Alþýðublaðið - 22.07.1976, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 22.07.1976, Qupperneq 12
12 Fimmtudagur 22. júlí 1976. sa» Orðsending til kaupenda Alþýðublaðsins Þar sem Reykjaprent hf. fer með allt skrifstofu- hald fyrir Alþýðublaðið eru kaupendur vinsam- lega beðnir að hafa samband við skrifstofu Reykjaprents hf., Hverfisgötu 44, simi 86611, ef um er að ræða greiðslu á áskriftargjöldum eða fyrir auglýsingar. xfe & xfe C&sm& Ég get fullvissað frúna um það að þetta er nákvæmlega sama efnið i báðum kjólunum... Vinsamlegast leið- réttið í símaskránni FENGIÐ NYTT SÍMANÚMER 81866 Beinir sin lalþýdu IðM nar og eftir lokun skiptiborðs eru Afgreiðsla 14900 Auglýsingar 14906 Ritstiórn er Prentsmiðja 81976 iiðumula 11 ' flutt í S Hver er Mondale? „Þrivegis hefi ég skipt um skoðun i leit minni að varaforsetaefni, á undanförnum mánuðum”, segir forsetaefnið, Jimmy Carter. ,,Ég lit svo á”, bætir hann við, ,,að hann sé maður, sem hafi brennandi áhuga á og rikan skilning á þörfum þeirra, sem minnst mega sin i þjóðfélaginu. Það er sannfæring min, að valið sé hárrétt.” myndi þvi fylgja full ábyrgð, lét Mondale til leiðast. Carter var i tilefni af þessu spurður, hver yrðu fyrstu á- byrgðarstörf Mondales. Þvf svaraði hann, og brosti við, á þá leið, að það yrði auðvitað aðstoð við að vinna forsetakosn- ingarnar! Eins og kunnug er, hafði Carter augastað á sex mönnum i sæti varaforseta, og það var ekki fyrr en á siðustu stundu, sem hann ákvað sig. Hann var að þvi spurður, hversvegna valið hefði fallið á Mondale. Þvi svaraði Carter svo: „Eftir nána athugun og viðræður við þá, sem voru mér handgengnir i forkosningunum, fann ég, að enginn var liklegri til að veita mér þá aðstoð I hinu viðamikla embætti, en einmitt Mondale. Hér við bætist að hugmyndir , okkar falla mjög saman, bæði i innanrikismálum og utanrikis- málum. Þvi hefi ég bjargfasta trú á, að stjórn okkar verði bæði samhent og affarasæl.” Walter Frederic Mondale er fæddur i smáborginni Ceylon i Minnesota, sonur velmetins meþódistaprests af norskum ættum, og einn af sjö systkinum. Hann gekk i almennan skóla og þaðan i Mac-Alisters college i St Paul. Þaðan lá leiðin i University of Minnesota, og útskrifaðist þaðan 1951 með lof- legum vitnisburði. Hann vann fyrir sér meðan á skólagöngunni stóð við mat- vælapökkun. Snemma hneigðist hugur hans að stjórnmálum og hann hefur frá fyrstu verið öruggur fylgis- maður Hubert Humphreys og átt sinn rika þátt i velgengni hans i kosningum innan fylkis- ins. Skömmu eftir að hann útskrif- aðist tók hann þátt i Kóreustrið- inu og varð sveitarforingi. Arið 1953 innritaðist hann i lagaháskóla Minnesotarikis og hóf lögfræðistörf þrem árum siðar. Eftir að hafa starfað um tveggja ára skeið sem sérlegur aðstoðarmaður rikissaksókn- ara, var hann útnefndur yfir- maður þeirrar stofnunar um tveggja ára skeið, þegar rikis- saksóknari lét af störfum f’yrír aldurs sakir. Hann var svo kjörinn i starfið með miklum meirihluta. Hann tók sæti i öldunga- deildinni um tveggja ára skeið, þegar Humphrey varð varafor- seti, og hefur siðan verið endur- kosin við sivaxandi fylgi. Eins og er, starfar hann I fjár- málanefnd öldungadeildarinnar, sem metin er ein þýðingar- mesta nefnd Bandarlkjaþings. Þar hefur hann beitt sér einkum i skáttamálum og félagsmálum, og getið sér hið bezta orð fyrir hófsamt frjálslyndi. Þykir hann i mörgu minna á Hubert Humphrey. Sjálfur segir hann, að mesta áhugamál sitt sé, að létta byrð- ar fátækra borgara og efla menntun með auknum fjár- framlögum til skólamála. 