Alþýðublaðið - 22.07.1976, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 22.07.1976, Qupperneq 4
4 IÞRÚTTIR Fimmtudagur 22. júlí 1976. bla^M1' HIN SOGULEGA STUND í MONTREAL Um þessar mundir er keppnin á ólympiuleikunum i fullum gangi. Setn- ingarathöfn leikanna, er ásamt lokaat- höfninni, talin af mörgum eftirminni- legustu stundirnar frá ólympiuleikum. Það var stór stund i Montreal á laugardaginn þegar ólympiuleikarnir voru settir i 21. skipti. í fyrsta skipti i sögu leikanna var ólympiueldurinn tendraður af tveim iþróttamönnum. Sandra Henderson 16 ára og Stephane Prefontaine 15 ára, tendruðu eldinn sem loga mun leikana á enda. Meðfylgjandi eru myndir sem teknar voru við setningarathöfnina. JEG Kanadískur iþróttamaður sver ólympiueiðinn fyrir hönd allra keppenda á leikunum. Sandra og Prefontaine hafa hér tendrað Ólympiueldinn, ...ásamt Ólympiufánanum eru merki leikanna. sem ... Fimleikastúlkur frá hinum ýmsu þjóðum, sýndu við opn- unina. Olympíuleikarnir hófust á réttumtfma - þrátt fyrir deilur Þrátt fyrir illdeilur, enda- lausan kjaftavaöal og heimsku- legt rifrildi, tókst að setja Ólympiuleikana i Montreal á réttum tima, 17. júli. Loksins fengu keppendurnir að komast að fyrir þeim mönnum, sem láta sér vara- og tunguhreyfingar nægja, en sleppa öörum hreyf- ingum að mestu. Að visu hafa þeir menn, sem endilega vilja blanda saman stjórnmálum og iþróttum, menn, sem sennilega gera þaö að verkum, aö þessir 21. Ólympiuleikar verði þeir siö- ustu i þessari mynd, ekki lokiö sér af. Máli Taiwan og Kina lauk meö þvi, að hvorug þjóðin sendi keppendur á leikana. En þá skaut nýju máli upp koli- inum. Vegna ferðar rugby-liðs frá Nýja-Sjálandi til Suður-Afriku, hafa margar Afrikuþjóðir hætt við þátttöku i leikunum, nema að Ný-Sjálend- ingum veröi meinuð þátttaka. A 3.tug Afrikuþjóðar haf nú þegar hætt við að taka þátt i Ólympi'u- leikunum og enn fleiri hafa það til athugunar. Maður veröur þó aö vona að Ólympiuleikarnir gangi sinn gang samkvæmt áætlun. Hafa verður i huga aö i kringum 8000 mannshafa æftfyrir þessa leika i fjögur ár. Talið er aö um einn milljarður manna muni fylgjast með leikunum á sjónvarps- skerminum um allan heim. Unniö að gerö iþróttamannvirkjana í Montreal. Agætis tækifæri. Nú eru ólympiuleikarnir orðnir ágætis tækifæri fyrir stjórnmálamenn og æsingar- menn, til að koma skoðunum sinum á framfæri við al- menning. Og þetta tækifæri er vel notað. Afrikumenn féllu aðeins i skuggann fyrir Taiwan-mönnum, en eftir aö það mál var útkljáð, blómstr- uðu skoðanir Afrikumanna I fjölmiðlum. Hvað með iþrótta- mennina? En hvaö finnst iþróttamönn- unum um þessar deilur. Flestir hafa meira að gera við undir- búning sinn undir keppnina en svo, að þeir skipti sér mikið af þessu. Um stjórnmálalegt rif- rildi er þeim hjartanlega sama. Vinsæll borgarstjóri. Borgarstjórinn i Montreal er afar vir.sæll meðal ibúa borgar- innar „Sjáið hvað hann hefur gert fyrir borgina”, segja þeir stoltir. Og þeir hafa ástæðu til að vera hreyknir. Montreal er glæsileg borg.