan 7 siðdegis á fimmtu-
daginn. — FUJ.
hefur einkum bent á að slik
teppalagning geti haft alvarleg
áhrif á astmaveik börn.
En i 30 barna bekk finnast að
jafnaði 2-3 með astma eða snert
af honum.
Rannsóknir
i Sviþjóð:
Sviar hafa einnig tekið þetta
mál til meðferðar. Þeir hafa hafið
rannsókn á þvi, hvort ryk úr
teppum sé gætt lifandi næringar-
efnum svo, sem proteinum.
Sé svo, má gera ráð fyrir að
allskyns sýklar og bakteriur lifi
góðu lifi i teppunum og skapi stór-
aukna ofnæmis- og astmahættu.
Vörubílstjórafélagið Þróttur,
stjórnarkjör 1976
Hér með er auglýst eftir listum um stjórn,
varastjórn, aðalmenn og varamenn í trún-
aðarmannaráð. Framboðsfrestur er til kl. 17
fimmtudaginn 18. marz 1976. Tillögum skal
skilað á skrifstofu félagsins og þurfa að Jylgja
hverri tillögu meðmæli minnst 11 fullgildra
félagsmanna.
Kjörstjórn.