Alþýðublaðið - 19.05.1976, Side 7

Alþýðublaðið - 19.05.1976, Side 7
ýöu* bláöiö Miðvikudagur 19. maí 1976 VIÐHORF 7 ifnuði - 5. grein Bahá'íar ILLA ER RTUR Á U GÓÐA Bahá'í musterið í Wilmette, lllinois. Þetta musteri stendur opið fylgjendum allra trúarbragða viðleitni hans er einlæg mun hann að lokum vinna sigur. Hlutverk mannsins á jörðinni er að vinna að siframsækinni menningu og öðlast þekkingu á sjálfum sér. Þekking á sjálfi mannsins er lögðað jöfnu við þekkingu á Guði. Bahá’iar trúa þvi að mannssálin sé ódauðleg og að þekkingarleit hennar ljúki ekki með þessu jarð- lifi heldur sé eilif og óþrotleg. Þeir hafna kenningu kirkjunnar um erfðasyndina. Menn fæðast i þennan heim flekklausir og án syndar. Syndin birtist fyrst og fremst i þvi að maðurinn gerir ekki meðvitaða tilraun til að öðl- ast þekkingu á Guði og eigindum Hans — samúð, kærleika, réttlæti o.s.frv. Það er fyrst þegar maðurinn hefur öðlast þessar eigindir af eigin viðleitni sem hann getur með rétti haldið þvi fram að hann sé skapaður i mynd Guðs. Bahá’iar trúa ekki á sjálf- stæða tilvist hins illa. Hið illa er skortur á hinu góða eins og t.a.m. myrkur er skortur á ljósi. Bann við rógi og baktali Meðal siðaboðorða trúarinnar er bann við áfengisneyzlu og eiturlyfja og bann við rógi og bak- tali i öllum þess myndum. Bahá’iar eru skyldaðir til skirlif- is, kynlif utan hjónabands er for- dæmt og hjónabandið talið heilög stofnun, sem, ef vel tekst til, rofnar ekki við likamsdauðann heldur er eilift og órjúfanlegt. t Bahá’i trúnni er engin presta- stétt og engar helgiathafnir, Bahá’iar hvorki skira né ferma börnsin.Eini helgisiðurinn innan trúarinnar er lestur daglegrar skyldubænar. Samkomur Bahá’ia eru stjórnarfarslegs og félags- legs eðlis og þær hefjast jafnan með lestri sérstakra bæna og ritningargreina, en mikil áherzla er lögð á bænagerö. 1 Trúnni eru engir „forstöðumenn”. Stjórn- kerfið byggist á niu manna ráð- um, sem kosin eru árlega og hafa aðeins vald sem slik, en einstakir meðlimir þessara ráða hafa ekk- ert vald né umboð utan funda ráðsins. Frá Persíu Sp. Hvarer Bahá’i trúin upprunn- in og hverjir eru höfundar hennar? Sv. Bahá’i trúin er upprunnin i Persiu. Arið 1844 kom þar fram a sjónarsviðið ungur maður, sem nefndi sig Báb (Hliöið) og kvaðst hafa verið sendur af Guði til að ryðja braut miklum mannkyns- fræðara, sem sameina myndi all- Til íslands ar þjóðir i réttlátum friði. Kenn- ingar Bábsins fóru eins og eldur i sinu um landið allt og samtimis hóf Qajár-keisaraættin persneska blóðugar ofsóknir á hendur Bábn- um og fylgismönnum Hans. Talið er að milli 20—30.000 manns hafi liðið pislarvætti fyrir þessa trú. Bábinn var um fimm ára skeið i fangelsum viða um Persiu og árið 1850 var hann liflátinn á torginu i Tabriz-borg i S.-Persiu. Meðal fylgjenda Bábsins var persneskur aðalsmaður, Báhá’u’lláh, að nafni, sem borinn var til mikilla auðæfa og mann- virðinga. Eftir dauða Bábsins kunngerði Hann, að Hann væri sá sem Bábinn hefði boðað. Bahá’u’Uáh var þegar i stað svift- ur öllum eigum sinum og gerður útlægur, fyrst til Konstantinópel, þaðan til Adrianópel og loks til fangelsisborgarinnar Akká i Sýrlandi, en hún tilheyrir nú Israel. Bahá’u’lláh var fangi og útlagi i samfleytt 40 ár. 1 útlegð- inni ritaði Hann mikinn fjölda rita, þar sem Hann leggur grund- völlinn að nýju hejmsskipulagi, segir fyrir fall konungsveidanna i Evrópu. Tyrkjasoldáns og Qa jár-keisaraættarinnar og báðar heimsstyrjaldirnar. Bahá’iar lita á öll rit Hans sem guðlega opinberun. Eftir Hans dag tók elzti sonur Hans, 'Abdu’l-Bahá, við stjórn Bahá’i-trúarinnar og færði hana m.a. til Vesturlanda. Bahá’iar lita á ’Abdu’l-Bahá sem æðstu fyrirmynd sina, holdtekju grand- vars og flekklauss lifernis. Eftir ’Abdu’l-Bahá mótaði dóttursonur hans,Shoghi Effendi, stjómstofn- anir trúarinnar og kom þeim i fastar skorður. Nokkru eftir lát hans (1957) var æðsta stjómstofn- un trúarinnar, Allsherjar hús Réttvisinnar, sett á fót. Absetur hennar erá Karmel-fjalli á Haifa og hún hefur á hendi löggjafar- vald I málefnum trúarinnar. henni frá Bahá’i trúnni. Hólm- friður þýddi siðar á islenzku bók- ina „Bahá’u’lláh og nýi timinn” eftir J.E. Esslemont, en sú bók er ef til vUl viðfrægast kynningarrit um Bahá’i trúna. Nokkru seinna kom hingað annar bandariskur Bahá’í, Martha Root, og flutti þá erindi um trúna i útvarp. A árun- um milli 1950-60 komu hingað nokkrir erlendir brautryðjendur, en brautry ðjendur eru þeir Bahá’iar nefndir, sem flytja úr heimahögum sinum til að kenna trú sina i öðrum héruðum eða löndum. Hérer ekki um trúboð að ræða i venjulegum skilningi, þar sem fólk þetta er ólaunað og gengur að venjulegum störfum og boðar ekki trú sina heldur kennir hana i þeirri von að menn haldi áfram að rannsaka hana upp á eigin spýtur. 