Alþýðublaðið - 22.07.1976, Blaðsíða 7
WaSw'Fimmtudagur 22. júlí 1976.
7
telja til frétta, aö i s.l. marz-
mánuði var opnuð á ný á vegum
Ferðaskrifstofu rikisins upplýs-
ingaskrifstofa i New York, er
starfar i tengslum viö samsvar-
andi skrifstofur hinna Norður-
landanna. Hafði slik skrifstofa
áður verið starfrækt i þrjú ár,
en orðið að loka á miðju árinu
1974 vegna fjárskorts Ferða-
skrifstofu rikisins. Einnig á
Ferðaskrifstofan með Dan-
mörku aðild að upplýsingaskrif-
stofu i Zurich i Sviss.
1 mai s.l. voru á Alþingi sam-
þykkt ný lög um skipulag ferða-
mála, en samkvæmt þeim lög-
um verður nú veruleg breyting
á starfssviði Ferðaskrifstofu
rikisins. Færast nú yfir til
nýstofnaðs Ferðamálaráðs
Islands þau verkefni, er Ferða-
skrifstofa rikisins hefur haft
með höndum á sviði land-
kynningar, upplýsinga- og leið-
beininga-þjónustu fyrir ferða-
menn, námskeiðahald fyrir
túlka og leiðsögumenn, o.fl.
Er nefnt Ferðamálaráð
íslands hefur formlega tekið til
starfa, mun starfsemi Ferða-
skrifstofu rikisins beinast i þann
farveg að vera almenn ferða-
skrifstofa, er annast sölu far-
miða, útvegum gistihúsnæðis,
skipulagningu og sölu hópferða
og móttöku erlendra ferða-
manna.
Eitt er það verkefni, er áfram
verður i verkahring Ferðaskrif-
stofu rikisins, en þaö er starf-
ræksla sumarhótela i húsnæði
heimavistarskóla, með öörum
orðum rekstur EDDU-hótel-
anna.
Þar telst það helzt til tiðinda
aðimiðjum júni-mánuði s.l. var
opnað nýtt og glæsilegt EDDU-
hótel i heimavist Menntaskól-
ans á Isafirði. Með þvi er stór-
bætt aðstaða ferðafólks til að
kynnast hinni stórbrotnu
náttúrufegurð Vestfjarðanna,
en oft á tiðum hefur verið erfitt,
að sumarlagi, að fá inni á þeim
hótelum, sem starfrækt hafa
verið á Vestfjarðakjálkanum.
Hefur aðsóknin að þessu nýja
EDDU-hóteli þegaroröið allgóð,
og hið sama er að segja um hin
hótelin 9, þar er aðsóknin, þegar
á heildina er litið, sizt minni en
á siðastliðnu sumri. Fara hér á
eftir helstu upplýsingar um
hvert hinna 10 EDDU-hótela:
Hótel EDDA
Reykholti 1 Borgarfirði. Opið 13.
júni — 25. ágúst.
Simi um Reykholt (02).
64herbergi, 128 rúm, ennfremur
svefnpokapláss.
Hótelstjóri Vilhjálmur Einars-
son.
Hótel EDDA,
Isafirði. Opið 16. júni — 25.
ágúst.
Simi 94-3876.
38 herbergi, 70 rúm.
Hótelstjóri Sóley Ingólfsdóttir.
Hótel EDDA,
Reykjum i Hrútafirði. Opið 25.
júni — 25. ágúst.
Simi um Brú (95-1111).
34 herbergi, 68 rúm, ennfremur
svefnpokapláss.
Hótelstjóri Aðalbjörg Ólafs-
dóttir.
Hótel EDDA,
Húnavöllum við Reykjabraut.
Opið 18. júni — 25. ágúst.
Simi 95-4370.
23 herbergi, 46 rúm, ennfremur
svefnpokapláss.
Hótelstjóri Helga Helgadóttir.
Hótel EDDA,
Akureyri. Opið 18. júni — 31.
ágúst.
Simi 96-11055.
48 herbergi, 95 rúm.
