Alþýðublaðið - 25.05.1976, Page 16

Alþýðublaðið - 25.05.1976, Page 16
Er Jökulsá á Fjöllum að breyta um farveg? „Jarðskjálftamælirinn á Skinnastað sýndi smá- hræringar n. og 15. maí en annars hafa hreyf- ingar verið litlar sem engar" sagði Haraldur Þórarinsson á Kvistási í Kelduhverfi er blaða- maður spurði hann um jarðskjálfta þar nyrðra nú undanfarið. Haraldur sagði, aB þeir Keld- hverfingar byggjust viö miklum ferðamannastraumi í sumar, til að skoða ummerki eftir land- Fjárskortur veldur því að ekki er hægt að mæla landsig á jarðskjálftasvæðunum skjálftana i vetur. Breytingar sem orðið hefðu á landinu væru hreint ótrúlegar sérstaklega þó NA við Keldunes. Nú bíða menn i Kelduhverfi nokkuö uggandi eftir þvi hvort Jökulsá á Fjöllum muni breyta um farveg. Falazt hefir verið eftir mælingamönnum frá Orkustofnun til að mæla jarðsig i nágrenni árinnar, en ekki fengizt og er borið við fjár skorti. „Hún verður liklega að mæla þetta út sjálf”, hélt Haraldur áfram. Góð tið. Aöspurður kvað Haraldur s.l. vetur hafa verið snjóléttan og voriðgott. I gær var 15—20 stiga hiti i Kelduhverfi og grasið þaut upp. Sauðburður er viðast hvar langt kominn og gengur vel. — ES — Leyfir Hæstiréttur Kristjáni og Hauki að vera viðstaddir vitnaleiðslurnar? Hæstiréttur f jallar nú um kröfu Kristjáns Péturssonar og Hauks Guðmundssonar um að þeim heimilist að vera viðstaddir vitnaleiöslur I málinu, sem Orn Clausen hóf á hendur þeim, vegna tveggja Bandarikjamanna. Sak- borningar fóru þess á leit viö rannsóknardómara, Sigurberg Guðjónsson, að þeir mættu vera viðstaddir vitnaleiðslur i málinu. Þessum tilmælum eöa kröfu hafnaði rannsóknardómari, ,,að svo stöddu”. Beiddust þeir Haukur og Kristján þá úrskurðar Hæsta- réttar um þetta efni. Rannsóknardómari tjáði blað- inu, að úrskurður Hæstaréttar myndi felldur áður en réttarfri hefst, en það verður þann 1. júni næstkomándi. Tollverðir handteknir vegna þáttöku í smygli Þátttaka háttsettra manna innan tollgæzlunnar i Reykja- vik I smyglmálum er nú til rannsóknar. Tveir starfsmenn tollsins hafa verið hnepptir i varöhald og fara nú fram yfir- heyrslur i málinu. Astæðuna tii handtöku þessara manna má rekja til Kefiavikur. Rannsóknarlög- reglan þar hafði rökstuddan grun um smygl skipverja á ákveðnu milliiandaskipi. Þeg- ar það kom til Keflavikur fyrir siðustu helgi var gerö leit I skipinu og smyglvarningur fannst. Viö yfirheyrsiur mun þátttaka starfsmanna toll- gæzlunnar I Reykjavik 1 um- fangsmiklu smygli að undan förnu hafa komizt upp. Á grundvelli þessara upplýsinga voru mennirnir siðan hand- teknir. Rannsóknarlögreglan I Reykjavik hefur rnálið til meðferðar og er rannsóknin á frumstigi. Þegar Alþýðublaöiö vissi seinast til i gærdag höfðu ekki fleiri veriö handteknir vegna þessa máls. — SG. Boltinn á fullri ferð að nýju í Eyjum Nú er sumarknattspyrnan hafin af fullum krafti, og hvar- vetna þyrpast knattspyrnu áhorfendur á vellina á góö- viðrisdögum til að hvetja sina menn og horfa á góðan leik. Ekki hefur góöur sigur is- lenzka landsliösins yfir norska landsliðinu dregið úr áhuga knattspyrnumanna — en I Nor- egi eru menn ekki eins hressir yfir þeim leik — og þar sögðu blöðin eftir leikinn, að aidrei heföi norska knattspyrna iagzt svo lágt fyrr, að tapa fyrir ts- lendingum! Við segjum nánar frá þeim leik á blaðsiðu 4 i blaðinu I dag, en þessi mynd er hinsvegar frá Vestmannaeyjum og var tekin þar 8. mai þegar tBV fékk Breiðablik úr Kópavogi i heim- sókn. Knattspyrnan I Eyjum er gott dæmi um það hve vel hefur tek- izt til með endurbyggö þar i bæ — og þessa dagana eru Islenzku atvinnumennirnir frá Belgiu, Asgeir Sigurvinsson og Guðgeir Leifsson að liðsinna ungum knattspyrnumönnum i Eyjum. DREGIÐ UR UT- LÁNUM BANKANNA t framhaldi af þeirri stefnu- mörkun, sem