Alþýðublaðið - 26.06.1976, Blaðsíða 6
6
Laugardagur 26. júní 1976 bia&iö1
íslenskubættir Albyðublaðsins
eftir Guðna Kolbeinsson
Tannlæknar munu vanir aö
sjá óttann skína úr augum
sjúklinga sinna — og jafnvel
heyra hann látinn I ljós.
Ekki veit ég hvort eitthvert
samband er á milli þessa og
fyrirspurnar sem þættinum hef-
ur borist: Meirihluti Félags-
heimilisnefndar Tannlæknafé-
lags Islands spyr hvort réttara
séaðsegja: égþori það ekkieða
ég þori þvf ekki.
í fornmáli stýrði sögnin þora
eingöngu þolfalli, þannig að
miðað við uppruna er réttast að
segja: ég þoriþaðekki. En hitt
er einnig orðið býsna gamalt i
málinu að segja: ég þori þvi
ekki. Elsta dæmi Orðabókar
Háskólans um það er frá Hall-
grími Scheving sem lést 1861.
Hann gefur báða möguleikana i
orðasafni sinu: að þora þvíeða
þora þaö.— Þarna er þvi um að
ræða málnotkun sem er meira
en aldargömul og sennilega i
sókn. Vil ég þvi alls ekki telja
hana ranga og legg til að hver
fari hér eftir sinni málvenju.
Þess má að lokum geta að
austfirðingar, sem nota eignar-
fall öðrum islendingum meira,
tala sumir um að þora þess.
Nemandi i Gagnfræöaskólan-
um i Kefiavik sendi þættinum
úrklippu úr Timanum frá 7. des-
ember sl. Þar er grein um lax-
veiði i Þjórsá og likar sendanda
ekki alls kostar oröalag eftirfar-
andi málsgreinar:
„Góðu magni laxaseiða hefur
verið sieppt i tilraunaskyni i
árnar i Þjórsárdalnum og biða
menn spenntir eftir að sjá ár-
angur þeirra sleppinga koma i
ljós...”
1 fyrsta lagi væri eðlilegra að
tala um allmikið eða talsvert
magnen gott magn.l öðru lagi
fer betur á að tala um fjölda
seiðaen magn seiða.Og i þriðja
lagi fellur hvorki mér né kefl-
viska nemandanum nýyrðið
slepping.
Þakka ég hjartanlega þessa
sendingu og er ánægjulegt að
sjá þess merki að uppvaxandi
islendingar gefa tungunni gaum
og viija ekki sjá henni mis-
þyrmt.
Egill Ásgrimsson spyr um
merkingu orðsins verðstöðvun.
Orð þetta er svo nýtt i málinu
að það er ekki að finna i prent-
uðum orðabókum.
Rökréttast væri að orðið
merkti að verö héidist óbreytt,
hækkaði hvorki né lækkaði; en í
reynd mun verðstöðvun einung-
is merkja að verð hækki ekki.
Þrátt fyrir rikjandi veröstöðvun
getur þvi svo óliklega viljað til
að verð einhverrar vörutegund-
ar lækki.
í Dagblaðinu 29. desember sl.
var sagt frá þvi að hljómsveitin
Pelican væri um það bil að
hætta störfum. Haft var orðrétt
eftir ömari óskarssyni gitar-
leikara: „Það gengur alltaf
svona. Bönd koma og bönd
fara.”
Ekki likar mér tökuorðið
band, né heldur tökuorðið
grúppaen orð þessi merkja, það
ég best veit, hljómsveitina og
söngvara hennar. Má ekki telja
söngvarann einn af hljómsveit-
inni og láta það orð nægja? Sé
það ekki nógu gott verður að
búa til nýyrði sem falla betur að
islenskri tungu en þessi erlendu
skripi.
Vil ég enn hvetja þá aðila sem
flytja dægurtónlist og þá sem
um list þeirra fjalla i fjölmiðl-
um til að bindast samtökum um
að hætta þvi böðulsstarfi sem
margir þeirra hafa undanfarið
unniö gagnvart Islenskri tungu.
Böðulstarf dægur-
tónlistarmanna
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
LÆKNARITARI óskast til starfa á
handlækningadeild spitalans frá 1.
ágúst n.k. Umsóknir ber að senda
Skrifstofu rikisspitalanna fyrir 15.
júli n.k.
Nánari upplýsingar veitir lækna-
fulltrúi handlæknisdeildar.