Hótelstjóri Rafn Kjartansson.
Hótei EDDA,
Eiðum i Hjaltastaðaþinghá.
Opið 22. júni — 25. ágúst.
Sfrni um Eiða (02).
47 herbergi, 105 rúm, ennfremur
svefnpokapláss.
Hótelstjóri Jón Grétar Kjart-
ansson.
Hótel EDDA,
Kirkjubæjarklaustri. Opið 5.
júni — 31. ágúst.
Sfrni 99-7026.
18 herbergi, 34 rúm, ennfremur
svefnpokapláss.
Hótelstjóri Margrét ísleifs-
dóttir.
Hótel EDDA,
Skógum undir Eyjafjöllum.
Opið 13. júni — 25. ágúst.
Simi um Skarðshlið (02) og um
Hvolsvöll (99-5111).
32 herbergi, 69 rúm, ennfremur
svefnpokapláss.
Hótelstjóri Aslaug Alfreðs-
dóttir.
Hótel EDDA,
Laugarvatni (Menntaskól-
anum). Opið 17. júni — 31.
ágúst.
Simi 99-6118.
88herbergi, 138 rúm, ennfremur
svefnpokapláss.
HótelstjóriErna Þórarinsdóttir.
Hótel EDDA,
Laugarvatni (Húsmæðraskól-
anum). Opið 15. júni — 31.
ágúst.
Simi 99-6154.
27 herbergi, 54 rúm.
Hótelstjóri Huld H. Goethe.
19. júli 1976.
Landkynningarstarf Ferðaskrifstofu ríkisins er
verulega fólgið í bréfaskriftum við þúsundir
útlendinga, sem sýnt hafa áhuga á að kynnast
landinu og vilja komast hingað
Frá Kálfaströnd við Myvatn.
Ágrip af sögu Þorlákshafnar
Framhald af opnugrein Gunnars Markússonar
Nú meðan afmælishátiðahöld fara fram á Þorlákshöfn kom út 3. tbi.
Sveitarstjórnarmála þessa árs. Þessa grein ritaöi Gunnar Markússon
fyrir það rit, og birtist greinin hér meö góöfúsu leyfi ritstjóra.
Var þá hægt að moka hér upp
gulli á þessum árum? Ekki úr
sandinum,en þeir,sem að matinu
unnu, gerðu sér ljóst, að mikið
gull var geymt i Selvogsbanka, og
hér höfðu verið hönnuð þau
mannvirki, er þurfti til að taka á
móti þvi.
Meitillinn hf. stofnaður
Arið 1949 var Meitillinn h.f.
stofnaður að frumkvæöi Egils
Thorarensen. í september það ár
kom fyrsta skip þess fyrirtækis
hingað. Var það 22 tonna eikar-
bátur, er Brynjólfur hét. Félagið
hóf svo útgerð á vertiðinni 1950.
Þann vetur voru bátar þess 5 og
hétu allir nöfnum Skálholtsbisk-
upa. Flaggskip þess flota var
Þorlákur, er var27 tonn. Samtals
voru þessir 5 bátar 104 tonn.
Fyrstu starfsmenn Meitilsins
settust að i bæjarhúsum bóndans.
Þannig sátu gamli og nýi timinn
hér i tvibýli um skeiö og skildu i
bróðerni.
Á manntalinu áriö 1950 voru
skráðir hér i Þorlákshöfn 4 karl-
menn, en engin kona. Arið eftir,
þegar fyrstu húsin voru reist,
voru komnar hingað tvær fjöl-
skyldur og7einhleypingar, alls 14
manns. Nú eru hér 834 ibúar með
lögheimili, þar af 406 innan við
tvitugt, en aðeins 5, sem náðhafa
áttræðisaldri. Meðalaldur manna
hér er nú 24 ár, og má segja, að sá
hafi verið meðalaldur ibúanna öll
árin, sem þorp hefir staðið hér.
