Alþýðublaðið - 05.06.1976, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 05.06.1976, Blaðsíða 13
bSa&fö' Laugardagur 5. júní 1976. 13 þeirri von aö geta haft nokkuð af hinum þegar til túlkunar á einstökum samningsákvæðum kemur. Ósagt skal látið um sannleiksgildi þessara sögu- sagna en málalengingar i þess- um plöggum eru þó litt skiljan- legar og valda trúlega þvi að fólk leitar siöur réttar sins af ótta við að veröa stimplaö illa gefiö vegna þess að það skilji ekki þaö sem skrifaö stendur. Upplýsingaskylda. A liðnum vetri var þaö gjarnan rætt hve mikil spilling viðgengist i þvi litla þjóðfélagi sem við byggjum. Allir sem um þetta mál hafa rætt hafa tekið i sömu árina og flestir hafa bent á skyldur fjölmiðla i þessu sambandi. Hér á landi þurfa stjórnmála- flokkar ekki að birta neitt um fjármál sin, hvorki hvernig fjárins er aflað né heldur hvernig þvi er eytt. Skattsvik eru mikið nefnd sem dæmi um spillinguna en hvernig er málum háttað með upplýsingar um árangur rann- sókna slikra mála? Skattrann- sóknastjóri og hans lið gerir at- huganir sem siöan ganga sem hljóðlegast i gegnum kerfiö, skattur er lagöur á að nýju, sak- borningur fær kærufrest og máliö liöur hja án þess að nokk- uð verði uppvist. Það er vitað að allra handa fyrirgreiðsla á sér stað i sam- bandi viö fjármagn or einnig, að sagt er, um undanþágur frá ýmsum ákvæöum sem al- menningur verður að hlita. Þessu er sammerkt að þeir sem njóta, sérréttinda eru helzt þeir sem almannarómur segir aö séu bjargálna. Þeir sem verða að vinna lengri vinnudag til þess að geta staöiö undir si- felldum hækkunum á fram- færslukostnaði njóta þeirra ekki. Þær reglur sem gilda um upplýsingaskyldur stjórnvalda eru næsta fátæklegar og þegar þeirra nýtur ekki lengur við ?r skildi þagnarskyldunnar brugðið á loft. Ekki er hér veriö að kasta rýrð á gildi slikrar kvaöar, heldur er verið að finna aö þvi hvernig opinb. starfs- menn túlka þær reglur. Eirikur Baldursson. með er ekki veriö aö verðleggja mannslifin til mismunandi fjár- hæða hér eða þar. Full ástæða er enn, til þess að gleyma ekki þeim, sem stór- slasast og biöa þess aldrei bætur. Abyrgö þeirra, sem valda öðrumlifs-og limatjóni er þung I öllum tilfellum. En hvaö má segja um þá tilhugsun, að hafa orðiö valdur aö örkumlum ungs fólks, sem lifir svo langa æfiviö þjáningar og/ eða algert getuelysi til að lifa þvi, sem lif getur kallast? Fráleitt þykir mér, aö nokkur eigiaögeta hugsaö slika hugsun til enda tilfinningalaust. Einn blóöugi Mólok umferða- slysanna hefur þegar krafið of margra og of stórra og dýrra fórna. Þar veröa bókstaflega allir aö kappkosta að Jaka höndum saman um úrbætur og enginn láta sinnhlut eftir liggja. Vonandi eigum við þess kost, að þurfa ekki að hlýða á slysa- eöa óhappafregnir úr um- feröinni eftir þessa stórhátiöar- helgi. Minnist þess vegfarendur, sem ráðið yfir og notiö farar- tæki nú og raunar ætið, aö mestu máli skiptir að kunna heilum vagni heim að aka. Hitt skiptir óendanlega litlu máli, hvort það gerist nokkrum minútum fyrr eöa siöar. GEIR ÞAKKAÐI GÆZLUMÖNNUM Iþróttir AFTUR Lesandi blaðsins hringdi og sagðist vera mjög óánægður meö þaö að Alþýðublaðið sniö- gengi algerlega Iþróttafréttir. Hann sagðist reyndar kaupa tvö önnur blöð, en það væri nú svo meö áhugamenn um iþróttir að þeir læsu flest af þvi, sem um þessi mál væri skrifað. Hann sagði að það væri mesti misskilningur að þetta væri sama tuggan i öllum blööunum. „Fyrir okkur iþróttaunnendur er sjónarmiö hvers blaðs útaf fyrirsig „interesant” lesefni og það eru svo margar hliöar á i- þróttunum, sem þið sem eruö á- hugalausir sjáið ekki.” Að lokum sagði lesandi, að hann legði til aö Alþýöublaöiö tæki iþróttir upp aö nýju. Ef til vill væri hægt aö gera þeim skil á einhvern sérstakan hátt, „ef þið viljið endilega vera eitthvað öðruvisi en hinir.” Sagöi hann að e.t.v. væri hægt að taka upp yfirlitsþætti um það helsta sem hefði gerst yfir vikuna eða að taka viötöl við iþróttamenn og fjölskyldur þeirra. Slikt lesefni taldi hann aö biaðið ætti aö taka upp að nýju. Þess má geta hér að þetta mál hefur borið á góma á ritstjórninni, hvað sem út úr þvi kann að koma. Þaö er ekki rétt að forsætis- ráðherra hafi ekki þakkaö varö- skipsmönnum sérstaklega, eins og sagt var frá i Horninu i gær, sagði lesandi, sem hringdi til blaösins og vildi leiðréttá það ranghermi. Hann sagöi aö þegar forsætis- ráöherra kom fram i sjónvarpi og gerði grein fyrir hinum nýju samningur við Breta, þá hafi hann einmitt sérstaklega i lok sins máls, þakkaö varðskips- mönnum þeirra þátt i lausn deilunnar. Sjötíu sinnum iviku Sjötíu sinnum í viku hefja þotur okkar sig til flugs í áaetlunarferð, samkvæmt sumaráætlun til 12 staða í Evrópu og Bandaríkjunum. Þessi mikli ferðafjöldi þýðir það, að þú getur ákveðið ferð til útlanda og farið nær fyrirvaralaust. En það þarf talsvert til að þetta sé mögulegt. Þaö þarf traust starfsfólk og góðan flugvélakost. Við höfum hvort tveggja. Við höfum 2 Boeing og 3 DC8 þotur, og 1600 starfsmenn, marga meö langa og gifturíka reynslu að baki, í þjónustu okkar, Starfsfólk okkar hefur ekki aðeins aðsetur á íslandi. 500 þeirra starfa á flugstöðvum og skrifstofum okkar í 30 stórborgum erlendis. Hlutverk þess er að greiða götu þína erlendis. Ætlir þú lengra en leiðanet okkar nær, þá er ekki þar með sagt að við sleppum alveg af þér hendinni, þá tekur ferðaþjónusta okkar við, og skipuleggur framhaldið í samvinnu við flest flugfélög heims, sem stunda reglubundiö flug, og fjölda hótela. Þegar þú flýgur með vélum okkar, þar sem reyndir og þjálfaðir flugmenn halda um stjórnvölinn, og þér finnst að þú sért að feröast á áhyggjulausan, þægi- legan og öruggan hátt, þá veistu aö það er árangur af samstarfi alls starfsfólks okkar, sem á einn eða annan hátt hefur lagt hönd á plóginn til þess að svo mætti verða. flvcfélac LOFTLEIBIR LSLANDS Félög með þjálfað starfslið í þjónustu við þig Oddur A. Sigurjónsson

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.