Alþýðublaðið - 25.05.1976, Page 6
6 FRÉTTIR
Verðlækkun
í Hofi!
Þar sem garndeildín
hættir, eru 30 tegundir
af prjónagarni á
lækkuðu verði og af-
sláttur af hannyrða-
vörum.
Hof
Þingholtsstræti 1.
VIPPU - BltSKORSHÖRÐlH
Lagerstærðir miðað við múrop:
ÍJæð;210 srr. x breidct: 240 sm
3*0 - x - 270 sm
Aðrar starrðir. smiSaðar eftir belðné
GLUGt%AS MIÐJAN
, Siftumúla 20, slmi 28220 _
TROLOFUNARHRINGARr,
* Fljót afgreiðsla.
V
Sendum gegn póstkröfu
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsciiður, Bankastr. 12
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
INN Á
HVERT HEIMILI.
Þriðjudagur 25. maí 1976. blai
Iþýðu-
laoið
Þátttakendur á Laugamóti Skólastjórafélags islands. Myndina tók Vigfús Sigurgeirsson, á Akureyri í
sambandi við lokahóf, sem þáverandi menntamálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gislason, hélt mótsgestum.
Kynningarmót skólastjóra og
yfirkennara grunnskólanna
Fímmta fræöslu- og
kynningarmót Skóla-
stjórafélags fslands, fyr-
ir skólastjóra og yfir-
kennara í grunnskólanum
verður haldið á Isafirði, í
menntaskólanum (Eddu-
hótelinu) dagana 20.-25.
júní n.k.
Dagskrá:
Mótið verður sett að kvöldi
þess 21. júnl, en strax á
mánudagsmorguninn hefst
flutningur erinda. Inngangs-
erindi flytur Höröur Lárusson
deildastjóri skólarannsóknar-
deildar menntamálaráðuneytis-
ins um nýju námskrána fyrir
grunnskólann, sem væntanleg
er á þessu ári. Ennfremur mun
Reynir Bjarnason námstj. fjalla
um sama mál. Ólafur Proppé
námstjóri ræöir um námsmat.
Gurli Doltrup námstjóri I
dönsku flytur erindi um kennslu
erlendra tungumála i grunn-
skóianum. Helgi Jónasson
fræðslustjóri Reykjanesum-
dæmis flytur erindi um hlutverk
fræðsluskrifstofu og Kristján
Ingólfsson fræðslustjóri Austur-
lands mun kynna nýjar reglu-
gerðir um grunnskólann, sem
eru sem óðast að koma út. Loks
mun fil. lic. Magnús Gislason
rektor Lýðháskólans I Kungalv i
Sviþjóð flytja erindi um sænsk
skólamál.
Þátttekendur mótsins
skiptast I starfshópa og fyrir-
spurnir og umræöur verða að
loknum erindaflutningi.
Aðalfundur S.í.hefst á mánu-
daginn og lýkur á föstudegi.
Kynnisferðir og kvöldvökur
hafa ávallt verið mikill og góður
þáttur I mótum félagsins. Strax
á mánudagskvöldið 21. júní
verður Vestfirðingavaka, og er
vel til hennar vandað. Jón PáJl
Halldorsson framkvæmdastjóri
flytur erindi um ísafjörð. Þá
mun tónlistarlif á Isafirði kynnt.
Þann þátt hefur form. Tón-
listarfélags ísafjaröar undir-
búið,Gunnlaugur Jónasson.
Sunnukórinn mun syngja undir
stjórn Hjálmars H. Ragnars-
sonar og ennfremur verður
hljóöfæraleikur að ýmsu tagi.
Þá verður það upplestur,
gamanþáttur.fjöldasöngur o.fl.
Vestfirðingavökunni stjórnar
Daði Ingimundarson skólastjóri
á Patreksfirði.
Föstudagskvöldið 25. júni
heldur menntamálaráðherra
Vilhjálmur Hjálmarsson móts-
gestum kvöldverðarboð. Þar
mun hann flytja ávarp en aðal-
ræðu kvöldsins flytur skóla-
meistari Jón Baldvin Hanni-
balsson. Þá munu þau hjónin
fil. lic Magnús og Britta Gísla-
son syngja einsöng og tvísöng,
en þau verða heiðursgestir
Skólastjórafélags íslands á
þessu móti. Þá verður og hljóð-
færaleikur, gamanþáttur,
fjöldasöngur og dans. Þá mun
form. félagsins Hans Jörgensen
slita mótinu og stutt ávörp flutt.
Lokahófinu lýkur svo með
dansi. Stjórnandi lokahófsins
verður Þráinn Þórisson skóla-
stjóri Skútustöðum víðMývatn.
