Alþýðublaðið - 29.06.1976, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 29.06.1976, Blaðsíða 12
12 SJðNARMID Þriðjudagur 29. júní 1976. blaSiö1 Minningarsjóður Vigdísar Ketilsdóttur og Ólafs Ásbjarnarsonar Ákveðið hefur verið að sjóðurinn veiti styrki tveimur læknum til framhaldsnáms næsta skólaár. Umsóknir ásamt upplýsingum um hvaða sérgreinar væri að ræða og aðrar sem að umsókninni lúta sendist formanni sjóðs- ins, Ásbirni' ólafssyni, Borgartúni 33, Reykjavik, fyrir lok júlimánaðar. Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar, Pick-Up bifreið með hjólhýsi og Bronco jeppabifreið, er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðju- daginn 29. júni kl. 12-3. Tilboðin verða opn- uð i skrifstofu vorri kl. 5. Sala varnarliðseigna. Aðalfundur Alþýðubrauðgerðarinnar h.f. verður hald- inn mánudaginn 12. júli n.k. i Iðnó kl 20.30. siðdegis. Dagskrá fundarins. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreyting. 3. önnur mál. Stjórnin. Tilboð óskast í hjólaskóflu með ýtubúnaði, er verður sýnd þriðjudag- inn 29. júni kl. 1-3 að Grensásvegi 9. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri fimmtudaginn 1. júli kl. 11 árdegis. Sala varnarliðseigna. TRÉSMIÐJA BJÖRNS ÓLAFSSONAR REYKJAVÍKURVEGI 68 - SÍMI 51975 HAFN ARFIRÐI HÚSBYGGJENDUR! Munið hinar vinsælu TI- TU og Slottlistaþétting- ar á öllum okkar hurð- um og gluggum. * EJkki er ráð nema i tíma sé tekið. Pantið timanlega. Aukin hagræðing skapar lægra verð. Leitið tilboða. BÉ) r Úr dagbók blaðamanns AÐ RAÐA VERKEFN- UNUM í RÉnA RÖÐ Nú hefur Framkvæmda- stofnun rikisins, eöa „Spilverk sjóðanna” eins og sú merka stofnun er nú nefnd, fetað i fót- spor Seðlabankans við rausnar- gjafir af skattfé almennings til félaga og stofnana að geðþótta framkvæmdastjóra. Til allrar guðslukku er nú undantekninga- laust um þarfar gjafir til verð- ugra þiggjenda að ræða, en það breytir ekki þvi, aö þarna er verið að úthluta opinberu fé fram hjá fjárlögum, og eins og sannast bezt á nýsiðum Sverris Hermannssonar er fordæmi Seðlabankans skaðlegt. Sverrir, sem er einn af fram- kvæmdastjórum Spilverksins á- kvað á 30 ára stúdentsafmæli sinu að stofhunin gæfi Mennta- skólanum á Akureyri hálfa mill- jón króna. 1 viðtali viö Tryggva Gislason skólameistara kom það fram að þessir fjármunir verða að öllum hkindum notaðir til að skrá sögu MA. An þess að vilja lasta áhuga skólameistara á að gefin verði út bók um sögu skólans eftir tið Möðruvallaskóla, þá finnst mér þessi ráðstöfun gjafafjárins bera nokkurn keim af þeirri til— hneigingu að velja verkefnum ranga röð. Auðvitað þarf að skrá sögu skólans. Og það þarf að gera skammlaust. Og vinna við slika skráningu og bókagerð kostar talsvert fjármagn. En má ekki sameina frumvinnu slikrar heimildaskrásetningar aö ein- hverju leyti kennslu i skólanum sjálfum? Er ekki hugsanlegt að t.d. nemendur á þriðja vetri gætu tekið slika vinnu sem verkefni undir stjórn ágæts kennara? Verkefnin i stofnun eins og MA eru að jafnaði mörg og brýn, sem biða einungis fjár- magns til þess að hægt sé að ljúka þeim, eða hefja. Eitt slikra verkefna er gerð tungu- málastofu. Mér er sagt að áður hafi fyrrverandi stúdentar gefið fjárupphæðir til slikrar stofu, en kostnaður við gerð slikrar stofu og allra tækjakaupa er það mikill að gjafirnar duga ekki til einar. En með sameinuðum gjöfum mætti kannske hefja framkvæmdir og ef herzlu- muninn vantar, syndga þá ör- litið upp á guð og fjárlög næsta árs. Vitaskuld ætti að vera gert ráð fyrir þvi i fjárveitingum til menntamálaráðuneytisins að rikið greiði gerð sliks tækni- búnaðar við menntun, en við vitum af langri reynslu að frumkvæðið kemur seint úr þeirri átt. Það þarf eldlegan á- huga skólayfirvalda, fyrr- verandi nema og núverandi til að hrinda málinu i framkvæmd. En úr þvi opinberar fjármála- stofnanir geta séð af peningum til visindastarfa og menningar- mála, þá má ætla að þessir pen- ingarséutil. Bankabyggingar á erfiðleikatimum sýna okkur ennfremur að þegar okkur er sagt að herða beri sultarólina og Tungumálastofa. Dýr framkvæmd en