VÍFILSSTAÐASPÍTALI
FóSTRA óskast til starfa nú þegar
eða eftir samkomulagi á dagheimili
fyrir börn starfsfólks. Upplýsingar
veitir forstöðukonan simi 42800.
Reykjavik, 25. júni 1976.
SKRIFSTOFA
R í KISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765
Húsbyggjendur
VÖRUKYNNING
OPIÐ
sunnud. 27. júní kl. 14-16.
Hafið meðferðis teikningar.
TILBOÐ - SAMNINGAR
húsbyggjendum að kostnaðarlausu
Gjörið svo vel - Allt á einum stað
IÐNVAL
Byggingaþjónusta Bolholti 4 Reykjavík.
Sérhæföir á sviði bygg-
ingariðnaðar. Allt frá
steinsteypu — upp I teppi.
Sameiginlegur vöru-
sýningarsalur og sölu-
skrifstofa um 40 fyrir-
tækja.
UTIVISTARFERÐIR
Laug.d. 26/6 kl. 13.
Heiömörk, fararstj. Einar Þ.
Guðjohnsen, Verð 500 kr.
Sunnud. 27/6 kl. 13
Þjófakrikahellar eða Kóngs-
fell-Þríhnúkar, fararstj.
Friðrik Danielsson. Verð 600
kr. Fritt f. börn m. fullorðnum
verðu.
Hafið góð ljós með.
Útivist.
Ferðafélags-
ferðir
Laugardagur 26. júni kl. 13.00
Gönguferð i Seljadal. Auðveld
ganga.
Fararstjóri: Einar Ólafsson.
Verð kr. 700 gr. v/bilinn.
Sunnudagur 27. júni
1. kl. 9.30 Ferð á söguslóðir
Njálu. Fararstjóri: Haraidur
Matthiasson menntaskóla-
kennari.
2. kl. 13.00 Gengiö eftir gömlu
götunni yfir Hellisheiöi, um
Hellisskarð að Kolviðarhóli.
Auðveld ganga.
Fararstjóri: Sigurður
Kristinsson.
Verð kr. 800 gr. v/bilinn.
Lagt upp frá Umferða-
miðstöðinni (að austanverðu).
Bílstjórar!
Óskum að ráða vanan vörubilstjóra.
Upplýsingar i simum 8 35 22 og 8 35 46.
L0FT0RKA,
Skipholti 35
Tilkynning
Vegfarendum á Sprengisandsvegi um Sig-
öldu skal bent á, að hlið hefur verið sett á
veginn hjá Tungnaárbrú vegna virkjunar-
framkvæmda og er ónauðsynieg umferð
um vinnusvæðið stranglega bönnuð. Hafa
skal samband við hliðvörð.
Búast má við algjörum, timabundnum
lokunum vegarins.
Lögreglan i Rangárvallasýslu,
Sigöldu.
F élagsmálastofnun Reyk ja vikurborgar
óskar eftir að ráða konu eða hjón til að sjá
um heimilishald fyrir 3-4 systkini að
heimili þeirra i Breiðholtshverfi. Syst-
kinin eru á aldrinum 14-17 ára.
Upplýsingar veitir Karl Marinósson,
félagsráðgjafi, Félagsmál^stofnun
Reykjavikurborgar, Asparfelli 12, i sima
74544, milli kl. 13 og 14 virka daga.
SBK Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
W Vonarstræti 4 simi 25500
Vélamaður óskast
óskum að ráða vanan mann á gröfu
Upplýsingar i simum 8 35 22 og 8 35 46.
L0FT0RKA,
Skipholti 35
Feröir I júli.
1. Gönguferð á Heklu 2.-4.
2. Hvannalindir-Kverkfjöll 3.-
9.
3. Ferð i Fjörðu, Vikur og til
Flateyjar. 5.-10.
4. Hringferð um Vestfiröi 9.-
18.
5. Gönguferð á Baulu og
Skarðsheiði. 9.-11.
6. Ferð til Aðalvikur og
nágrennis. 10.-17.
Nánari upplýsingar á skrif-
stofunni.
Ferðafélag islands,
öldugötu 3.
Simar: 19533 og 11798.
VIRPU - BltSKORSHURÐW
Laqerstærðlr miðað við jmúrop:
ldæð;210 sm x breidd: 240 sm
>W3 - x - 270 sm
Aðrar stáerðir. srr.fflaðar eftir beiðnt
GLUÍ^ASMIÐJAN
Siöumúla 20, simi 38220