Alþýðublaðið - 27.07.1976, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 27.07.1976, Qupperneq 5
bSaSfö1' Þriðjudagur 27. júlí 1976. UTLOND 5 r - SCHMIT OG FÉLAGAR, BLETTIR A ASJÓNU LÝÐRÆÐISINS? Yfirlýsing sú, er Helmut Schmith, kanslari Vestur-Þýzka- lands, gaf út i siðustu viku, um að vestræn riki myndu e.t.v. hætta efnahagslegum stuðn- ingi við ítaliu, kæmust kommúnistar þar til valda hefir valdið miklum úlfaþyt um gjörvalla vesturálfu. Ekki sizt hefir menn greint á um hvert var eiginlegt innihald orða kanslarans. Hvað meinti hann i raun og veru? Spurningar og svör Já, spurningarnar eru marg- ar og svörin eru enn fleiri. Tals- maöur stjórnarinnar i Bonn segir málið þannig vaxið að s.l. miðvikudag hafði bandariskur blaðamaöur tjáð Schmith að kæmi til þess að einhver flokkur gengi til stjórnarsamstarfs við kommúnista á Italiu myndu Bandarikjamenn fara varlega i efnahagslegum stuðningi sinum við landið. Schmidt svaraði þvi til að afstaða Breta, Frakka og Vestur-Þjóðver ja væri hin sama. „Það er þó ekki um að ræða afskipti af innanrikismálum Itala”,sagði talsmaðurinn, „við viljum einungis gefa þeim, sem kemur til með að mynda næstu rikisstjórn á ítaliu, hugmynd um hvers er að vænta, að við viljum gera það timanlega”. Sem sagt ekki „afskipti” af innanrikismálum, heldur „ábendingu” um hverjir yrðu illa liðnir i stjórn. Málið rætt á Puerto Rico fundinum? Schmidt kanslari hefir sjálfur lýst þvi yfir að möguleiki á italskri stjórn með þátttöku kommúnista hafi verið rædd á Puerto Rico-ráðstefnunni nú á dögunum. Þó ekki á hinum opin- beru samkomum heldur á óopinberum fundum sem hinir bandarisku og evrópsku leiötog- ar héldu með sér. Ekki taka allir undir þessi orð kanslarans. Fyrrverandi utan- rikisráðherra og núverandi bráðabirgðaforsætisráðherra Italiu, Aldo Moro, sem var leiðtogi itölsku sendinefnd- arinnar i Puertu Rico, kveðst hvorki hafa heyrt af slikum fundi né tekið þátt i honum. Samkvæmt þvi voru Italir eina vesturevrópurikið á Puerto Rico ráðstefnunni, sem ekki tók þátt i umræðum um framvindu mála i itölskum stjórnmálum. Ekki eru þó öll kurl komin til grafar. Ef trúa má yfirlýsingum Bandarikjamanna eru fullyrð- ingar Moros ekki réttar i öllum atriðum. Talsmenn stjórnarinn1 ar i Washington fullyrða, að þrátt fyrir að fulltrúar Itala hafi ekki verið viðstaddir umræður um pólitiska framtið Italiu hafi þeim verið gefnar fullkomnar upplýsingar um viðræðurnar — eftir á. Gerald Ford, Bandarikjafor- seti, neitaði að gefa nokkrar yfirlýsingar þegar ummæli Helmut Schmidts voru borin undir hann, — en forsetinn kvað Bandarikjamenn hafa gert mönnum ljósa afstööu sina, nú sé það ítala að velja. Satt eða logið? A þriðjudag, fyrir viku, var gefin út opinber yfirlýsing af hálfu stjórnarinnar i Washing- ton. Þar kom fram að á fundin- um i Puerto Rico hefðu Banda- rikjamenn, V-Þjóðverjar, Bret- ar og Frakkar tekið þátt i um- ræðum um hvort hætta skyldi allri efnahagsiegri aðstoð við Italiu kæmust kommúnistar til valda. 