mesta þarfaþing við tungumálakennslu á framhaldsstigi. lEFTIR HÁTÍÐINA! Dagamunur. Listahátið er nú um garð gengin og tekið að rofa til i öllu tilstandinu kringum þann atburð. Ekki svo að skilja, að ástæða sé til aö amast viö þvi,að menn geri sér dagamun öðru hvoru, hafi þeir tima og geðslag til. Ef það er svo að skilja, að fyrirtæki eins og listahátiö sé þess umkomið að láta eftir i hugum njótenda eitthvað, sem hefur lyft úr duftinu og þó ekki væri nema örlitiö upp úr hvers- dagsleikanum, er vissulega betur farið en heima setið. Stundum er talað um, að mál séu á viðkvæmu stigi, einkum verðum við þess vör, þegar ræða skal hluti, sem annað- tveggja eru þoku huldir hjá við- mælanda, eða hann af ein- hverjum öðrum ástæðum kýs að geyma i hugskoti sinu og fyrir sjálfan sig. Auðvitaö er það hreint ekki sama hvort af þessu tvennu, t.d., liggur til grundvallar, en þvi er á þetta minnzt, að hér er komiðbýsna nálægt þvi, sem al- menningur veltir oft fyrir sér, þegar hann stendur eða situr andspænis þvi, sem kallaö er list. Naumast getur hjá þvi fariö, að viö spyrjum sjálf okkur að þvi oft og tíðum, hvar og hver séu takmörkin milliþess.sem er gefandi nafnið list, eða ekki list. Ætla mætti, að óreyndu, að tiltölulega auðvelt ætti að vera, að fá hér um úrskurð, sem væri nokkurnveginn óyggjandi. Hér ætti að vera nægilegt, að leita til „listiðkendanna” sjálfra, til þess að fá útlistun þeirra á muninum. Þannig yrðu menn leiddir i allan sannleika. Þvi miður verður að segja, að það er ekki alveg vist, að menn yrðu að fróðari, þó þessir væru spurðir. Og þá fer nú málið að vandast fyrir almenning. Okkur er sagt, að við eigum að njóta listarinnar.og þá skipti það hreint ekki öllu máli, hvernig viðfangsefni lista- mannsins sé eða hafi verið túlkað af hans hendi! Margir hneyksluðust á Gröndal gamla, þegar hann sleppti þvi forðum, að sitt væri aðyrkja og hinna væri að skilja! Þetta þótti mælt af talsverðu oflæti á sinum tima, en bendir samt á, að Gröndal hafi haft þau viðhorf til listar sinnar, að skilningur yrði til að koma hjá listnjótendum, ef vel ætti að vera. Sé þetta rétt mat, væri komið eitthvað til þess að halda sér ieða við á hinum villugjarna vegi listmatsins. Nú er þetta vitanlega ekki óyggjandi skilningur allra list- iðkenda, mætti fyrr vera, ef þar yrðu allir sammála. Að minnska kosti veit ég um svar „listamanns” sem talsvert hefur verið hampað hér og svaraði manni, sem taldi sig vilja kaupa einhverja mynd á málverkasýningu hans, en varð á að spyrja, af hverju myndin væri! „Já, við skulum .segja, að þér kaupið myndina af þvi, að yður lizt á hana. Þér farið með hana heim, hengið hana upp á vegg og „spekulerið” i henni. Skiptir þaðþá einhverju máli af hverj'u hún er?!!!" Sé þetta svar borið saman við viðhorfGröndals, sjá menn auð- vitað, að haldreipið um skiln- inginn er rokið út i veður og vind og við erum jafn fjarri þvi og áður, að botna i, hvað er list eða ekki! En þess ber að geta sem gert er. „Listamennirnir” hafa ekki sett ljós sitt undir mæliker, jafnvel þótt ekki hafi verið um listahátiðir að ræða. Þannig höfum við orðið aðnjótandi sýn- inga á verkum þeirra, sem öllum var frjálst að skoða „gratis”! Þar má minna á sýningar „myndlistar” bæöi á Skólavörðuholtinu og svo i hjarta borgarinnar, Austur- stræti. Ekki má auðvitað gleyma „tónlistinni”, sem rikis- útvarpið er svo óspart á viö hlustendur uppi þessa hungurlús, sem heitir afnota- gjald. Þegar okkur verður litið yfir það, sem á aðgleðja augað, eins og listinni hreinni er ætlað, ber þar ýmislegt fyrir sjónir, allt frá listrænum kúk i kollu, sem ætla má að sérlega fjölhæfur einstaklingur hafi af sér lagt, þar sem óvenjulegur endi mannsins var notaður til list- túlkunar, haug af hveitibrauöi, sem hvolft hafið verið úr poka, og eflaust látinn liggja eins og fara vildi. Það er liklega einhver „natúralismus”. Þá má ekki gleyma kassanum fræga i Austurstræti, sem „klósett- rörin” stóðu út úr með allskonar „kunstbeygjum”, að ekki sé svo í HREINSKILNI SAGT Vi

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.