Alþýðublaðið - 25.05.1976, Side 7
bíaXið' jÞriðjudag
ur 25. maí 1976.
UTLÖND 7
NORÐMENN EINFALDA KERFIÐ:
Nú verða allir opinberir
bæklingar og rit skrifuð
á skiljanlegu máli
RÁÐIST TIL
ATLÖGU GEGN
KERFINU
Norska rikisstjórnin er i þann
mund að leggja fram áætlun
sem beint er gegn þvi vaxandi
skriffinnskuveldi sem plagar
Norðmenn. Þetta er byrjunin á
þvi að reyna að hreinsa til I
kerfinu, gera það heilbrigt og
einfalda stjórnun hins opinbera.
t áætluninni er gert ráö fyrir
um 50 lagabreytingum og þar af
koma um 20 þeirra þegar til
framkvæmda.
Tilgangur þessara breytinga
er sá að reyna að gera sam-
skipti hins almenna borgara við
hið opinbera eins einföld og
kostur er.
Þetta verður gert
strax.
Akvarðanir og fyrirskipanir
sem eru úreltar verða úr gildi
felldar, aðferðir við afgreiðslu
mála verða einfaldari og siðast
en ekki sizt hefur verið ákveðið
að upplýsingapésar, bæklingar
og reyndar það efni til al-
mennings sem hið opinbera gef-
ur út, verður hér eftir skrifað á
máli sem almenningur skilur.
I fyrsta áfanga verður endur-
skoðuð útgáfa á þvi efni sem
ætlað er lifeyrisþegum.
Meðal þess sem verður til að
auðvelda samskiptin og kemur
til framkvæmda á næstunni er:
Afskipti hins opinbera af
ibúðarkaupum verða mun ein-
faldari þegar ný löggjöf um i-
búðir og ibúðakaup kemur til
framkvæmda.
Læknisvottorði þarf ekki að
skila fyrr en eftir að viðkomandi
hefur verið veikur i eina viku.
Hann fær greidda sjúkra-
peninga þrátt fyrir það.
Meðferð skattaákæra verður
einfölduð til muna og afgreiðslu
þeirra flýtt frá þvi sem nú er.
Unnið er að þvi að fólk þurfi
ekki að biða timum saman þeg-
ar það kemur með blla sina til
skoðunar. Nú eru dæmi þess aö
fólk biði bróðurpartinn af degin-
um eftir þvi að fá afgreiðslu
þegar komið er með bila til
skoðunar.
Orlofsmerkjakerfið verður
aflagt og þegar launþegi lætur
af störfum hjá viðkomandi at-
vinnurekanda, hvort sem hann
fer þá i fri eða ekki, verður
orlofsféð greitt út.
Þá verður innheimta fyrir
Völundarhúsið
lagi að velli
Norski forsætisráðherrann Odvar Nordli, ræðst til atlögu við flókið og staðnað kerfi hins opinbera, sem
auk þess að vera óhemju kostnaöarsamt, er svo flókið að almenningi finnst hann vera kominn i
völundarhús þegar þangað er leitað.
leyfisbréf ýmiskonar látin niður
falla vegna þess að kostnaður
stjórnkerfisins vegna inn-
heimtunnar er mun meiri en
það sem inn kemur fyrir slikar
leyfisveitingar.
Fleira væntanlegt.
Jafnframt þeim ráðstöfunum
sem þegar hafa verið nefndar
auk annarra svipaðra, verður
hafizt handa um aðgerðir sem
taka lengri tima og krefjast
meiri undirbúnings en það sem
nefnt hefur verið.
Þetta á við um málefni sem
varða trygginga- og lifeyris-
þega.
Þá má einnig nefna I þessum
flokki einföldun þess sem hiö
opinbera gefur út og sendir til
almennings eða liggur frammi
þar sem almenningur leggur
leið sina.
Það til má nefna opinberar
tilkynningar og auglýsingar,
bréf og athugasemdir sem hið
opinbera sendir til einstaklinga.
Allar deildir ráðuneytanna og
allar stofnanir norska rikisins
mun taka þátt i þessu starfi.
Valddreifing.
Aætlun rikisstjórnarinnar
felur einnig I sér áætlanir um
valddreifingu i þvi augnamiði
að flýta þvi að ákvarðanir séu
teknar þannig að mál fái
hraðari afgreiðslu og þar með
verði þjónustan við hinn al-
menna borgara bætt. Þá verður
málum einnig komið þannig til
leiðar að ákvarðanir verða
teknar þar sem mest þekking á
staöháttum og eðli málanna er
saman komin.
Þannig verða undanþágu-
beiðnir frá ýmsum lögum af-
greiddar af byggðarlögunum
sjálfum í stað þess að fylkis-
stjórnir taki þær ákvarðanir
eins og verið hefur hingað til.
Þá stendur einnig yfir athug-
un á þvi hvort það sé réttlætan-
legt að þeir sem af einhverjum
ástæðum missa vinnu sina fá
leyfi frá störfum t.d. vegna
sjúkdóms, fái minna orlof.
Norsku alþýðusamtökin hafa
lagt áherzlu á að afgreiöslu
þessa máls verði hraöað eftir
föngum.
Odvar Nordli, forsætisráðherra Noregs.