1 yfirlýsingunni var þess enn- fremur getið að engin endanleg ákvörðun hefði veriö tekin um þetta mál. Þó vildi talsmaður stjórnarinnar ekki þvertaka fyrir at rikin hefðu komið sér saman um einhverjar aðgerðir. Þessi yfirlýsing Bandarikja- stjórnar varpar nokkuð undar- legu ljósi á ummæli brezka utanrikisráðherrans Anthony Crosslands. Crossland kvaðst „mjög undrandi” er honum var sagt frá yfirlýsingu Helmut Schmidts. „Stóra-Bretland hefir ekki tekið þátt i neinum slikum viðræðum á Puerto Rico, né á nokkrum öðrum stað. Stefna brezku stjórnarinnar er ljós: Við munum ekki skipta okkur af innanrikismálum Itala.” Frakklandsforseti, Gisgard d’Estaing hefir einnig visað á bug öllum ummælum um af- skipti af innanrikismálum ttaliu. Þeir eru margir sem reyna nú allt hvað þeir geta að þvo hendur sinar af viðræðunum á Puerto Rico. Eitt er þó ljóst að ekki segja allir allan sannleik- ann. Hver er ávinningurinn Osjálfráttspy r maður sjálfan sig hver tilgangur Helmut Schmidts hafi verið með yfirlýs- ingunni sem var upphaf allra látanna. Og hefir þeim tilgangi verið náð? Hefir Schmit gert itölskum stjórnmálamönnum, sem ekki vilja stjórnarþátttöku kommún- ista, léttara fyrir? Nei, þvert á móti. Ef Andreotti hefir til þessa átt i erfiðleikum með að mynda starfhæfa rikisstjórn Kristilegra demókrata, rikis- stjórn sem gæti orðið langlif á italskan mælikvarða, þá er hon- um það liklega gjörsamlega of- viða nú. Þvi er skiljanlegt að Kristilegir demókratar á Italiu séu bitrir út i kanslarann v- þýzka. En hafa þá yfirlýsingar v- þýzkra og bandariskra stjórn- valda gert Berlinguer auðveld- ara fyrir að koma kommúnist- um i valdastólana eftir þingræðisleiðum. Varla, — enda var það vart ætlunin. Lýðræðishugsjónin hefir beðið hnekki Hver áhrif hefir þetta mál haft á lýðræðisásjónu vestur- landa. Þvi svarar Claud Dhey- son fulltrúi Frakka hjá Efna- hagsbandalaginu. „Hingað til hefi ég haldið að lýðræði þýddi rétt hverrar þjóðar til að kjósa sér þá stjórn sem hún helzt vildi hafa.” Þeir einu sem telja sig njóta einhvers góðs af öllum vand- ræðunum eru hin smáu riki Efnahagsbandalagsins, sem telja að Puerto Rico/ttaliumálið sýni gjörla á hverju sé von þeg- ar stóru rikin fjögur (Frakk- land, Bretland, V-Þýzkaland og Italia) rjúfi einingu bandalags- ins og haldi á ráðstefnur um vestræn málefni, — ein sins liðs. ES IDI AMIN: SNILLINGUR. - EÐA TRÖÐUR? Af þeim einræðisherrum sem hafa þjakað ibúa Afriku bæði fyrir og eftir nýlendutimann, er forseti Uganda, Idi Amin senni- lega þeirra litrikastur ef svo mætti að orði komast — og jafn- fram morðóðastur. Þó ekki sé tekinn nema hluti þeirra fjölda- morða sem hann hefur á sam- viskunni, fer tala þeirra sem hafa verið drepnir fljótlega upp i 100.000 manns. Þetta er afleið- ing tilrauna Amins til að útrýma andstæðingum i þjóðfélaginu, segir blaðamaðurinn William Schwarck i grein sem hann ritar i Arbeiterbladet. Pólitiskur trúður 1 löndunum utan Afriku er litiö á þennan fyrrum liðsfor- ingja sem pólitiskan 'trúð, bjálfa, sem hefur leikið lausum hala á stjórnmálasvið- inu i Afriku, en sem einnig er hugsanleg ógnun við friðinn i hinum svarta heimshluta. I Afriku fara hins vegar aðrar sögur af Amin. Vestrænir sendi- fulltrúar, sem af og til hafa samskipti við forsetann segja að hann sé alls ekki