Barnafræðsla
Olfushreppur byggði á sinum
tima heimavistarskóla fyrir börn
i Hveragerði. Þar áttu bænda-
börnin héðan að stunda sitt
skyldunám, eins og önnur börn
sveitarinnar.
Fyrstu ár þorpsins hér voru
engin skólaskyld börn á staðnum.
Það var ekki fyrr en á árunum
1954-1955, sem þurfti að fara að
hugsa um barnafræðslu i Þor-
lákshöfn. Þá varð hver að bjarga
sér, éins og bezt hann gat. Einu
barni var komið fyrir á Selfossi,
og með öðru var lesið heima.
Sumarið 1956 voru hér 9 skóla-
skyld börn. Þá um haustið var
sett hér á stofn útibú frá skólan-
um i Hveragerði og Kristján frá
Djúpalæk ráðinn til kennslunnar.
Fram að jólum var kennt i sjó-
búð, i janúar var verið i skúr, sem
reyndist óhæfur. Þá var flutt i
ibúð, sem útibússtjóra K.A. hafði
verið ætluð. Svona gekk þetta
næstu árin. Kennt var, þar sem
hægt var að fá inni fyrir nemend-
ur og kennara.
1 upphafi ársins 1962 var flutt i
skólahús staðarins. Byggingu
þess var þó ekki lengra komið en
svo, að mótatimbur klætt tjöru-
pappa þénaði sem útihurö og
rúðugler. Útbúnaður þessi hélt
vindi og vatni að mestu utan
veggja, en rafmagn og olia gáfu
húsinu birtu og yl.
Þetta vor luku 37börn prófi hér.
Þá var Þorlákshöfn gerð að sér-
stöku skólahverfi. Aukning nem-
enda hefur verið stöðug og nú,
þegar hérhefir veriö kennt i rétt
20 ár, er tala nemenda 170. Vant-
ar aðeins tug til að tvitugur standi
skólinn meö 20 sinnum fleiri nem-
endum en hann byrjaði með.
Kennarar voru 9 i vetur eða jafn
margir og nemendurnir fyrsta
árið.
Gamall kirkjustaður
A fyrri öldum, þegar hestar
postulanna máttu heita eina far-
artæki alþýðu hér á landi, voru
kirkjur miklu viðar en nú er.
Þorlákshöfn er einn þessara
gömlu krikjustaða. Hvenær eða
hve lengi hér stóð kirkja, er mér
ekki kunnugt, en vist er, að hér
var hálfkirkja fram yfir miðja 18.
öldina.
Kirkjugarður var fyrir norðan
bæjarhúsin, og voru flutt þaðan
að Hjalla bein, er upp komu i
jarðraski, er þar var gert i sam-
bandi viðhafnargerðinaárið 1962.
Hökull úr Þorlákshafnarkirkju
er á minjasafninu á Selfossi.
Mér er fullljóst, að mikið vant-
ar á að sögu Þorlákshafnar hafi
verið gerð tæmandi skil. Til þess
að ég geti gert það, vantar mig
tvennt, sem ekki verður án verið,
en það er þekking og timi til að
raða saman þeim sprekum.sem
rekið hafa á fjörur mfriar. En
enginn Sunnlendingur lætur hug
fallast, þótt ekki sé alhirt um höf-
uðdag, ogþað, sem við ekki kom-
um i verk i dag, munu afkomend-
ur okkar gera á morgun.
Þegar Þorlákur Guðmundsson,
2. þingmaður Arnesinga, mælti
fyrir þeirri tillögu sinni á Alþingi
árið 1875, að hér mætti verða
verzlunarstaður, sagði hann
m.a.: „Það mun fara með þetta
mál sem hvert annað, að væri það
á skynsamlegum ástæðum byggt,
mundi það hafa framgang, en
væri það af heimsku stofnað,
mundi þaö meö henni fyrirfar-
ast.”
Það er von min,aðsú verði gifta
Þorlákshafnar, að hvert það mál,
semerá skynsamlegum ástæðum
byggt, nái fram að ganga, en það,
sem er af heimsku til stofnað,
muni með heimskunni fyrirfar-
ast.