1 utanrikismálum er hann með- mæltur slökun og vill lækka framlög til hersins. „Við höfum i nóg horn að lita heimafyrir og meðan svo standa sakir, eigum við að meta rækilega hverju sinni aðstoð við erlendar þjóðir. Svipað er ástatt um bruðl okkar til geimrannsókna. Þar má að skaðlausu lita sér nær”. Mondale segir frá þvi, að fyrir tveim árum hafi sér meira en dottið I hug, að keppa um fram- boð til forsetakjörs. En við nán- ari athugun hafi hann horfið frá þvi. „Þegar ég skoðaði hug minn betur”, segir hann, „fann ég að ég hafði ekki nógu brenn- andi löngun til þess embættis, til þess að steypa mér út I alla þá baráttu, sem kosningarnar krefja. Vissulega dáist ég að þeim, sem hafa slikan baráttu- vilja. En ég er bara ekki einn að þeim”! Mondale var að þvi spurður, hvernig hann hugsaði til varfor- seta embættisins, ef til kæmi. Hann svaraði á þá leið, að hann hefði haft takmarkaðan áhuga á að verða einskonar leikbrúða. En þegar Carter lýsti þvi yfir, að það væri einlægur ásetningur sinn, að hafa náið samband við varaforsetann, og hafa hann i hvivetna með I ráðum, bæði i innan- og utanrikismálum, enda Fokdreifar Umgengni við munaðarvörur. Nokkrar umræður hafa spunnizt um átengisneyzlu landsmanna undanfarið, og sitt- hvað borið á góma. Varla liður sá dagur, að ekki fréttist um bif- reiðarstjóra, sem teknir hafa verið ölvaðir við akstur, og er það vissulega stóralvarlegt mál. Kraftmikil bifreið i höndum ölvaðs ökumanns má metast sem áhrifamikið manndráps- tæki, og hvaö sem öðru liður al- varlegur slysavaldur. Enda þótt viðurlög hafi verið nokkuð hert við slikum aðförum, verður að segja, að það má vekja nokkra, já alls ekki litla furðu, að þegar svo heitir, að ökumenn hafi verið sviptir ökuleyfi æfi- langt, þá séu þeir samt komnir innan tiltölulega skamms tima á götuna aftur, sælir og bros- andi i ökumannssæti, með blessun laganna varða i bak og fyrir! Framkvæmd laga á þennan veg hlýtur fremur að vekja vorkunnsemi, ef ekki aðhlátur, heldur en vera alvarleg viðvör- un til eins eða neins. Nóg um þetta i bili. Rétt i þessu var rikisútvarpið að birta fremur skuggalegar fregnir af áfengisneyzlu lands- manna, sem sifellt virðist fara I vöxt, og raunar ekki að sjá, að hér riki sérstakt kreppuástand I fjárhagsgetu landans. Aðsókn að vinveitingahúsum hér á höfuöborgarsvæðinu og viöar tekureinnigi sama streng.Er þó ekki þvi fyrir að fara, að verðlag þar sé einkar hagstætt. Margir kenna veröbólgunni frægu og illræmdu um þverr- andi virðingu okkar fyrir fjár- munum, og mikið er talað um kapphlaup viö aö breyta pening- um, sem mönnum kunna að áskotnast, i eitthvað, sem álit- legra sé að eiga en peninga. Varla munu þó áfengiskaup flokkast undir þá hluti, enda er áfengi að jafnaöi uppgangs- vara.sem sjaldan mun lengi við hendur föst. Samt er það keypt og þess neytt ósleitilega sem dæmin sanna. Fyrrum áhrifamestu samtök til varnar áfengisbölinu, Stór- stúka tslands, hefur nýlega haldið hátífelegt niræðisafmæli sitt með pomp og pragt. Vissu- lega mega þessi samtök muna sinn fifil fegri, en þau eiga sina sögu, sem ekki er ómerkur þátt- ur, þó undanfarið hafi þeirra minna gætt i þjóðlifinu en áður fyrr. Islenzka rikið hefur nú um meira en hálfrar aldar skeið átt og rekið einkasölu á áfengi, þó samfelld saga sterku vin- anna sé ekki meira en fertug að aldri. Svo er nú komið, að áfengis- saian er orðin slikur tekjustofn, aö skarðið yrði æöi stórt i rikis- búskapnum, ef hennar nyti ekki við. Ýmislegt skrýtið virðist nú samt vera i þvi kýrhöfði og hreint ekki jafnt yfir alla ganga. Nýlega var upplýst, að stjórnarráðsmenn ættu kost á þvi að kaupa, að visu, litinn áfengisskammt árlega á lágu verði, sem talin er áratuga gömul hefð. Reiknað hefur verið út, að þessi „hlunnindi” muni nema tæpum tveim milljónum króna að núverandi verðmæti, ef gert er ráð fyrir að allir taki sinn skammt! Risna ráðherranna á vlni keyptu á kostnaðarverði er svo annar kapituli. I HREINSKILNi SAGT

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.