Jóhannes Nordal seölabankastjdri gerði grein fyrir á ársfundi Seðlabanka íslands fyrr I þessum mánuði hefur nú veriö gert samkomulag milli Seðlabankans og viðskipta- bankanna um útlánamarkmið og útlánastefnu á þessu ári. t frétt um þetta frá stjórn bankans I gær segir m.a.: „Formaður Sparisjóðasam- bandsins hefur tekið þátt i við- ræðum bankastjórnar Seðla- bankans og viöskiptabankanna um þessi mál, og hefur Seðla- bankinn beint þeim tilmælum til allra sparisjóða, að þeir fylgi sömu útlánastefnu og mörkuð hefur verið meö samkomulagi þessu. Meginatriði samkomulagsins er það, að stefnt skuli að þvi, að heildarútlánaaukning innláns- stofnana, önnur en endurseljan- leg afurða- og birgðalán til sjávarútvegs, iðnaðar og land- búnaöar, og regluleg viðbótarlán til sömu greina, hækki ekki um meira en 16% á árinu 1976. Útlánaaukning hefur, það sem af er árinu, þegar orðið allmiklu meiri en að var stefnt, eða nálægt 10%. Er þetta langt umfram aukningu innlána, sem aðeins hefur numið 6% á þessu timabili. Lausaf járstaða margra bankanna er þvi nú afar erfið, og svigrúmið til útlánaaukningar allra næstu mánaða mjög tak- markaö. Munu bankarnir stefna að þvi, aö útlánaaukningin verði ekki orðin meiri en 11-12% I lok ágústmánaðar, en til aö ná þvi marki þarf að koma I veg fyrir nokkra teljandi aukningu heildar- útlána fyrst um sinn. Mun útlána- geta bankanna þvi ráðast af þvi, hve mikið fé kemur inn af endur- greiðslu útistandandi lána. Verð- ur að þvi stefnt, að rekstarfjár- þarfir atvinnuveganna gangi fyr- ir um þaö lánsfé, sem til ráö- stöfunar verður. ÞRIÐJUDAGUR 21 alþýðu blaðið Heyrt: Að um hvita- sunnuna frumsýni sjón- varpiö 50 minútna langa kvikmynd sem það hefur látið gera um Islenzka hestinn. Mynd þessi er búin að vera lengi i smiðum, en heildar- kostnaður mun ekki liggja fyrir enn sem komið er. En myndin er sögð hin vandaö asta að allri gerð og vel fallin til sýningar erlendis ekki siður en hér heima. Lesið: t Lögbirtinga blaöinu 12. mai 1976, að firmað Hús og Eignir sf. hafi hætt starfsemi sinni og þess þvi óskað, að félagið verði afmáð úr firmaskrá Reykjavikur. Tilkynning þessi er dagsett fyrir all- nokkru eða 25. október árið 1974. Heyrt: Að aðferðir Freeport Hospital i New York til að lækna áfengis- sjúkiinga gefi mjög góða raun. Undanfarna mánuði hafa fjölmargir ts- lendingar fengið sex vikna meðferð á þessu sjúkrahúsi og er árangur sagður ó- trúlega góður. 1 ráði mun vera að taka upp aðferðir þær sem þarna eru notaðar að einhverju leyti hérlendis og er yfirmaður með- ferðardeildar Freeport nú staddur hér I Reykjavik. Hlerað: Að innan rikis- stjórnarinnar hafi náðst samkomulag um að reyna til þrautar að ná samningum við Breta i landhelgismálinu. 1 Osló urðu Einar Agústsson og Geir Hallgrimsson fyrir miklum þrýstingi ekki siður en Crosland og á meðan á NATO - fundinum stóð gekk maður undir manns hönd við að fá Breta og tslendinga til að taka upp viðræður. Fullvist er talið að fyrirhugaöar við- ræður fari fram i Osló með þátttöku Knut Frydenlund utanrikisráðherra Norð- manna. Hleraö: Að ekki hafi reynzt auðvelt að koma höndum yfir tollgæzlumenn þá er nú hafa loks verið settir i varðhald. Þeir er renndu i grun að toll- gæzlumenn ættu hugsanlega aðild að smygl- málum og störfuðu með þeim, höfðu rökstuddan grun um að afskipti þeirra af málinu gætu dregið dilk á eftir sér. Mun margur tollarinn draga andann léttar eftir þessar hand- tökur. Tekið eftir: Ekki virðist unnt aö fá neina skýringu á þvi að Færeyingar skuli geta greitt yfir 10 krónur fyrir kg af kolmunna i bræðslu á meðan þessar veiðar eru ekki taldar borga sig hérlendis vegna þess að verðið er mun lægrahér. óhemjumagnaf kolmunna veiðist nú I flottroll á Færeyjarbanka.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.