1 byrjun sjötta ára- tugsins voru hérlendis um 20 Bahá’iar, flestir erlendis. 1 byrjun sjöunda áratugsins hófst skyndilegur vöxtur trúarinnar. Arið 1971 var haldin hér i Reykja- vik Bahá’i ráðstefna og frá þeim tima hafa nær 500 manns játast þessari trú en margir þeirra'eru ekki virkir i starfsemi hennar. Ekki trúboð Starfsemi Bahá’i trúarinnar er fólgin fyrst og fremst i kynningu hennar i ræðu og riti og i upp- oyggingu stjórnkerfisins. Bahá’i- ar hafa ekki leyfi til að halda trú sinni að fólki, sem augsýnilega vill ekki fræðast um þessi trúar- orögð. Af þessu leiðir að Bahá’i- am er oftar en hitt borið á brýn að aalda trú sinni litt á lofti. Ýmsar þær tilraunir sem Bahá’iar hafa gerttil að kynna meginkenningar ■rúarinnar i blöðum og útvarpi iafa mistekizt, þar sem sá mis- skilningur er algengur að hér sé jm enn einn „söfnuðinn” að ræða, sem þar að auki sé af austurlenzkum toga spunninn og muni þvi ekki vekja áhuga al- mennings. Einnig hefur örlað á þeim misskikiingi að Bahá’i trúin sé sértrúarflokkur úr Islam, sem sr ámóta satt og ef sagt væri að kristnin sé sértrúarflokkur úr Gyðingdómi. Andlegt þjóðráð Hér á Islandi sem annarstaðar vinna Bahá’iar að þvi að byggja upp stjórnskipulag trúarinnar, sem grundvallast á svonnefndum Andlegum Svæðisráðum, skipuðum niu mönnum, og eru þau fjögur talsins hérlendis — i Reykjavik, Hafnarfirði, Njarð- víkum og Keflavik. Svonefnt And- legt Þjóðráð annast samræmingu og skipulagningu þessa starfs og er það einnig skipað niu fulltrúum samfélagsins. Slik Þjóðráð eru starfandi i 124löndum heims. Yfir þeim erAUsherjarhús Réttvi'sinn- ar i Israel, sem fyrr var nefht. Bahá’iar vinna kerfisbundið að framgangi trúarinnar i áætlun- um. Núna stendur yfir fimm ára áætlun trúarinnar, en markmið Sp. Hvernig barst þessi trú til Islands og hvernig er starfsemi hennar háttað hér? Sv. Arið 1908 var Bahá’i trúin fyrst nefnd opinberlega hér- lendis. 1 grein sem Þórhallur Bjarnason, biskup, ritaði i Nýja Kirkjublaðið, nefndi hann Bahá’u’lláh „Messias Persa- lands” og þótti athyglisvert að austurlenskur maður skyldi hafa getað höndlað, kjarna kristinnar trúar. Mörgum árum siöar (1924) kom hingað bandariskur Bahá’I, Amelia Collins að nafni. Hún hitti að máli Hólmfríði Arnadóttur, safnvörð að Hnitbjörgum, lista- safni Einars Jónssonar, og sagði íslenzkir og erlendir þátttakendur í Bahá’í ráðstefnu í Færeyjum sumarið 1974 hennar hér á Islandi eru m.a. niu Andleg Svæðisráð og frekari kynning á málstað Bahá’ia. Is- lenzka Bahá’i' samfélagið var i þessari áætlun gert ábyrgt fyrir útbreiðslu trúarinnar iFæreyjum og þar eru núna átta islenzkir brautryðjendur. Andlegt Svæðis- ráð er starfandi I Þórshöfn i Fær- eyjum. Leggja áherzlu á úrsögn úr þjóðkirkjunni FjárreiðumBahá’i trúarinnarer þannig háttað, að hún þiggur ekki fé eða styrki i neinu formi nema frá yfirlýstum Bahá’ium og er þvi óháð utanaðkomandi aðilum. Bahá’i'ar standa þannig sjálfir fjárhagslega undir allri starfsemi trúarinnar. Fjárframlög þeirra eru leynileg og yfirleitt ekki á vit- orði neins nema gefandans. Bahá’iar starfa nú samkvæmt ákvæðum nýrrar löggjafar um trúfélög utan islenzku Þjóð- kirkjunnar, sem Alþingi sam- þykkti á siðasta ári. Samkvæmt þessum nýju lögum má enginn tilheyra samtimis fleirum en einu trúfélagi eða trúarbrögðum. Aherzla er þvi lögð á það, að allir Bahá’iar á íslandi segi sig úr Þjóðkirk junni, enda eru þessi lög i fullu samræmi við kenningar Bahá’i' trúarinnar um eina alls- herjartrú. Eins og sakir standa munu um 25% islenzkra Bahá’ia hafa sent yfirvöldum úrsagnir sinar úr Þjóðkirkjunni. _bj

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.