Alþýðublaðið - 13.05.1976, Qupperneq 1
■ ■
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ
Fer EFTA bak-
dyramegin inn
í EBE? Bls. 3
Hverjir eru eiginlega þessir
sjöunda dags aðventistar?
Hverjir eru sjöunda dags aöventistar —
og i hverju er boðskapur þeirra frábrugö-
inn boðskap annarra kristinna safnaöa?
Alþýöublaðið hefur leitað svara ýmissa
safnaöa við ýmsum meginspurningum.
Sjá opnu.
I3S1
l
Þúsundir hafa látið lífið í
jarðskjálftum síðustu ár
Jarðskjálftar i Evrópu er siður en svo
nokkurnýlunda. A siöustu árum hafa þús-
undir manna látið lifiö af völdum þessara
náttúruhamfara og hálf milljón manna
misst heimili sin.
Sjá blaðsíðu 6.
VC
□a
Kristján og Haukur hafa ekkert
að fela
Við höfum ekkert að fela, og viljum að
mál okkar verði rannsökuð fyrir opnum
tjöldum, segir Kristján Pétursson,
deildarstjóri, sem sakaður hefur verið um
að fara út fyrir valdsvið sitt.
Sjá baksíðu.
E
DC
jq.
l±'?i____
Mannréttindi gæzlufanganna
voru fótum troðin
Ekki var látið nægja að brjóta lög um
meðferð gæzlufanga á þeim mönnum,
sem nú hafa verið látnir lausir — heldur
hefur á gróflegasta hátt verið misboðið
heilsufari þeirra. I Siberiu fá fangarnir
a.m.k. að koma út Sjá Opnu
;[
d3C
Skipulagslaus ágangur
Siðustu áratugi hefur einn fegursti blettur
Reykjavikurborgar verið stórlega lýttur
með skipulagslausum ágangi borgaryfir-
valda. Þetta er Elliðavogur.
Sjá forystugrein blaðsfðu 2
3
>ot
Ö
□ „Mega þakka fyrir að ekki hefur hlotizt óhapp”
ENGIN VARARAF-
STÖÐ ER VIÐ
BLÓÐBANKANN!
AlþýðublaðiO hafði samband
við þá Aðalstein Guðjohnsen,
rafmagnsstjóra og Óskar M.
Hallgrimsson hjá Rafmagns-
eftirlitinu til þess að fá upplýs-
ingar um vararafstöövar við
sjúkrahúsin og eftirlit með
þeim,
Vararafstöövar eru nú starf-
ræktar viö fjölmargar stofnanir
auk sjúkrahúsanna, s.s. við út-
varp og sjónvarp, kvikmynda-
húsin, póst og slma. Einnig eru
vararafstöövar viö ýmis
iðnaöa rfyrirtæki og stærri
verzlanir, hænsnabú og svina-
bú, svo nokkuö sé nefnt.
Viðhald stöðvanna
„upp og ofan”
Aö þvi er varöar eftirlit meö
vararafstöðvum, t.d. fyrir
sjúkrahúsin, er það að segja, aö
Rafmagnseftirlitiö framkvæmir
athugun á stöövunum á þriggja
ára fresti. Að ööru leyti ei< eftir-
litið I höndum eigendanna, eöa
þeirra, sem bera ábyrgö á
rekstrinum. Sögðu þeir aö við-
hald á þessum rafstöövum væri
þvi svona upp og ofan eftir þvl
liverjir ættu i hlut.
Blaðið haföi þvi næst sam-
band viö Bjarna Hannesson hjá
Landsspitalanum, en hann
hefur meö rafmagnsmál og raf-
stöövamál spitalans aö gera.
Bjarni sagöi aö viö spitalann
væru tvær 275 kva diesel
stöðvar, önnur sjálfvirk en hin
handinnsett. Sjálfvirka raf-
stööin fer i gang ef spennufall
veröur það mikiö á aðalrafstöð-
inni, eöa ef straumurinn frá
henni rofnar algerlega. t slikum
tilvikum væri vararafstööin
notuö þannig aö hægt væri aö
starfrækja skurðstofur og gjör-
gæzludeild. Einnig væri raf-
magn fyrir ratljós um
spítalann, lesljós, sjúkrakall-
tæki o.þ.h., sem nauðsynlegt
væri.
Engin vararafstöð
Bjarni benti á aö vararaf-
stöövarnar væru fyrir aöal-
bygginguna og fæöingardeild-
ina. Á hinn bóginn kom fram aö
engin vararafstöð er tengd
rannsóknarstofum eða Blóö-
bankanum. Sagöi Bjarni aö til
stæði að tengja vararafstöö viö
Blóöbankann, en þaö heföi ekki
veriö gert enn.
Þakka fyrir að
ekki varð óhapp
Aö lokum haföi blaöiö sam-
band viö Ólaf Jensson,lækni og
forstööumann Blóðbankans.
Sagöi hann aö hér væri þvi
miöur um algert hættuástand aö
ræöa. Sagöi hann að ef raf-
magnið færi af Blóöbankanum
mundi allt blóö og greiningar-
efni, sem þar er geymt
skemmast. Ólafur sagöist hafa
kvartaö út af þessu strax og
hann kom til starfa viö Blóö-
bankann 1972, en enn heföi
ekkert veriö gert. Mættu þeir
þakka fyrir aö hafa sloppiö viö
öll meiriháttar óhöpp til þessa.
Það er stjórnarnefnd rikis-
spítalanna, sem hefur meö þessi
má-að gera og ef til vill er helzt
viö þá aðsakast út af þeirri aug-
ljósu vanrækslu, sem hér um
ræöir. ólafur sagði aö lokum, að
unnið væri að þvl að koma
þessum málum I lag og vænti
hann þess aö vararafstöö yröi
tengd Blóöbankanum nú i
sumar. — BJ
TRILLUKARLAR t EYJUM hafa fiskað vel á færi og jafnvel stöng upp á siðkastið
— og veiðiveður enda hið bezta. Þó var aflinn nokkru tregari um helgina, og tók
þá Guðmundur Sigfússon þessa mynd i Vestmannaeyjahöfn.
Rltstjórn Sföumúla II - Sfml 8184