Fimmtudaginn 24. júní munu
þátttakendur halda til
Bolungarvikur og dvelja i boði
bæjarstjórnarinnar þar, snæða
hádegisverð og skoða atvinnu-
fyrirtæki og aðrar stofnanir
undir leiðsögn bæjarstjóra Guð-
mundar Kristjánssonar. Eftir
hádegi 22’ júni verður skroppið
til Suðureyrar í Súgandafirði,
fiskvinnslufyrirtæki skoðuð þar
og drukkið siðdegiskaffi. En
hátindur kynnisferða og móts-
ins yfirleitt verður sigling um
ísafjarðardjúp með M/s Fagra-
nesinu i boði heimamanna á
Isafirði, og verður m.a. komið
við I Æðey og Vigur. Þessi
ferð verður farin miðvikudag-
inn 23. júni. kl. 19.00 ef veiður
leyfir. Loks verður ísafjörður
skoðaður undir ieiðsögn
kunnugra manna.
Þátttakendur
öllum skólastjórum grunn-
skólans,yfirkennurum og mök-
um þeirra er heimil þátttaka I
mótinu á ísafiröi. Yfir 100
manns hafa þegar tilkynnt
komu sina. Enn er hægt að
komast á mótið með þvl að til-
kynna þátttöku sina simleiðis til
form. (simar 30378— 19701) eða
ritara (42756 — 42687). Þá skal
sérstaklega tekið fram aö allir
veröa að láta skrá sig þótt þeir
sjái fyrir sér sjálfir á fsafirði og
þiggi ekki beina af hálfu móts-
stjórnar. Kennarar á Isafirði og
nágrenni eru velkomnir til þess
aö hlýða á einstök erindi, sem
flutt verða á mótinu.
Skólastjórafélag
islands 15 ára
Skólastjórafélag Islands varð
15 ára á s.l. ári en það var
stofnað 12. júni 1960. Afmælisins
hefur ekki verið minnzt, en
mótið á íslandi er m.a. þáttur i
þeim hátiðahöldum. Þá mun
blað félagsins
SKÖLASTJÖRINN koma út
prentað og i vönduðum búningi,
þar sem saga félagsins og störf
þess verða rakin i stuttu máli og
myndum. 1 tilefni af 15 ára
afmæli félagsins hefur stjórn
þess boðiö'þeim hjónum fil.lic.
Magnúsi Gislasyni og konu hans
frú Brittu, skólastjórahjónum
frá Lýðháskólanum i Kungalv i
Sviþjóð til landsins og verða þau
heiðursgestir mótsins á ísafirði.
Skólastjórafélag lsl. á hauka
I horni þar sem þau hjónin
Magnús og Britta eru. Þau tjóku
þátt i fyrsta móti félagsins 1963
og á mótum félagsins erlendis
tvisvar 1 Sviþjóð (Kungálv) og
Noregi (Tranberg) hafa þau
verið hjálparhellur, leiðbein-
endur og gestgjafar. Um 150
islenzkir æskumenn og konur
hafa verið nemendur á Lýð-
háskólanum i Kungalv frá upp-
hafi, og islenzkir skólamenn og
kennarar eru jafnan aufúsu-
gestir i KungSlv, en auk lýðhá-
skólans er Nordens Folkliga
Akademi einnig undir sama
þaki, en þangað hafa skólamenn
héðan sótt fjölda námskeiða og
eru ávallt velkomnir. Geta má
þess að Magnús Gislason var
fyrr á árum kennari á ísafirði,
skólastjóri i Skógum undir
Eyjafjöllum, námstjóri gagn-
fræðastigsins i Reykjavik og
framkvæmdastjóri Norræna
félagsins á Islandi.
Skólastjórafélag Islands er
hagsmunafélag skólastjóra og
yfirkennara einkum á grunn-
skólastigi. Félagar eru um 150
vibs vega um land allt. S.I. er
deild innan Sambands Isl.
barnakennara. Það vinnur að
fræðslu og kynningu meðal
skólastjórnarmanna og gætir
hagsmuna félagsmanna i launa
og kjaramálum. S.I. hefur
staðið fyrir alls 8 fræðslu-
fundum og mótum, að Laugum
1963 og 1970 á Laugarvatni 1966,
að Eiðum 1972 og á Isaf. 1976.
Erlendis hafa mót félagsins
verið haldin i Kungfflv, Sviþjóð
1969 og 1975 (einnig i Try á Jót-
landi) og að Tranbergi I Noregi
1971. Nær 700 manns hafa sótt
mót félagsins innanlands og
utan frá upphafi. Deild innan
S.í. rekur sumarbúðir i Bakka-
seli við Þingvallavatn
(Grafningsmegin við Haga-
vatn). Feiagið gefur út
SKÖLASTJÓRANN, blað, sem
er ýmist fjölritað eða prentað.
Stjórn Skólastjórafélags
islands:
Hans Jöregnsen skólastj.,
Rvkik. form. Vilbergur Július-
son skólastj., Garðabæ ritari,
Gunnar Guðmundsson skólastj.,
Kópavogi gjaldkeri. Meðstjórn-
endur Böðvar Stefánsson skóla-
stj., Ljósafossi, Kári Arnórsson
skólastj., Reykjavik. Óli Kr.
Jónsson yfirkennari, Kópavogi
og Rúnar Brynjólfsson yfir-
kennari, Hafnarfirði.