Þetta er borg sem ekki er byggð samkvæmt leik- reglum auðvaldsins”. Það eru hinir riku, sem kvarta yfir sköttunum, en ekki lágstéttar- fólkið”, sagði leigubilsstjóri einn. „Hér gét ég unnið mér inn allt að 7$ á timann. Það eru miklir peningar og þá er það minnsta sem maöur getur gert, aö standa i skilum með skatta við bæöi borgina og Qie- beck-fylkið. Þaö, að nokkrir iðnaðarmenn notuðu ólympiu- leikana til að knýja fram hærri laun, er eölilegt, þvi þó nokkur veröbólga hefur dunið á okkur síðustu fimm árin,” sagöi hann að lokum. Glæsileg iþróttamann- virki. Vonandi fá islenzkir sjón- varpsáhorfendur að sjá mann- virkin, sem Kanadamenn reistu fyrir þessa leika. Þegar sjón- varpið kemur úr frii. Þau eru mjög glæsileg og verða notuð um ókomna framtið, þó þau séu 'fyrst og fremst reist með Ólympiuleikana i huga. Að visu eru þau ekki fullgerö ennþá, að mestu ómáluð og turninn frægi óreistur, en það ætti ekki að eyðileggja ánægjuna fyrir þeim þúsundum, sem fá að njóta þeirrar ánægju að fylgjast með þessu mesta iþróttamóti jaröar- búa úr sætum sinum I iþrótta- mannvirkjum Montreal-borgar. ATA. ísland ekki á Ól. í skák I f réttatilkynningu, sem Alþ.bl. hefur borizt frá Skáksambandi (slands, segir að Island muni ekki taka þátt í Olympíumótinu að þessu sinni. Jafnframt segir að stjórn S.l. harmi þau pólitísku átök, sem orðið hafa í sambandi við þetta mót. Ætla að byggja upp Aöalstefnumál núverandi stjórnar S.l. er að efla og byggja betur upp skáklifið hér innan lands, sérstaklega Ut á lands- byggðinni. Með þvi m.a. að auka skáktengsl milli byggðar- laea. Meö bvi m.a. aö auka skáktengsl milli byggðarlaga. Jafnframt þvi hyggst stjórnln ‘gefa okkar efnilegustu skák- mönnum tækifæri ti) þátttöku á mótum og æfingabUðum i nágrannalöndunum. Þar sem fjárhagur Skáksam- bandsins er knappur, telur stjórnin þaö óráölegt að kippa stoðunum undan honum með að senda lið til Haifa i Israel. Ol.sk-ákmótin eru haldin á tveggja ára fresti. Abyrgðahluti Þá segir I fr^ttatil- kynningunni: Stjórnin telur það nokkurn ábyrgðarhluta að stuðla að ferðum manna á þess- ar slóöir, jafnvel i andstöðu fjöl- ■skyldna þeirra eða foreldra, með tilliti til þess ófriðará- stands, sem nU rikir fyrir botni Miðjarðarhafs. En Haifa er skammt frá landamærum Isra- els og Libanon. Þá hefur komið fram að okkar sterkustu skák- menn eru litt hrifnir af þvi að tefla á þessum slóðum eöa geta ekki komið þvi við af ýmsum á- stæðum. Ekki veröur sagt aö þetja skákmót fari fram i'neinum ser- stökum ólympiuanda. Sterkasta skákþjóð heims, Sovétrikin, hafa neitað að taka þátt i mótinu. Ekki er ósennilegt aö nokkrar austantjaldsþjóðir fylgi fordæmi þeirra. Þá efna Arabalöndin til sér- staks ólympiumóts i Libiu á sama tima, til aö andæfa mótinu i ísrael. Það er þvi ljóst að hér verður ekki um fullgilt ólympiuskakmót að ræða. JEG

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.