eins vitlaus og af er látið. I öðru lagi, að hann sé ekki geggjaður og i þriðja lagi aö hann njóti stuðnings kænna stjórnmálamanna, sem koma i veg fyrir að brjálæðis- legustu hugmyndir hans séu gerðar heyrinkunnar. Persónulegt vald Það dylst engum aö Amin hefur persónulegt vald i Uganda, sem fáir þjóðarleiðtog- ar aörir geta státað af i heima- löndum sinum. Menn af Kawka- ættbálknum skipa allar æðstu stöður innan hersins og rikis- stjórnarinnar. Aðrir af ætt- bálknum i Súdan, sem eru vin- veittir Amin, hafa fengið að flytjast til Uganda eftir að hann komst til valda. Þetta skýrir siðasta dæmið um stjórnkænsku Amins, þegar hann hótaði að segja nágranna- rikinu Kenya strið á hendur. 1 febrúar sendi Amin frá sér tilkynningu þess efnis, að land- svæöi sem er i u.þ.b. 25 kiló- metra fjarlægð frá Nairobi höfuðborg Kenya, tilheyrði Uganda. Stjórn Kenya mótmælti þessu harðlega, og eftir nokkurt þóf, tók Amin ummæli sin til baka. En nú siðustu vikurnar hafa deilurnar, ásamt striðsyfir- lýsingum blossað upp á ný. Það er ótrúlegt, en liklega satt, að striðsógnanir Amins séu liður i ráðagerð hans um að löggilda veru súdanskra ráð- gjafa hans i Uganda. Sagt er að Amin hafi engar raunverulegar áætlanir um að segja Kenya strið á hendur, en með þvi að staðhæfa að Uganda eigi lands- svæöi i Kenya og Súdan, getur hann réttlætt aö menn þaðan gegni háttsettum embættum i rikisstjórn Uganda. Sneypuför Callaghans Þá segir sagan að svipuðu máli gegni um atburðinn sem átti sér stað þegar brezki blaða- maðurinn Dennis Hill var dæmdur til dauða eftir að hafa nefnt Amin „harðstjóra” i dag- bók sinni. Það var ekki fyrr en James Callaghan lagði upp i eina mestu sneypuför sem brezkur utanrikisráðherra hefur nokkru sinni farið, að brezku rikis- stjórninni tókst að bjarga lifi Hills. Hver annar hefði látið sér detta i hug að þvinga brezkan utanrikisráöherra til að takast á hendur háifgerða betliför til höfuöborgar I Afriku, spyr Amin og skellihlær að öllu saman. Og þetta hefur treyst álit stuðningsmanna forsetans á honum þvi gifurlega valdi sem hann hefur. Hliðstæðan skilning er hægt að leggja i yfirlýsingar Amins þess efnis að „Hitler hafi verið einn af litrikustu persónuleikum sögunnar, en þvi miður hafi hann ekki lifað nógu lengi, til þess að honum auðnaðist að leysa gyðingavandamálið”. Ekki má heldur gleyma skeytinu sem hann sendi Snow- don lávaröi eftir skilnað hans og Margrétar prinsessu: „Það skyldi enginn kvænast konu sem stendur hærra i þjóðfélags- stiganum. Þér kunnið yður engin takmörk, maður minn.” — Eða skeytaflóðið sem Amin sendi til Nixons þegar Waterget- hneyksliö reis sem hæst, en þar gaf Amin „kollega” sinum ýmis háðuleg ráð varðandi Water- gate. Geggjaður — eða bara einfaldur? Starfsmenn brezku utanrikis- þjónustunnar, sem hafa haft ýmis óþægindi af tiltækjum Amins, hafa lengi igrundað hvort hann sé geggjaður, eða bara svona einfaldur. En eftir þvi sem timar liða hafa menn neyíist til að trúa þvi, að það leynist eitthvað annað og meira bak við feitt trúðsandlitið en eingöngu þörfin fyrir aö láta bera á sér. —JSS

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.