Alþýðublaðið - 05.06.1976, Side 5
bla&fo1' Laugardagur 5. júní 1976.
ÚTLÖND 5
70% ÍBÚA JARÐAR
Sameinuðu Þjóðirnar hafa á-
kveðið að dagurinn i dag skuli
helgaður vatninu undir kjör-
orðinu VATN ER LÍIFSNAUÐ-
SYN. Þó að vatnið sé óum-
deilanlega mikil blessun, getur
það engu að siður veriö mjög
hættulegt, sé þaö mengað. Talið
er aö um 70% jaröarbúa búi nú
við ótryggt vatn, og afleiðingar-
nar af þvi eru hrikalegar. Á
hverjum degi deyja um 25000
manns af smiti sem borist hefur
með vatni.
Filariasis ein mesta orsök
blindu, herjar á hverju ári um
250 milljónir manna, smitið
berst með vatni. Nýleg könnun i
átta vanþróuðum rikjum sýnir
að koma mætti i veg fyrir 90% af
barnadauða i þeim löndum, ef
hreint vatn væri til staðar. Af
öllu þvi vatni, sem er að finna á
þessari jörð er aðeins 1% nýtan
legt okkur mönnunum, hin 99%
eru bundin i formi iss á heim-
skautunum og öðrum jöklum, og
i hafinu. Þetta 1%, er það vatn
sem er á stöðugu ferðalagi i
hinni svokölluðu hringrás
vatnsins. A hverju ári munu
38000 rúmkilómetrar af vatni
streyma um þessa hringrás, og
á þetta vatnsmagn að nægja
jafnvel tvöföldum þeim fólks-
fjölda sem nú er á jörðinni.
ójöfn skipting.
Jafnvel þá mundu 4.500 rúm-
K FRIÐUN —
tÓLI BREYTT
metrar af vatni koma i hlut
hvers og eins, eða rúmlega
þrisvar sinnum meira en hver
einstaklingur i hinum tækni-
væddu löndum notar i dag. Það
er þvi ljóst, að vatnsskortur er
ekki vandamálið, ef litið er á
heildina. Heldur hin ójafna
skipting vatnsins.
Af þeim 38000 rúmkilómetrum
af vatni sem til skiptana eru,
koma aðeins 12% þess magns i
hluta allra Afrikumanna,
meðan Bandarikjamenn fá yfir
33% A hverju ári er talið að til
iðnaðar i heiminum fari um 200
rúmkilómetrar af vatni, af
þessu mikla magni endurheimt-
ist ómengað aðeins um 40
rúmkilómetrar.
40% vatnsins sturtað
niður um salernin.
A heimilunum mætti lika
margt betur fara. 40% alls vatns
á borgarsvæðum hins tækni-
vædda heims, er sturtað beint
niður um salernin,! hvert skipti
sem sturtað er niöur fara að að
meðaltali 22 litrar af dýrmætu
hreinu vatni, til að skola burt
nokkrum tugum gramma af
gerjuðum fæðuúrgangi. A einu
ári mun meðal notkun á vatns-
salerni spilla allt að 60.000
litrum af vatni, til að skola burt
600 gallonum af úrgangi.
sem fást úr Gvendarbrunnum.
Standa vonir til, að I lok þessa
árs, verði lokið við að bora það
margar holur að komið verði
jafnmikið vatnsmagn og það
sem fæst úr Gvendar-
brunnum. Hafa þessar boranir
staðið i nokkur ár, en að
meðaltali mun taka um 2-
3 mánuði að bora hverja holu.
Til að fullnægja vatnsþörfinni
er talið, að ekki dugi færri en
15-20 holur.
,, Allt neyzluvatn
Reykvíkinga borholu-
vatn, innan þriggja
ára”
Jafnhliða þvi sem verið er
að breyta vatnsbólum Reyk-
vikinga úr opnum I neðan-
jarðarvatnsból, er unniö af
fullum krafti við lagn-
ingu á nýrri aöalæð bor-
holusvæðinu, en það stend-
ur nokkru ofar I Heið-
mörkinni en brunnarnir. Ekki
verða þó Gvendarbrunnar
teknir úr notkun fyrr en aðal-
æðin hefur veriö lögö. Er
reiknaö meö, að þvi verki ljúki
seinni hiuta næsta árs, ef alit
gengur vel. „Þaö gengur illa,
ef allt neyzluvatn i Reykjavik
verður ekki borholuvatn innan
þriggja ára” sagöi Þóroddur
Th. Sigurðsson, Vatnsveitu-
stjórj,er biaðamaöur Alþýðu-
blaðsins ræddi þessi mál við
hann i vikunni. Sagði
Vatnsveitustjóri einnig að
búast megi við, að fyrstu 1-2
árin eftir að aðalæðin er
komin, þurfi að notast við að
hluta til vatn úr Gvendar-
brunnum, á meðan síðustu
borholurnar sem nú þegar eru
tii staöar veröa virkjaöar.
-gek
DAMÆRI
völdum.
9) Verndun vatnsforðans,
kallar á auknar visindalegar
rannsóknir, þjálfun sérfræöinga
og bætta upplýsingaþjónustu
fyrir almenning.
10) Vatnið er sameiginleg arf-
leifö, sem allir þurfa að læra aö
meta. Hverjum manni ber að
nota vatnið meö gætni og hóf-
semi.
11) Forráð vatnsins ber að
grundvalla á náttúruiegum
vatnaskilum, fremur en stjórn-
málaiegum landamerkjum.
12) Vtnið þekkir engin landa-
mæri. Sem sameiginleg auðlind
krefst þaö alþjóðlegrar sam-
vinnu.
má geta, að f flóðunum 1969.
barst ieysingarvatn i
Gvendarbrunna. Einnig er svo
komið, að i þurrkatiö eru þeir
of vatnslitlir, þ.e.a.s. minnsta
rennsli þaöan nægir ekki
lengur. Hefur Vatnsveitan
fengið milli 140-150 sekúndu-
litra úr vatnsbóli, I landi Golf-
vallarins i Grafarholti til viö-
bótar þeim 750 sekúndulitrum
Þarftþú
aóveita vatni?
Tveggja áratuga reynsla af plaströrum
frá Reykjalundi hefur sannað að
ekkert vatnslagnaefni hentar betur
íslenskum aðstæðum.
Plaströr eru létt og sterk og sérstak-
lega auðveld í notkun.
Plaströr þola jarðrask og jarðsig.
Plaströr má leggja án tenginga svo
hundruðum metra skiptir.
Plaströr eru langódýrasta en jafnframt
varanlegasta vatnslagnaefni á markaðnum.
Plaströrin frá Reykjalundi fást í stærð-
um frá 20 m/m - 315 m/m (’/2 ’’ -12").
Grennri rör fást í allt að 200 metra
rúllum (20-90m/m) en sverari rör í 10
og 15 metra lengdum (110-315 m/m).
Við höfum allar gerðir tengistykkja og
veitum þjónustu við samsuðu á rörunum.
Þurfir þú að veita vatni skaltu hafa
samband við söludeild okkar.
REYKJALUNDUR
Mosfellssveit. Sími 66200.